Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 35
grunni náttúrufarskannana sem fram fóru árið 1996. Stefnt er að því að halda svæðunum sem mest óskertum sem náttúrusvæðum og þau sett undir hverfisvernd í aðal- skipulagi. Fossvogsdalur, Elliðaár- dalur, opið svæði frá Grafarvogi að Hólmsheiði og Úlfarsárdalur frá Blikastaðakró að Hafravatni eru stærstu samfelldu útivistarsvæðin sem tengja saman útmörk borgar- innar (Græna trefilinn) við strand- lengju borgarinnar og byggð svæði. Gert er ráð fyrir að austan vaxta- marka byggðar verði áfram unnið að uppbyggingu almenns skógræktar- og útivistarsvæðis sem nær frá Esjurótum suður til Hafnarfjarðar. Í aðalskipulaginu er gert ráð fyrir að framlengja Græna trefilinn með- fram Esjuhlíðum og inn að Blikdal á Kjalarnesi. Með uppbyggingu borgarinnar fylgir óhjákvæmilega einhver rösk- un á lífríki og vistkerfi náttúrulegra svæða. Eðlilegt er að hluti svæð- anna verði manngerður (íþróttavell- ir, torg, skrúðgarðar o.s.frv.) en finna þarf jafnvægi á milli uppbygg- ingar, útivistarþarfa fólks og vernd- unar náttúrusvæða. Kjalarnes Almennt er miðað við að þétt- býliskjarninn í Grundarhverfi og fyrirhuguð byggð í framhaldi hverf- isins taki mið af þeirri þróun sem er í skipulagi vistvænnar byggðar. Með vistvænni byggð er m.a. átt við að horft sé til orkunýtingar, bygging- arefna og hvernig staðið verði að sorpmálum og almennra umhverf- isgæða s.s. myndun skjóls og tengsl íbúa og umhverfis. Svæðið meðfram Esjuhlíðum er skilgreint sem landbúnaðarsvæði en gert er ráð fyrir að á svæðinu verði einnig smábýli og íbúðir tengdar þeim. Á landnotkunarkorti aðalskipu- lagsins er tekið frá svæði til síðari uppbyggingar, eftir 2024, á Álfsnesi og austan Vesturlandsvegar upp með Leirvogsá og Kollafjarðará. Samtals er þetta svæði um 550 ha að stærð þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og atvinnu- starfsemi. Hér er um sjálfstæðan borgarhluta að ræða þar sem áætlað er að rísi allt að 12 þús. íbúðir með um 26 þús. íbúum. Landbúnaður skipar stóran sess í atvinnumálum á Kjalarnesi. Nálægð landbúnaðarsvæðanna og þeirrar af- urðaframleiðslu sem þar er við þétt- býlið á höfuðborgarsvæðinu er einn helsti kostur þeirra. Umhverfismat Samkvæmt skipulags- og bygg- ingarlögum sem tóku gildi árið 1998 þarf nú að vinna umhverfismat fyrir skipulagsáætlanir. Umhverfismat er fremur ný aðferðafræði á skipulags- stigi, sem er ætlað að stuðla að sjálf- bærri þróun og bæta umfjöllun um umhverfisáhrif líkt og gert er við mat á umhverfisáhrifum fyrir til- teknar framkvæmdir, aðeins frá öðru sjónarhorni. Markmið þess er einnig að auka þátttöku almennings við ákvarðanir og reyna að tryggja að fjallað sé um umhverfisáhrif fyrr í ákvörðunarferlinu en áður hefur verið gert. Aðalskipulagið í Reykja- vík fer nú í fyrsta sinn í gegnum um- hverfismat, strax á skipulagsstigi. Þetta er því í fyrsta sinn sem hug- myndafræðin um sjálfbæra þróun birtist með svo skýrum hætti í að- alskipulagi borgarinnar, en hún er það leiðarljós sem umhverfismatið byggist á. Mikilvægt er að gera greinarmun á umhverfismati fyrir skipulags- áætlanir annars vegar og mati á um- hverfisáhrifum tiltekinnar fram- kvæmdar hins vegar. Helsti munurinn er sá að við mat á um- hverfisáhrifum framkvæmdar er verið að skoða þau áhrif sem ein til- tekin framkvæmd hefur á umhverf- ið. Við umhverfismat á skipulags- stigi er hins vegar verið að meta áhrif stefnumiða, markmiða og leiða í skipulagsáætluninni á umhverfi í almennari skilningi og draga fram rökstuðning fyrir þeim ákvörðunum sem skipulagið byggist á. Umhverfismatið var unnið af ráðgjafarfyrirtækinu ALTA fyrir Borgarskipulag og í samráði við um- hverfismatsteymi en í því voru starfsmenn Borgarskipulags ásamt verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 hjá borgarverkfræðingi. Í niðurstöð- um skýrsluhöfunda segir m.a.: „Öll markmiðin miða að sjálfbærri þróun og skila að mestu jákvæðum áhrif- um á umhverfi, efnahag og fé- lagslega þætti. Þær leiðir sem farn- ar eru til að framfylgja mark- miðunum, uppfylla einnig í öllum meginatriðum kröfur um sjálfbæra þróun… Ef miðað er við núgildandi aðalskipulag er óhætt að segja að sú aðalskipulagstillaga, sem hér liggur fyrir, færi Reykjavík nær því að vera sjálfbær borg. Þar vegur þyngst áhersla á vaxtarmörk og þéttingu byggðar, aukinn þéttleika, skilmálar um gæði byggðar og áhersla á vistvænar samgöngur. Engin markmið eða leiðir í aðal- skipulaginu geta talist andstæð sjálfbærri þróun, þar sem hvergi er um að ræða óafturkræf áhrif á höf- uðstól náttúrulegra auðlinda, efna- hag eða samfélag. Af því sem fram hefur komið í greinum mínum um framtíðarsýn í skipulagsmálum má glögglega sjá að mikill metnaður hefur verið lagður í endurskoðun aðalskipulagsins, þar er að finna margar nýjar áherslur og skýra framtíðarsýn sem við get- um öll verið stolt af. Höfundur er formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 35 Alltaf á þriðjudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.