Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Kasla
og Selfoss koma í dag.
Ofelia fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Þriðjud. 5. mars Bún-
aðarbanki frá kl. 10.15.
Verslunarferð í Hag-
kaup Skeifunni 7. mars
kl. 10. Kaffi í boði Hag-
kaupa, brottför frá
Grandavegi 47 kl. 10
með viðkomu í Afla-
granda 40. Skráning í af-
greiðslu s. 562-2571. Op-
ið hús 7 mars, húsið
opnað kl. 19.30, fé-
lagsvist kl. 20, kaffiveit-
ingar. Allir aldurshópar
velkomnir. Góugleði
verður föstud. 8. mars,
nánar auglýst síðar.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Allar upplýs-
ingar í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13.30–
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13–16 bútasaumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Sæludagar á Hótel Örk
dagana 7. apríl til 12.
apríl. Þátttökulistar eru
í Gjábakka og
Gullsmára.
Aðalfundurinn verður í
Gullsmára 13, laugard.
9. mars. Venjuleg aðal-
fundarstörf, lagabreyt-
ingar, kosning formanns
og þriggja stjórn-
armanna, aðrar kosn-
ingar, ákvörðun um fé-
lagsgjald og önnur mál.
Reikningar félagsins
liggja frammi á skrif-
stofunni.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska framhald.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. 4. mars fé-
lagsvist á Álftanesi kl.
19.30 á vegum
Kvenfélags Bessa-
staðahrepps.
21. mars félagsvist á
Garðaholti kl. 19. 30 á
vegum Kvenfélags
Garðabæjar.
Mán. 4. mars kl. 9 leir,
kl. 9.45 boccia, kl. 11.15
og 12.15 leikfimi, kl.
13.05, róleg stóla-
leikfimi, kl. 13 gler/
bræðsla, kl. 15.30 tölvu-
námskeið, kl. 9–14 fóta-
aðgerðarstofan.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un félagsvist kl. 13.30,
púttæfingar í Bæj-
arútgerð kl. 10–11.30
þriðjudag: saumur og
brids kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Í dag: Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Dansleikur kl. 20
í kvöld Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánud.: Brids kl. 13.
Danskennsla fellur nið-
ur. Þriðjud.: Skák kl. 13.
Meistaramót deild-
arinnar, teflt í tveim
flokkum A og B. Alkort
spilað kl. 13.30. Skrif-
stofa félagsins er flutt að
Faxafeni 12 sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi. Á morg-
un kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 13–16 er opin mynd-
listarsýning Braga Þórs
Guðjónssonar, listamað-
urinn á staðnum, veit-
ingar í veitingabúð. Á
morgun vinnustofur
opnar frá kl. 9–16.30, kl.
13.30–14.30 bankaþjón-
usta, dans fellur niður.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl. 11
hæg leikfimi, kl. 13
lomber, kl. 13.30
spænska, kl. 17.15 kór-
inn kl. 20 skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9. 55 ró-
leg stólaleikfimi, kl. 13
brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerð, hár- og
handsnyrting.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Fé-
lagsstarfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9–16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing.
Vitatorg. Á morgun kl. 9
smíði og hárgreiðsla, kl.
9.30 bókband, bútasaum-
ur og morgunstund, kl.
10 fótaaðgerðir og sund,
kl. 13 handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og spil-
að.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira. Sigurður
Geirdal bæjarstjóri
kemur í heimsókn.
Ljóðaspjall.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla mánu-
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12.45. Spil hefst
kl. 13. Bridsdeild FEBK
í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla
Fundur verður í Kristni-
boðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 mánudag-
inn 4. mars kl. 20.
Ragnar Gunnarsson sér
um fundarefnið. Allir
karlmenn velkomnir.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist í dag kl. 14
þriðji dagur í fjögurra
daga keppni.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Næsti fundur er
afmælisfundur í boði
Kvenfélags Langholts-
sóknar. Mæting í safn-
aðarheimilinu þriðjud. 5.
mars kl. 20. Óskað er
eftir að konur mæti í
upphlut.
Kvenfélag Seljasóknar
heldur fund í kirkju-
miðstöðinni þriðjud. 5.
mars kl. 20.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar heldur aðalfund-
inn þriðjud. 5. mars kl.
20 í Safnaðarheimili
Fella- og Hólakirkju.
Félag breiðfirskra
kvenna, fundur verður 4.
mars kl. 20. Rætt um
vorferðina. Kaffi og
glens.
Safnaðarfélag Graf-
arvogskirkju. Fé-
lagsfundur í kirkjunni
mánud. 4. mars kl. 20.
Kvenfélag Garðabæjar
heldur marsfundinn
þriðjud. 5. mars á Garða-
holti kl. 20.30, gestir
verða félagskonur úr
Kvenfélaginu Seltjörn.
Kvenfélag Laug-
arnessóknar. Fundur á
morgun, 4. mars, kl. 20. í
safnaðarheimilinu.
Kvenfélag Lágafells-
sóknar, fundur verður í
Hlégarði 4. mars kl.
19.30, óvænt uppákoma.
Tilk. þátt í s. 566-7835
eða 566-6187.
Aglow Reykjavík, kristi-
leg samtök kvenna,
fundur verður mánudag-
inn 4. mars kl. 20 í
Templarasalnum í
Stangarhyl 4. Aðal-
ræðukona Ragna Þor-
valdsdóttir.
Í dag er sunnudagur 3. mars, 62.
dagur ársins 2002. Föstu Jóns-
messa Hólabiskups á föstu.
Orð dagsins: Sá sem leitar góðs,
stundar það, sem velþóknanlegt
er, en sá sem sækist eftir
illu, verður fyrir því.
(Orðskv. 11, 27.)
Í VÍKVERJA ekki alls fyr-
ir löngu var fjallað um for-
eldramorgna eða mömmu-
morgna. Það virtist fara
fyrir brjóstið á Víkverja
þegar þessir morgnar eru
tengdir við konur eða
mömmur; það fældi karla
frá. Mér varð þá hugsað til
æðstu embætta þjóðarinn-
ar en þau eru afar karlgerð
svo ekki sé meira sagt. Ég
er að sjálfsögðu að tala um
ráðherra og sendiherra-
embættin. Hvers vegna í
ósköpunum er ekki fundið
viðunandi heiti á þessi
störf? Eigum við að ala syni
okkar og dætur upp í því að
konur séu herrar þegar svo
hátt er komið í valdastöðu?
Ef embættin væru með jafn
afgerandi hætti tengd við
konur væri þá búið að
breyta um heiti? Er ekki
ráð að efna til samkeppni
meðal þjóðarinnar um gott
heiti á þau embætti sem
ávarpa konur herra? Það
eru í rauninni sjálfsögð
mannréttindi.
Jóhanna G. Ólafsdóttir,
Bæjargili 112.
Þjónusta bankanna
við ungt fólk
MÉR finnst hrikalegt hvað
ungt fólk fær orðið lélega
þjónustu hvert sem það fer.
Það vill svo til að ég fór í
banka fyrir mánuði og sótti
um debetkort, tók ég fram
að ég vildi síhringikort. Í
dag komst ég að því að ég
fékk venjulegt kort sem
hringir nánast aldrei – til
að athuga hvort að inni-
stæða sé á kortinu. Mér var
sagt að bankinn gæti ekki
verið viss um hvort ég hafi
beðið um s-kort, eins og
þeir kalla það.
Þegar systir mín hóf nám
við Verslunarskólann
haustið 2000 buðu bankarn-
ir nemendum við skólann
yfirdráttarheimild upp á
100.000 krónur. Við erum
að tala um 16-17 ára krakka
sem eru ekki sjálfráða og
hvað þá fjárráða. Hvernig
haldið þið að unglingur fari
með þessi peninga, peninga
sem koma eins og gefnir
upp í hendur hans? Það vita
allir að það þarf að passa
sig á heimildinni, en 16 ára
krakki veit það ekki jafn vel
og kemur ekki til með að
gera sér grein fyrir því fyrr
en hann er búinn að brenna
sig.
Ingunn.
Kórónur úr
íslenskum steinum
ÉG ER að leita að lista-
konu sem býr til kórónur úr
íslenskum steinum. Ef ein-
hver getur gefið mér upp-
lýsingar vinsamlega hafið
samband við Höllu í síma
555 2270.
Álíka skemmdarverk
FYRIR mörgum árum
máluðu Gréta og Jón
Björnsson listaverk inni í í
Bíóhöllinni á Akranesi. Síð-
ar gerðist það að málað var
yfir listaverk þeirra og tel
ég það álíka skemmdarverk
og þegar mölvaður var nið-
ur veggurinn með lista-
verkinu eftir Veturliða
Gunnarsson.
Agatha.
Að borga fyrir sig
HJALTI hafði samband við
Velvakanda og sagðist
hann hafa verið í nokkrum
útförum nýlega þar sem
boðið var upp á kaffi eftir
athöfnina. Vildi hann koma
þeirri hugmynd á framfæri
að fólk greiddi fyrir kaffið
því það gæti verið fjárhags-
lega erfitt fyrir aðstand-
endur að standa undir kaffi
og meðlæti fyrir jafnvel
100-300 manns.
Tapað/fundið
Skólataska týndist
HLIÐARTASKA stór og
svört (skólataska) með
skóladóti týndist sl. þriðju-
dag í nágrenni Skólavörðu-
stígs. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 695 6516.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Karlgerð
embætti
Víkverji skrifar...
VINUR Víkverja heldur því framað uppeldi barna hans hafi tek-
ist vel, að minnsta kosti að sumu
leyti. Hann las í gamalli barnabók
fyrir dóttur sína, sem er átta ára, og
þar kom fyrir orðið vindlakassi. Hvað
er vindlakassi? spurði þá stúlkan, og
vinurinn þurfti að útskýra það. Hvað
er aftur vindill? spurði hún þá aftur.
Þetta var hann ánægður með; barnið
vissi varla hvað þetta fyrirbæri er.
x x x
VÍKVERJI hefur því miður ekkinógu mikinn tíma til að hlusta á
útvarp nú orðið, en Rás 1 verður yf-
irleitt fyrir valinu þegar tími gefst.
Víkverji reynir þó að fylgjast sem
oftast með ákveðnum þáttum og einn
sem óhætt er að mæla með er í umsjá
Leifs Haukssonar eftir hádegi suma
daga. Fjölbreyttur og skemmtilegur
þáttur.
x x x
EINN skemmtilegra vefja fyrirbörn og unglinga sem Víkverji
rakst nýlega á er trassi.is – þar er
m.a. að finna brandarasíðu. Átta ára
pjakkur sendi þessa sögu inn:
Einu sinni voru þrír hermenn sem
áttu allir sitt vopn. Einn átti rosa-
sprengju, annar átti vélbyssu og sá
þriðji átti sverð. Þeir voru í þyrlu og
þeir misstu vopnin sín úr þyrlunni.
Þá fóru þeir niður að leita að þeim og
mættu háskælandi manni og spurðu
hann:
Af hverju ertu að gráta?
„Það datt vélbyssa á köttinn minn
og hann drapst.“
Þeir hittu annan mann.
Af hverju ert þú að gráta? spurðu
þeir.
„Það datt sverð í gegnum hundinn
minn,“ sagði hann.
Þeir gengu áfram og hittu skelli-
hlæjandi mann. Þeir spurðu: Af
hverju ertu að hlæja?
„Vegna þess að þegar ég prumpaði
þá sprakk húsið mitt!“
x x x
ANNAR brandari á trassi.is, semátta ára stúlka sendi inn, var
svona:
Einu sinni var gamall maður sem
gekk með tannbursta í bandi. Eitt
sinn mætti hann manni sem spurði:
Hvað heitir hundurinn þinn?
Gamli maðurinn svaraði: Þetta er
tannbursti!
Þá sagði hinn: – Ó! Ég hélt kannski
að þú værir eitthvað bilaður.
Þegar hann var farinn sagði gamli
maðurinn: Þarna göbbuðum við
hann, Snati!
x x x
VÍKVERJI verður að játa aðhann hefur aldrei haft gaman af
bílum. Lítur fyrst og fremst á þessi
fyrirbæri sem farartæki til að kom-
ast á milli staða, en þekkir ekki
knastás, blöndung, innspýtingu og
slíka hluti nema af afspurn.
En svo var farið að sýna frá kapp-
akstri í sjónvarpinu og þá fóru Vík-
verji og sumir vina hans að kíkja á
skjáinn og leggja við hlustir, í orðsins
fyllstu merkingu því ekki vantar há-
vaðann!
Og þegar öllu er á botninn hvolft er
bara býsna gaman að þessum form-
úluköppum. Það er gott að formúlan
er sýnd í sjónvarpinu því það er besta
leiðin til að auka áhuga á „nýjum“
greinum hérlendis. NBA-körfubolt-
inn er annað dæmi um það, ameríski
fótboltinn einnig.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 drenglunduð, 8 sjái eft-
ir, 9 kind, 10 miskunn, 11
blóðhlaupin, 13 manns-
nafn, 15 stúlka, 18 fugl-
inn, 21 stjórna, 22 nauts,
23 eldstó, 24 hagkvæmt.
LÓÐRÉTT:
2 org, 3 eyddur, 4 nam, 5
næstum ný, 6 mynnum, 7
óvild, 12 greinir, 14
tangi, 15 varmi, 16 furða,
17 toga, 18 stétt, 19 verk,
20 nálægð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hefna, 4 gufan, 7 gulls, 8 súrar, 9 alt, 11 autt, 13
kinn, 14 eldur, 15 þjöl, 17 álit, 20 gap, 22 kodda, 23
ómynd, 24 ilmur, 25 ledda.
Lórétt: 1 hegna, 2 fullt, 3 ausa, 4 gust, 5 ferli, 6 nýrun, 10
lydda, 12 tel, 13 krá, 15 þokki, 16 öldum, 18 leynd, 19
tudda, 20 gaur, 21 póll.
K r o s s g á t a
ÉG undirrituð var ánægð
með þá umfjöllun sem var
í fréttunum fimmtudag-
inn 31. janúar sl. um bíla-
stæði fatlaðra. Þar sem
ég er bundin í hjólastól
og þarf að fara víða eru
bílastæði nauðsynleg fyr-
ir mig. En því miður hef-
ur það gerst alltof oft að
aðrir hafa lagt í stæðin,
t.d. við Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra þar
sem ég fer í sjúkraþjálf-
un. Ef það er bíll fyrir þá
kemst ferðaþjónustan
ekki að og þá þarf ég að
fara lengri vegalengdir.
Og munið að eingöngu
þeir sem hafa sérmerkt
P-merki fyrir fatlaða
hafa rétt til að leggja í
þessi stæði, aðrir ekki.
Þóra Rut Jóhann-
esdóttir,
Rangárseli 16–20.
Virðum bílastæði
fatlaðra