Morgunblaðið - 22.02.2002, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 57
DAGBÓK
Garðatorgi, sími 565 6550
Kvensíðbuxur, gallabuxur,
kvartbuxur,
teinóttar buxur,
Verð 4.698 kr.
. ( (
8 A 2F2 * 2F2
( %* %
ÚTSÖLULOK
50-70% afsláttur
í dag og á morgun
LAUGAVEGI 1 S: 561 7760
Velkomin um borð
Árnað heilla
95 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22. febr-
úar, er níutíu og fimm ára
Ingileif K. Wium frá Fagra-
dal í Vopnafirði. Ingileif
dvelur á Hjúkrunarheim-
ilinu Ási í Hveragerði.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22. febr-
úar, er sextug Elsa D. Ein-
arsdóttir, starfsmaður JT-
veitinga, Hótel Loftleiðum,
Yrsufelli 1, Reykjavík. Hún
tekur á móti gestum á morg-
un, laugardaginn 23. febr-
úar, kl. 20–23 í Kiwanishús-
inu, Smiðjuvegi 13a,
Kópavogi.
1. d4 d6 2. e4 Rf6 3. Rc3
g6 4. Be3 c6 5. h3 Rbd7 6.
f4 Bg7 7. Df3 Da5 8. 0–0–0
0–0 9. Kb1 Hb8 10. g4 b5
11. g5 Rh5 12. h4 Rb6 13.
f5 Ba6 14. Rh3 b4 15. Re2
c5 16. Rc1 c4 17.
Rf4 Rxf4 18.
Dxf4 Ra4 19.
Hh2
Staðan kom
upp í A-flokki
Norðurlanda-
mótsins í skóla-
skák sem lauk
fyrir skömmu.
Finninn Tommi
Verkasalo
(2.057), svart,
sneri laglega á
Stefán Kristjáns-
son (2.389). 19...
Rxb2! Hvítur
yrði nú mát eftir
20. Kxb2 Da3 21. Kb1 c3.
Framhaldið varð: 20.
Hhd2 Da3 21. Bh3 Ra4 og
hvítur gafst upp enda fátt
til varnar. Lokastaða efstu
manna í E-flokki varð
þessi: 1. Alexei C. Hansen
(1.545) 5½ v. 2. Morgan
Amundsen 5½ v. 3. Sverrir
Þorgeirsson 3½ v. Ásgeir
Mogensen fékk 2½ vinning
og endaði í 5.–7. sæti.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
LJÓÐABROT
ARNLJÓTUR GELLINI
Lausa mjöll á skógi skefur.
Skyggnist tunglið yfir hlíð.
Eru á ferli úlfur og refur.
Örn í furu toppi sefur.
Nístir kuldi um nætur tíð.
Fer í gegnum skóg á skíðum
skörulegur halur einn
skarlats kyrtli sveiptur síðum,
sára gyrður þorni fríðum.
Geislinn hans er gambanteinn.
- -
Ýmsar sögur annarlegar
Arnljóts fara lífs um skeið.
En – fátækum hann þyrmir þegar,
og þeim, sem fara villir vegar,
vísar hann á rétta leið.
Grímur Thomsen
TÍMASETNINGIN er að-
alatriði málsins í þessu spili
frá tvímenningi Bridshátíð-
ar:
Norður
♠ Á652
♥ G862
♦ G4
♣ÁK4
Suður
♠ K7
♥ ÁD1093
♦ Á102
♣G75
Fjögur hjörtu er nánast
óhjákvæmilegur samningur
og sú varð niðurstaðan á 50
borðum af 54. Þrjú pör
reyndu slemmu, en eitt par
spilaði bút. En vandinn er
þessi: Hvernig á að spila
fjögur hjörtu með lauftí-
unni út? AV hafa ekkert
sagt.
Þetta er tvímenningur,
svo yfirslagurinn er dýr-
mætur. Tvennt kemur til
greina: Annars vegar að
hleypa tíunni yfir á gosann í
þeirri von að útspilið sé frá
D109, eða drepa í borði og
spila smáum tígli að tíunni.
Þá er vonin sú að austur
eigi hjónin. Það sem ekki
má gera er að stinga upp ás
og svína í trompi. Slíkt væri
sóun á tækifærum:
Norður
♠ Á652
♥ G862
♦ G4
♣ÁK4
Vestur Austur
♠ 1093 ♠ DG84
♥ K54 ♥ 7
♦ 976 ♦ KD853
♣10982 ♣D63
Suður
♠ K7
♥ ÁD1093
♦ Á102
♣G75
Leiðin að ellefu slögum í
þessari legu er að drepa á
ás og spila tígli. En það er
ekki endilega rökrétt spila-
mennka, nema lauftían
beinlínis neiti hærra
mannspili (eins og er hjá
þeim sem spila út þriðja
hæsta frá brotinni röð). Ef
lauftían hvorki játar né
neitar drottningunni virðist
betri möguleiki að hleypa á
gosann.
Fjögur hjörtu unnust
slétt á 32 borðum, en 18
sagnhafar fengu ellefu
slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert óeigingjarn persónu-
leiki sem hefur mikla sköp-
unargáfu. Þú hefur mikla
þörf fyrir að leggja þitt á
vogarskálarnar til að gera
þennan heim betri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert eirðarlaus í dag. Þú
hefur þörf fyrir meiri spennu
í lífi þínu og ættir að taka þá
áhættu sem því fylgir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það gleður þig að sjá árang-
ur erfiðis þíns enda áttu það
skilið því þú hefur lagt þig
allan fram um að gera þitt
besta.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það eru ýmsar nýjungar að
banka upp á hjá þér og þér
finnst erfitt að sinna þeim
öllum í einu. Gefðu þér samt
nægan tíma til að skoða mál-
ið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú er mjög sjálfstæður í dag
og ættir því ekki að þiggja
ráð frá öðrum. Og mundu að
það er sælla að gefa en
þiggja.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver vinur eða vinnu-
félagi þinn á eftir að koma
þér skemmtilega á óvart í
dag. Það á eftir að vekja upp
gamlar vonir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt miklu skipti að aðrir
kunni að meta störf þín er
það þó þýðingarmest að þú
sért sáttur við sjálfan þig og
leggir þig fram eftir bestu
getu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Óvæntar fréttir kunna að
berast langt að sem gleðja
þig. Þér gengur allt í haginn
ef þú skipuleggur hlutina vel
og vandlega.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert í harðri samkeppni og
verður því að leggja mikið á
þig til þess að standast hana
og koma þínum málum í
höfn. En hæfileikana hef-
urðu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Börn geta verið uppspretta
hugmynda hjá þér í dag. Þú
getur lært margt af þeim og
þau eiga eftir að víkka sjón-
deildarhringinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er eitt og annað í þínum
eigin garði sem þarfnast at-
hugunar og úrbóta. Taktu til
í honum áður en þú heldur
lengra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að fara ofan í saum-
ana á verkefni þínu jafnvel
oftar en einu sinni. Þú munt
svo sannarlega ekki tapa á
því í þetta sinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er alltaf gott að gleðjast
við þegar vel gengur en
mundu að allur árangur
verður ekki metinn í krónum
og aurum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ATVINNA mbl.is
Með morgunkaffinu
Og þú vogar þér ekki að dreyma hana Jennifer
Lopes aftur!
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík