Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 21
5. nóvember 1993: Sagt var að geim- verur myndu lenda við Snæfellsjökul kl. 21.07 þennan dag, en þær létu ekki sjá sig. Fjöldi fólks beið við jök- ulinn, sumir komnir langt að. 16. nóvember 1907: Stytta af Jónasi Hallgrímssyni var afhjúpuð í tilefni þess að hundrað ár voru liðin frá fæðingu skáldsins. Styttan er eftir Einar Jónsson og var sú fyrsta sem hér var sett upp eftir Íslending, ann- an en Thorvaldsen. Hún var fyrst við Amtmannsstíg í Reykjavík en var flutt í Hljómskálagarðinn árið 1947. 23. nóvember 1947: Bandaríski kvik- myndaleikarinn Tyrone Power kom við í Reykjavík á leið sinni vestur um haf. Heimsókn hans vakti mikla at- hygli. Leikaranum „leist svo vel á ís- lenska kvenfólkið að hann kvaðst ekki hafa séð annað eins á sinni löngu reisu um fjöldamörg lönd,“ að sögn Morgunblaðsins. Agndofa Íslandsvinur 3. desember 1992: Georgíumaðurinn Grigol Matsjavariani kom til lands- ins í boði ríkisstjórnarinnar, en hann var sjálfmenntaður og skrifaði og talaði íslensku mjög vel. „Ég er meira en glaður, fremur agndofa,“ sagði hann í viðtali við Morgunblað- ið. „Ísland er tilkomumeira en ég ímyndaði mér.“ Grigol dvaldi hér í hálft ár við fræðistörf. Hann lést í bílslysi 1996. 12. desember 1977: „Hún syngur, hún spilar og hún semur lög. Þetta er ein- stök plata,“ sagði í auglýsingu sem birtist þennan dag um tíu laga plötu sem Fálkinn gaf út með flutningi tólf ára stúlku. Þannig hófst ferill Bjark- ar Guðmundsdóttur. 30. desember 1887: Bríet Bjarnhéð- insdóttir, sem þá var 31 árs, flutti fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík um kjör og réttindi kvenna. „Þetta er í fyrsta sinn sem kvenmaður hér á landi heldur opin- beran fyrirlestur,“ sagði í Fjallkon- unni. „Munu fæstir hafa búist við jafn góðri frammistöðu af sjálf- menntuðum kvenmanni,“ sagði í Ísa- fold. Undarlegar tilviljanir Margar tilviljanir tengjast dagsetn- ingum og atburðum og er hér drepið á nokkrum þeirra: Mesta sjávarflóð á tuttugustu öld bar upp á sama mánaðardag og mesta sjávarflóð sem sögur fara af, 191 ári áður (9. janúar 1799 og 1990). Sautjánda Heklugosið á söguleg- um tíma hófst klukkan sautján á sautjánda degi mánaðar (17. janúar 1991) og átjánda gosið klukkan átján mínútur yfir átján (26. febrúar 2000). Nákvæmlega einu ári eftir að Þjóðverjum var neitað um aðstöðu fyrir flugbækistöð á Íslandi átti þekktur Íslendingur einkafund með Adolf Hitler, jafnaldra sínum (20. mars 1939 og 1940). Sama dag og Ingvar strandaði við Viðey (7. apríl 1906) fórust tvö skip við Mýrar, Sophie Wheatly og Emi- lie. Einkennisnúmer skipanna voru RE 100, RE 50 og RE 25. Tap Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn Reykjavíkur 1978 og 1994 bar upp á sama dag, 28. maí. (Þess má geta að kosningarnar í vor verða á stofndegi Sjálfstæðisflokksins.) Fer langlífi ríkisstjórna eftir því hvaða dag þær taka við völdum? Tvær ríkisstjórnir sem myndaðar voru 8. júlí (1926 og 1987) sátu aðeins í rúmt ár en tvær stjórnir sem rekja upphaf sitt til 28. ágúst (1927 og 1974) sátu út kjörtímabilið. Eina flugránið sem tengst hefur Íslandi átti sér stað nákvæmlega ald- arfjórðungi fyrir hryðjuverkin í New York og Washington (11. september 1976 og 2001). Brak úr breskum togara sem fórst við Vestfirði 1948 kom nær hálfri öld síðar í vörpu íslensks skips sem var undir stjórn manns sem er fæddur daginn sem togarinn fórst (14. des- ember 1948). Naustið var fyrst íslenskra veitingahúsa til að bjóða upp á þorramat 6. febrúar 1958. Var hann reiddur fram í trogum til að veita fornt yfirbragð. Dagar Íslands eftir Jónas Ragnarsson kemur út hjá bókaforlaginu Vaka- Helgafell. Þetta er ný og endurskoðuð útgáfa af bókinni þar sem eru raktir um tvö þúsund atburðir úr sögu lands og þjóðar og þeim raðað eftir dagsetn- ingum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 21 Ný kynslóð grenningarefna! Ný kynslóð grenningarefna!  Kollagen  Pyruvate  CLA  L-karnitín  Aloe Vera  ChromeMate  Q-10 Inniheldur Upp með málbandið! Fitubrennsla á meðan þú sefur www.lyfja.is - netverslun – auk fjölda annarra áhrifaríkra náttúruefna!Kynningar Lyfja Lágmúla 4. mars kl. 14-18 Apótekið Iðufelli, 5. mars kl.14-18 Apótekið Skeifunni, 6. mars kl. 14-18 Lyfja Kringlunni, 7. mars kl.14-18 Lyfja Spönginni, 8. mars kl. 14-18 Biosculpt vinnur með líkamanum í viðgerðar- og uppbyggingar- ferli sem á sér stað á meðan við sofum og eykur jafnframt fitu- brennslu á þessum tíma. Það er því örugg og þægileg leið til að ná og viðhalda kjörþyngd og hentar einnig þeim sem vilja styrkja liðamót og bæta meltinguna. Biosculpt inniheldur ekki örvandi efni sem skaðað geta líkamann. Lyfja Grindavík 11. mars kl. 14-18 Stjórn Landssíma Íslands hf. Dagskrá: Aðalfundur Landssíma Íslands hf. verður haldinn mánudaginn 11. mars á Grand Hótel Reykjavík, kl. 16.00. Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins um fækkun stjórnarmanna úr sjö í fimm og fækkun varamanna úr sjö í fimm. Grein 19.1. Önnur mál – löglega upp borin. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Ársreikningur félagsins liggur frammi á skrifstofu félagsins í Landssímahúsinu við Austurvöll. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá aðalfundinum á heimasíðu félagsins, www.simi.is. LANDSSÍMI ÍSLANDS HF. AÐALFUNDUR 2002
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.