Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Á GLEÐISTUNDU“ heitir nýút-
kominn geisladiskur með ýmsum
hljómsveitarverkum Atla Heimis
Sveinssonar. Ekki er laust við að titill
plötunnar og útlit skírskoti til ann-
arra hluta en „óróaseggjarins“ og
„kameljónsins óskammfeilna“ eins og
tónskáldið er nefnt í grein Árna
Heimis Ingólfssonar í meðfylgjandi
bæklingi. Platan gæti þess vegna
innihaldið sykursæta ástardúetta úr
poppverksmiðjunni – einhvers konar
„Pottþétt ást“ frá Skífunni. En kam-
eljónið er samt við sig, það er ekki allt
sem sýnist. Og ekki er ólíklegt að hér
sé á ferðinni húmorinn, sem Atli
Heimir á reyndar nóg af.
Efnisskráin sem hér er boðið upp á
sýnir og sannar að kameljónið Atli
Heimir er ekki vitund „óskammfeil-
ið“. Eiginlega ekkert nema prúð-
mennskan. Að vísu ekki sá Atli Heim-
ir sem birtist í Dimmalimm-inter-
mezzóinu eða sönglaginu Kvæðinu
um fuglana (Snert hörpu mína) sem
nú er orðið hálf-opinbert áróðurslag
íslenskrar tungu. En sannarlega ekki
heldur sá Atli Heimir sem heyra
mátti í Sinfóníu nr. 1 (1999), sem
frumflutt var á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í apríllok 1999,
en þann atburð telja sumir einhverja
þá miskunnarlausustu stórkotaárás
sem gerð hefur verið á
eyru og þolinmæði
hlustenda fyrr og síðar.
Það skal viðurkennt
hér og nú að sú hlið á
Atla Heimi sem Kamm-
ersveit Reykjavíkur
kynnir hlustendum nú í
fyrsta sinn í hljóðriti er
hiklaust sú sem undirrit-
uðum hugnast best.
Tónlistin hér sýnir
glögglega frjótt ímynd-
unarafl sem birtist í lit-
ríkri hljómaveröld.
Hlustandinn er hér
gjarnan staddur í hring-
iðu hins óvænta, ekkert
er fyrirsjáanlegt, uppátækjum tón-
skáldsins eru lítil takmörk sett. En
búningurinn er aðgengilegur, engum
er storkað og enginn getur hneyksl-
ast verulega.
Erjur, fyrsta verk plötunnar, er í
raun konsert fyrir selló og strengja-
sveit þar sem strengir einleikshljóð-
færisins eru þandir til hins ýtrasta. Í
upphafskaflanum, sem er hraður og
ákveðinn, eru bókstaflega öll tjáning-
armeðul þessa hljóðfæris reynd. Tón-
vefurinn er jafnan gegnsær og fram-
vindan viðburðarík. Hér kveður við
nútímalegan tón í bland við hefðbund-
in og jafnvel hárómantísk víxlspor í
hljómum. Í blíðlegum og hæglátum
miðkaflanum er slakað á spennunni
og eftir hægan inngang lokakaflans
(Ryskingar) tekur við taktfast niður-
lagið sem er nokkuð í anda fyrsta
kafla. Atli slær hér á létta strengi og
vísar í austur og vestur. Við sögu
koma jöfrar eins og Stravinsky (upp-
haf hraða hlutans) og í lokin fær Bart-
ók smá kveðju (Tónlist fyrir strengi,
slagverk og selestu). Og einnig kveð-
ur hér við óvæntan lopapeysuhljóm
íslenskan (nr. 3, 5’30). Sellókonsert-
inn Erjur er skemmtilegt og auðskilj-
anlegt konsertverk og
án vafa merkasta verk-
ið á þessum diski. Ein-
leikur sellóleikarans
Erlings Blöndals
Bengtssonar er með
ólíkindum glæsilegur
og hljómsveitin og
stjórnandi hennar,
Guðmundur Óli Gunn-
arsson, virðast njóta fé-
lagsskaparins við tón-
verk og einleikara.
Píanókonsertinn
Concerto Serpentinada
er öllu meiri ráðgáta.
Hann er í átta stuttum,
samfelldum köflum, en
heita þeirra er hvorki getið í með-
fylgjandi efnisyfirliti disksins né í
bæklingi. Þannig að merking nafn-
giftarinnar er mér satt að segja ekki
ljós („Höggormskonsertinn“, eða á
Atli kannski við hið forna bassakorn-
ett, „serpent“ í titli verksins? Málm-
blásararnir eru a.m.k. nokkuð áber-
andi). Tónskáldið hefur í verkinu sett
saman nokkuð óvenjulega samsettan
hóp flytjenda en í honum eru, auk ein-
leikspíanósins, strengir, tréblásarar,
málmblásarar, semball, harpa, raf-
magnsgítar, slagverk og blandaður
söngkvartett sem flytur hin ólíkleg-
ustu hljóð sín og tóna án orða. Verkið
er hið viðburðaríkasta, hefst og endar
á látlausum einleikskadensum píanó-
leikarans en á leiðinni er víða komið
við (m.a.s. kveður við „beethovensk-
an“ tón í einleiksröddinni í öðrum
kafla (nr. 5, 0’36) og áhrif frá djassi og
rokktónlist má einnig heyra). Stund-
um virðist píanóröddin hverfa úr ein-
leikshlutverkinu og draga sig inn í
hljómsveitarvefinn en snýr svo ábúð-
armikil aftur og tekur við afgerandi
hlutverki sínu á ný. Konsertinn er
áhugaverður og vinnur á við frekari
hlustun. Einleikarinn Anna Guðný
Guðmundsdóttir berst hetjulega við
fingraflækjur tónskáldsins og ekki
ber á öðru en að það sé gert af ryþm-
ískri nákvæmni og sannfæringu. Í
frekar þunnskipaðri kammersveit
sem verkið er skrifað fyrir ber mikið á
einleiksstrófum hljómsveitarmanna
og vekja þar málmblásararnir sér-
staka athygli fyrir glæsilegan leik. En
leikur Kammersveitarinnar undir
snarpri stjórn Bernharðs Wilkinson-
ar er einnig lofs verður.
Snerpan er sömuleiðis áberandi
einkenni flutningsins á titilverki plöt-
unnar, Á gleðistundu, sem samið var í
tilefni opnunar Borgarleikhússins.
Verkið gefur leiðandi röddum sveit-
arinnar fjölmörg tækifæri til einleiks
og ber þar sérstaklega að geta fram-
lags fiðluleikarans (Rutar Ingólfs-
dóttur?) í hægum hluta verksins.
Bráðskemmtilegt verk, stutt en inni-
haldsríkt.
Í lokaverki plötunnar, Icerapp, fá
félagar hljómsveitarinnar, auk þess
að spila á hljóðfæri sín, það óvænta
hlutverk að gera eitthvað sem á að
líkjast „rappi“ og gera sitt besta við
að fylgja fyrirmælum tónskáldsins til
að það lukkist. Það gerir það bara
ekki. Og það er ekki tónlistarmönn-
unum að kenna. Bæði er það að tón-
málið í Icerapp á ekkert skylt við
rapptónlist og verður því nokkuð hall-
ærislegt og svo þolir svona verk illa
endurtekningu, líkt og brandari sem
heyrist of oft. Icerapp er kannski svo-
lítið fyndið á tónleikum en endurtekin
hlustun á plötu verður þreytandi.
Á heildina litið er hér á ferðinni
eigulegur diskur með tónlist sem
kemur skemmtilega á óvart. Tónlist-
arflutningur allur er með ágætum svo
og hljómsveitarstjórn þeirra Guð-
mundar Óla Gunnarssonar (Erjur) og
Bernharðs Wilkinsonar (Concerto
Serpentinada, Á gleðistundu og Ice-
rapp). En snilldarleikur Erlings Blön-
dals Bengtssonar í glæsilegum selló-
konsert Atla Heimis, Erjum, verður
þó hiklaust að telja það sem upp úr
stendur.
Kameljónið prúða
TÓNLIST
Geislaplötur
Atli Heimir Sveinsson: Erjur, Concerto
serpentinada, Á gleðistundu, Icerapp.
Einleikur: Erling Blöndal Bengtsson
(selló), Anna Guðný Guðmundsdóttir (pí-
anó). Hljómsveitarleikur og raddir:
Kammersveit Reykjavíkur ásamt söng-
kvartett. Hljómsveitarstjórn: Bernharður
Wilkinson og Guðmundur Óli Gunn-
arsson. Upptaka: Tæknirekstrardeild
Ríkisútvarpsins – Páll Sveinn Guðmunds-
son. Heildartími: 64’07. Útgefandi:
Smekkleysa SMK 24.
Á GLEÐISTUNDU
Valdemar Pálsson
Atli Heimir
Sveinsson
BRENDAN Behan gerir góðlát-
legt grín að löndum sínum í Gísl,
leikritinu sem fór eins og eldur í
sinu um heimsbyggðina á sjötta og
sjöunda áratugnum og gerði þessa
írsku fyllibyttu heimsfræga síð-
ustu árin áður en hann drakk sig í
hel. Leikritið gerist á vafasömu
gistihúsi þar sem hjúin Pat og
Meg ráða ríkjum, hún miðaldra
hóra og hann einfættur drykkju-
maður sem segir síbreytilegar sög-
ur af því hvernig hann missti fót-
inn. Leigjendurnir eru mestanpart
vændiskonur af báðum kynjum og
þarna inn rekast fulltrúar IRA
sem hafa tekið breskan hermann í
gíslingu til að mótmæla fyrir-
hugaðri aftöku á IRA-manni í Bel-
fast.
Þessi söfnuður skemmtir sér
næturlangt við söng og drykkju á
meðan hermaðurinn Leslie Will-
iams bíður dauða síns og enginn
virðist hafa minnstu trú á að IRA
muni gera alvöru úr hótun sinni að
lífláta hann í hefndarskyni ef fé-
lagi þeirra verður hengdur.
Alvöruleysi persónanna gagn-
vart þeim skelfilegu aðstæðum
sem við blasa er kjarni verksins;
allir gera grín að öllu, öllu er snúið
upp í söng eða glens, en myndin
sem dregin er upp er af fólki sem
lifir fyrir líðandi stund, enginn veit
sinn næturstað lengur eða hjá
hverjum verður lagst næstu nótt.
Hjörðin á gistihúsi Pat og Meg
verður að táknmynd fyrir hina
ráðvilltu írsku þjóð sem er svo
hjartahlý og gestrisin að jafnvel
erkióvinurinn, breski hermaður-
inn, er orðinn að besta vini þeirra
á augabragði og Teresa, saklausa
þjónustustúlkan, verður umsvifa-
laust ástfangin af honum. Sjálfur
er Leslie munaðarleysingi úr East
End í London sem á ekkert sökótt
við írska þjóð og botnar ekki neitt
í neinu, nema því að breskum
valdamönnum er nákvæmlega
sama hvort hann er lífs eða liðinn.
Að því leyti á hann meiri samleið
með Írum en Bretum er niður-
staða Behans í þessu frábæra leik-
riti.
Leikhópur MÍ gerir úr þessu
hugljúfa sýningu, nokkuð skortir á
að harmurinn sem undir býr í
verkinu komi nægilega skýrt fram,
en leikstjórinn hefur valið þá eðli-
legu leið miðað við forsendur að
leggja áherslu á fjölbreytileika
persónanna og skapa úr þessu líf-
lega sýningu sem veitir þó jafn-
framt innsýn í þann heim sem
skyggnst er inn í.
Leikendur stóðu sig með ágæt-
um og má þar helst nefna Auði
Birnu Guðnadóttur og Ingvar Al-
freðsson í hlutverkum Meg og Pat.
Greipur Gíslason uppskar hlátur
fyrir takta sína sem klæðskipting-
urinn Rio Rita. Þau Þórunn Arna
Kristjánsdóttir og Pétur Markan í
hlutverkum Teresu og Leslie áttu
fallegan samleik og fundu nauð-
synlegan tón einlægni og sakleysis
í túlkun sinni. Söng- og dansatriði
féllu vel að sýningunni og greini-
legt að alúð hafði verið lögð við
þann þátt.
Í nafni frelsis
og friðar
LEIKLIST
Leikfélag Menntaskólans
á Ísafirði
Eftir Brendan Behan í þýðingu Jónasar
Árnasonar. Tónlistarstjórn: Tómas Guðni
Eggertsson. Leikstjóri: Þórhildur Þor-
leifsdóttir. Þriðjudagur 5. mars.
GÍSL
Hávar Sigurjónsson
FJÓRÐA Myndlistarvor Íslands-
banka í Eyjum hóf göngu sína
með opnun einkasýningar Huldu
Hákon, en hún ein af fjórum lista-
mönnum sem sýna á Myndlist-
arvorinu að þessu sinni. „Hulda
hefur getið sér gott orð og nýtur
virðingar fyrir list sína jafnt á Ís-
landi sem erlendis,“ segir í kynn-
ingu. Að venju verða sýningar
Mynlistarvorsins í Vélasalnum við
Græðisbraut. Sýningin er opin í
dag og næstu helgi, frá kl. 15 til
18. Hinir listamennirnir þrír, sem
eru gestir Myndlistarvorsins að
þessu sinni, eru Benno Ægisson,
Lína Rut Wilberg og Bjarni Ólaf-
ur Magnússon.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hulda Hákon sýnir á Myndlistarvori Íslandsbanka í Vestmannaeyjum.
Hulda Hákon sýnir
á Myndlistarvori
Listasafn Reykjavíkur – Kjar-
valsstaðir Hannes Lárusson verð-
ur með leiðsögn um sýningu sína
Hús í hús kl. 15.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Grófarhúsi Guðmundur Ingólfsson
ljósmyndari verður með leiðsögn
um sýningu sína Óðöl og innrétt-
ingar kl. 15.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10
Rússneska kvikmyndin Tími óska
og löngunar verður sýnd kl. 15.
Myndin er frá árinu 1977 eftir
handriti Anatólís Grébnév, en leik-
stjóri var Júlí Raizman. Með aðal-
hlutverk fara Véra Alentova og
Anatólí Papanov.
Myndin segir af Svetlönu, konu á
fertutsaldri, sem lengi hefur þráð
að eignast fjölskyldu. Hún hittir
Vladimír, mann sem er nokkuð við
aldur. Þau fella hugi saman og
ganga í hjónaband. En óskir þeirra
og væntingar falla ekki vel saman.
Myndin er með enskum texta. Að-
gangur er ókeypis.
Listamiðstöðin Straumur Lista-
mennirnir sem starfa í Straumi
hafa Opið hús frá kl. 13–18. Lista-
mennirnir eru Einar Hákonarson,
Hollendingarnir Danny Van Wals-
um og Panda Van Deraaf, Ragn-
hildur Magnúsdóttir, Bandaríkja-
maðurinn Mark Brosseau og
Bryndís Snæbjörnsdóttir.
Þá verða seldar veitingar til
styrktar Kammersveit Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar.
Selfosskirkja
Söngsveit Hafn-
arfjarðar heldur
óperu- og vín-
artónleika kl. 16.
Að tónleikunum
kemur einnig
fjöldinn allur af
einsöngvurum
m.a.: Þorgeir J.
Andrésson, Elín
Ósk Ósk-
arsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir,
Margrét Grétarsdóttir, Hörn
Hrafnsdóttir og Kjartan Ólafsson.
Stjórnandi er Elín Ósk Ósk-
arsdóttir og píanóundirleikari
Hólmfríður Sigurðardóttir.
Í DAG
Þorgeir J.
Andrésson
SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs
heldur sína árlegu vortónleika í
Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, í
dag, sunnudag. Tónleikarnir verða
tvennir að þessu sinni, kl. 14 og kl.
17. Þetta eru ennfremur afmælistón-
leikar hljómsveitarinnar, en um
þessar mundir eru 35 ár liðin frá því
að hljómsveitin hélt sína fyrstu tón-
leika, á 10 ára afmæli Kársnesskóla.
Heiðursgestur á tónleikunum verður
stofnandi sveitarinnar, Björn Guð-
jónsson.
Á tónleikunum koma fram um 120
börn og unglingar í þremur deildum
og leika tónverk af ýmsum toga, m.a.
lagasyrpu úr Porgy and Bess, Car-
avan úr smiðju Duke Ellington, laga-
syrpu eftir Leroy Anderson, ásamt
þjóðlögum og léttri tónlist úr ýmsum
áttum.
Ívar Eiríksson, flautuleikari og
fyrrum kennari við skólahljómsveit-
ina leika með hljómsveitinni á picc-
olo-flautu í hinum kunna marsi eftir
John Philip Sousa, The Stars And
Stripes Forever.
Stjórnandi er Össur Geirsson.
Afmælistón-
leikar skóla-
hljómsveitar
INGVELDUR Ýr, söngkona og
söngkennari, verður með söngnám-
skeið í mars, apríl og maí fyrir byrj-
endur, lengra komna og unglinga og
hefst kennslan á mánudag.
Kennd verður undirstöðutækni í
söng, talrödd, tónheyrn og nótna-
lestri, auk þess sem kennd verða
sönglög af öllu tagi.
Söngnám-
skeið hjá
Ingveldi Ýri
♦ ♦ ♦