Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 13

Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 13 FULLTRÚAR dagblaðsins Financ- ial Times tilkynntu nýverið að ákveð- ið hefði verið að loka fyrir ókeypis að- gang að netgáfu blaðsins. Þurfa áhugasamir framvegis að greiða allt að 140 dollara, um fjórtán þúsund ísl. kr., á ári fyrir aðgang að efni blaðsins á Netinu. Ákvörðun blaðsins er til marks um að æ fleiri fjölmiðlar hafa nú ákveðið að reyna að afla tekna af rekstri netútgáfna. „Hugmyndin var alltaf sú að byggja fyrst upp stóran hóp lesenda sem venjast myndi því að nota netútgáfu blaðsins, en síðan yrði farið að selja aðgang að henni,“ var haft eftir John Makinson, fjármála- stjóra The Financial Times. Sumir fréttaskýrendur hafa hins vegar lýst efasemdum um að neyt- endur sem vanist hafa því að fá vör- una ókeypis séu tilbúnir að þurfa allt í einu að borga fyrir hana. „Notendum Netsins finnst sem þeir borgi nú þeg- ar fyrir efnið með því gjaldi sem þeir greiða fyrir nettenginguna,“ segir David Card, sem sérfróður er um notkun fjölmiðla á Netinu. „Það verð- ur ekki auðvelt að telja þá á að borga meira.“ Horft með öfundaraugum til The Wall Street Journal Ljóst er þó að mörg stórblöð vilja feta þennan stíg. Bæði hafa tekjur vegna auglýsinga í dagblöðum – mik- ilvægasta tekjulind þeirra – mjög dregist saman undanfarin misseri, sem eykur þrýsting á að leita nýrra tekjulinda, og síðan er hitt að þær vonir manna frá því í árdaga dag- blaðaútgáfu á Netinu, um að afla mætti auglýsingatekna í tengslum við netútgáfuna sérstaklega, brugðist að verulegu leyti. Þannig hafa stórblöð eins og The New York Times, The Financial Tim- es og ýmsir aðrir miðlar, sem nálgast má í gegnum leitarsíðuna Yahoo, smám saman verið að koma málum þannig fyrir að greiða þurfi fyrir að- gang að tilteknum hluta þjónustunn- ar. Þá hóf The New York Times í des- ember sl. að bjóða upp á nákvæma eftirlíkingu af pappírsútgáfu blaðsins á Netinu og þarf að greiða tæplega sjö dollara á viku fyrir áskriftina, um 700 ísl. kr. Ljóst þykir því að landslagið í þess- um geira fjölmiðlunar sé að breytast og æ fleiri snúa baki við þeirri draum- sýn að útgáfa ókeypis netmiðils gæti borgað sig á þeirri forsendu að þann- ig mætti ná til mun fleiri einstaklinga en áður, sem aftur myndi tryggja tekjur á öðrum sviðum. Horfa menn með öfundaraugum til stjórnenda netútgáfu The Wall Street Journal, wsj.com, en þeim hefur tekist að afla sér 626 þúsund áskrifenda að blaðinu á þeim tíma sem liðinn er síðan net- útgáfunni var komið á fót í apríl 1996. Breytingar á rekstri dagblaða á Netinu Ókeypis aðgangur úr sög- unni? San Francisco. AFP. FYRIR rétti í Frakklandi er nú rek- ið mál, sem varðar framtíð tveggja líka, látinna hjóna, sem létu frysta sig eftir dauðann í von um að geta risið upp síðar hress og kát í krafti nýrra vísinda. Yfirvöldin í Saumur höfðuðu mál- ið en þau halda því fram, að það sé lagabrot að geyma þau hjónin, Ray- mond Martinot, sem lést í síðasta mánuði áttræður að aldri, og konu hans, sem lést 1984, öllu lengur í frosti. Eru þau í sérstökum frysti- klefa, sem Martinot lét útbúa í kjall- ara hallar sinnar í Neuil-sur-Layon, en þar er frostið ávallt 60 gráður á celsíus. Er klefadyrunum læst með gullkeðju. Yfirvöldin gera þá kröfu, að líkin verði grafin eða brennd. „Það er ekki lögleg greftrun að setja lík í frystigeymslu,“ sagði Christian Prioux, lögfræðingur yf- irvaldanna, en hann sakar Remi Martinot, son hjónanna heitnu, um að hafa raskað almannaró með því að fara eftir fyrirmælum föður síns. Lögfræðingur hans þvertekur hins vegar fyrir það og segir, að í lög- unum sé ekkert, sem banni fólki að hafast við í frysti eftir dauðann. Heilsað upp á frúna Raymond heitinn Martinot, líf- fræðiprófessor og mjög auðugur maður, átti sér þann draum, að svo miklar framfarir yrðu í læknavís- indum, að dag einn gætu þau hjónin risið upp frá dauðum laus við alla kvilla. Þegar hann fékk til sín gesti bauð hann þeim oft að heilsa upp á frúna í frystinum. Ýmsir aðrir sérvitrir auðkýfing- ar hafa átt sér þessa sömu ósk síðan hún var fyrst orðuð seint á sjötta áratug síðustu aldar. Segja frystingu ekki vera löglega útför Saumur. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.