Morgunblaðið - 10.03.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 9
Sí›ustu sætin
Betri fer›ir - betra frí
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
Bóka›u fer›ina o
g fá›u
nánari uppl‡sing
ar á netinu!
- páskafer›ir og vorfer›ir á frábærum kjörum
Besti tíminn á Kanarí á bestu
gististö›unum.
Páskafer›ir:
16. mars - UPPSELT
23. mars - UPPSELT
Ód‡rar vorfer›ir:
3. apríl - 17 dagar - Aukafer› - laus sæti
6. apríl - 14 dagar - Aukafer› - laus sæti
Kanarí
Gistista›ir í sérflokki, La Colina
og Les Dunes Suites bera af.
Besta fjölskyldugistingin.
Páskafer›:
22. mars - páskar - UPPSELT
Ód‡r vorfer›:
2. apríl - 16 nætur - örfá sæti laus
Benidorm
Frábær sta›ur fyrir golfarana
- fjölbreytt úrval golffer›a í vor.
Páskafer›ir:
22. mars - páskar - UPPSELT
27. mars - páskar - örfá sæti laus
- Gisting á Ondamar
Ód‡rar vorfer›ir:
1. og 12. apríl - 11 nætur - örfá sæti laus
8. apríl - 7 nætur UPPSELT
15. apríl - 7 nætur örfá sæti laus
Portúgal
Írsku augun brosa til flín fleqar
vorar á bökkum Liffey.
Páskafer›:
28. mars - örfá sæti laus
Ód‡r vorfer›:
25. apríl - örfá sæti laus
Dublin
Ekki draga fla› lengur a› taka ákvör›un!
Fyrsta flokks gistista›ir
og fyrsta flokks fljónusta.
Trygg›u flér sæti strax!
fiú ert í öruggum höndum
í fer› me› okkur!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
70
80
03
/2
00
2
kr.67.900
á mann m.v. lágmark 2 fer›ist saman.
Föst aukagjöld: 3.730 kr.
Tilbo›sver› 6. apríl
Tvöfalt vægi Frípunkta
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra ítrekaði á Alþingi í fyrradag þá
skoðun sína að verði heilsugæslustöð
boðin út, t.d. í Salahverfi í Kópavogi,
verði tryggt með samningi við ráðu-
neytið að þjónustan gagnvart al-
menningi verði ekki síðri en á öðrum
heilsugæslustöðvum sem reknar eru
á vegum Heilsugæslunnar í Reykja-
vík. Jafnframt verði tryggt að gjöldin
fyrir þjónustuna verði ekki meiri og
að útgjöldin fyrir skattgreiðendur
verði ekki hærri.
Kom þetta fram í máli ráðherra í
umræðum utan dagskrár um útboð
heilsugæslustöðva.
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, var máls-
hefjandi umræðunnar. Sagði hún að
frumstig heilbrigðiskerfisins, heilsu-
gæslan, hefði verið vanrækt. „Nauð-
synleg uppbygging hefur ekki átt sér
stað. Ofboðsleg þörf hefur myndast í
heilsugæslunni sem ekki hefur fengið
nauðsynlegt fjármagn og keyrt um
þverbak tvö undangengin ár… Mála-
flokkurinn er sveltur fjárhagslega og
svo kemur lausnin sem er einkavæð-
ing.“
Rannveig gagnrýndi síðan þau
áform heilbrigðisráðherra að bjóða út
rekstur nýrra heilsugæslustöðva.
Sagði hún að ráðherra hefði fyrir-
varalaust boðað útboð á rekstri nýrra
heilsugæslustöðva; fyrst í Salahverfi í
Kópavogi, síðan í Hafnarfirði og þar
næst í Heimahverfi. „Ekki er þó ljóst
hvers konar útboð er hér á ferðinni
eða hvernig eigi að tryggja þjónustu.
Engin rök liggja fyrir um að einka-
framkvæmd í heilbrigðisþjónustu sé
hagkvæmari. Þvert á móti bendir
reynsla erlendis frá til að einkarekst-
ur sé dýrari.“ Aðrir stjórnarandstæð-
ingar lýstu líka yfir áhyggjum af fyr-
irhuguðu útboði heilsugæslustöðva.
Jón Kristjánsson benti á að um 178
þúsund manns hefðu búið á höfuð-
borgarsvæðinu í desember sl. „Á
svæðinu öllu eru starfandi 103 heilsu-
gæslu- og heimilislæknar sem þýðir
að hér eru rúmlega 1.700 manns á
hvern starfandi heilsugæslu- og heim-
ilislækni en ég nefni þessar tölur til að
menn átti sig á í grunninn, hvað við
erum að tala um. Það er löng reynsla
fyrir því að Íslendingar vilja ekki bíða
lengi eftir að ná fundi læknis, þegar
þeir telja sig þurfa þess með. Þetta er
ein af ástæðunum fyrir því að menn
hafa kvartað undan þjónustu heilsu-
gæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.“
Ráðherra greindi frá því að sumir
læknar hefðu „bundið saman biðlist-
ana og rekstrarformið“, eins og hann
orðaði það og „fengið út úr því að
einkareksturinn eða einkavæðingin
væri lausnaorðið“. Síðan sagði hann:
„Þeir sem tala hæst um þetta tala
aldrei um mánaðarlanga biðlista hjá
einkastofnunum. Ég hafna því að
rekstrarformið skipti hér máli.
Læknum fjölgar ekki með því að
breyta rekstrarforminu og sömu
menn vinna ekki fleiri læknisverk
nema þá að þeir sem vinna verkin fái
meira fyrir sinn snúð.“
Ráðherra skýrði frá því að kjör
heilsugæslulækna væru ákvörðuð af
Kjaranefnd. „Ég hef lýst yfir því að
það sé og hafi ekki verið fyrirstaða hjá
mér, forvera mínum eða heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu að end-
urskoða þessa skipan mála, ef það
mætti verða til þess að lægja
óánægjuraddir,“ sagði hann og bætti
við: „Ég hef því miður ekki fengið
nein viðbrögð við þessum yfirlýsing-
um mínum frá samtökum læknanna.“
Heilbrigðisráðherra um útboð heilsugæslustöðva
Gjöldin verða ekki hærri
INGIBJÖRG Ágústsdóttir varði
doktorsverkefni sitt í skoskum bók-
menntum við Glasgow-háskóla 17.
september 2001.
Ritgerðin ber
heitið „Pilgrims of
Conscience:
Quests for Mor-
ality and Self-
Knowledge in the
Fiction of Robin
Jenkins“, og
fjallar um verk
skoska rithöfund-
arins Robins Jenkins (1912–), en
hann hefur síðan 1950 gefið út þrjátíu
skáldverk, það síðasta vorið 2001,
sem öllum eru gerð skil í ritgerð Ingi-
bjargar. Í ritgerð sinni leggur höf-
undur megináherslu á að rannsaka
meðferð Jenkins á þeim siðfræðilegu
spurningum sem lúta til dæmis að
skilum milli góðs og ills, réttmæti
stéttaskiptingar og kynþátta-
mismunar og einstaklingsbundnum
skilgreiningum á siðlegri breytni.
Ritgerðin fjallar einkum um þær að-
alpersónur Jenkins sem eiga í innra
stríði og vilja breyta rétt samkvæmt
kristilegum og siðferðislegum lög-
málum, en reka sig á það að siðferð-
isleg hegðun og samfélagsleg hæfni
geta stangast illa á og valdið mis-
skilningi og harmleik. Doktorsritgerð
Ingibjargar er fyrsta fræðiverk sem
fjallar um skáldskap Robins Jenkins í
heild sinni og var af prófdómurum
talin mikilvægt innlegg í umfjöllun
um höfundinn og í skoska og breska
bókmenntafræði almennt.
Ingibjörg Ágústsdóttir fæddist 1.
mars 1970 á Steinstúni í Árneshreppi,
Strandasýslu. Hún tók MA-próf í
ensku frá Háskóla Íslands vorið 1995.
Doktor í
skoskum
bók-
menntum
MARGMIÐLUNARSKÓLINN
sagði upp sjö starfsmönnum vegna
endurskipulagningar um síðustu
mánaðamót, en um tugur starfs-
manna er í vinnu hjá skólanum.
Ingi Rafn Ólafsson, settur skóla-
stjóri Margmiðlunarskólans og
framkvæmdastjóri Prenttækni-
stofnunar, sagði að sjö starfsmönn-
um hefði verið sagt upp um síðast-
liðin mánaðamót. Unnið væri að
endurskipulagningu skólastarfsins
og þessar uppsagnir væru liður í
endurskoðun allrar starfsemi skól-
ans. Verið væri að fara yfir rekst-
urinn frá öllum hliðum, þar á meðal
hvar helstu sóknarfærin í starfsem-
inni væri að finna.
Sjö sagt upp
vegna
endurskipu-
lagningar
Margmiðlunarskólinn
♦ ♦ ♦