Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Félagsþjónustan fjármagnar lektorsstöðu Stefnumark- andi ráðning Á SÍÐASTLIÐNUári gerðu borgar-yfirvöld samning við Háskóla Íslands um að Félagsþjónustan í Reykjavík kosti stöðu lektors í félagsráðgjöf á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga. Í samn- ingnum er m.a. lögð áhersla á greiningu og sérhæfða ráðgjöf ásamt rannsóknum á sviði fé- lagsþjónustu. Í desember sl. var Freydís Jóna Freysteinsdóttir ráðin í stöðuna og hóf hún störf 1. janúar síðastliðinn. Morgunblaðið fræddist um málið í samtali við hana í vikunni. – Lýstu fyrir okkur nýja starfinu? „Um hefðbundna lektorsstöðu er að ræða með sömu skiptingu á kennsluskyldu, rannsóknarvinnu og stjórnun og aðrar lektors- stöður, þrátt fyrir að þessi lekt- orsstaða sé fjármögnuð á annan hátt. Skilyrði er þó að vinna hluta af rannsóknum á sviði fé- lagsþjónustu.“ – Er þetta spennandi starf? „Já, ég myndi segja að þetta væri mjög fjölbreytt og spenn- andi starf. Auk kennslu í áhuga- verðum greinum, gefur það kost á að gera rannsóknir sem ég hef í huga að koma í framkvæmd.“ – Hverjum þjónar þú í nýja starfinu? „Ég þjóna bæði félagsráð- gjafanemum, svo og öðrum nem- um sem sækja þau námskeið sem ég kenni í. Auk þess má segja að ég þjóni einnig fé- lagsráðgjöfum sem vinna með þá hópa sem rannsóknir mínar munu beinast að og þeim sem þjónusta gagnast.“ – Hvernig hafa þessir fyrstu mánuðir verið og hvernig er starfsumhverfið? „Þar sem ráðið var í stöðuna frá 1. janúar 2002 hef ég ein- ungis gegnt stöðunni í tvo mán- uði. Það má segja að í heildina hafi gengið ágætlega að aðlagast starfinu, en það hefur komið mér einna mest á óvart, hversu stórir hóparnir eru í þeim námskeiðum sem ég kenni í þessa önnina. Vinnustaðurinn er stærri en ég hef áður vanist. Ég myndi segja að starfsumhverfið virðist vera gott og vel búið að starfs- fólki, t.d. hefur starfsfólk aðgang að líkamsrækt og í þeirri bygg- ingu sem ég hef skrifstofuað- stöðu, gefst starfsfólki kostur á að fá heitan mat í hádegi. Hins vegar er erfitt fyrir mig að meta starfsumhverfið í heild, eftir svo stuttan tíma í starfi.“ – Hverjar hafa verið og verða þínar megináherslur í starfi? „Það má segja að þrjú við- fangsefni hafi verið mér mest hugleikin á undanförnum árum. Í fyrsta lagi barnavernd og þeir þættir sem leiða til ofbeldis og vanrækslu barna og ofbeldis gagnvart konum, en ég vinn nú að doktors- verkefni þar sem ég rannsaka áhættuþætti endurtekins ofbeldis og vanrækslu barna. Niðurstöður úr rannsókn þessari munu væntanlega nýtast fé- lagsráðgjöfum sem starfa við barnavernd og þeim fjölskyldum sem þeir vinna með. Í öðru lagi hef ég haft mikinn áhuga á ein- staklings- hjóna- , fjölskyldu- og hópmeðferð og hef lokið með- ferðargráðu (MSW) sem gefur réttindi til að vinna slíka með- ferð. Þess má geta að nú er verið að undirbúa mastersnám með áherslu á fjölskyldumeðferð (MSW) í félagsráðgjöf við Há- skóla Íslands og verður vonandi hægt að bjóða upp á slíka náms- leið haustið 2003. Í þriðja lagi hef ég mikinn áhuga á félags- mála- og fjölskyldumálastefnu og þá ekki síst með tilliti til stöðu kynjanna og var töluverð áhersla á félagsmálastefnur í framhaldsnámi mínu, bæði í mastersnáminu og í doktors- náminu. Ég mun væntanlega geta nýtt þessi viðfangsefni í kennslu og rannsóknarvinnu. En rannsóknir á þessum sviðum, skipta miklu máli fyrir starfandi félagsráðgjafa og notendur þjón- ustu þeirra.“ – Er þetta vel skilgreind staða og jafnvel að einhverju leyti stefnumarkandi starf? „Þessi staða er nokkuð vel skilgreind og að því leyti stefnu- markandi að hún tengist vissu viðfangsefni innan félagsráðgjaf- ar, þ.e. félagsþjónustu. Ég mun því leitast við að efla svið Fé- lagsþjónustu í starfi mínu. T.d. leiðbeini ég nemendum sem vinna rannsóknarverkefni á sviði Félagsþjónustu og mun val verk- efna vera í samráði við starfsfólk viðkomandi Félagsþjónustu. Ég hef kennt í námskeiði sem heitir „Ofbeldi í fjölskyldum“ og eru uppi hugmyndir um að útbúa nýtt framhalds- námskeið þar sem áhugasömum nemendum væri gefinn kostur á að dýpka þekk- ingu sína í þessum málaflokki.“ – Gæti þetta orðið byrjunin á öðru og meiru á þessum nótum, m.a. hjá öðrum stofnunum? „Já, það má segja það. Þegar hefur verið auglýst önnur lekt- orsstaða í félagsráðgjöf við Há- skóla Íslands sem fjármögnuð verður af Rauða krossinum.“ Freydís J. Freysteinsdóttir  Freydís Jóna Freysteinsdóttir er fædd á Siglufirði 9. desember 1966. Lauk BA-prófi með sál- fræði sem aðalgrein og fé- lagsráðgjöf sem aukagrein árið 1992 og starfsréttindanámi í fé- lagsráðgjöf árið 1994 við Há- skóla Íslands. Lauk mastersnámi í félagsráðgjöf árið 1998 við Uni- versity of Iowa í Bandaríkjunum og hefur stundað doktorsnám þar síðan með sálfræði sem stuðningsgrein. Hefur starfað m.a. við kennslu í félagsráðgjöf og sem félagsráðgjafi við Fé- lagsþjónustuna í Hafnarfirði. Maki er Sigurgrímur Skúlason próffræðingur og eiga þau börn- in Melkorku Eddu, f. 1988, Tönju Elínu, f. 1992, og Aron Þráin, f. 1995. …þeir þættir sem leiða til ofbeldis EKKERT af þeim hundrað leik- skólabörnum í Reykjavík sem voru berklaprófuð í vikunni greindist með smit samkvæmt niðurstöðum prófunarinnar. Einn fullorðinn starfsmaður greindist hins vegar já- kvæður á prófinu. Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir lungna- og berklavarnadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, segir það ákaflega farsæla niður- stöðu að börnin hafi reynst neikvæð. „Þó er öruggara að gera aftur próf- un eftir sex vikur á börnunum vegna þess að ef smit hefur átt sér stað t.d. í lok janúar gæti verið að ekki hefði liðið nægilega langur tími fyrir breytinguna í ónæmiskerfinu að koma fram.“ Hann segir niðurstöðuna ekki gefa tilefni til prófana í öðrum hóp- um. „Þetta gefur okkur upplýsingar um að þetta hafi ekki verið eins mik- ið og við óttuðumst. Ferillinn var þannig að eitt barn greindist fyrst á Landspítalanum og fljótlega kom í ljós að systkini þess voru með út- komu og þrír fullorðnir í fjölskyld- unni reyndust einnig hafa tekið bakteríuna. Svo að lokum greindist þessi einstaklingur, starfsmaðurinn, til viðbótar, sem er það sem við köll- um smitbera eða index-tilfelli.“ Hann segir um að ræða starfsmann í eldhúsi sem ekki hafi haft náinn umgang við börnin á leikskólanum. Smáfarsótt fyrir nokkrum árum Þetta er ekki í fyrsta sinn hin síð- ari ár sem nokkrir einstaklingar smitast á svipuðum tíma. „Fyrir tæplega tíu árum varð eins konar smáfarsótt. Þá smituðust einir 35 í kringum eitt tilfelli. Þegar ástandið er eins og nú, að nánast allir Íslend- ingar eru neikvæðir, má segja að fólk sé næmara og það að taka smit veiti vissa vernd þótt þversagnar- kennt sé, því um leið getur enginn orðið veikur af berklum nema hann taki fyrst smit. Af hverjum tíu sem taka bakteríuna er talið að einn veikist af sjúkdómnum og fái virka berkla.“ Að sögn Þorsteins virðist sem starfsmaðurinn hafi ekki smitað út fyrir innsta hring sinn og því gefur það ekki tilefni til frekari prófana. „Heilbrigðisstarfsfólkið er alltaf hræddast vegna krakkanna vegna þess að þar hefur mótstaðan ekki náð að myndast. Þar er maður smeykur við þessi form berklanna sem eru heilahimnubólga og sáning- arberklar sem valda því að börnin verða fárveik og afleiðingarnar eru óskaplegar ef maður er ekki nógu fljótur að greina þá.“ Ekkert barnanna reynd- ist vera með berklasmit Niðurstaða berklaprófunar í leikskóla í Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.