Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 45
DAGBÓK
Lífið í landinu
Fundaröð Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs
Þingmenn og aðrir forsvarsmenn Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs heimsækja byggðir landsins næstu vikur, fara
á vinnustaði og halda almenna stjórnmálafundi. Sérstök
áhersla verður lögð á sveitarstjórnarmál, atvinnu-, umhverfis-
og velferðarmál og Ísland og Evrópusambandið.
Í febrúar verða fundir á eftirtöldum stöðum:
Mið. 6. feb. Tryggvaskála, Selfossi, kl. 20:00
Fös. 8. feb. Hótel Þórshamri, Vestmannaeyjum, kl. 20:00
Lau. 9. feb. Álafoss Föt Bezt, Mosfellsbæ, kl. 11:00
Fim. 14. feb. Kænunni, Hafnarfirði, kl. 20:00
Fös. 15. feb. Hótel Keflavík, Reykjanesbæ, kl. 20:00
Lau. 16. feb. Hótel Borgarnesi kl. 11:00
Lau. 16. feb. Þinghóli, Kópavogi, kl. 11:00
Fim. 21. feb. Kirkjubraut 2, Akranesi, kl. 20:00
Fim. 28. feb. Kristjáni IX, Grundarfirði, kl. 20:00
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Mörg ykkar eru vinsæl og
öll eruð þið vel liðin. Vegna
þess að ykkur er eðlislægt
að eiga samskipti við aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Rifrildi um trú þína mun ekki
verða þér til góðs í dag. Það
er sama hvað þú segir, þú
færð ekki aðra til að sam-
sinna þér í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur áhyggjur af því að
einvher kunni að vera að mis-
nota þig fjárhagslega eða að
misnota eigur þínar. Mundu
að þú hefur fullan rétt á því að
verja hagsmuni þína.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir laðað að þér ein-
hvern í dag sem er staðráðinn
í að gera þig að betri manni.
Auðvitað fer þetta í taugarn-
ar á þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér er mikið niðri fyrir varð-
andi hugmyndir þínar í dag.
Þú veist að tillögur þínar
myndu bæta framkvæmdir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Rómantískt ástand verður til
þess að þínar dýpstu tilfinn-
ingar ólga innra með þér. Þér
er mikið í mun að einhver geri
eða segi eitthvað sem þér er
mjög mikilvægt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver í fjölskyldunni gæti
farið í taugarnar á þér vegna
einhvers sem hann/hún sting-
ur upp á. Sú manneskja telur
sig hafa meira vit á því hvern-
ig þú ættir að haga þínu lífi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér er mikið í mun að sann-
færa einhvern um eitthvað í
dag. Það er hins vegar svo að
enginn heyrir jafnilla og sá
sem neitar að hlusta á þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þegar þú tekur til í kringum
þig, bæði á vinnustað og
heimili, hikarðu ekki við að
losa þig við það sem er orðið
þér óþarft.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gerir þér kannski ekki
ljóst hversu krefjandi og ráð-
rík(ur) þú ert varðandi eitt-
hvað ákveðið í dag. Þar sem
Plútó og tunglið er í stjörnu-
merkinu þínu í dag verður þú
mjög tilfinningarík(ur).
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hugsanlega mun einhver
ljóstra upp fyrir þér myrku
leyndarmáli í dag. Sýndu öðr-
um þann virðingarvott að
halda þessu fyrir þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ákaflega leiðinlegt
þegar gamall vinur er í sífellu
að segja þér hvernig þú eigir
að haga lífi þínu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð í dag hugmyndir um
að skipta um vinnu eða
breyta stefnu lífs þíns. Það
kann að vera skynsamlegt að
ígrunda möguleikana því sagt
er að hamingjan felist í því að
eiga valkosti.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÚR HÁVAMÁLUM
– – –
At kveldi skal dag leyfa,
konu, er brennd er,
mæki, er reyndr er,
mey, er gefin er,
ís, er yfir kømr,
öl, er drukkit er.
Í vindi skal við höggva,
veðri á sjó róa,
myrkri við man spjalla:
mörg eru dags augu;
á skip skal skriðar orka,
en á skjöld til hlífar,
mæki höggs,
en mey til kossa.
– – –
ÞÝSKA landsliðskonan
Daniela von Arnim veiktist
á fyrsta spiladegi í Cap
Gemini boðsmótinu í Hol-
landi og varð að hætta
keppni eftir tvær umferðir.
Eiginmaður hennar, Klaus
Reps, tók við hlutverki von
Arnim sem makker Sabinu
Auken og tókst þeim þrem-
ur í sameiningu að vinna til
bronsverðlauna. Von Arnim
dvaldi einn dag á sjúkra-
húsi, en veikindi hennar
reyndust sem betur fer ekki
alvarleg.
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ D952
♥ D8
♦ ÁG1085
♣G6
Vestur Austur
♠ KG103 ♠ 8764
♥ G65 ♥ 93
♦ -- ♦ K742
♣ÁKD873 ♣952
Suður
♠ Á
♥ ÁK10742
♦ D963
♣104
Þetta spil kom upp í ann-
arri umferð mótsins þar
sem von Arnim og Auken
voru í vörn gegn fjórum
hjörtum Hollendingsins
Bauke Mullers. Og satt að
segja er ekki að sjá nein
veikleikamerki á vörn von
Arnims.
Vestur Norður Austur Suður
von Arnim De Wijs Auken Muller
1 spaði Pass Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Von Arnim kom út með
laufás, tók svo á kónginn og
spilaði loks þriðja laufinu út
í tvöfalda eyðu! Sagnhafi gaf
henni hornauga, en tromp-
aði svo heima, tók hjarta-
drottningu og svínaði
hjartatíu í bakaleiðinni. Von
Arnim fékk þannig á hjarta-
gosann og síðar fékk austur
slag á tígulkóng. Einn niður.
Muller spilaði ekki illa.
Hann féll heiðarlega á
bragði von Arnims, sem
læddi inn hjá honum þeirri
hugmynd að hún væri að
standa vörð um trompgos-
ann fjórða hjá makker.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7
6. Be2 Rc6 7. O-O Rf6 8.
Kh1 Be7 9. f4 d6 10. a4
O-O 11. Be3 Ra5 12. g4 d5
13. exd5 Rxd5 14. Rxd5
exd5 15. b3 He8 16. Dd3
Bd6 17. Bf3 Rc6 18. c3 Bd7
19. Bxd5 Bxg4 20. Hg1
Be6 21. Rxe6 fxe6 22. Be4
h6 23. Hg4 Had8 24. Dc2
Be7 25. Hag1 Bf6 26. Hg6
Kh8 27. Dg2 He7 28. Dh3
Hdd7
Staðan kom upp í Rilton
Cup sem lauk fyr-
ir skömmu í
Stokkhólmi.
Franski stór-
meistarinn Igor
Nataf (2535) hafði
hvítt gegn Rikard
Andersson (2175).
29. Dxh6+! Og
svartur gafst upp
enda yrði hann
mát eftir 29...
gxh6 30. Hg8#.
Lokastaða móts-
ins varð þessi:
1.-4. Evgeny Agr-
est (2563), Bogd-
an Lalic (2522),
Tom Wedberg (2529) og
Valery Popov (2578) 7
vinninga af 9 mögulegum.
5.-13. Igor Nataf (2535),
Jonathan Rowson (2512),
Alexander Volzhin (2521),
Igor Khenkin (2572), Luke
McShane (2531), Jonny
Hector (2528), Mikhail
Ulibin (2580) og Anton
Aberg (2388) 6½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hlutavelta
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Antoni
L. Hreiðarssyni sem bjargaðist úr eldsvoða á Þingeyri fyrir
skömmu. Þau heita Andri, Aníta og Valdimar.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 3. ágúst sl. í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssyni Erla Björk Stefáns-
dóttir og Guðjón Sæmundsson.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Smælki
Nú erum við á sléttu.
Annarri bókinni skila
ég viku of seint og
hinni viku of snemma.
AUGLÝST hefur verið eftir umsókn-
um varðandi Evrópsku upplýsinga-
tækniverðlaunin. Veitt eru þrenn
verðlaun að upphæð 200.000 evrur
(tæplega 18 milljónir íkr.) og tuttugu
verðlaun að upphæð 5.000 evrur
(440.000 íkr.), alls 700.000 evrur (62
milljónir íkr.). Þessi verðlaun, sem
nefnd eru The European IST (In-
formation Society Technologies)
Prize á ensku, eru þau veglegustu
sem veitt eru í Evrópu á sviði nýsköp-
unar í upplýsingatækni. Verðlaunin
renna til framsækinna fyrirtækja
sem þróað hafa vöru sem þykir líkleg
til að spjara sig á markaðnum. Síðan
verður haldin sýning á vörum vinn-
ingshafa í Kaupmannahöfn dagana 4.
til 6. nóvember næstkomandi.
Það er Euro-CASE sem stendur
að verðlaunaveitingunni í samvinnu
við upplýsingaáætlun Evrópuráðsins.
Þrjátíu og eitt land getur sótt um
verðlaunin, þar á meðal Ísland. Um-
sóknarfrestur er til 15. maí næstkom-
andi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður
Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá
Rannsóknaþjónustu Háskóla Ís-
lands. Ennfremur er ítarlegar upp-
ýsingar að finna á heimasíðu Rann-
sóknaþjónustu Háskóla Íslands:
http://www.rthj.hi.is, segir í fréttatil-
kynningu.
Evrópsku upplýsinga-
tækniverðlaunin 2002