Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 14
AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ „SMJÖRDAGUR“ svonefndur var á Handverksmiðstöðinni Punktinum nýlega en þar gafst gestum kostur á að gæða sér á nýbökuðu brauði með mynstruðu smjöri. Tilefni þess að efnt var til smjör- dags er það að síðustu þrjár vikur hefur staðið yfir námskeið í fleyg- skurði á Punktinum en á því skáru nokkrir nemendur út svokölluð smjörmót, mynstruð mót sem smjör er formað í og verður útkoman fag- urlega skreytt smjör. Námskeið þetta var sjálfstætt framhald af „brauðmótanámskeiði“ þar sem nemendur skáru út brauð- mót eftir fyrirmyndum frá Minja- safninu á Akureyri. Kennari á námskeiðunum var Hugrún Ívarsdóttir, útstill- ingahönnuður, en hún hefur einnig numið útskurðarlist og sveipöskju- gerð í Noregi. Að sögn Hugrúnar eru smjörmót- in sem unnin voru á námskeiðinu gerð að norskri fyrirmynd, en hana fýsti að vita hvort slíkar fyr- irmyndir væru til á íslenskum söfn- um. Á smjördeginum var smjör sett í þau mót sem þátttakendur höfðu gert og boðið var upp á fagurlega skreytt smjör ásamt pottkökum sem nemendur höfðu bakað í brauðmótum sem þei höfðu skorið út. Áður fyrr var oft bakað brauð sem skreytt var ýmsum mynstrum, en skreytingin fékkst með því að kökurnar voru flattar út á útskorin brauðmót, kakan síðan lögð á hlóð- ir eða steinhellu, potti hvolft yfir og aska og glóð lögð að pottinum en þaðan er komið orðatiltækið„að skara eld að sinni köku“. Mynstrið í brauðmótin var skorið með speg- ilskrift og mátti þannig lesa texta á brauðunum. Pottkökur voru helst bakaðar þegar hafa átti meira við og voru þær gjarnan gefnar í svo- nefndar orlofsgjafir, en þær tíðk- uðust á 19. öld. Orlofskonur viku þá oft pottkökum að húsfreyjum þeim sem þær heimsóttu. Brauðmótin eru skorin með fleygskurði, en hann hefur um aldir verið notaður til skreytingar á nytjahluti jafnt sem skrautmuni. Var fleygskurður flokkaður með al- þýðulist á miðöldum, enda á flestra færi að skera þennan einfalda skurð þar sem aðeins þurfti einn hníf. Fyrirhugað er að halda næsta námskeið í Stykkishólmi ef næg þátttaka fæst. Námskeið í fleygskurði á Punktinum Fagurlega skreytt smjör Morgunblaðið/Kristján Svana Þorgeirsdóttir, til vinstri, smíðar klukku á Punktinum, Halldór Sigurgeirsson var að skera út brauðmót og Lára Ólafsdóttir var að búa sig undir að skera stafi í skilti.Smjörmót að norskri fyrirmynd. NÝJUM tækjum til líkams- ræktar hefur verið komið fyrir í Sundlaug Dalvíkur, en þau koma frá Ítalíu, og er stöðin sú eina á landinum sem eingöngu notar slík tæki. Við hvert tæki er skjár þar sem velja má æfingakerfi að vild og sér skjárinn um að not- andinn haldi réttum æfinga- takti miðað við þyngd og valið æfingakerfi. Stöðin var formlega opnuð um liðna helgi. Sundlaugin er opin frá kl. 06.45 til 20 virka daga og um helgar frá kl. 10 til 16, en hægt verður að æfa í lík- amsræktarstöðinni til kl. 20.45 öll kvöld á virkum dögum. Ný líkams- ræktarstöð ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur- eyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að óska eftir fjárveit- ingu frá bæjarráði, að upphæð tæp- lega 800 þúsund krónur, til kaupa á fimleikaáhöldum fyrir Fimleikaráð Akureyrar, sem þarfnast endurnýj- unar. ÍTA barst erindi frá fulltrúum FRA, þar sem óskað var eftir styrk til kaupa á áhöldum til æfinga- og keppnisiðkunar í fimleikum. Jafn- framt var vakin athygli á því að- stöðuleysi sem FRA býr við. ÍTA tekur undir áhyggjur FRA um erfiða aðstöðu til æfinga og keppni. ÍTA vísaði ábendingum í erindi FRA til Fasteigna Akureyrarbæjar og verk- efnisliðs um byggingu íþróttahúss við Síðuskóla. Fimleikaráð Akureyr- ar er með æfingaaðstöðu í íþrótta- húsi Glerárskóla. ÍTA vill kaupa fimleikaáhöld ÍSLANDSMÓTIÐ í dorgveiði verð- ur haldið á Hólavatni í Eyjafjarðar- sveit laugardaginn 2. mars nk. Mótið hefst kl. 11 og stendur fram til kl. 16 en skráning þátttakenda hefst kl. 10. Lax og silungur er í vatninu og eru glæsileg verðlaun í boði. Verðlauna- afhending fer fram í Blómaskálanum Vín og hefst kl. 17.30. Það er Dorgveiðifélag Íslands sem stendur fyrir mótinu og er öllum heimil þátttaka. Þátttökugjald er krónur 1.500 en börn yngri en 12 ára borga 500 krónur. Boðið er upp á frí- ar rútuferðir frá Leirunesti kl. 9.30. Íslandsmótið í dorgveiði NEMENDUR og kennarar í Ham- arsskóla í Vestmannaeyjum ætla að bregða undir sig betri fætinum og halda í skíðaferð til Dalvíkur í byrjun næsta mánaðar. Það telst ekki til tíð- inda að nemendur úr skólum lands- ins komi í skíðaferð til Dalvíkur en til þessa hefur lítið farið fyrir Vest- mannaeyingum í Böggvisstaðarfjalli. Þetta kemur fram á heimasíðu Skíðafélags Dalvíkur. Þar segir m.a. að í vetur hafi hópur barna í Vest- mannaeyjum, undir forystu einnar móður, verið að undirbúa skíðaferð til Dalvíkur. Ennfremur kemur fram að börnin í Eyjum eru ekki vön skíð- um og fæst þeirra stigið á skíði, hvað þá foreldrar þeirra. Af 21 barni sem hyggur á skíðaferð norður til Dalvík- ur á aðeins eitt þeirra skíði. Áætlað er að ferðin norður, sigling yfir hafið og akstur, taki um 8 klukkustundir. Í skíðaferð til Dalvíkur Nemendur í Hamarsskóla í Vestmannaeyjum ÞAÐ gekk mikið á við Glerárskóla í gær, þar sem krakkar í 2. bekk voru að renna sér á sleðum, snjóþot- um og gúmmíslöngu á göngustígnum að skólanum. Bros skein úr hverju andliti og greinilegt að börnin skemmtu sér vel. Þrátt fyrir nokkurt frost, var veðrið líka með besta móti og sólin gægðist undan skýjunum öðru hverju. Samkvæmt veðurspánni er áfram gert ráð fyrir norðlægum áttum næstu daga en um helgina er gert ráð fyrir að vindátt snúist til suðvestlægrar áttar með minnkandi frosti. Morgunblaðið/Kristján Líf og fjör í brekkunni ALLAR bækur, eldri en tveggja ára og sem fáanlegar eru á íslensk- um markaði, bjóðast nú á bóka- markaði Félags íslenskra bókaút- gefenda, en á Akureyri er markaðurinn að þessu sinni á ann- arri hæð í húsnæði Pennans-Bók- vals í miðbæ Akureyrar. Helgi Magnússon starfsmaður bókamarkaðarins sagði að úrvalið hefði aldrei verið meira, en titlarnir skiptu þúsundum. „Þetta fer vel af stað, fólk byrjaði að streyma hingað strax og við opnuðum. Nú er bara að vona að veðrið verði skaplegt, því mikið er um að utanbæjarfólk komi á markaðinn,“ sagði Helgi. Staðsetningu markaðarins í miðbæ Akureyrar sagði hann mjög ákjós- anlega og þá væri plássið mikið. Samstarf er við Pennann-Bókval sem býður úrval geisladiska á markaðnum auk ritfanga og þá eru þar einnig skólavörur ýmiskonar. Bókamarkaðurinn verður opin daglega frá kl. 10 til 19 en hann stendur til sunnudagsins 3. mars næstkomandi. Morgunblaðið/Kristján Úrvalið á markaðnum á Akureyri hefur sjaldan eða aldrei verið meira. Aldrei meira úrval af bókum BJÖRG Ólafsdóttir handavinnu- kennari hefur safnað saman út- saums- og vefnaðarmunum frá 1950 og til dagsins í dag og verða þeir til sýnis út marsmánuð á Punktinum, sem er opinn alla virka daga frá 13 til 17 og mánudags- og miðvikudags- kvöld frá 19 til 22. Í tengslum við sýninguna mun Björg halda nám- skeið í refilssaumi. Punkturinn starfar sem frjáls handverksmiðstöð sem allir geta nýtt sér. Aðstaðan er notendum að kostn- aðarlausu. Punkturinn býður upp á ýmiss konar námskeið og er lögð áhersla á að viðhalda kunnáttunni á gömlu handverki. „Bróderí“ á Punktinum HADDA, Guðrún H. Bjarna- dóttir, sýnir í glugga Samlags- ins, en sýningin er afrakstur dvalar í gestavinnustofunni Skaftafelli á Seyðisfirði síðast- liðinn janúarmánuð. Hadda nam vefnað í Svíþjóð á árunum 1980-1983, sótti listadeild Lýðháskólans í Eskilstuna í Svíþjóð 1986-1987 og málunar- deild Myndlistaskólans á Akur- eyri 1987-1991. Einnig hefur hún sótt fjölda námskeiða. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Gluggasýning í Samlaginu Hadda sýnir ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.