Morgunblaðið - 27.02.2002, Side 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 17
ALLT TIL RAFHITUNAR
Fyrir heimili - sumarhús - fyrirtæki
ELFA-OSO hitakútar og túbur
Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu.
Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og
300 lítra.
Getum útvegað stærðir frá 400—1.000 lítra.
Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar
fylgja.
Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6—1200
kW og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og
handþvott.
ELFA-VÖSAB olíufylltir ofnar
Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti,
engin rykmengun, lágur yfirborðshiti.
Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja.
Stærðir á lager: 400—750—800 og 1.000 W.
Hæð: 30 eða 60 sm.
Getum einnig útvegað tvöfalda ofna.
HAGSTÆTT
VERÐ!
Borgartúni 28, 562 2901
Heimsferðir bjóða í sumar dvöl á hinum geisivinsæla strandstað
Rimini á Ítalíu og vegna mikillar eftirspurnar höfum við nú sett inn
beint flug til Bologna flugvallar, rétt hjá Rimini. Rimini við
Adríahafið er einn stærsti og vinsælasti sumarleyfisstaður í Evrópu
enda sækja þangað ferðamenn allsstaðar að úr heiminum til að njóta
þess sem staðurinn hefur að bjóða. Heimsferðir bjóða þér vinsælustu
gististaðina á Rimini, frábærlega staðsetta við ströndina og örugga
þjónustu fararstjóra Heimsferða, sem bjóða þér spennandi kynnisferðir
á meðan á dvölinni stendur. Fyrstu 300 farþegarnir tryggja sér ótrúleg
kjör á ferðinni til Rimini og stórlækkun á verði ferðar frá því í fyrra.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.805
M.v. hjón með 2 börn, 23. maí,
Auriga Apartments, 5 nætur með
8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 58.950
M.v. 2 í stúdíó, Auriga, 12 nætur,
20. júní, með 8.000 kr. afslætti.
Beint flug til
Rimini
í sumar
frá 39.805*
Heimsferðir bjóða nú beint flug á fimmtudögum til Rimini.
Núna beint dagflug til Rimini
Heimsferðir stórlækka verðið til Rimini
Yfir 20.000 kr. verðlækkun á mann frá því í fyrra
Fyrstu 300 sætin á sértilboði
afsláttur af öllum vörum
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi, sími 551 0081
20%
HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðv-
arinnar hf., TM, var 417 milljónir
króna í fyrra, sem er 246 millj-
ónum króna meiri hagnaður en ár-
ið 2000. Um fjórðungur aukning-
arinnar skýrist af lækkun
skatthlutfalls úr 30% í 18%.
Hagnaður vátryggingarekstrar
rúmlega tvöfaldaðist milli ára og
var 309 milljónir króna. Þegar sú
afkoma er skoðuð þarf að hafa í
huga að vátryggingaskuld var látin
óhreyfð í fyrra, en árið áður var
hún lækkuð um 200 milljónir
króna sem komu sem tekjur inn í
rekstrarreikninginn. Þá verður
einnig að líta til þess að útreikn-
ingi á fjárfestingartekjum af vá-
tryggingarekstri var breytt milli
ára. Með sömu aðferð við útreikn-
inga og nú er beitt hefði árið 2000
skilað 50 milljóna króna hagnaði af
vátryggingarekstri í stað 145 millj-
óna króna hagnaðar, og ef útjöfn-
unarskuldin er dregin frá sést að
150 milljóna króna tap hefði verið
af vátryggingarekstri árið 2000
miðað við sömu forsendur og í
fyrra, sem þýðir að 308 milljóna
króna hagnaður í fyrra eru um-
talsverð umskipti.
Afkoma fjármálarekstrar batn-
aði samkvæmt rekstrarreikningi
um 82 milljónir króna og nam 333
milljónum króna. Í samanburði við
árið 2000 þarf, líkt og þegar af-
koma vátryggingarekstrar er
skoðuð, að líta til þess að útreikn-
ingur þess hluta fjárfestingar-
tekna sem færður er yfir á vá-
tryggingarekstur hefur breyst.
Hefði sömu aðferð verið beitt árið
2000 hefði hagnaður af fjármála-
rekstri það ár aukist um 95 millj-
ónir króna í 346 milljónir króna,
sem þýðir að miðað við sambæri-
lega útreikninga hefur afkoma
fjármálarekstrar heldur versnað
milli ára.
Mestur hagnaður af öðrum
ökutækjatryggingum
Eignatryggingar komu lang-
verst út og var 167 milljóna króna
tap af þeim á árinu, sem er mun
verra en næstu ár á undan. Sjó-,
flug- og farmtryggingar skiluðu
verri afkomu en síðustu ár, 94
milljónum króna. Afkoma lög-
bundnu ökutækjatrygginganna
batnaði mikið og var hagnaður af
þeim 50 milljónir króna eftir að
þær voru reknar með um og yfir
þrjú hundruð milljóna króna tapi
síðustu ár. Aðrar ökutækjatrygg-
ingar, þ.e. aðrar en þær lög-
bundnu, skiluðu bestu afkomu ein-
stakra greinaflokka vátrygginga
og var hagnaður þeirrar greinar
127 milljónir króna.
Vátryggingaskuld félagsins, sem
stundum er kölluð bótasjóðir, jókst
um 1% milli ára og var 11,3 millj-
arðar króna um áramót. Á sama
tímabili stækkaði efnahagsreikn-
ingurinn um 7% í 16,7 milljarða
króna og eigið fé jókst um 15% í
4,5 milljarða króna.
Áætlanir gera ráð fyrir
hagstæðari rekstri í ár
„Ég er nokkuð ánægður með
uppgjörið, sérstaklega með hlið-
sjón af því að þetta var tjónaþungt
ár,“ segir Gunnar Felixson, for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar.
Félagið varð fyrir fimm stórum
brunatjónum sem samtals eru
metin á 415 milljónir króna. Þá
lentu á félaginu tvö altjón á fiski-
skipum að fjárhæð 300 milljónir
króna, auk þess sem tjónaþungi
var mikill í fjölskyldu- og fast-
eignatryggingum. Aðspurður segir
Gunnar að þrátt fyrir að endur-
tryggingar taki hluta þessara
tjóna þá komi þau þungt niður á
félaginu og mörg tjón af þessari
stærðargráðu, komi enn þyngra
niður á afkomunni en ef félagið
yrði fyrir einu stóru tjóni.
„Við erum með áætlun um að
reksturinn verði aðeins hagstæðari
á þessu ári en í fyrra, en í trygg-
ingastarfsemi er gríðarlega erfitt
að gera áætlun um reksturinn þeg-
ar tjónaþátturinn, sem er lang-
stærsti kostnaðarliður félagsins,
ræðst af aðstæðum sem við ráðum
lítið við. Áætlunin er byggð á því
að ekki verði alveg jafn mörg stór-
tjón á þessu ári og í fyrra, en að
öðru leyti verði aðstæður svipað-
ar,“ segir Gunnar Felixson.
Nokkuð gott uppgjör
Greiningadeild Kaupþings segir
að uppgjör Tryggingamiðstöðvar-
innar verði að teljast nokkuð gott
ef miðað sé við mjög tjónaþungt
ár, og uppgjörið sé í takt við spár
deildarinnar sem spáð hafi 410
milljóna króna hagnaði.
Af rekstrarafkomu einstakra
greinaflokka telur greiningardeild-
in að það verði að teljast áhyggju-
efni að hjá báðum skráðu trygg-
ingafélögunum, þ.e. Sjóvá og TM,
hafi eignatryggingar verið reknar
með talsverðu tapi undanfarin tvö
ár. Jákvætt sé hins vegar að sjá að
lögboðnar ökutækjatryggingar
skili TM nú hagnaði í fyrsta skipti
í mörg ár en hagnaðurinn sé þó
ekki nema 50,4 milljónir króna
sem sé ekki mikið miðað við að
ökutækjatryggingar nemi um 38%
af heildariðgjöldum félagsins.
Hagnaður TM 417
milljónir króna
Afkoman batnar
milli ára en mörg
stór tjón draga
hana niður
!
" !
#$
!%
&
&
' ()*
*'+
' ,*,
-./
/..
01,)
0+,
11 -,'
11 //-
' ).(
-'+
1 .,1
(2,3
1..
!
" # " # " #
!
!
FYRIRTÆKI og sjóðir sem
tengjast Landsbankanum
keyptu stærstan hluta þeirra
4,25% í bankanum sem hann tók
að sér að hafa milligöngu um að
selja fyrir Philadelphia Interna-
tional Equities og sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær.
Stærstan hlut keypti Vátrygg-
ingafélag Íslands hf., 1,25% og
annar stærsti kaupandinn var
Líftryggingafélag Íslands hf.,
sem keypti 1%. Landsbankinn á
umtalsverðan hlut í báðum fé-
lögum.
Þá keyptu tveir sjóðir í vörslu
bankans, Landssjóður hf. og Ís-
lenski hlutabréfasjóðurinn hf.,
samanlagt um 1%. Þá juku Líf-
eyrissjóðir Bankastræti 7 0,6%
við hlut sinn, Lífeyrissjóður sjó-
manna jók hlut sinn um 0,14%
og Fjárfestingarfélagið Straum-
ur keypti 0,56%. Loks seldi
Landsbankinn sjálfur 0,29%
bréfa úr eigin bók.
Eftir þessi viðskipti eru
stærstu eigendur bankans eft-
irtaldir: Ríkissjóður, 68,3%, Líf-
eyrissjóðir Bankastræti 7, 3,4%,
LB Holding, 2,19%, Landssjóð-
ur, 1,6%, Samvinnusjóðurinn,
1,6%, Eignarhaldsfélag Bruna-
bótafélags Íslands, 1,5%, Vá-
tryggingafélag Íslands, 1,3%,
Lífeyrissjóður sjómanna, 1,1%,
Líftryggingafélag Íslands, 1,0%,
Lífeyrissjóður verslunarmanna,
0,81%, Íslenski hlutabréfasjóð-
urinn, 0,7%, VVÍB, sjóður 6,
0,7%, Kaupþing, 0,7%, GIR
Capital Management, 0,7% og
Fjárfestingarfélagið Straumur,
0,6%.
Tengd félög og
sjóðir keyptu í
Landsbankanum