Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÚN var bæði köld og svöng þessi
litla mús sem kom við í garði frétta-
ritarans og gæddi sér á poppkorni
og brauðmolum sem ætlaðir voru
smáfuglunum. Þegar að henni var
komið leit út fyrir að hún væri fros-
in föst á skafli, því hún hreyfði sig
ekki þrátt fyrir mannaferðirnar.
Eftir að hafa fengið veitingar allt
í kringum sig var eins og hún
hresstist og tók til við átið, en lét þó
myndatökuna ekki trufla sig. Það
er rík ástæða til að minna fólk á að
gefa smáfuglunum í kuldatíðinni þó
svo að einn og einn óboðinn gestur
flækist inn á þeirra veisluborð.
Morgunblaðið/Aðalheiður
Hart í ári
hjá smá-
dýrunum
Hellu. Morgunblaðið.
TALIÐ er að um 600.000 eldislaxar
hafi sloppið úr sjókvíum Atlantic
Seafood við Suðureyjar í Færeyjum í
óveðri fyrr í vikunni. Að sögn Orra
Vigfússonar, formanns Norður Atl-
antshafslaxasjóðsins, hafa hinir fær-
eysku og norsku eigendur Atlantic
Seafood áætlað fjárhagslegt tjón sitt
milli 300 og 400 milljónir króna.
„Það er ekki lengra síðan en um
jólaleytið að milli 100 og 200 þúsund
eldislaxar sluppu í hafið hjá þessu
sama fyrirtæki. Það er eins og menn
gleymi því þegar þeir eru að setja
upp þessar sjókvíar að það getur
blásið úr öllum áttum. Heildarveiði á
villtum Atlantshafslaxi á ári er vel
innan við milljón laxar og þarna er
ein stöð búin að missa í hafið annað
eins af eldislaxi. Heildarveiði á villt-
um laxi hér á landi er um 30.000 lax-
ar á ári þannig geta menn séð um
hvers lags magn er að ræða. Þetta er
auðvitað alveg skelfilegt umhverfis-
slys,“ sagði Orri Vigfússon.
600 þúsund
eldislaxar
sluppu við
Færeyjar
STJÓRNENDUR Baugs hf. sögðu
fyrir skömmu upp samningi við ræst-
ingafyrirtæki, sem annaðist ræsting-
ar á skrifstofum fyrirtækisins. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var ástæða uppsagnarinnar sú að
fram kom á eftirlitsmyndavél að
starfsmaður ræstingafyrirtækisins
var að róta í skjölum eins af yfirmönn-
um Baugs. Jafnframt hefur blaðið
upplýsingar um að Össur Skarphéð-
insson hafi sem einstaklingur mót-
mælt mjög harðlega þessum brott-
rekstri við stjórnendur Baugs í
tölvubréfi og talið þær hefndaraðgerð
gegn sér vegna gagnrýni, sem hann
hefði sett fram á fyrirtækið.
Taldi að verið væri að ná fram
hefndum vegna skoðana minna
Morgunblaðið leitaði til Össurar í
gær og óskaði eftir skýringum hans á
afskiptum hans.
,,Ég hef haft uppi skarpa gagnrýni
á samþjöppun á þeim markaði sem
Baugur starfar á. Nákominn ættingi
minn rekur ræstifyrirtæki, sem hefur
ræst þrjú fyrirtæki fyrir Baug. Hann
hafði komið tvisvar sinnum að máli
við mig og sagt að hann fyndi að skörp
gagnrýni mín á fyrirtækið hefði leitt
til þess að hann drægi þá ályktun af
ummælum manna að það gætu verið
blikur á lofti fyrir hann. Ég taldi það
af og frá og sagði að slíkt ætti sér ekki
stað á Íslandi. Síðan gerðist það að
það birtist eftir mig lítið álit um sam-
þjöppun á matvörumarkaði í Við-
skiptablaðinu sl. miðvikudag. Hann
tjáði mér að þann dag hefði hann ver-
ið kallaður fyrir yfirmenn í fyrirtæk-
inu [Baugi] og honum tjáð að hann
fengi ekki að starfa fyrir þessi þrjú
fyrirtæki. Ég varð ákaflega hryggur
og taldi að þarna væri verið að ná
fram einhvers konar hefndum vegna
skoðana minna með því að seilast til
ættingja sem mér þykir mjög vænt
um. Ég varð því bæði mjög hryggur
og reiður. Mér hefur síðar verið sagt
að uppsögnin stafi af öðru, þ.e.a.s. því
að starfsmaður fyrirtækis ættingja
míns hafi ekki komið fram með rétt-
um hætti í einu og öllu, en mér finnst
það auðvitað öldungis fráleitt að þó að
starfsmaður sýni ekki rétta fram-
komu, þá sé fyrirtækinu án nokkurr-
ar áminningar eða aðdraganda sagt
upp störfum. Ég dyl það ekki, að ég
hef tjáð mig sterklega í trúnaðarbréfi
til starfsmanna fyrirtækisins vegna
þess að ég taldi að hér væri um hefnd-
araðgerðir að ræða,“ sagði Össur og
bætti við:
„Sú skýring, sem ég fékk síðan var
að nýr starfsmannastjóri vildi hafa
innanhússtarfsmenn í þessu verki.“
Segir mönnum mjög brugðið
Morgunblaðið sneri sér til Hreins
Loftssonar, stjórnarformanns Baugs,
sem staðfesti að stjórnendum Baugs
hefði borist tölvuskeyti frá Össuri.
Hann sagði að tölvuskeytið hefði farið
sem eldur í sinu um fyrirtækið og
mönnum hefði brugðið mjög við þessi
tíðindi. Síðan sagði Hreinn: ,,Ég sem
stjórnarformaður fyrirtækisins get
ekki annað en tekið það mjög alvar-
lega þegar einn af málsmetandi
stjórnmálaleiðtogum sendir fyrirtæk-
inu skeyti af þessu tagi en skeytið er
svohljóðandi:
,,Í trúnaði fyrir þig og Jóhannes
Heill og sæll Jón
Einsog þú veist ráku feðgarnir Jó-
hannes og Jón Ásgeir bróður minn
Magnús frá ræstingum í þremur fyr-
irtækjum þeirra í dag.
Auðvitað er það ekkert annað en
hrein hefndaraðgerð vegna skoðana
minna.
Gangsteraeðli þeirra birtist í því að
þeir velja daginn sem Viðskiptablaðið
birtir lítið komment frá mér um það
efni.
Það eru aðeins hreinræktaðir
drullusokkar sem ráðast að þeim sem
ekki geta varist, í þessu tilviki ætt-
ingjum sem enga ábyrgð bera á um-
mælum mínum.
Svona menn eiga ekki skilið virð-
ingu samborgara sinna. Því ætla ég
að koma til skila. Þeir haga sér einsog
suðuramerískir gangsterar, og þjóðin
á rétt á að vita það.
Ég mun því ekki láta þetta kyrrt
liggja, og ætla heldur aldrei að
gleyma þessu. Ættin er giska langlíf,
einsog þú kannski veist. Sá kann allt
sem bíða kann, kenndi Sveinn R. Eyj-
ólfsson mér.
Ef Baugsveldið heldur að þetta sé
aðferðin til að þagga niður í mér get
ég ekki varist þess að upp í hugann
komi hin fræga setning: You aint’
seen nothing yet.
Það má vel vera að ég hafi lítið að
gera í þessa nýju mafíu. En mér er
létt um mál, og lipur með pennann, og
ég á langa ævi fyrir höndum til að lýsa
fyrir samferðamönnum mínum hvers-
konar menn þetta eru.
Í guðs friði – en ekki mínum,
Össur Skarphéðinsson, líffræðing-
ur, Vesturgötu 73, 101 R.“ “
Segir Össur hafa fylgt skeytinu
eftir með hatursfullu símtali
Hreinn Loftsson sagði það í fyrsta
lagi vekja athygli að skeytið væri sent
á tölvukerfi Alþingis. ,,Í öðru lagi hef-
ur viðkomandi stjórnmálamaður ekki
haft fyrir því að kynna sér forsendur
málsins af hálfu Baugs áður en hann
sendi skeytið og hann fylgdi skeytinu
eftir með hatursfullu símtali með
sömu ásökunum. Símtalið fékk Jó-
hannes Jónsson eftir því sem Jóhann-
es segir mér. Kom það Jóhannesi á
óvart, en hann er erlendis og var
ókunnugt um málið þegar Össur
hringdi. Í þriðja lagi sýnir þetta ótrú-
legan dómgreindarskort. Jóhanna
Sigurðardóttir hefur talað um að
þingmenn þyrftu að setja sér siða-
reglur. Hún þyrfti kannski að byrja á
formanninum sínum og taka hann á
slíkt námskeið um samskipti stjórn-
málamanna við borgarana,“ sagði
Hreinn. Spurður um upphafsorð
bréfsins, þar sem segir að það sé sent
í trúnaði fyrir viðtakanda og Jóhann-
es, sagði Hreinn: ,,Maður sem viðhef-
ur slíkar hótanir og biður um trúnað
hlýtur að vera að grínast.“
Össur Skarphéðinsson
mótmælti brottrekstrinum
Baugur sagði upp verktaka við ræstingu eftir að eftirlitsmyndavél sýndi
starfsmann róta í skjölum eins af stjórnendum fyrirtækisins
FLEIRI en eitt erlent fyrirtæki hafa
lýst áhuga á því að fjárfesta í Lands-
síma Íslands. Ólafur Davíðsson, for-
maður einkavæðingarnefndar, seg-
ist gera ráð fyrir því að þessir aðilar
sendi einkavæðingarnefnd formlegt
erindi um viðræður. Ef slíkt erindi
berist verði því svarað. Hann segir
að engin breyting hafi orðið á af-
stöðu stjórnvalda til verðlagningar á
hlutabréfum í Landssímanum.
Einkavæðingarnefnd hefur form-
lega slitið viðræðum við danska fjar-
skiptafyrirtækið TDC. Ástæðan er
fyrst og fremst að fyrirtækið var
ekki tilbúið til að kaupa á því verði
sem stjórnvöld settu upp. Nefndin
hefur sömuleiðis slitið samstarfi við
ráðgjafarfyrirtækin sem unnið hafa
að sölunni með nefndinni.
„Við vitum af fyrirtækjum sem
hafa verið að íhuga kaup á Lands-
símanum og þá væntanlega að taka
upp viðræður við okkur. En við get-
um ekki á þessu stigi nefnt þau
vegna þess að það hefur ekki verið
neitt ákveðið um slíkt,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagðist ekki geta gefið
neinar upplýsingar um fyrirætlanir
þessara aðila. Ekkert lægi fyrir um
hvort áhugi væri á að kaupa mjög
stóran hlut í Símanum. Hann útilok-
aði þó ekki að áætlun einkavæðing-
arnefndar um hlutfallslega skiptingu
milli kjölfestufjárfestis og annarra
fjárfesta yrði endurmetin ef óskir
kæmu um það. Um það þyrfti þá að
taka sérstaka ákvörðun.
Ríkisstjórnin ákvað að bjóða
hlutabréf í Landssímanum til sölu á
genginu 5,75, en það þýðir að Síminn
kostar 40,6 milljarða. 2.588 skráðu
sig fyrir hlutafjárloforðum sem
námu tæplega 2,1 milljarði króna. 8.
janúar sl. höfðu verið greidd hluta-
bréf fyrir samtals 916 milljónir, en
það þýðir að 2,26% hlutafjár eru nú í
eigu annarra en ríkisins.
„Það er ljóst að þær viðræður sem
kynnu að fara fram á næstunni snú-
ast um það verð sem ríkið hefur talið
viðunandi. Það er ekki nein breyting
á afstöðu eigandans, hvað það varð-
ar, á þessu stigi,“ sagði Ólafur.
Einkavæðingarnefnd endurmetur áform um sölu Símans
Erlend fyrirtæki hafa
lýst áhuga á að kaupa
TÍU meistarakokkarfrá Evrópu og Am-
eríku eru staddir hér á landi til að taka
þátt í alþjóðlegri kokkakeppni sem fram
fer í Vetrargarðinum í Smáralind um
helgina. Kokkarnir hófu daginn í gær í
verslun Hagkaupa í Smáralind til að velja
sér íslenskt hráefni af mikilli nákvæmni í
forrétti og millirétti fyrir keppnina.
Í dag spreyta kokkarnir sig svo á aðal-
réttum og eftirréttum. Dómnefnd er
skipuð íslenskum og erlendum dómurum.
Gestum og gangandi gefst kostur á að
fylgjast með hvernig meistarakokkarnir
athafna sig í eldhúsunum tíu sem sett
hafa verið upp í Vetrargarðinum.Morgunblaðið/Jim Smart
Hráefnið
valið í
réttina