Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KATRÍN Jakobsdóttirákvað að skrifa BA-rit-gerð sína um íslenskarglæpasögur, því enginnhafði rannsakað þær
áður. Ekkert yfirlit var til yfir
slíkar sögur og hún segir ritgerð
sína í raun tilraun til slíks yfirlits.
Eftir að ritgerðasmíðinni lauk árið
1999 kom hins vegar á daginn að
ýmsar sögur aðrar eiga fullt erindi
í slíka samantekt. Líklega verður
bætt úr því, enda hefur Katrín
ekki sleppt hendinni af viðfangs-
efninu. Efni MA-ritgerðar hennar
verður að öllum líkindum um póli-
tísk gildi í íslenskum afþreying-
arbókmenntum. Þar horfir hún t.d.
til þess hvernig höfundar íslenskra
glæpasagna hafa lýst útlendum
sögupersónum sínum. Þáttur
kvenna í sögunum, sem oft er
heldur rýr og klisjukenndur, er
henni einnig hugleikinn.
„Ég þurfti að byrja á að safna
saman íslenskum glæpasögum frá
upphafi og fór meðal annars þá
leið að spyrja eldra fólk hvort það
myndi eftir slíkum bókum. Nið-
urstaðan var sú að elsta íslenska
glæpasagan telst vera smásaga Jó-
hanns Magnúsar Bjarnasonar, sem
er þekktastur fyrir að rita Bras-
ilíufarana. Smásagan, Íslenzkur
Sherlock Holmes, kom út árið
1910. Í þeirri sögu leysir Vestur-
Íslendingurinn Hallur Þorsteins-
son dularfullt peningahvarf og
beitir til þess snjöllum ályktunum.
Hann greinir persónuleika gyð-
ings, sem peningar hverfa frá og í
ljós kemur að ekkert glæpsamlegt
er við peningahvarfið eftir allt
saman. Fléttan reynist því þunnur
þrettándi.“
Glæpasagnaritun var stopul á
þessum fyrstu árum. Næsta saga,
sem Katrín gat skilgreint sem
glæpasögu, var gefin út 1926 og
heitir Húsið við Norðurá. Höfund-
ur er Einar skálaglamm, sem réttu
nafni hét Guðbrandur Jónsson.
„Þetta er skáldsaga í fullri lengd
og fjallar um hræðilegt morð við
Norðurá í Borgarfirði, þar sem
helstu sögupersónur eru breskur
majór og þjónn hans.“
Útlenskir skúrkar
Það er fyrst á allra síðustu árum
sem glæpasagnaritun vex fiskur
um hrygg á Íslandi. „Glæpasögur
nutu nokkurra vinsælda á fjórða
og fimmta áratugnum, en raunin
hefur verið sú að ritun og lestur
þeirra hefur verið í nokkrum kipp-
um í gegnum tíðina.“
Íslenskar glæpasögur eru ekki
séríslenskar, þótt sögusviðið sé
það, heldur fremur tilraun til að
endurskapa erlenda hefð. „Hinn
íslenski Sherlock Holmes hefur
augljósa tilvísun. Í Húsinu við
Norðurá gerir höfundurinn tilraun
til að fella saman íslensku sveita-
söguna og glæpasöguna. Sá sem
leysir gátuna er Íslendingur, sem
hefur starfað sem spæjari í Banda-
ríkjunum. Yfirleitt eru þessar sög-
ur skrifaðar inn í evrópska og
bandaríska hefð. Glæpasögur eru í
eðli sínu formúlubókmenntir og
flestir höfundar virðast gangast
undir þá hefð. En auðvitað eru
séríslensk einkenni. Í bókinni Alt í
lagi í Reykjavík, sem kom út árið
1939 og er eftir Ólaf við Faxafen,
eða Ólaf Friðriksson, vísa persón-
urnar gjarnan í Íslendingasögurn-
ar og Sturlungu. Bókmenntahefð
okkar setur því mark sitt á þessar
bækur sem aðrar. Það er líka mjög
algengt að útlendingar séu skúrk-
arnir. Í Húsinu við Norðurá eru
bæði morðinginn og fórnarlambið
útlendingar, svo glæpurinn er í
raun útlenskt vandamál.“
Katrín segir að á fimmta ára-
tugnum, 1948–1950, hafi þessi til-
hneiging komið skýrt í ljós í bók-
um Vals Vestan, sem réttu nafni
hét Steingrímur Sigfússon. „Að-
alsöguhetjan var Krummi, jarð-
fræðingur og áhugaspæjari, en
glæpamennirnir voru gjarnan
Þjóðverjar. Í bókinni Rafmagns-
morðinu kemur að vísu í ljós að
morðinginn er ekki Þjóðverji, en
hinn vitfirrti, þýski raffræðingur
doktor Schmidt kemur þó mikið
við sögu. Og ekki að ósekju, því
hann er hönnuður banvænu raf-
magnstekönnunnar sem veldur
miklum usla.“
Ofurhetjan Sjöfn frá Hlíðarhúsum
Glæpa- og spennusögur teljast
ekki til fagurbókmennta og eiga
það oftast sammerkt að lítið er
lagt í persónusköpun; fléttan er of-
ar öllu, einkum í svokölluðum ráð-
gátum. „Ólafur Friðriksson er þó
dæmi um annað. Í bókinni Alt í
lagi í Reykjavík er hann vissulega
að segja spennusögu, en hann
leggur einnig mikla áherslu á að-
alsöguhetjuna, ofurkonuna Sjöfn
frá Hlíðarhúsum. Hún er ekki
bara greind, fáguð og vel upplýst,
heldur ofurglæpamaður, sem
skipuleggur hinn fullkomna glæp.
Þessi bók er skrifuð árið 1939, sem
gerir efnistök Ólafs enn meira
spennandi en ella. Sjöfn er hetja,
þótt hún sé glæpamaður, les Sturl-
ungu og berst fyrir réttlæti í
heiminum. Hún er mjög óvenjuleg
kvenhetja á þessum tíma. En rit-
höfundar leyfa sér einmitt ýmis-
legt í glæpasögum, þeir leita út
fyrir viðurkennd viðhorf þjóni það
tilgangi sögunnar. Margir þessara
höfunda skrifuðu undir dulnefni,
svo þeir töldu sig líklega hafa
frjálsar hendur og gátu meira að
segja gert konur að aðalhetjum.“
Katrín lauk BA-ritgerðinni árið
1999, en fram að þeim tíma var
Sjöfn frá Hlíðarhúsum líklega
mesta kvenhetjan í íslenskum
glæpasögum. „En ég er alltaf að
endurskoða þetta. Arnaldur Indr-
iðason hefur teflt fram konum í
síðustu bókum sínum, til dæmis
rannsóknarlögreglumanninum El-
ínborgu, og svo hefur komið á dag-
inn að aðalsöguhetjan Erlendur
lærði allt sem hann kann af konu.“
Frá því að Katrín hóf að grafast
fyrir um íslenskar glæpasögur hef-
ur áhugi kviknað víðar á viðfangs-
efninu, til dæmis býður íslensku-
skor Háskóla Íslands nú upp á
námskeið um morðsöguna. „Mig
langar að færa út kvíarnar og
skoða aðrar afþreyingarbókmennt-
ir og ekki síst glæpasögur fyrir
börn. Þær eru ekki margar, en
Guðjón Sveinsson er dæmi um höf-
und sem skrifaði bækur á sjöunda
áratugnum í anda Enid Blyton. Í
einni bókanna hans er glæpamað-
urinn íslenskur, en starfar fyrir
erlent stórveldi, svo barnabækurn-
ar hafa einnig haldið því á lofti að
glæpirnir kæmu að utan. Ég vil
gjarnan skoða þetta viðhorf til út-
lendinga nánar.“
Raunsæi og harðsoðnir reyfarar
Katrín segir að elstu íslensku
glæpasögurnar séu skrifaðar í
svipuðum stíl og þær erlendu
spennusögur sem seldar voru hér
á landi á þeim tíma. „Gömlu sög-
urnar fylgja amerísku, harðsoðnu
hefðinni, enda var töluvert þýtt af
slíkum sjoppubókmenntum hér.
Reyndar voru margs konar sögur
þýddar og í byrjun 20. aldarinnar
voru t.d. gefnar út hér glæpasögur
eftir Fergus Hume, en sögusvið
þeirra var Ástralía. Íslensku rit-
höfundarnir fóru svipaða leið, létu
til dæmis einkaspæjara leysa gát-
una. Á síðari árum hefur þetta
breyst. Arnaldur Indriðason skrif-
ar til dæmis eftir skandinavískri
hefð, en þekkt dæmi um slíkt eru
bækur sænsku hjónanna Sjöwall
og Wahlöö. Í skandinavísku hefð-
inni er glæpurinn ekki eina við-
fangsefnið, heldur einnig alls kon-
ar félagsleg vandamál og einkalíf
rannsóknarlögreglunnar, svo dæmi
séu tekin. Hins vegar er Stella
Blómkvist höfundur sem skrifar
Glæpasögur í eðli sínu
formúlubókmenntir
Saga og þróun íslenskra glæpasagna
VIRK VÍSINDI
Ragnhildur Sverrisdóttir rsv@mbl.is
„ÍSLENSKAR glæpasögur hafa
verið að sækja mjög í sig veðrið á
undanförnum árum. Viðhorf fræði-
manna til svokallaðra afþreying-
arbókmennta hafa líka verið að
breytast og mörkin milli há- og
lágmenningar verða æ ógreini-
legri. Því fannst mér það mjög
tímabært þegar Katrín Jak-
obsdóttir valdi sér glæpasögur
sem umfjöllunarefni í BA-ritgerð
sinni, Glæpurinn sem ekki fannst.
Glæpasögur eru sérstök bók-
menntagrein sem verðskuldar at-
hygli og Katrín sýnir fram á það í
ritgerð sinni að sögur af þessu
tagi leyna oft á sér og segja okkur
ýmislegt um hugarfar samtímans
og um samfélagið í heild,“ segir
Sveinn Yngvi Egilsson bókmennta-
fræðingur og leiðbeinandi Katrínar
við skrif BA-rit-
gerðarinnar.
Sveinn Yngvi seg-
ir að Katrín nýti sér
kenningar erlendra
fræðimanna um
glæpasöguna en
hafi líka margt til
málanna að leggja
sjálf. „Ég vil einkum
nefna tvennt í þessu
sambandi. Annað er
hlutverkaskipting í
sögunum. Katrín
sýnir fram á að í ís-
lenskum glæpasög-
um séu konur iðu-
lega í hefðbundnum
kynhlutverkum sem ástkonur, eig-
inkonur eða mæður, en þó sé
nokkuð um að glæpamenn og lög-
reglumenn í sögunum
séu konur. Hitt atriðið
sem mér finnst eft-
irtektarvert er hvern-
ig einn glæpur af-
hjúpar annan stærri,
þannig að um er að
ræða „glæp á glæp
ofan“, eins og Katrín
orðar það hnyttilega.
Þessi aðferð getur
skilað góðum árangri í
glæpasögum og falið í
sér ákveðna gagnrýni
á siðspillt borgarsam-
félag nútímans. Þetta
sýnir Katrín mætavel
fram á með greiningu
sinni á ýmsum íslenskum sögum
og ekki spillir fyrir að ritgerðin er
mjög skemmtileg aflestrar.“
Tímabær umfjöllun
Sveinn Yngvi Egilsson
NAFN: Katrín Jakobsdóttir, f. 1976
FORELDRAR: Jakob Ármannsson
bankamaður, f. 1939, d. 1996, Signý
Thoroddsen sálfræðingur, f. 1940
MENNTUN: Grunnskólapróf frá
Langholtsskóla, stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Sund 1996,
BA-próf í íslensku með frönsku sem
aukagrein frá Háskóla Íslands haustið
1999. Katrín stundar nú MA-nám í ís-
lenskum bókmenntum við Háskóla Ís-
lands.
Fræðimaðurinn