Morgunblaðið - 22.02.2002, Síða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 43
✝ Ingibjörg AuðurMatthíasdóttir
fæddist í Haukadal í
Dýrafirði 14. sept-
ember 1911. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 14. febr-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Marsibil Ólafsdóttir
f. á Rauðstöðum í
Arnarfirði 1869, d.
1964, og Matthías
Ólafsson, kaupmað-
ur í Haukadal og
þingmaður fyrir Ísa-
fjarðarsýslu, síðar
starfsmaður Fiskifélagsins og
Landsverslunar, f. 1857 í Haukdal
í Dýrafirði 1857, d. 1942. Marsibil
og Matthías eignuðust 15 börn
sem öll eru látin, þau voru: Lilja, f.
1889, gift Sölva Jónssyni bóka-
sala; Sigurbjörg Hulda hjúkrunar-
kona, f. 1891, gift Helga Guð-
mundssyni lækni í Keflavík;
Sigríður, f. 1893, gift Magnúsi
Richardssyni umdæmisstjóra á
Borðeyri; Andrés Pétursson sjó-
maður, f. 1895, kvæntur Kristjönu
Erlendsdóttur; Haukur, f. 1897,
d.1897; Ólafur Haukur skrifstofu-
stjóri, f. 1898, fyrri kona Sigrún
Guðmundsdóttir, síðari kona Ásta
stjóra, f. 25.5. 1941, d. 5.9. 1983.
Börn þeirra eru: 1) Axel Ingi,
flugmaður hjá Flugfélagi Íslands,
f. 1963, í sambúð með Guðlaugu
Guðjónsdóttur, viðskiptafræði-
nema í Háskólanum í Reykjavík.
Axel var áður kvæntur Sólveigu
Pétursdóttur og er sonur þeirra
Andrés Pétur. Synir Guðlaugar
eru Hafsteinn og Arnar Freyr
Ólafssynir. 2) Andvana fæddur
drengur 1965. 3) Helga Ólöf,
hjúkrunarfræðingur á Heilsu-
gæslustöðinni á Höfn, f. 1966,
maki Adonis Karaolanis verslun-
armaður í Byggingavöruverslun
Austur-Skaftfellinga, þeirra barn
er Aþena, f. 2000, 4) Eiríkur
starfsmaður hjá Löndun hf., f.
1968, sambýliskona hans er Sig-
urrós Gísladóttir, bankaritari hjá
Íslandsbanka hf., og dóttir þeirra
er Auður, f. 1994.
Fjölskyldan flutti til Reykjavík-
ur 1914. Auður lauk prófi frá
Verslunarskóla Íslands 1929 og
vann á skrifstofu Tóbakseinkasöl-
unnar til ársins 1942. Seinustu ár
starfsævinnar var Auður baðvörð-
ur í Vogaskóla og þar áður ritari á
Slysavarðstofunni í Reykjavík.
Hún var fyrsti formaður Kven-
félags Bústaðasóknar og síðar
heiðursfélagi. Auður bjó í Dala-
landi 5, en síðustu árin var hún
vistmaður á Dvalarheimili aldr-
aðra, Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Auðar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Jósefsdóttir; Hlíf, f.
1899, gift Ólafi Magn-
ússyni skipstjóra; Ás-
laug, f. 1900, d. 1900;
Jón Friðrik loft-
skeytamaður, f. 1901,
kvæntur Jónínu Jó-
hannesdóttur; Ingólf-
ur, loftskeytamaður
og stöðvarstjóri í
Gufunesi, f. 1903,
kvæntur Unni Einars-
dóttur; Þórdís Áslaug,
f. 1904, gift Kára Sig-
urjónssyni á Rann-
sóknarstofu Háskól-
ans; Knútur, f. 1905,
d. 1909; Örn Hauksteinn, f. 1907,
kvæntur Guðrúnu Ólafsdóttur;
Ingibjörg Auður, f. 1911, og Helga
Kristjana, f. 1915, d. 1916. Auður
giftist 20.10. 1934 Axel Ludvig
Sveins, verslunarstjóra og síðar
fulltrúa í Ræsi hf., f. 28.7. 1909, d.
15.5. 1969. Foreldar hans voru
Sveinn Hallgrímsson bankamaður
og kona hans Ellen Luckner Fev-
eile Hallgrímsson. Seinni kona
Sveins og stjúpmóðir Axels var
Anna Hallgrímsson blómakaup-
maður. Dóttir Auðar og Axels er
Anna Matthildur, ritari hjá emb-
ætti ríkissaksóknara, f. 1942, gift
Eiríki Kristinssyni flugumferðar-
Hún amma er lögð af stað héðan í
sína seinustu ferð. Hún hafði ætlað
að vera löngu farin og var það í raun.
Ingibjörg Auður Matthíasdóttir
var á þriðja ári þegar hún kom sjó-
leiðina til Reykjavíkur með fjöl-
skyldu sinni. Hún var yngsta barn
kaupmannshjónanna frá Haukadal í
Dýrafirði sem höfðu brugðið búi og
voru komin í höfuðstaðinn m.a. til að
skapa börnunum betri skilyrði til
mennta. Í Reykjavík bættist í hópinn
lítil systir sem dó á öðru ári.
Adda litla var efnisbarn og kot-
roskin. Að loknu barnaskólanámi
gekk hún í Verslunarskólann og lauk
þaðan prófi vorið 1929. Hún var um
skeið félagi í Litla leikfélaginu þar
sem nokkrir þjóðþekktir leikarar
stigu sín fyrstu spor. Amma fór til
Englands með Kristínu Pálsdóttur
skólasystur sinni og bestu vinkonu.
Ingólfur Matthíasson bróðir hennar
var loftskeytamaður á togaranum
Belgaum og með honum sigldu þær
til Hull. Ingólfur greiddi götu þeirra
þar ytra þar sem amma hóf nám í
hjúkrun. Hún veiktist af skarlatsótt
sem varð til að binda endi á námið.
Þegar heim var komið gerðist
frökenin skrifstofudama í „Tóbak-
inu“ og giftist Axel afa 1934. Þau
nutu lífsins og bjuggu ásamt Erni
Matthíassyni og Guðrúnu Ólafsdótt-
ur konu hans í Bergstaðastræti 35 og
síðar á Sjafnargötu 8. Þar fæddist
Anna Matta, mamma okkar. Litla
fjölskyldan flutti í kjallara á Kapla-
skjólsvegi 9 og Gunnar M. Richards-
son frá Borðeyri, sonur Sigríðar
Matthíasdóttur, var þar um tíma
vegna skólagöngu.
Það var komið árið 1951 þegar
fjögurra manna fjölskylda flutti inn í
nýja íbúð á efri hæð í Hæðargarði 12.
Marsibil langamma átti heimili hjá
ömmu og afa næstu 13 ár. Hún var
lagin að kenna litlum börnum að
kveða að og draga til stafs og tók
nokkrar telpur úr hverfinu í tíma-
kennslu þá komin á níræðisaldur.
Amma stofnaði með nokkrum kon-
um kvenfélag í Bústaðasókn og var
fyrsti formaður félagsins.
Hlíf Matthíasdóttir og fjölskylda
flutti í Hæðargarð 40. Systurnar voru
góðar vinkonur, hittust nánast dag-
lega og studdu hvor aðra á meðan
þeim entist líf og heilsa.
Amma varð ekkja 58 ára og líf
hennar breyttist skyndilega. Andrés
Pétursson Matthíasson var þá orðinn
leigjandi í Hæðargarðinum. Hún fór
út á vinnumarkaðinn eftir langt hlé
og var baðvörður í Vogaskóla þar til
eftirlaunaaldri var náð.
Hún Adda Matt kunni að njóta lífs-
ins og hafði gaman af að segja frá
eins og aðrir í hennar fjölskyldu. Hún
var unnandi góðra bóka og ágætlega
hagmælt. Okkur færði hún gjarnan
vísu á tyllidögum. Hún hafði yndi af
að ferðast og minnisstæðir eru túr-
arnir út úr bænum þegar hún óþreyt-
andi fræddi okkur um landslagið og
náttúruna. Þegar Hekla gaus 1947
var hún og Stína Páls með þeim
fyrstu á vettvang. Og seinna, 1970,
þegar gaus þar í Skjólkvíum, tók hún
mömmu og frumburðinn hennar með
í rútu austur. Og enn fór að gjósa, það
var á laugardegi í ágúst 1980 og þær
Helga Ólöf á leið yfir Sprengisand til
Akureyrar.
Við fluttum 1979 í nýtt hús í Ritu-
hólum 8 og amma átti íbúð á jarðhæð-
inni. Þar vorum við ávallt velkomin
með heimilistíkina okkar og hvolp-
ana. Öllum var veitt vel. Börnunum
hennar Hosu þurfti að gefa nöfn og
var amma með í ráðum þegar við
nefndum þá eftir persónum úr sögum
Halldórs Laxness. Í Brekkukoti
mátti ekki blessa hund. Amman í
Rituhólunum tók ekki mark á því og
gældi við málleysingja hverrar teg-
undar sem þeir annars voru.
Við áttum hauk í horni þegar pabbi
okkar féll frá á besta aldri. Amma
reyndist enn sem fyrr betri en eng-
inn. Henni var stundum líkt við
ömmu þeirra Jóns Odds og Jóns
Bjarna þótt ekki væri hún erindreki.
Og hún var stolt af okkur ömmubörn-
unum þótt hún þyrfti stundum að
minna okkur á að vera kurteisari við
hana „móður“ okkar. Og svo reyndi
hún líka að lækna okkur af þágufalls-
sýki. Seinna minnti hún okkur á að
tími væri kominn fyrir langömmu-
börn en þegar þau fæddust var þoka
farin að læðast að. Auði sinni, Andr-
ési Pétri og Aþenu litlu fékk hún ekki
kynnst sem skyldi.
Nú er komið að lokum og það er
orðið langt síðan amma kom síðast í
kirkjuna sína. Þar verður í dag sung-
ið yfir kistunni hennar sem borin
verður til greftrunar úti við Fossvog-
inn við hlið afa. Þar stendur legsteinn
sem hún lét gera, en grafskriftin er
Arnar Arnarsonar:
Er syrtir af nótt til sængur er mál að
ganga
sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga.
Þá vildi ég móðir mín að mildin þín
svæfði mig svefninum langa.
Guð blessi minningu Ingibjargar
Auðar Matthíasdóttur, hennar ömmu
Öddu.
Axel Ingi, Helga Ólöf
og Eiríkur.
Í nokkrum orðum, langar mig til
að minnast elskulegrar móðursystur
minnar Auðar Matthíasdóttur, eða
Öddu frænku, sem við kölluðum
hana. Það er svo margs að minnast
frá æskuárum okkar systkina, mín og
Gunnars, sem hefur einnig kvatt okk-
ur.
Hve ljúft er að minnast allra
sunnudagsferðanna er voru farnar
með Öddu og Axel og við fengum að
fljóta með, til Þingvalla, upp í Hval-
fjörð og ekki síst í Mosfellsdalinn.
Þetta var kærkomin upplifun fyrir
börn, sem annars áttu ekki kost á bíl-
ferð. Þessi elskulegu hjón tóku Gunn-
ar bróður í fóstur í mörg ár vegna
veikinda móður okkar. Ég dvaldi
hinsvegar hjá annarri systur, Þór-
dísi. En alltaf var mikill samgangur á
milli okkar. Þessi stóri hópur systk-
ina frá Haukadal var sem ein heild,
allir hjálpuðust að ef eitthvað bjátaði
á hjá einhverjum. Nú þegar hugsað
er til baka finnur maður hve mikils er
að þakka þessu frændfólki, sem allt
vildi fyrir mann gera. Haf þú þökk
fyrir, elsku frænka. Ég veit að það
verður vel tekið á móti þér, af þeim
sem á undan eru gengnir.
Hvíl í friði, elsku Adda. Þín frænka
Jóhanna D. Magnúsdóttir (Nóa).
Gott er þreyttum að sofna.
Vinkona mín til margra ára, Auður
Matthíasdóttir, er búin að fá hvíldina.
Þegar Bústaðasöfnuður var að
koma sér upp kirkju var Kvenfélag
Bústaðasóknar stofnað til styrktar
kirkjubyggingunni. Fyrsti formaður
félagsins var kosinn Auður Matthías-
dóttir.
Auður var glæsileg og gáfuð kona.
Hún átti auðvelt með að koma fyrir
sig orði. Einnig var hún vel hagmælt.
Eiginmaður Auðar var Axel L.
Sveinsson og var hann mjög áhuga-
samur um kirkjumál. Margir lögðu
hönd á plóginn, til dæmis Sigurþór
Runólfsson, sem sá um barnastarf í
kirkjunni og safnaði í áskrift í hverj-
um mánuði. Hann varð bráðkvaddur
við þau störf. Margir fleiri lögðu til
vinnu og tíma til uppbyggingar
kirkjustarfsins þótt þeir verði ekki
nafngreindir hérna.
Fyrir utan bein framlög til kirkj-
unnar í ársgjöldum kvenfélagsins,
áheit og sölu minningarkorta bárust
oft góðar gjafir. Margs konar menn-
ingarstarfsemi fylgdi kirkjustarfinu
svo sem námskeið. Færð voru upp
smáleikrit og fleira var haft til gagns
og gamans. Skipulögð voru árlega
ferðalög um landið, lengri og
skemmri. Eitt árið var farið til Fær-
eyja. Var sú ferð mjög vel heppnuð.
Íslensku konurnar fengu að kynnast
listrænni handavinnu, leikjum, fær-
eyskum dansi, hringdansi með söng,
matarhefð og menningu. Sú ferð var
okkur ógleymanleg. Seinna komu um
fjörutíu konur í heimsókn frá Fær-
eyjum. Þær gistu í boði Kvenfélags
Bústaðasóknar. Var þeim skipt niður
á heimili í sókninni, einni til þremur á
hvert. Auður Matthíasdóttir skipu-
lagði ýmsar uppákomur og ferðalög
með þeim. Góður vinskapur tókst
milli kvennanna. Ennþá berast gjafir
og jólakort á milli þessara landa
vegna heimsóknanna. Þegar hallaði
degi og vinkona mín Auður Matthías-
dóttir var orðin sjúk og þreytt gat
hún yljað sér við minningar um gott
og gæfuríkt starf í þágu kirkju og
samfélagsins. Við fylgdumst að í
mörg ár í starfi og gleði. Alltaf var
notalegt að sjá hana og halda í hönd-
ina á henni, jafnvel líka rifja upp liðna
daga. Hún gæti vissulega horft til
baka með ánægju og stolti.
Ég þakka vinkonu minni langa og
góða samfylgd.
Afkomendum hennar óska ég alls
góðs.
Oddrún Pálsdóttir.
Duglegur herforingi lætur ekki ófriðlega.
Sá sem vopnfimastur er, gengur ekki
berserksgang.
Mikill sigurvegari er ekki áleitinn. Góður
foringi kemur sínu fram með hægð.
(Lao-tse.)
Þegar rituð verður saga Reykja-
víkur upp úr miðri síðustu öld – þeg-
ar öll úthverfi borgarinnar eru að
byggjast – það er að segja hverfi
austan 101 Reykjavík, fer ekki hjá
því að alltaf eru það nokkrir einstak-
lingar sem gnæfa þar uppúr meðal-
mennskunni.
Öll voru þessi hverfi með sínum
einkennum sökum landslags og legu.
Fljótlega þótti það sjálfsögð siðferð-
isleg skylda, að skipta þessum hverf-
um upp í sóknir – kirkjusóknir, en að
sjálfsögðu voru þau öll kirkju- og
hirðislaus til að byrja með.
Ég flutti í eitt af þessum nýju
hverfum árið 1948, það hét þá bara
Sogamýri og þótti ekki fínt – en það
lagaðist stórum eftir að það komst
undir samheitið Bústaðasókn.
Ég var nýflutt úr sveit – upptendr-
uð af ungmennafélagsanda, þekkti til
heimavistar á héraðsskóla og öllu því
fjölbreytta félagslífi sem því fylgdi.
Það var mér því mikið tilhlökkunar-
efni þegar fréttist að til stæði að
stofna kvenfélag innan sóknarinnar
og hugði ég því gott til glóðarinnar,
að framlengja ungmennafélagsfund-
ina.
Félagið var stofnað 1953 og fyrsti
formaður var Auður Matthíasardótt-
ir, enda aðal driffjöður að stofnun
þess. Maður hennar Axel L. Sveins
stóð í stafni og stýrði uppbyggingu
sóknarinnar ásamt öðru góðu fólki,
en hann féll frá á miðjum starfsaldri
og var öllum harmdauði.
Ég komst fljótlega að því að vænt-
ingar til þessa nýja félags voru æði
misjafnar og ekki féll ég að öllu leyti
inn í selskapinn. Þarna voru virðu-
legar frúr í pelsum með „keip,“ um
háls og herðar, komnar af alþingis-
mönnum, prestum og prelátum, en
ég nýfarin úr gúmmískónum, með
mjaltirnar undir nöglunum og ekki
einu sinni meðhjálpari í ættinni, hvað
langt sem leitað var.
Auður var ein af þessum frúm sem
allir báru ósjálfráða lotningu fyrir.
Hún var yngst af stórum systkina-
hópi, var vel menntuð af þessarar
kynslóðar konu að vera. Kunni að
umgangast höfðingja.
En hvernig sem það var breyttist
fljótlega viðhorf mitt til þessarar
konu, þegar ég kynntist hennar ynd-
islegu eiginleikum, leikandi léttum
húmor, skarpskyggni og ást á bók-
menntum. Fór smekkur okkar oftast
saman, hún var líka mjög hagmælt,
en það er ég ekki.
Hún var formaður fyrstu 11 árin,
og síðan í stjórn lengi. Allt starf fé-
lagsins miðaðist við uppbyggingu
safnaðarins og kirkjunnar, en kven-
félagið notaði ýmsar fjáröflunarleið-
ir, sem veittu okkur ánægju og gleði
um leið.
Við minnumst margra þeirra
stunda, þegar verið var að undirbúa
skemmtifundi og móttöku gesta. Við
settum okkur á háan hest, efndum til
bókmenntakynninga undir stjórn
lærðra leiðbeinenda, réðumst inn á
svið bókmenntafræðinga og létum
ljós okkar skína og alls staðar var
Auður fremst í flokki, full af eldmóði.
Við minnumst hennar við mörg
slík tækifæri. Hún var höfðingi heim
að sækja og fór ekki í manngrein-
arálit, en var fundvís á skoplegu hlið-
ar mannlífsins. Alls staðar þar sem
mannfagnaður var, var hún miðdepill
samkvæmisins. Þannig vil ég muna
hana. Það var sárt að horfa uppá
þverrandi heilsu hennar allt of
snemma og að lokum sjá hana hverfa
inn í þögn og tómleika. Einkadóttir
hennar, hún Anna Matthildur, var
hennar gimsteinn, þær varðveittu
hvor aðra þegar báðar þurftu. Ég
sendi henni og börnum hennar inni-
lega samúð mína og ég veit að það
gera margar félagskonur úr kven-
félagi Bústaðasóknar líka. Hún var
okkar heiðursfélagi.
Blessuð sé minning hennar.
Rósa Sveinbjarnardóttir.
AUÐUR
MATTHÍASDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
(
)+ ;-<6
3%*
/ ##(3@@
. %
!
!
"$
.* ( *$
(/4 % %
: %/" % *$ 4