Morgunblaðið - 06.02.2002, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 47
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6.
Ísl tal Vit 320
Hasarstuð frá
byrjun til enda
Sýnd kl. 8 og 10. Vit340
Sýnd kl. 8. Vit 332
DV
Rás 2
Sýnd kl. 10.10.
MAGNAÐ
BÍÓ
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2 Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi 14.
Riddarinn hugrakki
og fíflið félagi hans
lenda óvart í
tímaflakki og þú
missir þig af hlátri.
Jean Reno fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd.
Endurgerð hinnar
óborganlegu
Les Visiteurs!
i
l
i i
www.laugarasbio.is
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
i ir.
HJ. MBL.
Sýnd kl. 5.45 og 9. B.i 12 ára
Rick og félagar kunna bara eitt og það er að skemmta
sér. Um leið og reynt er að eyðileggja það fyrir þeim
taka þeir til sinna ráða... Frábær grínmynd með
svakalegum snjóbrettaatriðum og geggjaðri tónlist!
SVAL
ASTA
GAM
ANM
YND
ÁRSI
NSI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sprite forsýning kl 8. Komdu með 2. Spritetappa. 2. tappar=2 miðar.
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Somet-
hing About Mary“
og „Me myself &
Irene“ kemur
Feitasta gaman-
mynd allra tíma
Sýnd kl. 8 og 10.10.Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára
1/2
Kvikmyndir.is
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.30.
1/2
RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sjóðheitasta mynd
ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope
Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni,
Cameron Diaz.
HARÐKJARNASVEITIN Mínus er
nú stödd á tónleikaferðalagi um
Bretland ásamt „sjötta“ með-
limnum, hljóðgerðar- og listamann-
inum Bibba. Með þeim leika heima-
sveitirnar Charger og Matter og
um er að ræða 19 tónleika á 19
dögum hvar farið er þvers og krus
um landið og stoppað í hinum
ýsmu bæjum, litlum sem stórum.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Kristjáns Frosta Logasonar, gít-
arleikara sveitarinnar, þar sem
hann lá í makindum í farkosti
sveitanna; forláta rútu. Lét hann
vel af aðbúnaðinum og sagði þetta
ganga eins og smurða vél.
„Þetta er búið að ganga framar
öllum vonum,“ segir Frosti, auð-
heyranlega mjög ánægður. Þannig
er nú mál með vexti að í svona
rokktúrum getur brugðið til
beggja vona; menn geta lent í
ónýtum ryðkláfi og ekkert stenst
af áætlunum. En Mínus er í góðum
málum að því er virðist.
„Þetta er miklu betra en við gát-
um nokkurn tíma ímyndað okkur,“
heldur Frosti áfram. „Stemningin
í hópnum er ævintýri líkust.“
Frosti segir að uppselt hafi
verið á flesta tónleika, en um er
að ræða staði sem taka um 500
manns alla jafna. „Okkur hefur
gengið vel að spila og við höf-
um fengið góða endurgjöf frá
áhorfendum. Svo seljum við
mjög vel af varningnum sem
við erum með.“
Frosti segir þetta mjög vel
skipulagðan túr, en þunga-
rokksblaðið Kerrang! stendur
fyrir ferðinni.
„Við fáum alls staðar heitan mat
og morgunmat. Það væsir heldur
ekki um okkur í rútunni; það eru
setustofur hérna, DVD spilari,
græjur. Þetta er bara stórkost-
legt!“
Margir af þeim sem leggja leið
sína á tónleikana þekkja Mínus og
tónlist sveitarinnar.
„Margir segjast hafa beðið lengi
eftir að sjá okkur á tónleikum. Í
Southampton labbaði ég t.a.m. inn
í búð sem selur notuð föt og þar
kannaðist afgreiðslumaðurinn við
mig! Sagðist ekki geta beðið eftir
að sjá okkur um kvöldið.“
Charger og Matter leika tónlist
sem er nokkuð frábrugðin þeirri
sem Mínus stundar. Sú fyrrnefnda
leikur hægt og slepjulegt eyði-
merkurrokk á meðan sú síð-
arnefnda spilar einhvers konar nú-
tíma dauðarokk. En andinn í
hópnum er frábær að sögn Frosta.
„Það er mikil samstaða í hópnum
og þetta eru yndislegir ferða-
félagar,“ segir hann að lokum.
Þess má að endingu geta að í
Kerrang!, dagsettu 26. janúar, er
þriggja blaðsíðna viðtal við Mínus.
Tónleikar sveitanna í London 23.
janúar, sem voru þeir fyrstu í ferð-
inni, fengu svo hámarkseinkunn í
blaðinu, fimm K. Einnig verður
birtur síðudómur um tónleika þess-
ara þriggja sveita, undir titlinum
„tónleikar vikunnar“.
Lokatónleikar sveitanna verða
10. febrúar í Liverpool. Þar munu
þær leika á hinum fornfræga stað,
The Cavern, þar sem Bítlarnir
hófu feril sinn forðum daga.
Mínus á hljómleika-
Eins og í sögu
Morgunblaðið/Kristinn
Mínus ásamt Bibba (lengst til
hægri). Frosti Logason stendur
við hlið hans, aftastur, í ljós-
bláum bol.
ferðalagi í Bretlandi
Apaheilar.is
The Brainiacs.com
Gamanmynd
Bandaríkin, 2000. Góðar stundir
VHS. (100 mín.) Öllum leyfð. Leik-
stjórn: Blair Treu. Aðalhlutverk:
Kevin Kilner, Alexandra Paul og
Michael Angarano.
ÞAÐ er leitt að þurfa að
rakka niður næstum því hverja
einustu bandarísku barna- og
unglingamynd sem kemur fyrir
sjónir íslenskra myndbanda-
leigugesta, en hjá því verður
hreinlega ekki komist, slík eru
heimskulætin sem þar viðgang-
ast. Sú sem
hér um ræðir
er dæmigerð
tilgerðarleg
og ófyndin
mynd um of-
dekruð börn
sem lenda í
einhvers kon-
ar ævintýr-
um, nema
hvað í þessu tilfelli eru við-
skiptatækifæri í netviðskiptum
færð inn í fléttuna. Í myndinni
segir sem sagt frá Matthew
nokkrum sem nýlega hefur
misst móður sína, og leiðist það
óskaplega hvað pabbi hans hef-
ur sökkt sér í vinnu. Í hagfræði-
tíma fær hann hins vegar
snjalla hugmynd. Hann
ákveður í samvinnu við vin sinn
(sem er kómísk blökkumanna-
týpa) að stofna fyrirtæki á Net-
inu og yfirtaka litla leikfanga-
fyrirtækið sem faðir hans er
stöðugt að vinna við. Sem sagt
mjög langsótt flétta sem virðist
ætluð sem nokkurs konar
kennslustund í viðskiptasið-
ferði, en boðar ef til vill eitthvað
allt annað og mun verra. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Litlir við-
skipta-
jöfrar
Dánarorsök
(Determination of Death)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Bergvík VHS. (100
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Michael Miller. Aðalhlutverk: Veronica
Hamel, Michael Greene og William Katt.
Í þessari spennumynd segir frá
hinum ofbeldishneigða og spilasjúka
Reese, sem ákveður að sviðsetja eig-
in dauða til að hafa stórfé út úr
tryggingafyrirtæki sínu. En það get-
ur verið hættulegt að sviðsetja eigin
dauða ef allir aðrir vilja mann feigan,
líkt og bent er á í
kynningu myndar-
innar. Reyndin er
nefnilega sú að með
hegðun sinni gegn-
um árin hefur
Reese eignast
marga óvini, þ.á m.
eiginkonu sína sem
hann hefur mis-
þyrmt um árabil.
Hér er á ferðinni spennandi mynd,
yfir henni er nokkur sjónvarpsbrag-
ur sem þarf þó engan veginn að
skemma fyrir ánægjunni. Söguþráð-
urinn er vel unninn og leikarar
traustir í hlutverkum sínum þótt
engir stórleikarar séu innanborðs.
Þetta er þétt sakamálamynd sem
uppfyllir helstu kröfur sem til slíkra
mynda eru gerðar. Myndbönd
Leyndar-
dómsfullur
dauðdagi
Heiða Jóhannsdóttir