Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 43
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheim-
ilis mánudag kl. 13. TTT-klúbburinn kl.
17. Lifandi og fjöbreytt starf fyrir börn úr
4.–6. bekk í umsjón Andra, Gunnfríðar,
Guðrúnar Þóru og Jóhönnu. Öll börn vel-
komin og alltaf hægt að bætast í hóp-
inn.
Laugarneskirkja. 12 sporin – andlegt
ferðalag kl. 20. 12 spora hópar koma
saman mánudag kl. 20 í kirkjunni. Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn er við
stjórnvölinn.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14.
Öll börn í 1. bekk velkomin. TTT-starf
(10–12 ára) mánudag kl. 16.30. Öll
börn í 4. og 5. bekk velkomin. Litli kór-
inn, kór eldri borgara, þriðjudag kl.
16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir
félagar velkomnir. Foreldramorgunn
miðvikudaga kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir.
Árbæjarkirkja. Sunnudagur: Æskulýðs-
fundur kl. 20. Mánudagur: TTT-klúbbur-
inn frá kl. 17–18.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Fjöl-
skyldumorgnar (mömmumorgnar) mánu-
dag í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 10–
12. Heitt á könnunni og eitthvað hollt og
gott fyrir börnin. Starf fyrir 11–12 ára
stúlkur kl. 17–18. Starf fyrir 9–10 ára
drengi kl. 17–18. Unglingastarf á mánu-
dagskvöldum kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna-
hópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum
alla virka daga frá kl. 9–17 í síma
587 9070.
Mánudagur: KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára
kl. 17.30–18.30. KFUM yngri deild í
Borgaskóla kl. 17–18. Kirkjukrakkar fyr-
ir 7–9 ára í Korpuskóla kl. 17.30–
18.30. TTT (10–12 ára) kl. 18.30–
19.30 í Korpuskóla.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðs-
félag fyrir unglinga 13–15 ára kl. 20.
Þriðjudagur: Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í
Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón Sig-
urjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur
fyrir stelpur á aldrinum 9–12 ára kl.
17.15 í kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni.
Allar stelpur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9–12 ára drengi í Kirkjuhvoli á
mánudögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld
kl. 20–22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon
fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl.
13.15–14.30. TTT-fundir í safnaðar-
heimili kl. 16–17. Fundir í æskulýðs-
félaginu Sánd kl. 17–18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu-
dag, kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K-starf
kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl.
17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánu-
dagur: Kl. 16.45 æskulýðsstarf fatl-
aðra, yngri deild.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng.
Vitnisburðir frá fólki sem er að koma frá
Alfa helgi. Niðurdýfingarskírn. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnudag-
ur: Samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Sigrún Einarsdóttir. Bænastund fyrir
samkomu kl. 16. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir börn frá eins árs
aldri. Miðvikud.: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og orð
guðs rætt. Allir velkomnir.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11.
Léttur hádegisverður og samfélag að
samkomu lokinni. Bænastund kl.
19.30. Samkoma kl. 20. Högni Valsson
prédikar. Lofgjörð, fyrirbænir og sam-
félag. Allir hjartanlega velkomnir. Bóka-
verslun verður opin eftir samkomu, ný
sending af bókum og geisladiskum.
Kristskirkja í Landakoti. Næsti fundur í
biblíulestri sr. Halldórs Gröndal er mánu-
daginn 11. mars og hefst kl. 20 í safn-
aðarheimilinu í Landakoti. Allir sem hafa
áhuga eru hjartanlega velkomnir.
Akureyrarkirkja. Fundur í Æskulýðs-
félaginu kl. 17. Mánudagur: Sjálfshjálp-
arhópur foreldra kl. 20.30 í safnaðar-
heimili.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 43
OPIÐ 9-18
Glæsilegt og vandað ein-
býlishús staðsett sunnan
megin í Grafarholtinu með
útsýni yfir golfvöllinn og
stóran hluta Reykjavíkur.
Húsið, sem er rúmlega
fokhelt, er samkvæmt
teikningu stofa, borðstofa
og 6 herbergi ásamt inn-
byggðum bílskúr, samtals
um 240 fm. Möguleiki er að hafa 2 íbúðir í húsinu. Teikningar á
staðnum eða á skrifstofu. Ásett verð 24,0 millj.
ÓLAFSGEISLI 105
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-17
!
! #$%#&'
#(%
#& &
%% )* + #,-#. #/
0 1 #
! !!!
HRAUNTUNGA 71 - KÓPAVOGI
TVEGGJA ÍBÚÐA HÚS
Um er að ræða fallegt 214 fm
raðhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr og auka-
íbúð á jarðhæð. Fallegar inn-
réttingar. Fallegt útsýni. Stór
verönd í suður. Góður staður.
Húsið getur losnað fljótlega.
Verð 21,5 millj.
Gjörið svo og lítið inn.
Magnús og Katrín taka vel á
móti ykkur.
Opið hús í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17
GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26,
FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
Um er að ræða glæsileg og vel staðsett raðhús á einni hæð á þessum skemmtilega
stað í Grafarholtinu. Húsin eru 120 fm, auk 30 fm bílskúrs, að grunnfleti. Þrjú rúm-
góð svefnherbergi, stór og björt stofa með útgangi í suðurgarð, upptekin loft í öllum
rýmum, möguleiki á að setja upp milliloft. Húsin verða seld rúmlega fokheld, þ.e.
fullbúin að utan sléttmúruð og einangruð, lóð grófjöfnuð, lagnir að ofnum komnar,
útveggir tilb. til sandspörtlunar, gólf vélslípuð. Húsunum verður skilað með malbik-
uðum botnlanga og fyrir framan bílskúra. Frábær staðsetning og suðurgarður. Verð
aðeins 13,9 millj. Möguleiki á að fá húsin lengra komin. Sölumenn okkar verða á
staðnum með teikningar og veita allar nánari upplýsingar á milli kl. 14 og 16.
MARÍUBAUGUR 35 OG 37
AÐEINS ÞESSI TVÖ HÚS EFTIR
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
Skúlagötu 17 - Sími 595 9000
- Fax 595 9001 - holl@holl.is
VIKUNA 10.–17. mars n.k. verður
hin árlega kristniboðsvika Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga
haldin í Reykjavík. Ekki verður
brugðið út af venju með að gera
þessa viku ógleymanlega fyrir þá
sem taka þátt í henni.
Samkomur verða haldnar flest
kvöld vikunnar, þar sem boðið
verður upp á vandaða dagskrá.
Myndir verða sýndar frá kristni-
boðsstarfinu, frásagnir sagðar,
fjölbreyttur söngur og margt
fleira. Von er á eþíópskum gesti,
Estiphanos Berisha, sem mun taka
þátt í samkomunum. Hann er
ávöxtur kristniboðsstarfsins í
Konsó og stundar nú framhalds-
nám í guðfræði í Björgvin í Noregi.
Upphafssamkoma vikunnar
verður á sunnudag, 10. mars, kl. 17
í húsi KFUM og KFUK við Holta-
veg. Þar verður viðtal við Kenýu-
fara, sýnt stutt myndband, Jón Þór
Sigurvinsson syngur ásamt hljóm-
sveit og Bjarni Gíslason flytur hug-
leiðingu. Bjarni er ásamt fjöl-
skyldu sinni á leið til kristni-
boðsstarfa í Suður-Eþíópíu í
sumar. Um kvöldið kl. 20 verður
sérstök kvikmyndavaka þar sem
Gunnar J. Gunnarsson mun fjalla
um kínversku myndina Not One
Less eftir Zhang Yimou. Myndin
felur í sér vísun til einnar af dæmi-
sögum Jesú og gefur innsýn í lífið í
afskekktum héruðum Kína. Síðan
verða samkomur þriðjudag, mið-
vikudag og fimmtudag í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut 58–60,
norðurenda, og í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg frá föstudegi
til sunnudags.
Allir eru hjartanlega velkomnir
á samkomur vikunnar.
Laugarneskirkja –
aðalsafnaðarfundur
Í SAFNAÐARSTARFI Laugar-
nessafnaðar blása ferskir vindar
heilags anda á margvíslegan hátt.
Samstaða, eftirvænting, kraftur,
mildi, fjölbreytni og gleði samfara
festu, ábyrgð og helgri alvöru hafa
einkennt annars ólíka starfsþætti
sem hafa verið afar vel sóttir. Þar
hafa ólíkir einstaklingar með
margbreytilegar þarfir fundið sig
og einstaklingar og hópar komið
saman til tilbeiðslu, starfa og þjón-
ustu. Kirkjan hefur því reynst
ómetanlegur farvegur kærleika og
mannræktar þar sem lífsandinn, öll
sú næring sem til þarf, er dreginn
af uppsprettunni sjálfri, lífgjaf-
anum Jesú Kristi.
Hin árlega uppskeruhátíð og sí-
vinsæli aðalsafnaðarfundur Laug-
arnessóknar verður haldinn sunnu-
daginn 17. mars 2002 að lokinni
morgunguðsþjónustu eða um kl.
12.30.
Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa munu fulltrúar hinna
ólíku greina safnaðartrésins gera
stutta grein fyrir veru sinni á
trénu á lifandi og uppbyggilegan
hátt.
Laugarnesbúar og allir aðrir
áhugasamir um safnaðarstarfið í
Laugarneskirkju eru velkomnir á
lifandi og skemmtilegan fund.
Munið á sunnudaginn kemur 17.
mars 2002, eftir eina viku.
F.h. sóknarnefndar
Laugarneskirkju,
Sigurbjörn Þorkelsson,
framkvæmdastjóri.
Tónlistarmessa
í Breiðholtskirkju
Í MESSU í Breiðholtskirkju í
Mjódd í dag,. sunnudag, kl. 14 mun
kór Breiðholtskirkju, ásamt hljóm-
sveit og einsöngvurum, flytja kant-
ötuna Jesu meine Freude, eftir
Buxtehude. Einnig verða flutt verk
eftir Mozart, Hugo Distler og
fleiri. Einsöngvarar með kórnum
eru Benedikt Ingólfsson, bassi,
Gyða Björgvinsdóttir, sópran, og
Þórunn Elín Pétursdóttir, sópran.
Prestur verður sr. Kjartan Jóns-
son framkvæmdastjóri KFUM og
KFUK.
Tónlistarflutningurinn er liður í
hátíðahöldum vegna 30 ára afmæl-
is kórsins, en kór Breiðholtskirkju
var stofnaður í september, árið
1972.
Eftir messuna verður kaffisala í
safnaðarheimilinu á vegum kórsins
og er það liður í fjáröflun vegna ut-
anlandsferðar í sumar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Hús KFUM og KFUK, Kristniboðssambandsins og Kristilegrar skólahreyfingar við Holtaveg.
Kristniboðsvika
að hefjast í
Reykjavík