Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 52

Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Kl ippstopp 2 8 .FEB R Ú AR 20 0 2 VERSLUNARRÁÐ Íslands hefur gert athugun á framkvæmd aðgerða Samkeppnisstofnunar gegn olíufé- lögunum hinn 18. desember síðast- liðinn og telur ástæðu til að ætla að mjög alvarlegar brotalamir hafi ver- ið á framkvæmdinni. Í skýrslu sem Verslunarráðs hefur sent frá sér um málið og birt er í heild í blaðinu í dag, kemur fram að Samkeppnisstofnun hafi farið langt út fyrir heimildir þess dómsúrskurð- ar sem hún fékk vegna aðgerðanna og mörg dæmi eru nefnd um að ákvæðum laga hafi ekki verið fylgt við framkvæmd húsleitar og hald- lagningu gagna og þess séu mörg dæmi að lagt hafi verið hald á gögn sem ekkert hafi með rannsókn máls- ins að gera, en slíkt sé óheimilt. Er sem dæmi nefnt að hald hafi verið lagt á hluta af bókhaldi kirkjusafn- aðar í Reykjavík, persónulegan tölvupóst og persónulega greiðslu- kortareikninga starfsmanna. Á blaðamannafundi sem Verslun- arráð hélt í gær til að kynna athug- anir sínar sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri ráðsins, að sent hefði verið bréf til viðskiptaráðherra þar sem óskað hefði verið eftir því að ráðherra léti fara fram rannsókn á málinu. Vilhjálmur sagði einnig að óskað hefði verið eftir því við ráð- herra að gerðar yrðu ráðstafanir til að slíkar aðgerðir, ef til þeirra kæmi aftur, yrðu með eðlilegum hætti í framtíðinni. Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra sagði erindi Verslunarráðs til athugunar í ráðuneytinu. Beindist athugunin að því hvort það væri í raun hlutverk ráðuneytisins eða ann- arra yfirvalda, t.d. dómsyfirvalda, að annast slíka rannsókn. Málið yrði skoðað frá lagalegu sjónarmiði. Bjóst ráðherra við að niðurstaða lægi fyrir í dag eða á morgun. Vilhjálmur lagði áherslu á að að- gerðirnar gegn olíufélögunum væru í eðli sínu lögregluaðgerðir. Í þeim fælist frelsisskerðing og innrás í einkalíf fólks og um slíkar aðgerðir giltu ákveðin lög og það væri litið al- varlegum augum væru þessi lög brotin. Eitt af því sem lög kvæðu á um væri að lögregla stjórnaði að- gerðum sem þessum, en það hefði í engu tilviki átt við og lögreglumenn hefðu ekki bent starfsmönnum á rétt þeirra. Í skýrslu Verslunarráðs er dregið í efa að heimila hefði átt aðgerðirnar gegn olíufélögunum. Þar segir meðal annars að eina röksemdin sem raun- verulega hafi getað skapað ástæðu fyrir aðgerðum af hálfu Samkeppn- isstofnunar séu nýlegar upplýsingar og ábendingar sem stofnuninni hafi borist og vísað sé til í forsendum fyr- ir úrskurði héraðsdóms. „En til þess að þessar upplýsingar teljist trú- verðugar hljóta þær að þurfa að vera allnákvæmar og beinast að tiltekn- um atburðum eða ákvörðunum sem hafa vel skilgreindar tímasetning- ar,“ segir í skýrslunni. Slíkar upplýs- ingar eigi að gera Samkeppnisstofn- un kleift að takmarka rannsókn sína við þá einstaklinga og þau gögn sem varpa kynnu ljósi á málið. Á þessu segir Verslunarráð að hafi verið verulegur misbrestur og lagt hafi verið hald á mikið magn af gögnum í von um að finna eitthvað sem ekki hafi verið fyrirfram skilgreint. Verslunarráð Íslands sendir viðskiptaráðherra erindi Telur að Samkeppnis- stofnun hafi brotið lög  Aðgerðir/38 ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið eftir árekstur við jeppabifreið á mótum Reykja- nesbrautar og Arnarnesvegar síðdegis í gær. Bifreiðirnar rákust saman með þeim afleið- ingum að jeppinn valt og skemmdust báðar bifreiðirnar töluvert. Ekki munu meiðsli ökumannsins hafa verið eins al- varleg og talið var í fyrstu. Árekstur á Reykja- nesbraut VIÐBÚNAÐARÁSTAND var um tíma á Reykja- víkurflugvelli í gærkvöld vegna fjögurra hreyfla bandarískrar herflutningavélar af Hercules- gerð, með sjö manna áhöfn, sem gerði tvær árangurslausar lendingartilraunir á Reykjavík- urflugvelli vegna slæmra veðurskilyrða á Kefla- víkurflugvelli. Aðflug flugvélarinnar tókst ekki í fyrra skiptið og í seinna skiptið kom vélin of hátt inn til aðflugs og snéri því aftur til Keflavíkur þar sem hún lenti heilu og höldnu kl. 23.47. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út kl. 22.52 og sendi fjórar sjúkrabifreiðir að Reykjavíkurflugvelli og þrjár dælubifreiðir en kallaði lið sitt heim kl. 23.42. Þá greip lögreglan í Reykjavík til lokana á Suðurgötu og við Bústaðaveg. Almannavarnir ríkisins fengu tilkynningu kl. 22.58 um að eldsneytisbirgðir vélarinnar væru á þrotum og að hún myndi reyna lendingu á Reykjavíkurflugvelli og var unnið að við- bragðsáætlun í samráði við Landspítalann í Fossvogi vegna hópslysaáætlunar slökkviliðs og lögreglu en upplýsingar um eldsneytisbirgðir vélarinnar reyndust á misskilningi byggðar. Morgunblaðið/Júlíus Viðbúnaður vegna herflutningavélar SAMKVÆMT óendurskoðuðu upp- gjöri móðurfélags Samherja, sem lagt var fram á stjórnarfundi Sam- herja hf. í gær, er ljóst að hagn- aður móðurfélagsins á árinu 2001 er verulega meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, skv. frétt sem fyr- irtækið sendi frá sér í gær. Sam- kvæmt bráðabirgðauppgjörinu nema rekstrartekjur móðurfélags- ins 12.755 milljónum króna og hagnaður án afskrifta og fjár- magnskostnaðar er 3.463 milljónir króna. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 1.159 milljónir króna og afskriftir nema 984 milljónum króna. Að teknu tilliti til skatta og annarra tekna og gjalda er hagnaður móð- urfélagsins 1.279 milljónir króna. Veltufé frá rekstri er samkvæmt uppgjörinu 3.023 milljónir króna. Ekki liggja fyrir áætluð áhrif dótt- ur- og hlutdeildarfélaga en í níu mánaða uppgjöri voru þau neikvæð um 167 milljónir króna, segir í fréttinni. Fram kemur að endur- skoðað uppgjör félagsins verði birt í byrjun mars og að aðalfundur fé- lagsins verði haldinn 11. apríl nk. Hagnaður Samherja meiri en áætlað var GRÆNMETISNEFNDIN svo- nefnda hefur skilað af sér lokatillög- um til Guðna Ágústssonar landbún- aðarráðherra. Fella á niður verðtoll á sveppum, kartöflum og ýmsum tegundum útiræktaðs grænmetis en viðhalda magntolli á þessum afurð- um. Bæði verð- og magntollar verða felldir niður á agúrkum, tómötum og papriku en þess í stað teknar upp beingreiðslur til framleiðenda. Greiðslurnar gætu numið um 195 milljónum króna á ári. Þá leggur nefndin til að greiða nið- ur rafmagn til lýsingar í gróðurhús- um, styrkja úreldingu gróðurhúsa og ýmis rannsóknaverkefni, endur- skoða stofnlán til garðyrkju og koma á virku verðlagseftirliti með græn- meti og ávöxtum. Árlegur kostnaður vegna þessara aðgerða er áætlaður um 280 milljónir króna en gæti farið lækkandi á samningstímanum. Á blaðamannafundi, sem landbún- aðarráðherra efndi til í gær, kom m.a. fram að grænmeti gæti lækkað að meðaltali í verði um 15% til neyt- enda og mun meira í sumum tilvik- um. Þannig er talið að afnám tolla af agúrkum, tómötum og papriku og beingreiðslur vegna sömu tegunda geti þýtt 50% lækkun á agúrkum og tómötum og 55% lækkun á papriku. Landbúnaðarráðherra telur að þessar aðgerðir geti þýtt 0,3% lækk- un á framfærslukostnaði í landinu. Tillögur nefndarinnar voru kynnt- ar á opnum fundi með garðyrkju- bændum og að sögn Kjartans Magn- ússonar, formanns Félags garð- yrkjubænda, líst mönnum misvel á tillögurnar. „Menn hefðu viljað sjá meiri lækkun á raforku en raun ber vitni. En ég túlka niðurstöðu fund- arins sem nokkuð jákvæða, án þess að greidd hafi verið atkvæði.“ Tómatar og agúrkur gætu lækk- að um 50%  Verð á grænmeti/26–27 SAMKEPPNISRÁÐ hefur ákveðið að beita Global Refund á Íslandi hf. dagsektum þar sem fyrirtækið hefur neitað Samkeppnisstofnun um gögn og upplýsingar. Óskaði stofnunin eftir þessum gögnum í tengslum við athugun sína á kvörtun frá Refund á Íslandi ehf. sem heldur því fram að Global Refund á Íslandi hf. misnoti markaðsráðandi stöðu sína fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í framhaldi af kvörtun Refund á Íslandi ehf. óskaði Samkeppnisstofn- un eftir gögnum er tengjast aðgerð sem beint var gegn Refund á Íslandi ehf. Við umfjöllun málsins vísar sam- keppnisráð til 39. gr. samkeppnis- laga sem veitir Samkeppnisstofnun heimildir til öflunar gagna og skv. 53. gr. sömu laga getur samkeppn- isráð lagt á dagsektir þar til farið er að ákvörðun þess. Samkeppnisráð leggur dagsektir á Global Refund á Íslandi hf. og skal fyrirtækið greiða 250 þúsund krónur á dag þar til tilgreindar upplýsingar og gögn hafa verið látin Samkeppn- isstofnun í té. Global Re- fund á Ís- landi beitt dagsektum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.