Morgunblaðið - 08.02.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Allt um bikarúrslit
KR og Njarðvíkur/C2
Ólafur fær frjálsa sölu
frá Brentford/C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sinatra-sveifla 1B
Í leyni við þjóðveginn 2B
Tónlist ’68 kynslóðarinnar 4B
Fólk til fyrirmyndar 6B
Auðlesið efni 8B
Sérblöð í dag
DRÖG að lagafrumvarpi um stöðvun yfirvinnu-
banns flugumferðarstjóra hafa verið kynnt í þing-
flokkum stjórnarflokkanna, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. Búist er við að forsætisráð-
herra leggi frumvarpið fram á Alþingi á næstunni,
hafi ekkert þokast í samkomulagsátt í deilu flug-
umferðarstjóra við ríkið.
Samkvæmt heimildum blaðsins gera drögin ráð
fyrir því að gefa deiluaðilum ákveðinn frest til að
gera samning. Takist það ekki á tilsettum tíma
verði skipaður gerðardómur til að ákveða launa-
kjör flugumferðarstjóra.
Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra
flugumferðarstjóra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöld að slík áform ríkisins legðust illa
í menn.
,,Auðvitað erum við afskaplega óhressir. Laga-
setning og skipan gerðardóms felst beinlínis í því
að við og samninganefnd ríkisins hættum að tala
saman. Ég get verið fyllilega sammála samgöngu-
ráðherra um að staðan í deilunni sé algerlega óvið-
unandi en hann ber þar vissulega ábyrgð,“ sagði
Loftur.
Nokkrar tafir urðu á innanlandsflugi í gær þar
sem átta flugumferðarstjórar tilkynntu veikindi,
þar af þrír vegna veikinda barna sinna. Kemur yf-
irvinnubannið í veg fyrir að hægt sé að kalla út
fólk á aukavakt.
Engin þjónusta var veitt á Akureyrarflugvelli
til kl. þrjú í gær, að undanskildu sjúkra- og neyð-
arflugi. Þá var engin þjónusta, utan neyðarþjón-
ustu, veitt í flugturninum í Reykjavík milli kl. sjö
og átta í gærmorgun en þá var einn flugumferð-
arstjóri á vakt. Undir venjulegum kringumstæð-
um ættu þrír flugumferðarstjórar að vera á vakt í
flugturninum í Reykjavík.
Tafir í innanlandsflugi í gær vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra
Lagasetning um skipan
gerðardóms yfirvofandi
FJÓRIR menn á þrítugsaldri sitja
nú í gæsluvarðhaldi vegna inn-
flutnings á samtals um fimm kíló-
um af hassi til landsins. Tveir voru
úrskurðaðir í þriggja vikna gæslu-
varðhald á miðvikudag en tveir
aðrir sátu þá þegar í gæsluvarð-
haldi til jafnlangs tíma.
Við rannsókn fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík kom í
ljós að tvær tilraunir til innflutn-
ings á hassi tengdust. Fyrra til-
fellið varð 13. janúar sl. þegar toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli stöðv-
aði mann með um tvö kíló af hassi
þegar hann kom til landsins frá
Kaupmannahöfn. Honum var
sleppt eftir yfirheyrslur. Rúmri
viku síðar, 22. janúar, stöðvaði
tollgæslan annan mann með þrjú
kíló af hassi. Hann var líka að
koma frá Kaupmannahöfn. Menn-
irnir voru báðir með hassið í hand-
farangri.
Sá sem var stöðvaður í seinna
skiptið var úrskurðaður í þriggja
vikna gæsluvarðhald.
Fjórir í
haldi fyrir
innflutn-
ing á hassi
HÆSTIRÉTTUR sneri í gær við
sýknudómi Héraðsdóms Vestur-
lands frá síðastliðnu sumri og sak-
felldi rútubílstjóra af ákæru fyrir að
hafa ekið of hratt út á einbreiða brú
yfir Hólsselskíl í júlí 2000 með þeim
afleiðingum að rútan fór út af
brúnni, 11 þýskir farþegar slösuðust
og einn lést. Dæmdi Hæstiréttur bíl-
stjórann í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og
líkamstjón. Þá var ákærði sviptur al-
mennum ökuréttindum í 6 mánuði og
dæmdur til greiðslu alls sakarkostn-
aðar.
Hæstiréttur taldi sannað að
ákærði hefði ekið of hratt og ógæti-
lega miðað við aðstæður, en hraði
rútunnar var talinn 43–54 km á klst.
Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að
einbreiðar brýr séu alltaf varasamar
og gera verði þær kröfur til öku-
manna, sérstaklega ökumanna
stórra bifreiða, að þeir dragi svo úr
hraða, er þeir nálgast þær, að þeir
hafi fullt vald á ökutækinu og gæti
ítrustu varkárni. Líta yrði til þess, að
vegurinn að brúnni var nýheflaður
og laus í sér og þurfti því að gæta
sérstakrar varúðar.
Reynsluleysi ákærða í akstri hóp-
ferðabifreiða og það, að hann þekkti
ekki veginn og brúna, kallaði á
aukna aðgæslu af hans hálfu að mati
Hæstaréttar. Í ljós var leitt, að rútan
kom skökk inn á brúna og lenti
hægri afturhjólbarðinn á brúar-
stólpa. Taldi Hæstiréttur af þessum
sökum ljóst að ákærði hefði ekki haft
fullt vald á rútunni.
Málið dæmdu Guðrún Erlends-
dóttir, Garðar Gíslason, Haraldur
Henrysson, Hrafn Bragason og Pét-
ur Kr. Hafstein.Verjandi ákærða var
Sigurður G. Guðjónsson hrl. Bogi
Nilsson ríkissaksóknari flutti málið
fyrir hönd ákæruvaldsins.
Rútubíl-
stjóri sek-
ur um
manndráp
af gáleysi
Hafnfirðingur á hálum ís
Morgunblaðið/RAX
ÞAÐ getur borgað sig að fara varlega þegar ís er þunn-
ur og háll, líkt og þessi ungi Hafnfirðingur fékk að
reyna við Lækinn þar í bæ. Varð honum ekki meint af
og stóð upp á ísröndinni eins og ekkert hefði í skorist.
ALDREI hefur verið lagt hald á við-
líka magn e-taflna á Íslandi og á síð-
asta ári. Alls lagði lögregla og toll-
gæsla hald á um 26 þúsund e-töflur
sem ætlaðar voru á markað hér á
landi. Þá var maður stöðvaður með
67.485 töflur á Keflavíkurflugvelli en
hann var á leið til Bandaríkjanna með
fíkniefnin. Þetta kemur fram í bráða-
birgðatölum ríkislögreglustjóra fyrir
árið 2001.
Árið 2000 var lagt hald á um 22 þús-
und e-töflur en ríflega 14 þúsund
fundust á manni sem var á leið með
töflurnar til Bandaríkjanna. Um átta
þúsund voru því ætluð til neyslu á Ís-
landi.
Stærsti hluti fíkniefna sem lögregla
og tollgæsla lagði hald á hér á landi á
síðasta ári kom frá Danmörku. Er þá
miðað við fíkniefni sem ætluð voru á
markað hérlendis.
Þá vekur athygli hve stór hluti
kemur frá Noregi, en fíkniefnasmygl
þaðan hafði verið nánast óþekkt áður.
Hald var lagt á rúmlega 25 kíló af
hassi sem fannst á mönnum á leið frá
Danmörku og rúmlega 8,5 kíló á
mönnum sem komu frá Noregi.
Alls var lagt hald á tæplega 47 kíló
af hassi hér á landi á síðasta ári, sem
er um 15 kílóum meira en árið á und-
an. Hald var lagt á 93.710 e-töflur, um
600 grömm af kókaíni, rúmlega kíló af
amfetamíni og 1,2 kíló af marijúana.
Af því sem náðist á landamærum
var langmestur hluti tekinn á Kefla-
víkurflugvelli. Þá var talsvert flutt inn
um Reykjavíkurflugvöll og nokkurt
magn kom með Norrænu. Mun meira
náðist af e-töflum árið 2001 en árið á
undan, sem skýrist með því að í einu
máli var lagt hald á 67.485 e-töflur á
Keflavíkurflugvelli. Hald var lagt á
um 900 kannabisplöntur í landinu.
Bráðabirgðatölur ríkislögreglu-
stjóra um fíkniefnamál árið 2001
Aldrei lagt hald
á fleiri e-töflur
SEX tilfelli af inflúensu af A-stofni
hafa greinst á veirufræðideild
Landspítala - háskólasjúkrahúss á
tímabilinu 30. janúar til 5. febrúar.
Staðfest tilfelli eru eingöngu inn-
an höfuðborgarsvæðisins, þar af
eru tvö tilfelli hjá börnum og fjög-
ur meðal fullorðinna.
Haraldur Briem, sóttvarnar-
læknir hjá landlæknisembættinu,
segist ekki búast við að inflúensan
sé öðruvísi en sú sem gangi í ná-
grannalöndunum um þessar
mundir, en þar er bóluefni talið
virka gegn flensunni. Hann segir
hins vegar að í ljósi fjölda stað-
festra tilfella megi tala um að far-
aldur hafi brotist út.
Haraldur segir inflúensuna
vera óvenju seint á ferðinni að
þessu sinni, en búast megi við
henni hvenær sem er á bilinu októ-
ber til mars-apríl. Einkennin lýsa
sér m.a. í beinverkjum, höfuðverk,
slappleika, hita og hálssærindum.
Þeim sem veikjast er ráðlagt að
halda sig heima uns heilsu er náð
á ný og ættu að fara vel með sig.
Inflúensufaraldur
hefur brotist út
♦ ♦ ♦