Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 19
SÍÐUSTU vikur hef égverið að lesa töluvertaf íslenskum skáldskapaf ýmsu tagi og þar eðég hef einnig kynnt
mér dálítið brot af því sem
frændur okkar hér í Norðrinu
hafa verið að senda frá sér á
bók hlaut ég að bera þetta sam-
an. Niðurstaðan varð sú að það
væri eiginlega fáránlegt hve
margar frambærilegar íslenskar
bækur litu dagsins ljós, sér í
lagi miðað við stærð þjóðarinnar
og ýmsar aðstæður aðrar.
Ég heyrði það einu sinni haft
eftir einhverjum norrænum
frænda okkar sem var að tjá sig
um íslenska
kvikmynda-
gerð, að hún
væri eins og
býflugan.
Hefði engar
forsendur til
að gera það sem hún gerði, en
gerði það samt. Vísindamenn
höfðu semsé mælt býflugu á alla
kanta, hæð, þyngd, vænghaf og
hver veit hvað, og komist að því
að samkvæmt lögmálum heil-
brigðrar skynsemi ættu þessi
loðnu og búttuðu kríli engan
veginn að geta flogið.
Sá norræni bætti því við að
þar eð býflugurnar sjálfar gerðu
sér enga grein fyrir þessum
takmörkunum sínum létu þær
sem ekkert væri og flögruðu
hiklaust milli ilmfagurra blóma
suðandi af gleði og seddu. Það
væri sem sagt andvaraleysið
gagnvart eigin takmörkunum
sem héldi hvoru tveggja gang-
andi, býflugunum og íslenskri
kvikmyndagerð.
Ég held að þessi samlíking
frænda okkar hafi verið einkar
vel til fundin, hvað varðar ís-
lensku kvikmyndagerðina, sem
enn blakar stuttum vængjunum
ótt og títt og heldur sér á lofti,
þótt hún skili aðstandendunum
sjaldnast arði og sé því rekin á
allt öðrum forsendum en það
sem frændur okkar á Norð-
urlöndunum myndu kalla heil-
brigða skynsemi. Þá sjaldan að
tekjur hrökkva fyrir meiru en
útlögðum kostnaði fara þær í að
lækka skuldastöðuna í bönk-
unum vegna fyrri mynda, sem
ekki náðu þessu marki.
En hvað um það. Ef við Ís-
lendingar létum ávallt stjórnast
af því sem aðrar þjóðir kalla
heilbrigða skynsemi værum við
líkast til löngu hættir þessu
sjálfstæðisbrölti og búnir að
sameinast einhverju stærra ríki
til að ná fram hagstæðum sam-
legðaráhrifum með stærri
rekstrareiningu, eins og það
heitir víst.
Það dytti víst fáum í hug í er-
lendum bæjum með færri en
300 þúsund íbúum og með
helstu verðmætin fólgin í
óveiddum fiski í dimmum sjáv-
ardjúpunum að halda úti eigin
þjóðríki með öllu tilheyrandi.
Engum dytti vísast heldur í
hug í nafni heilbrigðrar skyn-
semi að leggja út í að yrkja ljóð
eða rita sögur eða leikverk á
tungu sem ætti sér ekki fleiri
iðkendur en raun ber vitni hér,
ég tala nú ekki um þá fásinnu
að halda að þeir geti mögulega
lifað á því.
Nei, það er ekki skynseminni
að þakka að við erum til. Að
minnsta kosti ekki þeirri sem
menn kalla því nafni í útlöndum.
Líklega er þó fulleinfalt að
segja sem svo að líf okkar
Frónbúa sé allt einhver und-
ursamlegur miskilningur. Vænt-
anlega er réttara að líta svo á
að við höfum okkar eigin hug-
myndir um skynsemina, líkt og
um flest annað.
Ég held að okkur sem byggj-
um þetta kalda, afskekkta ey-
land þyki ávallt skynsamlegt að
gera það sem við teljum að
þurfi að gera, yrkja þau ljóð
sem nauðsyn ber til að yrkja og
segja þær sögur sem segja þarf.
Og þetta gerum við.
Vitaskuld kemur svo í ljós að
praktísk fyrirbæri sem við höf-
um lært að meta með tímanum,
eins og arðsemi, ráðstöf-
unartekjur og þess háttar nokk-
uð, lætur mjög á sér standa. En
hefðum við, að hætti upplýstra
manna úti í heimi, reiknað það
út fyrirfram, væru hlutirnir enn
ógerðir, ljóðin óort og sögurnar
aðeins óljós hugarburður skýja-
glópa.
Við skulum því gæta þess vel
um leið og við kappkostum að
færa okkur í nyt reynslu þjóða
sem hafa skynsamlegri afstöðu
til lífsins en við og eru þess ut-
an langtum hagkvæmari rekstr-
areiningar, að glata ekki okkar
eigin frumafli, andvaraleysinu
gagnvart takmörkunum hinnar
meintu heilbrigðu skynsemi.
Í útlöndum mega menn vitna
í efarann mikla, Descartes, og
segja: „Ég hugsa, og þess vegna
er ég.“ Á Fróni, hins vegar, er
þessu líklega öfugt farið. – Non
cogito, ergo sum.
Að hugsa, eða
hugsa ekki,
þarna er efinn
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
Borgarnes
Sími 437 1040
Ísafjörður
Sími 456 5111
Akureyri
Sími 460 0600
Selfoss
Sími 482 1666
Vestmannaeyjar
Sími 481 1450
Keflavík
Sími 420 6000
Egilsstaðir
Sími 471 2000
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • 200 Kópavogur • Sími 535 2100 • Fax 535 2110
Umbo›smenn Plúsfer›a um allt land
www.plusferdir.is
Ótrúlegt ver› í sólina
Fríkortstilbo›
Flugsæti til Alicante
Sumarhúsaeigendur...
fia› er einfallt a› n‡ta sér punktana...
29.900kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára.
Föst aukagjöld, 3.730 kr. fyrir fullorðinn og 2.955 kr. f.börn, eru ekki
innifalin í verðinu.
Ef 2 ferðast saman: 33.900 kr. á mann auk flugvallarskatta, 3.730 kr.
2. apríl - 24. október
Kanarí Portúgal
61.900kr.
3. e›a 6. apríl - 20. apríl
á mann miðað við 2 fullorðna á Aloe.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
Föst aukagjöld: 3.730 kr. fyrir fullorðinn.
Tvöfalt verðgildi fríkortspunkta.
61.800kr.
1. apríl 11 dagar
á mann miðað við 2 fullorðna á Sol Dorio.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
Föst aukagjöld: 4.455 kr. fyrir fullorðinn.
Tvöfalt verðgildi fríkortspunkta.
...til Portúgals
...til Dublin
...til Benidorm
53.900kr.
...til Kanarí
58.800kr.
27. mars 12 dagar
44.900kr.
28. mars - 1. apríl
22. mars 11 dagar
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára,
á Tropic Mar. Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og
frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Föst aukagjöld, 3.730 kr. fyrir fullorðinn og 2.955 kr.
fyrir börn, eru ekki innifalin í verðinu.
Ef 2 ferðast saman: 68.500 kr. á mann auk
flugvallarskatta, 3.730 kr.
75.855kr.
16. mars - 3. apríl
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára,
á Montemar. Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Föst aukagjöld, 3.730 kr. fyrir fullorðinn og 2.955 kr.
fyrir börn, eru ekki innifalin í verðinu.
Ef 2 ferðast saman: 81.885 kr. á mann auk
flugvallarskatta, 3.730 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára,
á Sol Dorio. Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Föst aukagjöld, 4.455 kr. fyrir fullorðinn og 3.680 kr.
fyrir börn, eru ekki innifalin verðinu.
Ef 2 ferðast saman: 73.900 kr. á mann auk
flugvallarskatta, 4.455 kr.
á mann í tvíbýli á Bewleys hótelinu með
morgunverði.
Flugvallarskattar, 3.945 kr., eru ekki innifaldir
í verðinu.
Pásk
aPlúsa
r
vi›bótarsæti
ppselt