Morgunblaðið - 10.03.2002, Síða 1
MORGUNBLAÐIÐ 10. MARS 2002
58. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
10. mars 2002
Bond á
hálum ís
Verið er að taka upp
atriði í næstu James Bond-
bíómyndinni á Jökulsárlóni.
250 manns vinna við
kvikmyndagerðina og
kostnaðurinn hvern dag er
30 milljónir króna. Guðjón
Guðmundsson og Ragnar
Axelsson fóru út á ísinn og
fylgdust með tökum. 10
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
B
Atvinnuleitin erfiðari
eftir því sem árin líða
10
Glæpa-
sögur í
eðli sínu
formúlu-
bók-
menntir
14 Keisari Antarktíku
24
ÚTLIT var fyrir mikla kjörsókn í
forsetakosningunum í Zimbabwe,
sem hófust í gær og standa einnig í
dag. Vonast stjórnarandstaðan til,
að með kosningunum verði bundinn
endi á 22 ára valdatíð Roberts
Mugabes forseta en hann hefur
reynt að þrengja kosti hennar á alla
lund, meðal annars með því að banna
utankjörfundaratkvæðagreiðslu að
mestu.
Miklar biðraðir höfðu myndast við
kjörstaði í höfuðborginni, Harare, og
og í öðrum borgum landsins áður en
þeir voru opnaðir og höfðu margir
beðið frá því um miðja nótt. Stendur
slagurinn á milli Mugabes forseta og
leiðtoga stjórnarandstöðunnar,
Morgans Tsvangirais, en hann von-
ast til, að landsmenn séu búnir að fá
sig fullsadda á efnahagshruninu og
ofbeldinu, sem Mugabe og stuðn-
ingsmenn hans hafa staðið fyrir síð-
ustu árin. Að minnsta kosti 33 menn
hafa fallið fyrir því á þessu ári og
flokkur Tsvangirais, Hreyfingin fyr-
ir lýðræðislegum breytingum, segir,
að 107 stuðningsmenn hans hafi ver-
ið drepnir síðustu tvö árin. Þá hafa
tugþúsundir manna verið flæmdar
burt af heimilum sínum, pyntaðar og
ofsóttar.
Óttast kosningasvindl
Allar skoðanakannanir segja, að
Tsvangirai muni sigra svo framar-
lega sem kosningarnar fari heiðar-
lega fram. Margir óttast hins vegar,
að sú verði ekki raunin og muni
Mugabe beita þeim brögðum, sem
dugi til að tryggja sér völdin áfram.
Í gærmorgun hafði stjórnarand-
stöðunni ekki enn verið leyft að
skoða allar kjörskrár og fréttir voru
um, að stuðningsmenn Mugabes
hefðu ráðist á suma kjörfundarfull-
trúa stjórnarandstöðunnar.
„Í dag snýst allt um að kjósa og ég
vonast eftir einhverri breytingu,“
sagði maður nokkur við kjörstað í
Harare og annar sagði, að hann hefði
ekkert annað að gera en bíða eftir
því að kjörstaðurinn yrði opnaður.
„Það er enga vinnu að fá, enga eld-
unarolíu, ekkert mjöl, engan mat.“
Efnahagshrun
Mugabe og menn hans hafa rekið
hvíta bændur af jörðum sínum og
valdið með því hruni í landbúnaðar-
framleiðslunni; verðbólgan er 120%,
atvinnuleysið 60% og að minnsta
kosti hálf milljón manna sveltur
heilu hungri. Skoðanakannanir sýna,
að stjórnarandstaðan nýtur miklu
meira fylgis en Mugabe í borgunum
en stuðningurinn við forsetann er
mestur á landsbyggðinni.
Mikið skipulagsleysi einkennir
kosningaframkvæmdina og mörg-
um, sem beðið höfðu klukkustundum
saman við ákveðinn kjörstað, var
síðan vísað annað. Búist er við, að
kosningaúrslitin liggi fyrir á þriðju-
dag.
Vonast eftir sögulegum
umskiptum í Zimbabwe
22 ára valdatíð Mugabes
gæti lokið um helgina
Reuters
Miklar biðraðir voru við kjör-
staði í flestum borgum í Zimb-
abwe í gær. Hér er beðið við
einn kjörstaðinn í Harare.
Harare. AP, AFP.
HELMUT Kohl, fyrrverandi
kanslari Þýskalands, bar sigur
úr býtum í máli, sem snerist um
það hvort opinbera ætti skjöl og
þær upplýsingar, sem Stasi,
austur-þýska leyniþjónustan,
safnaði um hann á sínum tíma.
Í dóminum, sem var kveðinn
upp á föstudag og er endanleg-
ur, segir, að ekki sé heimilt að
birta skjölin um Kohl, um 2.500
blaðsíður, vegna þess, að hann
hafi verið „fórnarlamb“ Stasis.
Var dómur undirréttar þess efn-
is staðfestur.
Stasi-skjölin um Kohl eru alls
um 7.000 blaðsíður en Marianne
Birthler, sem nú veitir leyni-
skjalasafninu forstöðu, hafði að-
eins farið fram á, að 2.500 þeirra
yrðu birt. Benti hún á, að upp-
lýsingar um aðra núlifandi menn
hefðu verið birtar. Til dæmis
hefði þannig verið upplýst, að
Gregor Gysi, fyrrverandi leið-
togi Lýðræðislega sósíalista-
flokksins, arftaka austur-þýska
kommúnistaflokksins, hefði ver-
ið á snærum Stasis og einnig
Manfred Stolpe, fyrrverandi
forsætisráðherra jafnaðar-
manna í Brandenburg. Þeir,
sem vildu fá Kohl-skjölin birt,
vonuðust til, að þau gætu upp-
lýst tilurð leynisjóðanna, sem
Kohl jós af í stjórnartíð sinni.
Stasi-
skjöl um
Kohl
ekki birt
Berlín. AFP.
ÍSRAELAR héldu áfram hörðum
árásum í fyrrinótt og í gær á opin-
berar byggingar á Vesturbakkanum
og á Gaza. Í bænum Tulkarem réð-
ust þeir inn í tvennar flóttamanna-
búðir og handtóku um 400 manns,
þar af 60 öryggissveitarmenn heima-
stjórnarinnar.
Ísraelskar fallbyssuþyrlur réðust
á skotmörk í Nablus og Khan Yunis,
skutu meðal annars eldflaugum á að-
setur borgarstjórans í fyrrnefndu
borginni, og ollu einnig verulegri
eyðileggingu á Gaza. Í Tulkarem
lögðu ísraelskir hermenn undir sig
tvennar flóttamannabúðir í leit að
palestínskum byssumönnum. Hand-
tóku þeir um 400 menn, sem átti að
flytja til búða skammt frá Ramallah.
Síðasta vika er sú blóðugasta í 17
mánaða gamalli uppreisn Palestínu-
manna. Hefur hún kostað 114 Pal-
estínumenn og 36 Ísraela lífið.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, tilkynnti á föstudag, að hann
setti það ekki lengur sem skilyrði
fyrir friðarviðræðum við Palestínu-
menn, að fyrst yrði allt með kyrrum
kjörum í sjö daga, en Nabil Adu
Rudeina, helsti talsmaður Arafats,
sagði, að yfirlýsing Sharons væri
marklaus og aðeins gerð til að þókn-
ast Bandaríkjastjórn í svipinn. Sagði
hann, að Ísraelar og Sharon yrðu
fyrst og fremst að hætta fjöldamorð-
unum á Palestínumönnum.
Hundruð
manna tekin
höndum
Jerúsalem. AP, AFP.
Reuters
Palestínumenn í gæslu ísraelskra hermanna við flóttamannabúðir í Tulkarem á Vesturbakkanum. Flytja átti
þá, þar á meðal 60 öryggissveitarmenn palestínsku heimastjórnarinnar, til yfirheyrslu í búðum við Ramallah.