Morgunblaðið - 08.02.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Böðvarsson (D), sam-
gönguráðherra, var sakaður um vald-
níðslu og að hafa lekið upplýsingum
úr skýrslu, sem fjallaði um störf trún-
aðarlæknis Flug-
málastjórnar, í fjöl-
miðla, í umræðu utan
dagskrár um stjórn-
sýslu ráðherra í máli
trúnaðarlæknis
Flugmálastjórnar á
Alþingi í gær. Lúðvík
Bergvinsson, þing-
maður Samfylking-
arinnar, málshefj-
andi umræðunnar,
sagði að mál, sem
tengdist útgáfu á
heilbrigðisvottorði trúnaðarlæknis-
ins til flugmanns með skilyrðum,
væri í sjálfu sér ekki stórt í sniðum og
undir eðlilegum kringumstæðum
hefðu stjórnvöld átt að fara létt með
að afgreiða málið. Af einhverjum óút-
skýranlegum ástæðum hefði sam-
gönguráðherra komið að málinu með
þeim hætti að það væri komið í hnút
og að mörgu leyti hefði hagsmunum
Íslendinga í flugöryggismálum verið
teflt í uppnám.
Lúðvík sagði að ráðherra hefði
beitt valdníðslu í málinu og lagt fyrir
trúnaðarlækninn að gefa út vottorð
sem hann hefði ekkert með að gera.
„Þetta mál er miklu alvarlegra en
svo að það lúti að þessu litla máli því
Íslendingar eru aðilar að svokölluð-
um Flugöryggissamtökum Evrópu
(JAA), sem eru samstarf 36 ríkja.
Þau ríki hafa með sér sameiginlegar
reglur, sem hlaupa á þúsundum
síðna. Við höfum þýtt 150 síður af
þessum þúsundum síðna. Það er allt
og sumt,“ sagði þingmaðurinn. Hann
bætti því við að ráðherra hefði gefið
nefndinni fyrirmæli um að virða ein-
ungis 150 síður sem voru þýddar,
sem þýddi að Íslendingar ætluðu sér
ekki að fara eftir þessum reglum að
öllu leyti. „Sem þýðir að skírteini sem
er gefið út hér á landi uppfyllir ekki
lágmarkskröfur sem þessi JAA-ríki
setja.“
Lúðvík sagði að þegar allt væri
komið í uppnám hefði ráðherra skip-
að nefnd þar sem lögmaður Símans
til langs tíma væri formaður. Þá hefði
starfsmaður
ráðuneytisins
setið drjúgan
tíma í nefnd-
inni. Því taldi
Lúðvík að
nefndin væri
ekki nægjan-
lega trúverðug.
„Svo til þess að
kóróna alla
þessa vitleysu,
leyfir hæstvirt-
ur ráðherra sér
það að leka í fjölmiðla niðurstöðum úr
þessari nefnd áður en flugmaðurinn,
sem um ræðir, fær að sjá þetta,“
sagði Lúðvík ennfremur og bætti því
við að slík málsmeðferð væri með öllu
óviðunandi.
Allar reglur í fullu samræmi
við JAR-reglur ríkja innan JAA
Samgönguráðherra kvaðst fagna
því að fá tækifæri til þess að ræða
málið á Alþingi, en hins vegar sagði
hann málflutning Lúðvíks Berg-
vinssonar bæði ómerkilegan og
ósannan. Mótmælti hann því harð-
lega að skírteini sem eru gefin út hér
á landi uppfylli ekki lágmarkskröfur
JAA-ríkja, því allar reglur hérlendis
séu í fullu samræmi við svokallaðar
JAR-reglur JAA-ríkjanna. Hann
skýrði frá niðurstöðum nefndarinnar,
sem hann sagði að væri skipuð að
beiðni flugmálastjóra til þess að fara
yfir stjórnsýslu trúnaðarlæknis
Flugmálastjórnar vegna útgáfu flug-
skírteinis. Meginniðurstaðan sýndi
að rétt hefði verið haldið á málum af
hálfu ráðuneytisins og að nefndin
hefði tekið tillit til reglna og sjónar-
miða við endanlegt læknisfræðilegt
mat á hæfni flugmannsins, þar með
vegna svokallaðrar 1% reglu sem
væri innan JAR-reglugerðarinnar.
Ráðherra sagði að úrskurður ráðu-
neytisins væri í samræmi við stjórn-
sýslureglur og hefði ekki falið í sér
nein afskipti af efni heilbrigðisvott-
orðs eða læknisfræðilegum athugun-
um. Hann mótmælti því jafnframt að
hafa lekið upplýsingum úr skýrslunni
í fjölmiðla, sagði að blaðamaður DV
hefði haft samband við landlækni,
sem hefði gert að einhverju leyti
grein fyrir því sem væri niðurstaða
skýrslunnar.
„Hvílíkur málflutningur,“ sagði
ráðherrann um ásakanir þess efnis að
hann hefði tekið þetta mál upp hjá
sjálfum sér og spurði hvort hann
hefði búið til deilu milli Flugmála-
stjórnar og Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna. „Það er afar mikilvægt að
við náum sátt og sönsum í þessu máli,
en það verður ekki gert með aðstoð
stjórnarandstöðunnar, í það minnsta
kosti ekki þess sem hóf þessa um-
ræðu,“ sagði ráðherra.
Flokksbróðir ráðherrans, Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
samgöngunefndar Alþingis, sagði að í
málinu hefði verið staðið að stjórn-
sýslu eins og lög gerðu ráð fyrir. Hins
vegar gagnrýndi hann harkalega
trúnaðarlækni Flugmálastjórnar fyr-
ir vinnubrögð sín, einkum þó það að
hafa haft samband við flugmálayfir-
völd erlendis eftir að úrskurður hafði
fallið af hálfu þriggja
sérfræðinga með
meiri menntun en
hann sjálfur.
„Þessi ágæti maður
er um leið að grafa
undan íslensku flug-
öryggi með þeim
hætti sem hér er unn-
ið og staðið að,“ sagði
Guðmundur ennfrem-
ur um trúnaðarlækn-
inn og bætti því við,
undir lok málsins, að
sami læknir hafi í
málinu gert viðkom-
andi flugmann að
blóraböggli.
Ásta R. Jóhannes-
dóttir (S) benti á að
landlæknir hefði stað-
fest hin læknisfræði-
legum vinnubrögð
trúnaðarlæknisins í
séráliti sínu og furð-
aði sig á þeim vinnu-
brögðum að ætlast til
þess að lögfræðingar
eða fagfélög gefi fyr-
irmæli um það hverjir
fái heilbrigðisvottorð
og hvað standi í þeim.
„Á hvaða plani eru
stjórnarathafnir ráð-
herrans? Hvaða hags-
munir eru svo ríkir að
ráðherrann er tilbú-
inn að hætta flugör-
yggi og rekstrar-
grundvelli millilandaflugs á Íslandi
með pólitískum íhlutunum í fagleg
vinnubrögð eftir reglum og kröfum
JAA?“ spurði Ásta Ragnheiður og
sagði málið staðfesta efasemdir um
að samgönguráðherra sé starfi sínu
vaxinn. Svo bætti hún við: „Ég trúi
því ekki að náin frændsemi umrædds
flugstjóra við framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins ráði hér ferð,
eins og hvíslað hefur verið. Ég trúi
því ekki að slíkt Nígeríustjórnarfar
ríki hér. Ég trúi því ekki.“
Málsmeðferð samgönguráð-
herra vekur margar spurningar
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, gagnrýndi sér-
staklega orð formanns samgöngu-
nefndar í umræðunni og sagði betur
fara á því að hann setti sig faglega inn
í málin í stað þess að reyna að af-
greiða þau með svo einföldum hætti
að finna einfaldan blóraböggul í formi
trúnaðarlæknis Flugmálastjórnar.
„Málsmeðferð samgönguráðherra
í þessu máli vekur margar spurning-
ar. Ekki síst það, að ráðherra virðist
ætla að koma málinu út úr heiminum
með því að skipa sjálfur nefnd, sem
rannsakar meðal annars og ekki síst
stjórnsýslu ráðherrans sjálfs. Síðan
er niðurstöðum nefndarinnar lekið til
fjölmiðla sólarhringum áður en máls-
aðilar fá aðstæður til að kynna sér
þær.“
Steingrímur lagði á það áherslu að
flugöryggi væri hér mikilvægast og
fyrir lægi að trúnaðarlæknirinn hefði
ekkert annað gert í þessu máli en að
standa fast á sínu faglega áliti og
framfylgja þeim alþjóðlegu viðmið-
unarreglum sem Ísland ætti að starfa
eftir til þess að íslensk flugfélög og
flugmenn geti flogið óhindrað og not-
ið trausts.
Katrín Fjeldsted (D) sagði ljóst að
samgönguráðherra hefði hreinan
skjöld og málsmeðferð hans hafi í
einu og öllu verið í samræmi við góða
stjórnsýsluhætti. „Ég þekki trúnað-
arlækni Flugmálastjórnar að góðu
einu, tel hann raunar vera valinkunn-
an sæmdarmann. En það er ráðherra
samgöngumála einnig. Báðir eru
vandir að virðingu sinni, en þó verða
menn að varast að setja þetta mál
upp sem misklíð þeirra á milli. Um
það snýst þetta mál ekki,“ sagði
Katrín og benti á að samtök flug-
manna vefengi einnig störf fluglækn-
is á Akureyri.
Samgönguráð-
herra sakaður
um valdníðslu
Þingmenn spöruðu síst stóru orðin í umræðu utan
dagskrár um stjórnsýslu samgönguráðherra í máli
trúnaðarlæknis Flugmálastjórnar á Alþingi í gær.
Morgunblaðið/Golli
Þau komu bæði við sögu á þingfundi í gær.
Þuríður Backman las upp yfirlýsingu þing-
flokks Vinstri grænna, en Lúðvík Bergvinsson
hóf máls í umræðum um trúnaðarlækni
Flugmálastjórnar. Að baki stendur Þorgerður
K. Gunnarsdóttir.
ÞINGMENN munu greiða at-
kvæði um frumvarp til laga um
lögleiðingu áhugahnefaleika á
mánudag. Þriðju umræðu lauk
síðdegis í gær, en atkvæð-
ugreiðslu um frumvarpið og
breytingartillögu við það var
frestað til næsta þingfundar
sem hefst kl. 15 nk. mánudag.
Í breytingartillögu sem kom
fram við þriðju umræðu um
frumvarpið í gær, felst að ekki
verður heimilt að veita högg í
höfuð andstæðinga í áhuga-
hnefaleikum. Þar er einnig
lagt til að Íþrótta- og Ólympíu-
sambandi Íslands verði gert að
setja reglur um bann við höf-
uðhöggum í öðrum sambæri-
legum bardagaíþróttum. Þing-
konurnar Kolbrún Halldórs-
dóttir, Vinstri grænum, Katrín
Fjeldsted, Sjálfstæðisflokki,
og Sigríður Jóhannesdóttir,
Samfylkingu, lögðu fram
breytingartillöguna, en þær
hafa allar lýst yfir andstöðu
sinni við lögleiðingu hnefa-
leika.
Frumvarp til laga
um hnefaleika
Atkvæða-
greiðsla á
mánudag
ÞURÍÐUR Backman, varaformaður þingflokks VG,
kvaddi sér hljóðs á þingfundi síðdegis í gær og las
upp eftirfarandi yfirlýsingu þingflokks Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs vegna samskipta þing-
flokksins og einstakra þingmanna hans við forseta
Alþingis, Halldór Blöndal:
„Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs lýsir miklum vonbrigðum með hvernig
samskipti þingflokksins og einstakra þingmanna
hans við forseta Alþingis Halldór Blöndal hafa
þróast um skeið. Þrjá eftirtalda atburði ber hæst í
þeim efnum frá undanförnum dögum:
Fimmtudaginn 31. janúar sl. fór forseti Halldór
Blöndal í forsetastól kl. 19.00 og frestaði fyrirvara-
laust og án nokkurra undangenginna tilrauna til að
leita samkomulags, umræðum um þingsályktunartil-
lögu þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð há-
lendisins norðan Vatnajökuls. Þetta gerði forseti
þótt rætt hefði verið um að ljúka umræðunni á þeim
degi og allt útlit fyrir að það tækist án þess að efna til
kvöldfundar. Forseti hafði að engu óskir formanns
þingflokksins um að æskilegt væri að ljúka um-
ræðunni.
Þriðjudaginn 5. febrúar, þegar loks var fram
haldið umræðum um fyrrnefnda þingsályktunartil-
lögu, gerðist það að 1. þingmaður Norðurlandskjör-
dæmis eystra, Halldór Blöndal, sem jafnframt er
forseti Alþingis, veittist með ómaklegum og að mati
þingflokksins ósæmilegum hætti að þingmönnum
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Voru þeir
bornir þeim sökum að vinna „annaðhvort gegn betri
vitund eða viljandi“, eins og þingmaðurinn kaus að
orða það, gegn því að íslenska þjóðin gæti bætt sín
lífskjör og að þingmennirnir og formaður flokksins
sérstaklega stæðu á móti hagsmunum Austfirðinga.
Miðvikudaginn 6. febrúar gerðist svo sá fá-
heyrði atburður að forseti Halldór Blöndal kaus að
víta Ögmund Jónasson, formann þingflokks Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, fyrir þær sakir
að hafa reynt að koma málefnalegri leiðréttingu að í
framíkalli og síðan kallað fram í og sagt að forseti Al-
þingis þekkti vel til háttvísi. Getur hver dæmt fyrir
sig hvort vítur hafi verið við hæfi af þessu tilefni borið
saman við allar þær hörðu orrahríðir sem fram hafa
farið og öll þau stóru orð sem fallið hafa á Alþingi
undanfarna áratugi án þess að gripið hafi verið til
þess að víta þingmenn.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs telur mikilvægt að forseti Alþingis kappkosti
jafnan að halda aðgreindum persónulegum stjórn-
málaskoðunum sínum og ágreiningi við aðra þing-
menn þeirra vegna og fundarstjórn sinni sem forseti
Alþingis. Þingflokkurinn telur að forseti hafi farið of-
fari í fundarstjórn sinni sl. miðvikudag og að ummæli
formanns þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, Ögmundar Jónassonar, hafi fráleitt gefið
tilefni til þess að vera vítt.“
Yfirlýsing þingflokks Vinstri grænna
Telja forseta Alþingis
hafa farið offari
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis,
var staddur á byggðaráðstefnu á Ak-
ureyri í gær og var því ekki viðstaddur
þingfund þegar yfirlýsing þingflokks
VG var lesin upp. Hann segir ekki rétt
að blanda sinni persónu inn í þetta mál,
heldur snúist það um virðingu embættis
forseta Alþingis.
„Ögmundur Jónasson, þingflokks-
maður Vinstri grænna, greip tvívegis
fram í fyrir forseta Alþingis meðan
hann var í ræðustól að skýra frá fundi
sínum með formönnum þingflokka um
tilhögun dagskrár þingfunda vikunnar.
Það er að sjálfsögðu vítavert. Þetta
snýst ekki um mína persónu, enda er
ekkert leyndarmál að við Ögmundur
Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon
höfum oft ást við í orðræðum. Málið
snýst einfaldlega um það að þingmenn
sýni forseta Alþingis virðingu,“ sagði
Halldór Blöndal við Morgunblaðið.
„Ég hefði heldur kosið að vera við-
staddur þegar yfirlýsing þingflokks
Vinstri grænna var lesin í þingsal.
Steingrími J. Sigfússyni var kunnugt
um það að ég hygðist sækja byggða-
fund á Akureyri, en ég hefði að sjálf-
sögðu tekið þingfundinn fram yfir til
þess að heyra þessa yfirlýsingu,“ sagði
Halldór ennfremur.
Nokkur umræða varð um yfirlýsingu
þingflokks Vinstri grænna á þingfundi
síðdegis í gær, eftir að hún hafði verið
lesin upp. Þannig sagði Sigríður A.
Þórðardóttir, formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, viðbrögð Vinstri
grænna umhugsunarverð þar sem for-
setinn væri fjarstaddur og lýsti hún
vanþóknun sinni á yfirlýsingunni. „Ég
tel að þingmaðurinn hafi unnið til þess
að vera víttur,“ sagði Sigríður Anna og
undir það tók Hjálmar Árnason, vara-
formaður þingflokks Framsóknarflokks-
ins.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, og Guðjón A. Krist-
jánsson, þingflokksformaður Frjáls-
lynda flokksins, lýstu hins vegar yfir
stuðningi við yfirlýsinguna og að Vinstri
grænir hefðu haft fullan rétt til þess að
senda hana frá sér. Sagði Össur fráleitt
að Ögmundur hafi átt þingvíti skilið og
sagði bagalega þá óvissu sem þingmenn
byggju nú við varðandi fundarstjórn
forseta. Sagði hann forseta Alþingis
verða að ræða þessi mál við þingmenn
við tækifæri.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis
„Snýst ekki um
mína persónu“