Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 23
TILBOÐ ÓSKAST
í Ford F-250 Lariat Super Duty árgerð 2000
(ekinn 13 þús. mílur)
m/ power stroke V 8 dieselvél,
sjálfskiptur m/ leðurinnréttingum, 4ra dyra,
Kia Sportage 4X4 árgerð 1999
ekinn (25 þús. mílur)
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 12. mars kl. 12-15.
SKÓLARÚTA
Ennfremur óskast tilboð í
International skólarútu árgerð 1985.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
„ÉG LÆRÐI snemma manngang-
inn en leit nú aldrei á mig sem alvöru
skákmann og geri það ekki enn. En
ég á margar ánægjulegar minningar
frá spennandi stórmótum, sérstak-
lega Reykjavíkurskákmótunum á
áttunda og níunda áratugnum, þegar
margir af bestu skákmönnum heims
komu til Íslands. Ég safnaði eigin-
handaráritunum af mikilli samvisku-
semi og lifði mig sterkt inn í mótin.
Þegar ég var polli hélt ég oft ímynd-
uð skákmót með hinum og þessum
stórmeisturum sem ég lét tefla sam-
an og var sjálfur þykjustumótshald-
ari 9–10 ára gamall,“ segir Hrafn.
Íslandsmeistaratitill áður en
félagið varð fjögurra ára
Um tilurð Hróksins segir Hrafn
að sú hugmynd hafi kviknað að
Grand Rokkarar sendu lið til keppni
í fjórðu deild í deildarkeppni Skák-
sambands Íslands. Liðið, sem keppti
undir nafninu Skákfélagið Grand
Rokk, var sigurvegari fjórðu deildar
1998 og Hrafn segir að umsvifalaust
hafi stefnan verið sett á fyrstu deild.
„Við unnum þriðju deildina með
miklum yfirburðum strax árið eftir.
Árið í annarri deild var prófraun fyr-
ir félagið því þar voru mörg önnur
sterk félög. Þar töpuðum við í fyrsta
sinn viðureign í sögu félagsins en
náðum engu að síður með miklu
harðfylgi að sigra deildina, ekki síst
vegna þess að í seinni hluta mótsins
fengum við til liðs við okkur tékk-
neska stórmeistarann Tomas Oral.“
2001 var félagið því komið í fyrstu
deild á meðal þeirra bestu. Hrafn
segir að ákveðið hafi verið að end-
urskipuleggja starfsemi félagsins og
tekið var upp nýtt nafn; Skákfélagið
Hrókurinn. Stefnt var að því að gera
atlögu að Íslandsmeistaratitlinum
strax á fyrsta ári í fyrstu deild.
„Í fyrstu deild mættum við gömlu
stórveldunum í skák, Taflfélagi
Reykjavíkur og Taflfélaginu Helli,
sem voru með stjörnum prýdd stór-
meistaralið. Við urðum vitaskuld að
styrkja okkar lið fyrir baráttuna ef
við áttum að eiga möguleika á titl-
inum. Íslenskir stórmeistarar og
sterkir íslenskir skákmenn eru tak-
mörkuð auðlind og við fórum því þá
leið að fá til liðs við okkur snjalla
skákmenn frá útlöndum. Einnig
gekk í okkar raðir Stefán Kristjáns-
son frá Taflfélagi Reykjavíkur, en
hann var kjörinn efnilegasti skák-
maður landsins á síðasta ári. Þegar
Hrókurinn mætti til leiks í fyrstu
umferð var hann með sterkasta lið
sem nokkru sinni hefur sest að tafli í
íslensku deildarkeppninni, með Ivan
Sokoloff á fyrsta borði, Jan Ehlvest
á öðru, Bandaríkjameistarann marg-
falda Nick DeFirmian á þriðja borði,
undrabarnið Luke McShane frá
Englandi á fjórða, danska stórmeist-
arann Henrik Danielsen, tékkneska
stórmeistarann Jan Votava, Stefán
Kristjánsson og Róbert Harðarson.
Í fyrri hluta mótsins náðum við
naumri forystu og áttum þá eftir að
mæta Íslandsmeisturum Taflfélags
Reykjavíkur í miklu uppgjöri í seinni
hlutanum sem fór fram í mars. Við
höfðum fjóra mánuði til þess að und-
irbúa okkur fyrir þá viðureign og
kölluðum til enn þá sterkara lið. Lið-
ið sem settist að tafli á móti Tafl-
félagi Reykjavíkur er líklega eitt af
fimm sterkustu liðum Evrópu. Við
fengum til liðs við okkur hollenska
ofurmeistarann Loek van Wely,
rússnesku stórmeistarana Konstan-
tin Landa, Vladimir Malakof og
Tomas Oral frá Tékklandi. Við sigr-
uðum Íslandsmeistarana í sögulegu
uppgjöri með sjö og hálfum vinningi
gegn hálfum. Eftir það var leiðin
greið að titlinum. Þar með höfðum
við náð því takmarki sem í fjórðu og
þriðju deild hafði virst fjarstæðu-
kenndur draumur, þ.e. að sigra í
einni deild á ári og vera orðnir Ís-
landsmeistarar áður en við gátum
fagnað fjögurra ára afmæli félags-
ins.“
Tilgangurinn sá að
auðga íslenskt skáklíf
Hrafn segir að tilgangurinn hafi
ekki einvörðungu verið sá að ná Ís-
landsbikarnum í hús heldur ekki síð-
ur að auðga íslenskt skáklíf með því
að gefa íslenskum skákmönnum kost
á því að tefla við marga af sterkustu
skákmönnum í heimi.
Á Símaskákmótinu, sem Hrókur-
inn stóð að í Ráðhúsi Reykjavíkur
fyrir skemmstu, tefldu m.a. 25 stór-
meistarar, og þar fengu ungir ís-
lenskir skákmenn aftur að spreyta
sig gegn sterkustu skákmönnum
heims. Þetta var útsláttarmót og
umhugsunartími var styttri en í
hefðbundnum skákum, eða einungis
hálftími. Mikil spenna myndaðist á
mótinu og fleiri áhorfendur hafa ekki
komið á skákmót hérlendis í mörg
ár.
„Sérstaklega var ánægjulegt að
allir íslensku stórmeistararnir níu
tóku þátt í mótinu en það hefur aldr-
ei áður gerst að þeir hafi allir tekið
þátt í sama mótinu,“ segir Hrafn.
Hann segir að félagar í Hróknum
vilji leggja sitt af mörkum til þess að
efla íslenskt skáklíf. „Það hefur verið
í nokkurri lægð síðustu árin, ekki
síst vegna þess að flestir sterkustu
skákmenn landsins hafa hætt í at-
vinnumennsku. Það hefur myndast
ákveðið tómarúm því unga kynslóðin
hefur ekki enn þá náð fullum þroska
og styrk. Skáklíf hefur fyrir vikið
verið daufara en það var á blómatím-
anum frá 1980 og fram yfir 1990. Við
erum því að reyna að gefa skáklífinu
á Íslandi dálitla vítamínsprautu en
við höfum að sjálfsögðu ýmislegt
fleira á prjónunum. Til þess að rísa
undir nafni sem Íslandsmeistarar
leggjum við að sjálfsögðu okkar af
mörkum til þess að skáklífið blómstri
áfram. Við ætlum að skipuleggja við-
burði svo ungu skákmennirnir okkar
fái tækifæri til þess að sýna sig og
sanna innanlands og til þess að ís-
lenskir skákáhugamenn fái
skemmtileg og spennandi mót til
þess að fylgjast með,“ segir Hrafn.
Vítamínsprauta í skáklífið
Mikla athygli hefur vakið
óstöðvandi sigurganga
Skákfélagsins Hróksins.
Félagið hét í fyrstu Skák-
félagið Grand Rokk og var
stofnað haustið 1998 af
nokkrum af fastagestum
samnefnds veitingastaðar.
Guðjón Guðmundsson
ræddi við eina vítamín-
sprautuna, Hrafn Jökulsson.
Morgunblaðið/Ásdís
Íslenskt skáklíf hefur verið í nokkurri lægð síðustu árin, að sögn Hrafns Jökulssonar, sem telur ungu kynslóðina ekki enn hafa náð fullum styrk og þroska.
gugu@mbl.is