Morgunblaðið - 27.02.2002, Síða 20

Morgunblaðið - 27.02.2002, Síða 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRIR yfirforingjar í herVenesúela hafa á síðustuvikum hvatt til þess aðforseti landsins, Hugo Chávez, segi af sér embætti. Full- yrða menn þessir að stjórnarstefna Chávez hafi skaðað þjóðina. Nú á mánudag lýsti Roman Gomez Ruiz, hershöfðingi í flugher Venesúela, yfir því að Chávez bæri að víkja. Þannig myndi hann gagnast best þjóð sinni því mik- ilvægt væri að hann skaðaði hana ekki frekar. Ruiz hvatti ekki bein- línis til þess að herinn risi upp gegn yfirboðara sínum en minnti á að her landsins hefði öðrum og meiri skyldum að gegna við þjóðina en þann, sem ríkjum réði í forseta- höllinni á hverjum tíma. „Minnist þess að þjóðin gengur fyrir öllu öðru. Við erum skuldbundnir þjóð- inni og sú ábyrgð ristir dýpra en hollusta við núverandi stjórnvöld ef þau ráðast gegn hagsmunum fólksins og hefta framþróun sam- félagsins,“ sagði Ruiz í yfirlýsingu sinni. Hershöfðinginn kvað ástand- ið „alvarlegt“ og minnti á að her- afla landsins væri ætlað „að standa vörð um lýðræðið, frelsið og öryggi föðurlandsins.“ Talsmenn varnarmálaráðuneytis Venesúela gáfu lítið fyrir yfirlýs- ingar hershöfðingjans og sögðu þær engin áhrif hafa innan stjórn- arhersins. Greina hefur mátt vaxandi óánægju vegna framgöngu Chávez á undanliðnum mánuðum í Venes- úela. Sú bylgja, sem nú hefur risið gegn honum rann af stað 7. þessa mánaðar þegar yfirforingi í flug- hernum, Pedro Soto að nafni, fór fyrir þúsundum manna, sem gengu í fylkingu að Miraflores-forseta- höllinni í höfuðborginni, Caracas, og kröfðust þess að Chávez segði af sér. Nú hafa þrír aðrir háttsettir menn í hernum tekið undir þessa kröfu. Loforð og lýðskrum Yfirlýsingar herforingjanna eru vitanlega til marks um vaxandi ólgu innan hersins. Þær gefa hins vegar jafnframt til kynna að lands- menn séu við það að snúa baki við Chávez forseta. Margir þeir, sem sérfróðir eru um málefni Venes- úela, fullyrða raunar þessa dagana að öruggt megi heita að Chávez hrökklist úr embætti forseta. Það sé einungis spurning um tíma hve- nær forsetinn missi völdin. „Með hverjum degi versnar staða hans,“ segir Mauel Felipe Sierra, frétta- skýrandi í Venesúela. „Hann er fastur í gildru, sem hann spennti sjálfur.“ Chávez varð forseti Venesúela fyrir þremur árum. Loforð hans um að binda enda á spillinguna féllu í frjóan svörð. Spilling er að sönnu landlæg í Rómönsku-Amer- íku en hún þykir þó hvergi hafa náð viðlíka rótfestu og í Venesúela. Hefð er fyrir því að líkja landinu fremur við Afríkuríki en nágranna- þjóðir í þessum efnum. Kjósendur trúðu því að loksins væri kominn fram maður, sem raunverulega vildi gera róttækar samfélagsbreytingar og bæta kjör alþýðu manna. Chávez hafnaði enda hefðbundnum skilgreiningum í stjórnmálum. Hann kvaðst fylgj- andi blönduðu hagkerfi og hafna „kapítalisma villimennskunnar“ og sósíalisma. Hugmyndafræði sinni hefur hann lýst sem „bolivarisma“ og vísar hann þannig til kenninga frelsishetjunnar Simóns Bolívar, sem leiddi fimm ríki Andessvæð- isins undan spænsku krúnunni á fyrri hluta 19. aldar og er haldinn í dýrlingatölu í Rómönsku Ameríku og í ríkjum Karíbahafsins. Chávez stofnaði stjórnmálaflokk um þessar óljósu kenningar sínar og nefnist hann „Hreyfing V. lýðveldisins“ (Movimiento V República eða MVR). Í Venesúela búa rúmlega 22 milljónir manna. Um 80% lands- manna draga fram lífið undir skil- greindum fátæktarmörkum. Traustið í garð stjórnmálaaflanna er lítið sem ekkert. Í könnun, sem birtist skömmu áður en Chávez var kjörinn forseti 1998, kváðust 63% aðspurðra ýmist hafna með öllu eða hafa vantrú á dómsmálakerfinu í landinu. Um 70% sögðust hafa sömu afstöðu til lögreglu landsins. 72% kváðust vantreysta ríkis- stjórninni, 74% verkalýðsfélögun- um, 77% þingi landsins og heil 85% stjórnmálaflokkunum þrátt fyrir 40 ára lýðræðisstjórn, sem komið var á eftir að kommúnistar og jafn- aðarmenn höfðu bundið enda á stjórn einræðisherrans Marcos Peréz Jiménez. Einu stofnanir samfélagsins, sem reyndust njóta trausts alþýðu manna voru herinn (um 60%) og katólska kirkjan, sem 74% þátttakenda kváðust líta til með jákvæðu hugarfari. Bjartsýnin sem ríkti í Venesúela fyrir þremur árum er nú horfin. Enn á ný hafa fátækt, spilling og lýðskrum reynst bindiefni hins pólitíska vítahrings, sem setur svo mjög mark sitt á stjórnmál í Róm- önsku-Ameríku. Baklandið að hverfa Í liðinni viku birtist skoðana- könnun í dagblaðinu El Nacional þar sem 57% aðspurðra kváðust vilja að Chávez hyrfi frá völdum. Í sömu könnun sögðust einungis 25% þátttakenda styðja Chávez ef fram færu kosningar nú. Chávez fór fyrir valdaránstil- raun í Venesúela árið 1992 og hon- um er tamt að beita fyrir sig orð- færi og áróðri byltingarmanna. Hann hefur vingast við þekkta byltingarmenn og nægir þar að nefna þá Muammar Gaddafi, leið- toga Líbýu, og Fidel Castro, for- seta Kúbu. Þá hafa margir for- dæmt vinsamleg samskipti Chávez við leiðtoga vinstri skæruliða í ná- grannaríkinu Kólumbíu, sem kallað hafa hrylling og dauða yfir almenn- ing þar áratugum saman. Chávez hefur á undanliðnum mánuðum tekist að móðga kirkjunnar menn í Venesúela með því að lýsa yfir því að æðsta stjórn stofnunarinnar sé „þjóðfélagsæxli“. Hann hefur og styggt ráðamenn í olíuiðnaðinum en þaðan kemur bróðurpartur þjóðartekna Vensúela. Chávez hef- ur reynt að auka hlut ríkisins í þeim tekjum, sem olían skilar. Þá hafa fjölmiðlar í landinu snú- ist gegn forsetanum enda hefur hann ítrekað reynt að þagga niður í þeim gagnrýnisröddum, sem þar heyrast. Loks hefur Chávez tekist hörmulega upp við að rækta það pólitíska bakland, sem tryggði hon- um sigurinn 1998. Fátæklingar og verkalýðsstéttin er nú óðum að snúa við honum baki enda hafa efnahagsaðgerðir stjórnar hans komið illa við þessa hópa. Gjald- miðill landsins, bólivarinn, hefur fallið um 23% í þessum mánuði og því er spáð að verðbólgan í ár verði á bilinu 30–40%. Verð á nauðsynja- vörum hefur því snarhækkað og mega hinir fátæku ekki við slíkri lífskjaraskerðingu. Í því efni er vert að hafa í huga að talið er að allt að 70% vinnufærra manna í landinu séu ýmist atvinnulausir eða í illa launuðum hlutastörfum. Við þetta bætist síðan að olía hefur fallið í verði á heimsmarkaði en rúmlega helmingur þjóðartekna kemur þaðan. Komið úr landi? Margir fréttaskýrendur og stjórnmálamenn í Venesúela spá því að endalokin séu skammt und- an; Chávez fái tæpast haldið velli lengur en í tvo til sex mánuði. Flestir eru þó þeirrar hyggju að forsetinn muni berjast fyrir völd- um sínum en fimm ár eru enn eftir af kjörtímabili hans. Telja því margir að Hæstiréttur landsins og þingheimur sameinist um að koma forsetanum frá völdum. Talið er að til greina komi að samþykkt verði yfirlýsing þess efnis að forsetinn sé ekki lengur fær um að gegna störf- um sínum sökum andlegra erfið- leika. Líklegra þykir þó að það komi í hlut hersins að binda enda á valdaferil forsetans. „Ég býst við því að þetta verði valdrán án blóðs- úthellinga og að fimm æðstu her- foringjar landsins gangi á fund hans og segi: „Þessu er lokið, þú getur komist óhultur úr landi,““ segir Eric Ekvall, pólitískur ráð- gjafi í Caracas. Endalokin skammt undan í Venesúela? Fréttaskýrendur spá því nú margir hverjir að uppgjör sé í vændum í Venesúela. Ásgeir Sverrisson segir frá vaxandi and- stöðu við Hugo Chávez, forseta landsins. Reuters Hugo Chávez, forseti Venesúela, í hópi aðdáenda sinna. ’ Hann er fastur ígildru, sem hann spennti sjálfur ‘ HUGSANLEGT þykir, að norska stjórnin fórni landbúnaðinum ef svo má segja til að tryggja fullan mark- aðsaðgang fyrir norskar sjávaraf- urðir í öllum aðildarríkjum Evrópu- sambandsins, ESB. Hvorki Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, né Jan Petersen, utanríkisráðherra, vilja útiloka, að landbúnaðarmálin verði notuð sem skiptimynt í viðræðum við ESB. Eru yfirlýsingar þeirra um það raunar fremur óljósar en hvor- ugur þeirra vill ábyrgjast, að land- búnaðarmálin komi ekki til umræðu í þessu samhengi. Kemur þetta fram í norskum fjölmiðlum, til dæm- is í Dagsavisen og Fiskaren. Þótt ráðuneytisstjórinn Leif Helge Kongshaug hafi vísað þessum vangaveltum á bug í viðtali við Fisk- aren hefur blaðið það eftir Petersen, að möguleiki sé á einhvers konar málamiðlun að þessu leyti. Bonde- vik svaraði aftur á móti með því að benda á, að væntanlegar viðræður á vegum Heimsviðskiptastofnunar- innar, WTO, snertu þetta mál. Fisk- aren telur, að það sé einmitt merg- urinn málsins og hefur það eftir „áreiðanlegum heimildum“ innan ríkisstjórnarinnar, að Norðmenn muni hvort eð er neyðast til að lækka tolla á innfluttum landbún- aðarafurðum. Þess vegna sé ekki eftir neinu að bíða með að nota það tromp gagnvart ESB í því skyni að tryggja aukinn markaðsaðgang fyr- ir sjávarafurðir í öllum ESB-ríkj- unum. Landbúnaði fórnað fyrir fisk? BRESKA stjórnin hefur uppi áform um að skikka táninga sem bíða réttarhalda vegna alvarlegra glæpa til að ganga með eins konar „rafræna merkingu“. Yrði þetta gert til að fylgjast með ferðum þeirra. David Blunkett, innanríkis- ráðherra Bretlands, greindi frá þessu í gær. „Ef við vilj- um standa fyrir herferð til að tryggja öryggi borgaranna á götum úti, eins og gert er í London og víðar, í því skyni að stemma stigu við ránum og ofbeldisverkum, þá verð- um við líka að gera eitthvað varðandi 12 til 16 ára afbrota- menn,“ sagði Blunkett í sam- tali við BBC. Um að ræða „þorpara“ og „fanta“ Kvaðst ráðherrann hér vera að tala um „þorpara“ og „fanta“ sem stæðu fyrir ólát- um í þeim borgarhverfum sem þeir byggju í á meðan þeir biðu réttarhalda. Um er að ræða tilraunaverkefni, að því er fram kom á BBC. Verða um 1.800 einstaklingar „merktir“, allt 12 til 16 ára unglingar sem bíða dóms vegna glæpa eins og skemmd- arverka, þjófnaða og kynferð- isbrota. „Rafræn merking“ ungra afbrotamanna var áður reynd árið 1989 en 34 af þeim 50 einstaklingum sem merktir voru annaðhvort brutu af sér á nýjan leik eða fóru í felur. Einn framdi meira að segja morð á meðan hann bar hina rafrænu merkingu og var þá hætt við verkefnið. Fylgst með ung- um af- brota- mönnum London. AP. Bretland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.