Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 35

Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 35 S M Á A U G L Ý S I N G A RI DULSPEKI Huglækningar/ heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 553 8260 milli kl. 18.00 og 19.00. Reikinámskeið: Reikimeistaranám- skeið 10. mars. Reiki 1 og Reiki 2 16. og 17. mars. Eldri nemendur vinsamlegast gefið upp netfang. Bergur Björnsson, Reikimeistari, sími 898 0277, netfang: bergur@simnet.is . TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir, Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Bíbí Ólafsdótt- ir, Erla Alexandersdóttir, Margrét Hafsteinsdóttir og Garðar Björgvinsson micha- el-miðill starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum uppá einkatíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavík- ur starfar í nánum tengslum við Sálarrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofnað 1918, Garðastræti 8, Reykjavík Miðlarnir og huglæknarnir Birg- itta Hreiðarsdóttir, Bjarni Kristjánsson, Erna Jóhanns- dóttir, Guðrún Hjörleifsdótt- ir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Kristín Karlsdóttir, Lára Halla Snæfells, María Sigurðar- dóttir, Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenzson og Þórunn Maggý Guðmundsdóttir starfa hjá félaginu og bjóða upp á einkatíma. Einnig starfar Amy Engilberts dulspekingur hjá félaginu og býður upp á einkatíma. Friðbjörg Óskarsdóttir heldur utan um mannræktar-, þróunar- og bænahringi. Oddbjörg Sigfúsdóttir (Laila) frá Fellabæ, verður við störf hjá félaginu í mars. Laufey Héðinsdóttir spámiðill hefur líka hafið störf hjá félag- inu. Eftirfarandi þrjú námskeið eru reglulega haldin hjá félaginu: Tilfinningaleg mótun, or- kuuppbygging mannsins og myndræn hugleiðsla. Upplýsingar og bókanir eru í s. 551 8130 alla virka daga frá kl. 9.00—15.00. Einnig er hægt að senda fax, 561 8130, eða tölvupóst, srfi@isholf.is . SRFÍ. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 3  1823118   GIMLI 6002031119 I  HEKLA 6002031119 IV/V I.O.O.F. 10  1823118  Kk. I.O.O.F. 19  1823118  Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Í kvöld kl. 20.00 Hjálpræðissam- koma í umsjón Fanneyjar Sigurð- ardóttur og Guðmundar Guð- jónssonar. Allir hjartanlega velkomnir. Mánudagur 11. mars kl. 15.00 Heimilasamband. Majór Elsabet Daníelsdóttir talar. Mánudaginn 11. mars 2002. Marítasamkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20.00. Lofgjörð og hópastarf. Hugvekja: Sigríður Helga Ágústsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is . kristið samfélag, Álfabakka 14a, 2. hæð. Samkoma í dag kl. 14.00. Vilt þú fræðast um hvernig þú sjálf/ur getur tengst Jesú Kristi? Vilt þú styrkja þína kristnu trú? Ert þú að leita að andlegu heim- ili? Þá getur Náð verið það kristna samfélag sem þú hefur alltaf þurft á að halda. Allir hjart- anlega velkomnir. Nánari upp- lýsingar á www.nks.is . Morgunguðsþjónusta kl. 11.00 Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Samkoma kl. 20.00. Frú Jane Hansen, alþjóðaforseti Aglow- hreyfingarinnar, predikar. Einstakt tækifæri að hlusta á þennan eftirsótta predikara. Allir hjartanlega velkomnir. www.kristur.is Almenn samkoma kl. 16.30. Vitnisburðir frá Alfa-helgi. Allir hjartanlega velkomnir. Þri: Alfa-námskeið 1 og 2 kl. 19.00. Mið: Súpa og brauð kl. 18.00. Jón Þór Eyjólfsson kennir. Fös: Unglingasamkoma kl. 20.30. Lau: Bænastund kl. 20.00. Bænastundir alla virka morgna kl. 6.00. www.gospel.is Sunnud. Samkoma kl. 16.30. Við bjóðum blesssaðar konur velkomnar af kvennamóti. Þriðjud. Samkoma kl. 20.30. Miðvikud. Bænastund kl. 20.30. Fimmtud. Unglingarnir kl. 20.00. Föstud. Samkoma í Fjölbrauta- skóla Suðurlands á Selfossi kl. 20.30. Laugard. Samkoma með Curtis Silcox og Sloan-hjónunum kl. 20.30. Kristniboðsvikan 2002 „Hressing fyrir alla“ Samkoma í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í dag kl. 17:00. Jón Þór og félagar taka lagið, viðtal, myndbandsbútur og Bjarni Gíslason talar. Barnasamkoma f. 6 ára og eldri og gæsla fyrir yngri. Matur seldur á vægu verði eftir samkomuna. Kvikmynda- vaka um kvöldið kl. 20:00 í umsjá Gunnars J. Gunnarssonar. Samkomurnar halda áfram þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, 3. h., norð- urenda, með dagskrá er hefst 20:15. Fylgist með á www.sik.is Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomurnar! Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Fjölskyldusamkoma kl. 11, skipt í deildir eftir aldri, léttur há- degisverður að samkomu lok- inni, allir hjartanlega velkomnir. Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.00, Högni Valsson predikar, lofgjörð, fyrir- bænir og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir. Nýjar vörur í bókaversluninni, bæði geisladiskar og bækur. Opið eftir samkomu og alla virka daga frá kl. 13.00 til 16.00. „Mikill er Drottinn og mjög veg- samlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur“. Hann Kiddi okkar er farinn og við eigum eftir að sakna hans af- skaplega mikið. Við minnumst hans sem bekkjarfélaga, vinar og yndislegs drengs sem gat alltaf glatt hjarta okkar. Á síðustu árum hitt- umst við alltof sjaldan en þegar við gömlu vinirnir komum saman var alveg eins og við hefðum hist í gær. En nú hefur myndast stórt skarð í vinahópinn og verður hann aldrei samur. Kiddi bjó yfir ótrúlegri út- geislun og þegar hann mætti á svæðið náði hann alltaf upp frá- bærri stemningu með góða skapinu, gítarspili, munnhörpuleik og söng. Á síðustu endurfundum árgangs okkar í Mosó, í september síðast- liðnum, var Kiddi hrókur alls fagn- aðar og gerði kvöldið ógleymanlegt í minningunni. Við sendum fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Elsku Kiddi, takk fyrir allt. Þínar vinkonur; Helena, Hrafnhildur, Íris, Ingibjörg, Ásdís, Svala og Kristín. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður, og heldur ósjálfbjarga, því er ver, ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Orð Vilhjálms Vilhjálmssonar lýsa best líðan minni eftir fréttir af láti þínu, kæri vinur, skólafélagi og KRISTJÁN SIGVALDASON ✝ Kristján Sig-valdason fæddist í Reykjavík 6. desem- ber 1976. Hann lést 23. febrúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 5. mars. söngfélagi, Kristján Sigvaldason. Ég kynntist þér og þínu ljúfa viðmóti og atorkusemi í Mennta- skólanum við Sund þar sem við báðir vorum virkir þátttakendur í félagslífi skólans og fjölbreyttir hæfileikar þínir komu þar fljótt í ljós. Aldrei vafðist fyr- ir þér að smíða, sauma og mála til að skapa ótalmörg listaverk og leikmyndir við ýmis tækifæri. Skólakórinn naut krafta þinna og í ferðalögum og partíum voru gítarinn og munn- harpan ávallt með í för og þá var gaman og mikið sungið. Alltaf til í að gera allt, redda öllu, ávallt með bros á vör og húmorinn skammt undan. Ég varð þess heiðurs að- njótandi að fá að syngja og skemmta með þér við hin ýmsu tækifæri. Alveg sama hvort var í af- mælum jafnaldra, brúðkaupum, skírnum eða saumaklúbbum hjá kvenfélögum eldri borgara, alltaf náðirðu upp rífandi stemmningu með einlægninni og ljúfu tenór- röddinni sem sárt er saknað á jörðu niðri en englakórar himna munu njóta góðs af. Eftir menntaskóla- árin héldum við ekki miklu sam- bandi en ef við hittumst spjölluðum við mikið og vel saman og alltaf varstu jafnléttur og lífsglaður. Ég fékk þig til að spila undir við skírn sonar míns fyrir um 3 árum og auð- vitað varstu til taks án minnstu for- talna. Það var í síðasta sinn sem ég heyrði þig syngja, kæri vinur. Síð- astliðið sumar hittumst við svo fyrir tilviljun í sjoppu á Selfossi og þú sagðir mér með bros á vör að þú værir fluttur upp í Kjós, værir að smíða á fullu, gera upp hús og allt gengi vel og ég man að ég hugsaði hvað það væri sjaldgæft að sjá mann á þessum aldri sem virtist vita nákvæmlega hvað það var sem veitti honum ánægju. Þá skiptumst við á símanúmerum, svona ef ske kynni að við gætum spilað saman á ný. Núna í janúarlok á endurfund- um menntaskólans ræddum við um hvað þessar fyrri skemmtanir hefðu veitt okkur báðum mikla gleði og ánægju og við þyrftum að endur- taka leikinn hið fyrsta. En ekkert varð af því, alltaf er maður að fresta hlutum að óþörfu. Aldrei fæ ég notið þess að skemmta með þér aftur, hlýða á gítarinn og munn- hörpuna sem nú hafa þagnað, í þessu jarðlífi að minnsta kosti. Kæru Helga, Helgi og fjölskylda, ykkur votta ég mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Hvíl þú í friði, kæri vinur, megi guð geyma þig og minning þín ylja alla tíð. Kári Marís Guðmundsson. Sorgmæddar, slegnar og dofnar eru orð sem best lýsa huga okkar núna. Við erum þakklátar fyrir þann tíma sem við fengum að eiga með þér. Takk fyrir að hafa glatt okkur með gítarspili og söng. Takk fyrir að hafa kætt okkur með hlýrri nærveru þinni. Takk fyrir að hafa skemmt okkur með kímni þinni. Takk fyrir að hafa verið til. Dauða þinn munum við harma um leið og við brosum yfir minningum um þig. Við sendum Helgu og Helga litla, foreldrum þínum, systkinum og að- standendum styrk í sorginni. Guðrún Sesselja Sigurðardóttir, Íris Ösp Bergþórsdóttir, Karólína Stefánsdóttir. Mig langar í örfáum orðum að minnast hans Kidda. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar ég var starfsmaður í skólagörðum Mos- fellsbæjar og Kiddi kom þangað til þess að rækta grænmeti og hann ætlaði að gera það vel. Hjá Kidda dugðu engin vettlingatök og var hann á örskömmum tíma búinn að koma sér upp hinum myndarleg- asta garði. Hann gróf alls kyns stíga og göng í kringum plönturnar sínar, setti þær á eins konar stall og hlúði síðan vel að þeim allt sum- arið og uppskar vel í lokin, garð- urinn hans bar af. Þessi fyrstu kynni mín af Kidda voru lýsandi fyrir þennan indæla dreng. Hann var iðinn, áhugasam- ur, duglegur og eins og við vitum sem þekktum hann var hann hvers manns hugljúfi, góður og nærgæt- inn. Seinna átti ég eftir að fylgjast með Kidda á unglingsárum í fé- lagsmiðstöðinni Bóli þar sem ég var forstöðumaður og hann tíður gest- ur. Kiddi var oftar en ekki drif- krafturinn í hópnum og ekki þurfti að biðja hann tvisvar um að taka að sér verkefni því hann var yfirleitt búinn að ljúka því áður en hann var beðinn. Það var í raun ekkert sem Kiddi tók ekki þátt í með gleði og jákvæðu hugarfari en þó átti tón- listin mest upp á pallborðið hjá honum. Það var oftar en ekki sem við starfsmennirnir í félagsmiðstöð- inni fengum Kidda í heimsókn heim til okkar þar sem hann fékk lánaðar plötur. Það sem var svo sérstakt við Kidda var að hann var ekkert endi- lega að hlusta á tónlist þess dags heldur pældi hann í öllu og vissi ótrúlega mikið um alla tónlist frá öllum tímum. Öll árin sín í Gagn- fræðaskóla Mosfellsbæjar tók Kiddi þátt í spurningakeppni félagsmið- stöðvarinnar og leiddi lið síns bekkjar til sigurs. Það var ótrúlegt hvað þessi ungi drengur vissi mikið um hluti sem jafningjar hans höfðu ekki hugsað um og hve hann var áræðinn og ákveðinn að sýna hvað í honum bjó. Orð eru fátækleg á svona stundu en fallegar minningar geymast í hjarta okkar, þær verða ekki tekn- ar frá okkur. Ég votta öllum að- standendum Kristjáns Sigvaldason- ar mína dýpstu samúð. Helga Rós V. Hannam. Æskuvinur og sam- starfsmaður til margra ára er fallinn frá. Það er farið að fækka í vina- hópnum sem lék sér á svæðinu frá Landakoti og vestur í Selsvör. Það er ánægjulegt að geta sagt að ég átti þennan elskulega mann að vini alla ævi og starfaði með honum að málefnum sjómanna- dagsins og uppbyggingu Hrafnistu- heimilanna og Sjómannadagsráðs og GARÐAR ÞORSTEINSSON ✝ Garðar Þor-steinsson fæddist í Reykjavík 26. jan- úar 1935. Hann lést 20. febrúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Dómkirkj- unni 27. febrúar. fyrirtækja þeirra með eldhugunum Pétri Sig- urðssyni og Guðmundi Oddssyni. Það var líka gaman að geta orðið okk- ar ágætu konum í kven- félaginu Hrönn að liði þegar þær tóku til hendi og söfnuðu fyrir jóla- pökkum til sjómanna sem voru fjarri heimilum og fjölskyldum á jólunum. Hann Garðar fór ekki með göslagangi og látum í gegnum lífið heldur með hugprýði og gætni. Sökum veikinda gat ég ekki fylgt þér síðasta spölinn, kæri vinur. Elsku Christel, við Olla send- um þér og öllum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Grétar Hjartarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.