Morgunblaðið - 27.02.2002, Side 13

Morgunblaðið - 27.02.2002, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 13 VIKAN 11.–15. febrúar var sérstaklega tileinkuð umhverf- ismálum í Engidalsskóla í Hafnarfirði, en skólinn er auk fleiri skóla á landinu, aðili að verkefni er kallast Græni fán- inn. Verkefnið hefur það að markmiði að efla umhverfis- mennt og styrkja og móta um- hverfisstefnu í skólum. Síðastliðið vor skrifuðu 12 skólar á Íslandi undir sam- starfsyfirlýsingu um Græna fánann. Landvernd og um- hverfisráðherra efndu til þessa samstarfs. Með samstarfinu er stefnt að því að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Einnig á með samstarf- inu að stuðla að góðri um- gengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og um- hverfisspjöllum. Markviss flokkun á rusli Til að ná fram markmiðum verkefnisins hefur bekkjum Engidalsskóla m.a.verið falið að skiptast á að vera umsjón- arbekkir lóðar. Hlutverk um- sjónarbekkja er að sjá til þess að umhverfi skólans sé í góðu lagi og hvetja nemendur skól- ans til góðrar umgengni, með því að vernda gróður og henda ekki rusli á skólalóð. Markviss flokkun á rusli hefur verið sett í gang og safna nú allir bekkir fernum sem þeir skola og setja síðan í sérstakan fernugám sem staðsettur hefur verið á skólalóð. Allur gæðapappír er settur í sérstaka kassa. Í umhverfisvikunni var enn meiri áhersla en áður lögð á umhverfismál í allri vinnu og umræðu. Allir nemendur skól- ans fóru í gegnum gátlista um umhverfismál með umsjónar- kennara sínum. Daglegar um- ræður voru um umhverfismál, þar sem tekin voru fyrir mál- efni sem tengjast t.d. sorpi, orku, samgöngum, innkaupum og vatni. Allir nemendur skól- ans heimsóttu Sorpu, þar sem þeir fengu tækifæri til þess að kynnast starfsemi fyrirtækis- ins. Þar var lögð áhersla á að kynna umhverfissjónarmið og þá möguleika sem einstakling- urinn hefur til þess að leggja sitt af mörkum. Á öskudaginn var haldið furðufataball þar sem áhersla var lögð á búninga úr notuðum fötum. Nemendur unnu í um- hverfisvikunni fjölbreytt verk- efni í skólanum sem tengdust umhverfismálum. T.d. voru unnin veggspjöld með slagorð- um um umhverfismál og marg- ir tóku þátt í að spreyta sig á að hanna umhverfismerki skólans. Einnig voru unnin margvísleg listaverk úr verð- lausum efnum. Nemendur og kennarar eru almennt mjög ánægðir með ár- angurinn af vinnu þessari, að sögn Erlu Maríu Eggertsdótt- ur, aðstoðarskólastjóra. „Veggspjöldin og önnur lista- verk, sem eru nú sýnileg á göngum skólans, hafa vakið at- hygli og skapað umræður í bekkjunum um umhverfismál. Það er von okkar í Engidals- skóla að átak þetta eigi eftir að efla umhverfisvitund nemenda og stuðla að stöðugri umhverf- ismenntun í skólanum.“ Græna fánanum flaggað í Engidalsskóla 5. bekkir Engidalsskóla hafa í sameiningu hannað tillögu að umhverfismerki skólans og hangir tillagan á veggnum fyrir ofan hópinn á myndinni. Hafnarfjörður „GRÆNFÁNINN er um- hverfismerki sem nýtur virð- ingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverf- isstefnu í skólum,“ segir m.a. um verkefnið Grænfánann á heimasíðu Landverndar, www.landvernd.is. Fyrir tæpu ári var verkefninu hrundið af stað á Íslandi og voru það umhverfisráðherra, Landvernd og 12 grunn- skólar á landinu sem hleyptu Grænfánanum af stokkunum hér á landi. Hinir tólf skólar sem tóku þátt í frá byrjun Grænfánans á Íslandi eru Andakílsskóli í Borgarfirði, Engidalsskóli í Hafnarfirði, Fossvogsskóli í Reykjavík, Gnúpverjaskóli í Gnúpverja- hreppi, Grunnskóli Borg- arfjarðar í Borgarnesi, Grunnskóli Mýrdalshrepps í Vík, Grunnskólinn á Lýsuhóli á Snæfellsnesi, Hallorms- staðaskóli á Egilsstöðum, Langholtsskóli í Reykjavík, Lindaskóli í Kópavogi, Sel- ásskóli og Seljaskóli í Reykja- vík. Í stefnu verkefnisins sem finna má á heimasíðunni kemur fram að þeir skólar sem uppfylli settar kröfur fái heimild til að flagga græn- flagginu. Að baki fánanum stendur sjálfseignarstofnunin „Foundation for Environmen- tal Education in Europe“. Tólf grunnskólar taka þátt í Grænfánanum ÞAÐ ÞARF ekki að fara suður til Ítalíu eða norður á land til að komast á skíði eða snjóbretti. Það sýndu hressir brettakappar í gær sem höfðu fundið sér sæmi- lega brekku í Ártúnsholt- inu til að leika listir sínar. Þeir létu frostið ekki á sig fá og þó að stráin hafi sums staðar stungið sér upp úr þunnri snjóhulunni nutu þeir þess að renna sér niður Ártúnsholtið jafnvel þótt þeir hafi orðið að bera brettin upp aftur, því eng- ar eru lyfturnar á þessum slóðum. Morgunblaðið/Golli Á brettum í borginni Ártúnsholt Garðabæ. Markmiðið með sjóðnum er að veita styrki til verkefna sem miða að því að styrkja og efla íþróttir kvenna. Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2002. Hægt er að nálagast umsóknareyðu- blöð á heimasíðu Garða- bæjar, www.gardabaer.is. Síðast var úthlutað úr sjóðnum við upphaf kvennahlaups ÍSÍ í Garða- bæ 18. júní árið 2000. Þá bárust alls 18 umsóknir, 19. JÚNÍ sjóður um kvennahlaup ÍSÍ í Garða- bæ hefur auglýst eftir um- sóknum um styrki til að efla og styrkja þátttöku kvenna í íþróttum. Ráðgert er að úthluta úr sjóðnum 16. júní nk. Sjóðurinn er stofnaður að tilstuðlan íþrótta- og tómstundaráðs Garða- bæjar og framkvæmda- nefndar um kvennahlaup í víða af landinu, um styrk til margvíslegra verkefna. Sex styrkir voru veittir, samtals að fjárhæð 1.200.000 króna. Meðal þeirra sem fengu styrk þá voru Kvenfélag Garðabæjar, sem fékk styrk til að halda ráð- stefnu um konur og íþrótt- ir, og Skautafélag Reykja- víkur, listhlaupadeild, sem fékk styrk til að byggja upp listskautaíþróttina. Styrkir til að efla þátt- töku kvenna í íþróttum Garðabær STOFNFUNDUR Íbúasam- taka Kjalarness var haldinn í félagsheimilinu Fólkvangi sl. miðvikudag og mættu hátt í fjörutíu íbúar á fundinn. Á fundinum var kosin stjórn, samþykkt lög fyrir samtökin og stefnumörkun lögð fram. Stofnaðir voru þrír umræðu- hópar um málefni svæðisins sem fundarmenn skráðu sig í. Umræðuhóparnir fjalla um samgöngur og umferðarör- yggi, umhverfi og útivist og þjónustu og fræðslumál. Verkefni umræðuhópanna er síðan að vinna úr tillögum að stefnumörkun samtakanna. Í samþykkt um samtökin segir m.a. að tilgangur sam- takanna sé að vinna að fram- fara- og hagsmunamálum íbúa svæðisins og að stuðla að samhug og samstarfi íbú- anna. Stærstu málefni samtak- anna eru t.d. lagning Sunda- brautar, bygging leikskóla, að lokið verði við grunnskóla- byggingu á svæðinu, lagning að- og afreina og undirgöng við Kléberg. Íbúasamtök stofnuð Kjalarnes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.