Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 44

Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 44
FRÉTTIR 44 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 OPIÐ HÚS - Einbýli - Gígjulundur 2 - GARÐABÆ - 63 fm bílskúr 3ja fasa rafm. Í dag, sunnudag, kl. 14 til 17 sýna Frida og Þorsteinn fallegt 140 fm einbýlishús við Gígjulund 2, á besta stað í Garðabæ, ásamt 63 fm fullbúnum björtum bílskúr með 3ja fasa rafmagni. Þrjú svefnherbergi, auðvelt að bæta við svefnherb. í bílskúrn- um. Parket og flísar á gólfum. Stór verönd. Gott útsýni. V. 22,8 m. 3190 sp hönnunhúseiningar  Íslensk hús fyrir íslenskt veður og íslenskar þarfir.  Áratuga góð reynsla á fimmta hundrað húsa.  Hraður byggingarkostur. sphönnun húseiningar, Dalvegi 16b, 200 Kópavogi, sími 564 6161, netfang: spdesign@mmedia.is hönnum hús að þínum þörfum ÁSA er um 70 fm m. þremur svefnherbergjum auk 12 fm einangraðs gestahúss/útigeymslu og um 100 fm verandar m. skjólveggjum, sem tengir húsin tvö skemmtilega saman. Hægt er að velja um liggjandi bjálkaklæðningu og standandi bandsagaða vatns- klæðningu. Húsin eru með fullri íbúðarhúsaeinangrun, 150 mm steinull og annar frágangur í samræmi við ströngustu kröfur um íbúðarhús. Húsin eru fáanleg á ýmsum byggingarstigum. Sveitasetrið ÁSA Skrifstofan er opin í dag frá kl. 12-14 Skrifstofan opin í dag frá kl 12 -14 BOÐAGRANDI - BÍLSK. Mjög góð 3ja herb. endaíb. á 8. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni og stæði í bílskýli. Tvö svefnherb. Húsvörður. Gervihnattasjónvarp. Verð 11,9 millj. Frábært útsýni. Suðursvair. 1939 LAUGALÆKUR – RVÍK. Mikið endurnýjað raðhús sem er kjallari og tvær hæðir, ásamt sérbyggðum bílskúr. Stærð 200 fm. bílskúr 27,0 fm. Tvennar svalir og suður lóð. ATH. Mögulegt að hafa tvær íbúðiir í húsinu. Verð 21,9 millj. 1953 BREKKUBÆR – BÍLSKÚR. Gott og vel skipulagt Endaraðhús á tveimur hæðum ásamt sérb. bílskúr. 4 svefnherb. Tvær stofur, ar- inn. Parket og flísar. Stærð 170 + 23 f, bílskúr. Falleg lóð. 1867 ÁSBÚÐ - GBÆ. Mjög gott einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöf. innb. bílskúr. 5 svefnherbergi, gott vinnurými, sjónvarpshol, góð stofa. Falleg lóð. Stærð 246 fm. Hús í góðu ástandi með fal- legu útsýni. Frábær staðsetning. Áhv. 5,3 millj. Verð 23,5 millj. 1805 STRÝTUSEL. Gott 219 fm einbýlishús að hluta til á tveimur hæð- um og innb. bílskúr og stendur í lokaðri rólegri götu. 4 stofur. 5 herbergi. Mikil lofthæð með greniklæðningu. Góð sólstofa. Parket, flísar og dúkar. Falleg lóð. 1916 VESTURTÚN – ÁLFTANES. Gott og vel staðsett einbýlishús ásamt sérb. bílskúr. 2 svefnherbergi, 2 stofur. Stórt eldhús. Eik- arparket á gólfum. Áhv. 8,2 millj. Verð 16,9 millj. 1777 GILJASEL - 2ÍB. – BÍLSKÚR. Vel staðsett og gott einbýlishús á mjög góðum útssýnisstað og stendur innst í botnlanga. Hægt að innrétta aukaíb. með sérinngang. 5 svefnherb. 3 stofur. Góðar inn- réttingar. Þeta er eign sem hentar fyrir 2-3 fjölskyldur. Allar nánari uppl.á skrifst. ATH. Skipti á ód. eign. 1661 HVAMMSGERÐI – 3ÍB. Vel staðfest einbýlishús/tvíbýli sem er hæð og ris ásamt stórum bílskúr sem er innrétaður sem íbúð. Húsið er vel staðsett en þarfnast standsetningar. Verð 17,3 millj. 1943 Fjöldi annara eigna á söluskrá, hafið samband við sölumenn í síma 533-4040 Einstaklega vel skipulögð og snyrtileg 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli. Íbúðinni fylgir stæði í góðri bílageymslu. Íbúðin hefur bæði sérinngang, sérþvottahús og sérsuðurgarð út af stofu. Allt umhverfi er fullfrágengið og einstaklega snyrtilegt. Í sameign er hjólageymsla og sér- geymsla í kjallara. Verð 12,9 millj. Áhv. 5,5 millj. Laus 1. maí nk. Ólöf og Hjörtur taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14:00 og 16:00. LÆKJASMÁRI 60 - OPIÐ HÚS UM það bil 15 manns hafa að jafnaði komið í „háls og herða-leikfimi“ sem Aðalheiður Helgadóttir kennir í fé- lagsheimilinu Lindartungu tvisvar í viku. Aðalheiður, sem er íþrótta- kennari að mennt og starfar við Laugargerðisskóla, hefur undan- farið ár barist við krabbamein. Í desember sl. fór hún á NFLÍ í Hveragerði og eftir áramót kom í ljós að heilsa hennar var orðin miklu betri en hún hafði þorað að vona. „Ég fékk að vita að ég væri orðin frísk eftir að lyfjagjöfinni lauk og það fyrsta sem mér datt í hug var hvort ég ætti ekki að miðla til sveit- unga minna það sem mér var kennt í Hveragerði,“ sagði Aðalheiður. Hún fékk lánaða aðstöðuna í Lindar- tungu og sendi síðan út dreifibréf og bauð fólki að koma í leikfimi frítt. „Við tökum háls- og herðar og létta leikfimi í tuttugu mínútur, slökum á í aðrar tuttugu, og stundum teygist þetta í klukkustund.“ Þátttakendur eru aðallega eldra fólk sem kann vel að meta óeigingjarnt framtak Að- alheiðar. Morgunblaðið/Guðrún Vala Leikfimi í Lindartungu Kolbeinsstaðahreppur NÝLEGA var Eyrún Ýr Tryggva- dóttir ráðin forstöðumaður Bóka- safns Suður-Þingeyinga á Húsavík. Fræðslunefnd valdi hana úr hópi tíu umsækjenda og tekur Eyrún Ýr formlega til starfa 1. mars nk. en þá lætur Að- algeir Sigurðsson sem gegnt hefur starfinu undan- farin ár af störf- um. Hún hefur verið að kynna sér starfið und- anfarna daga undir handleiðslu Aðalgeirs og samstarfsmanna hans á safninu. Eyrún Ýr er tuttugu og þriggja ára Húsvíkingur og lauk iðnrekstr- arfræðinámi frá Háskólanum á Ak- ureyri sl. vor, hún stundaði einnig nám í bókasafns- og upplýsinga- fræðum í einn vetur við Háskóla Ís- lands. Hún sagði starfið leggjast vel í sig enda hefði hún ekki sótt um það ef svo væri ekki. „Mig skortir reyndar alveg reynsluna í þetta starf, en ég tel að menntun mín komi að góðum notum í þessu starfi í framtíðinni,“ sagði Eyrún Ýr að lokum. Nýr for- stöðumað- ur Bóka- safnsins Húsavík Eyrún Ýr Tryggvadóttir NÁTTÚRUSTOFA Vesturlands tók til starfa í Stykkishólmi síðasta sumar. Starfsemi þar er hafin af fullum krafti og farin að hafa áhrif á samfélagið. Um daginn bauð starfs- fólk Náttúrustofunnar nemendum í 1. bekk Grunnskólans í Stykkis- hólmi í heimsókn. Þar tóku Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumaður, og Menja von Schmalensee, líffræð- ingur, á móti krökkunum og kynntu þeim starfsemi stofunnar. Þar fengu þau að skoða sýnishorn af dýralífi hafsbotnsins fyrir utan Stykkis- hólm. Þar mátti ýmislegt sjá, eins og krossfiska, krabba, ígulker, sæ- snigla, fiska, hörpudiska og bursta- orma. Það kom unga fólkinu á óvart hvað lífríkið fyrir utan höfnina er fjölskrúðugt, ekki bara hörpudiskur og marhnútur eins og krakkarnir áttu von á. Fékk lifandi sýnishorn frá skelbáti daginn áður Náttúrustofan fékk þessi lifandi sýnishorn frá skelbáti daginn áður, en þau voru veidd með skelplóg. Að sögn Róberts Arnars er þetta fyrsta skref Náttúrustofunnar til að kynna starfsemi sína og glæða um leið áhuga nemenda á Snæfellsnesi á líf- ríki og náttúrunni í næsta nágrenni. Gestirnir fóru fróðari heim og verð- ur framhald á slíkum heimsóknum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Fyrsti bekkur Grunnskólans í Stykkishólmi var boðið að skoða Nátt- úrustofu Vesturlands. Á myndinni er Róbert Arnar að sýna nemendum lifandi sjávardýr sem eru næstu nágrannar rétt fyrir utan höfnina. Nemendur í heimsókn hjá Náttúrustofu Vesturlands Margt skrýtið býr í sjónum Stykkishólmur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.