Morgunblaðið - 08.02.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 17
Leiðtogi
Opið prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
laugardaginn 9. febrúar, kl. 10 - 22
í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2
Rétt til þátttöku hafa allir Kópavogsbúar sem undirrita yfirlýsingu um
stuðning við áhersluatriði Sjálfstæðisflokksins og hafa kosningarétt í
sveitarstjórnarkosningunum 25. maí næstkomandi.
sjálfstæðismanna í Kópavogi
Dr. Gunnar I. Birgisson hefur verið leiðtogi sjálfstæðismanna
í Kópavogi og um leið forystumaður í miklu uppbyggingarstarfi
bæjarbúa á síðastliðnum tólf árum. Á þeim tíma hefur bæjar-
félagið tekið miklum breytingum. Umsvif atvinnulífsins hafa
margfaldast, æskulýðsstarf, menningarlíf og félagsþjónusta
stóraukist og almenn þjónusta við íbúana tekið stakkaskiptum.
Glæsileg mannvirki íþrótta og menningar hafa risið og frá-
gangi gatna verið breytt úr gríni í alvöru. Samtímis hefur
styrkum stoðum verið rennt undir fjárhag bæjarsjóðs og
engum dylst að á margan hátt gegnir Kópavogur nú verð-
skulduðu forystuhlutverki á höfuðborgarsvæðinu.
Með öflugri þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
og stuðningi við Gunnar I. Birgisson í fyrsta sætið tryggja
Kópavogsbúar sér framhald á glæstum árangri undanfarinna ára.
Stuðningsmenn Gunnars I. Birgissonar
Nafnlaust
olíufélag ósk-
ar eftir sölu-
aðila á Íslandi
ALÞJÓÐLEGT olíufélag með
aðsetur í Danmörku hefur ósk-
að eftir söluaðila á Íslandi til að
þjóna íslenska flotanum með
sölu á smurolíu. Ekki er um
sölu á bensíni eða gasolíu að
ræða, heldur einungis smurol-
íu, samkvæmt upplýsingum frá
danska sendiráðinu á Íslandi.
Þar fæst ekki uppgefið hvaða
félag um er að ræða en raðaug-
lýsing birtist í Morgunblaðinu í
gær frá alþjóðlegu olíufélagi,
en nafn félagsins kom ekki
fram. Auk þess að selja smur-
olíu skal söluaðilinn annast
þjónustu við íslenska fiskveiði-
og verslunarflotann.
„Einnig að annast birgða-
geymslu og dreifingu á olíuvör-
um til eigin viðskiptavina auk
viðskiptavina olíufélagsins, sem
hafa viðkomu í íslenskri höfn.“
Fram kemur að fulltrúar ol-
íufélagsins verði til viðræðna
hér á landi síðustu viku febr-
úarmánaðar.
TAP Haraldar Böðvarssonar hf. nam
195,7 milljónum króna á síðasta ári.
Árið 2000 var tapið 665,5 milljónir
króna og hefur afkoman því batnað á
milli ára.
Í fyrsta skipti er gerður sam-
stæðureikningur vegna stofnsetning-
ar dótturfélags Haraldar Böðvars-
sonar, Baltic Seafood SIA í Lettlandi,
á síðasta ári. Í verksmiðjunni í Lett-
landi er unnin þurrkuð loðna fyrir
Japansmarkað, auk þess sem einnig
er hafin bolfiskvinnsla úr frystu hrá-
efni.
Hagnaður samstæðunnar fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði á árinu 2001
nam 1.078 milljónum króna, sem er
23,7% af tekjum, samanborið við 598
milljónir króna árið áður, sem er
15,4% af tekjum þess árs. Veltufé frá
rekstri nam 716 milljónum króna á
árinu 2001 og jókst um 441 milljón
króna eða 160% frá árinu áður.
Heildartekjur samstæðunnar
námu 5.472 milljónum króna að með-
töldum afla til eigin vinnslu, sem er
aukning um 925 milljónir króna frá
fyrra ári. Á fjórða ársfjórðungi batn-
aði afkoma fyrirtækisins um 80 millj-
ónir króna.
Mesti afli í sögu félagsins
Heildarafli skipa félagsins var
156.000 tonn á árinu 2001, sem er
mesti afli í 95 ára sögu félagsins. Þar
af voru 140.000 tonn af uppsjávarteg-
undunum loðnu, síld og kolmunna.
Í tilkynningu til Verðbréfaþings
Íslands kemur fram það mat Harald-
ar Sturlaugssonar, framkvæmda-
stjóra félagsins, að ánægjulegt sé að
hagnaður fyrir afskriftir og veltufé
frá rekstri hafi aukist jafn mikið og
raun ber vitni frá árinu 2000. „Þar er
fyrst og fremst um að ræða að ástand
á afurðamörkuðum hefur verið okkur
hagstætt að undanförnu á sama tíma
og áherslubreytingar í rekstrinum
eru að skila sér,“ segir Haraldur í til-
kynningunni. Áætlun um rekstur fé-
lagsins á árinu 2002 var birt í desem-
bermánuði sl. Þar er reiknað með að
framlegð af rekstrinum og veltufé frá
rekstri á þessu ári verði allnokkru
hærri en árið 2001. „Rekstur ársins
2002 hefur farið af stað líkt og búist
var við, aflabrögð og vinnsla eru í
samræmi við áætlun, kvótaúthlutun í
loðnu er svipuð og reiknað var með,
en gengi íslensku krónunnar hefur þó
heldur styrkst frá því að áætlunin var
birt,“ segir í tilkynningu HB.
Tap Haraldar
Böðvarssonar
minnkar
!" #
!"#
$%
!"
&$
# %#
"
#'(
!"
"
"
"
"
"
!"
!"
#"
"
!"
!"
$%
& '
& '
& '
$%
$%
Aukinn
áhugi á
Arcadia
VIÐRÆÐUSLIT Baugs og Arcadia
hafa haft áhugaverðar afleiðingar á
verð hlutabréfa í Arcadia, að því er
segir í Independent. Daginn sem
slitin voru tilkynnt lækkaði verð
hlutabréfanna í 257 pens úr 270
pensa upphafsverði, en breskir
verðbréfamiðlarar hófu að mæla
með kaupum á hlutabréfum í Arc-
adia eftir langa biðstöðu. Í kjölfarið
hafa bréfin hækkað stöðugt og á
miðvikudag var lokagengi þeirra
komið í 284,5 pens. Það verð er inn-
an þess ramma sem Baugur hafði
hugsað sér að bjóða fyrir bréfin,
þ.e. 280 til 300 pens. Telur Indep-
endent að þar með sé ljóst að verð-
bilið sem Baugur hafði í huga sé of
lágt.
CSFB telur að verðið muni ná
400 pensum og SG Securities telur
að það fari í 405 pens.
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ Gunnvör
hf. hefur keypt 50% hlut í útgerð-
arfélaginu Ögurnesi ehf. á Súða-
vík. Ögurnes ehf. gerir út rækju-
bátinn Fengsæl ÍS, 30 tonna
eikarbát sem smíðaður var í Dan-
mörku árið 1930. Að sögn Einars
Vals Kristjánssonar, fram-
kvæmdastjóra HG, hefur báturinn
yfir að ráða um 3,2% innfjarð-
arrækjukvótans í Ísafjarðardjúpi.
Fengsæll ÍS hefur fram til þessa
landað afla sínum í rækjuvinnslu
HG í Súðavík og segir Einar Val-
ur að svo verði áfram. Alls hafa
17 bátar leyfi til innfjarðar-
rækjuveiða í Ísafjarðardjúpi.
Gunnvör
kaupir 50%
í Ögurnesi
Morgunblaðið/Hafþór
Ögurnes ehf. gerir út
rækjubátinn Fengsæl ÍS.
♦ ♦ ♦