Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 52

Morgunblaðið - 10.03.2002, Side 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Óheillafrumvörp og tímaskekkja ÞAÐ er ekki nema eðlilegt og raunar sjálfsagt að við hinir almennu kjósendur viljum fylgjast með gangi þjóðmálanna og því sem fer fram í sölum hins háa Al- þingis okkar Íslendinga. Þar eru umbjóðendur okkar kjósenda að fjalla um og bera fram frumvörp er snerta alla þegna þjóð- félagsins og væntanlega okkur öllum til heilla og hagsbóta? Og áreiðanlega er þar margt gott lagt til málanna og mörg heilla- vænleg frumvörp lögð fram og samþykktir sem fela í sér bætt lífskjör hins al- menna borgara. En hafa þá stjórnvöld og sitjandi þingmenn gengið til góðs götuna fram eftir veg? Því miður er raunin ekki sú á sumum sviðum og tvö frumvörp til laga hafa kom- ið fram sem nefna mætti óheillafrumvörp. Annað um að leyfa aftur iðkun hnefa- leika og hitt að leyfa sölu á áfengum drykkjum í mat- vöruverslunum. Bæði eru þau óþurftarfrumvörp og algjör tímaskekkja á tímum vaxandi ofbeldisverka og tíðra slysa sem hafa fylgt aukinni áfengisneyslu, ekki síst unglinga. Vitað mál er að í kjölfar hennar fylgir fíkni- og vímuefnanotkun sem er þegar ærin fyrir, jafnvel foreldrar hafa ánetjast þeirri notkun. Eru þeir ágætu þing- menn okkar öllum heillum horfnir? Er það ekki að bregðast því heiti um ábyrgð og skyldu sem þeir hafa á sínum tíma gengist undir sem eiðsvarnir þing- menn og fulltrúar okkar kjósenda? Kannski sækir að þeim lúi að leggja fram og flytja bráðnauðsynleg og heillavænleg frumvörp sem varða aldraða, öryrkja, láglaunafólk og aðra þjóð- félagshópa sem oft vilja gleymast í svokölluðu góð- æri. Með vísan til alls þessa og þess sem áður hefur komið fram hér að framan kemur í huga minn vísu- korn sem ég lærði í æsku og gæti átt við þjóðarskút- una og áhöfn hennar. Hvort þetta ástand á Al- þingi verður viðvarandi eða muni breytast til barnaðar gæti verið á valdi hins al- menna kjósanda þegar komið er að kjörborðinu í næstu kosningum. Lífs er orðinn lekur Knör líka ræðin fúin hásetanna flúið fjör og formaðurinn lúinn. Kjósandi. Fyrirspurn ÉG á dóttur í Norður-Am- eríku sem ég þurfti að senda pakka til fyrir nokkr- um dögum. Sendi ég henni pakka sem var 1 kg og 300 g og borgaði fyrir það 1.900 kr. sem er verð fyrir 2 kg. Vakti það undrun mína að ég þurfti að borga fyrir 2 kg. Skilst mér að ef þyngd- in fari yfir 1 kg, þó ekki sé nema nokkur grömm, þá þurfi að borga fyrir 2 kg. Þegar ég spurðist fyrir um þetta fékk ég svarið: Þetta er bara svona. Því vil ég spyrja: Er þetta ekki mál fyrir neyt- endasamtökin? Amalía Jóna. Tapað/fundið Gullhringur týndist GULLHRINGUR með demantsspæni týndist lík- lega hjá GP-húsgögnum, Miru, TM-húsgögnum eða Húsagagnahöllinni. Skilvís finnandi hafi samband í síma 557 5874. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... EITT af því sem gert er til aðsporna við reykingum hér á landi er að banna verslunum að vera með tóbakið sjáanlegt, það þarf að vera lokað inni og alls ekki fyrir augum viðskiptavina. Ágætt mál, en kunningi Víkverja lenti í því á dög- unum að ætla að kaupa sér pakka af vindlingum í hverfisverslun sinni. Ekki hægt nema á kassa númer eitt, var svarið, en kunninginn var á kassa númer tvö. Hugsanlega hefði kunninginn látið sig hafa það að fara úr röðinni sinni og í röðina við kassa eitt ef einhver hefði verið að vinna við þann kassa. Þess í stað varð hann að fara í söluturninn við hliðina og versla þar. x x x ANNAR kunningi Víkverja lentií svipuðu nema hvað stúlkan á búðarkassanum sagðist ekki vera nógu gömul til að selja honum tób- ak. Tvær aðrar stúlkur voru að vinna við aðra búðarkassa og voru ekki eldri þannig að enginn mátti selja tóbak í þeirri verslun. Hvernig ætli það verði þegar kaupa má brennivín í matvöruverslunum, ætli allir megi afgreiða það og hvar ætli áfengið verði falið fyrir viðskipta- vinunum? x x x VÍKVERJI skellti sér í keilu ádögunum í Keiluhöllina í Öskjuhlíð og hafði gaman af eins og venjulega. Nokkur atriði vöktu þó athygli hans. Þetta var á laugardegi klukkan 13 og Víkverji undraðist satt að segja að í sjónvarpi við keilubrautirnar var verið að sýna kvikmynd sem a.m.k. hlýtur að teljast ljósblá; ein- hvern tíma hefði þessi mynd altjent verið bönnuð innan tólf ára en í salnum var vitaskuld talsvert af börnum á þessum tíma. Víkverja fannst líka undarlegt að dúndrandi tónlist var í salnum, of hátt stillt fyrir hans smekk. Síðast en ekki síst fannst Vík- verja það einkennilegt að á einum stað í húsinu mátti reykja og drekka áfengi. Það er á veitingastað húss- ins, sem ætti að vera skiljanlegt og e.t.v. lofsvert – en er undarlegt þeg- ar betur er að gáð. Á þessum eina stað þar sem reykja má (og drekka) var nefnilega hópur barna að borða pítsu eftir að hafa spilað keilu, þeg- ar félagar Víkverja fóru þangað inn til að fá sér sígarettu. x x x ÝMSAN fróðleik er að finna íFréttabréfi Húsdýragarðsins, m.a. þetta: „Ýmislegt er að gerast hjá dýr- unum og líkt og vanalega gengur líf- ið og tilveran upp og niður. Laug- ardagsmorguninn 9. febrúar bar kýrin Gæfa tveimur kálfum, nauti og kvígu, í fjósinu. Það er mjög merkilegt er kýr ber tveimur kálf- um í einu, það er álíka sjaldgæft og þegar kona fæðir þrí- eða fjórbura. Kálfarnir voru vel stórir, hvor um sig vó 28 kíló við fæðingu. Því hvíldi mikill þungi á móðurinni við burð- inn og við átökin rifnaði vöðvi í læri (kýrin varð gliðsa) og gat hún ekki staðið upp eftir það. Það leiddi til þess að ekkert annað var hægt að gera í stöðunni en að svæfa kúna. Kálfarnir eru móðurlausir en dafna þrátt fyrir það mjög vel. Eftir rúm- ar tvær vikur var kvígan um 40 kíló en nautkálfurinn 41 kíló. Það kemur líka til að fósturkýrin Gráskinna tekur að sér alla kálfa sem fæðast hér í Garðinum.“ 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 fífldjarfir menn, 8 auð- ug, 9 hnugginn, 10 dvelj- ast, 11 gleðskap, 13 magran, 15 fjöturs, 18 nurla saman, 21 stefna, 22 hélt, 23 stéttar, 24 okr- ara. LÓÐRÉTT: 2 snjóa, 3 stjórnum, 4 sárs, 5 Mundíufjöll, 6 vot, 7 hugboð, 12 blóm, 14 fiskur, 15 ósoðinn, 16 smánarblett, 17 galtar, 18 vísa, 19 afréttur, 20 svara. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 búlki, 4 falds, 7 geiga, 8 rugga, 9 næm, 11 afar, 13 knáa, 14 endar,15 horf, 17 ógát, 20 ari, 22 mælum, 23 lesin, 24 renna, 25 tjara. Lóðrétt: 1 bugða, 2 leifa, 3 iðan, 4 form, 5 lúgan, 6 skaða, 10 æddir, 12 ref,13 kró, 15 húmar, 16 rolan, 18 gusta, 19 tunna, 20 amla, 21 illt. K r o s s g á t a UNDANFARIN 10 ár hef ég meira eða minna þurft á sjúkrahússþjónustu að halda. Það þarf ekki að orðlengja það að þar mætir manni góðvild og gleði, þannig að manni líður eins og að vera um- kringdur nánustu vinum. Þrælduglegt starfs- fólkið á deildunum legg- ur mikið á sig til að geðj- ast og gleðja okkur sjúklingana. Kærleik- urinn streymir óheftur út frá brosandi andlitum og líknandi höndum og við- móti starfsfólksins. Oft hefur mér fundist í þjóðfélagsumræðunni, störf fólksins allverulega vanmetin að ósekju. Mér finnst þetta elskulega fólk eiga það inni hjá mér að ég þakki fyrir mig og frábæra, ástríka, umönn- un þar sem kærleikurinn er í fyrirrúmi, en mín leið er í gegnum pennann. Á þennan hátt vil ég koma á framfæri þeirri staðreynd að Ísland er ríkt land að eiga slíkan hafsjó af fórnfúsu, ást- ríku og duglegu fólki. Ég tel mig heppinn að hafa fengið að njóta þessa ástríkis, þó ég hefði kosið að vera heill heilsu. Atli Hraunfjörð. Kærleiksríkt fólk Skipin Reykjavíkurhöfn: Víðir og Freri koma í dag, Ar- on fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Saramati kemur í dag. Brúarfoss, Polar Siglir og Ocean Tiger koma á morgun, Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 9 vinnustofa og leikfimi, kl. 13 vinnu- stofa, kl. 14 spilavist. Ferðir til Portúgals kynntar í kaffitímanum. Framtalsaðstoð verður veitt 21. mars. Ekki verður unnt að veita þeim aðstoð sem keyptu eða seldu fasteignir, hlutabréf eða önnur verðbréf á árinu eða þeim sem þurfa að gera grein fyrir vaxt- argjöldum af íbúðar- húsnæði til eigin nota eða hafa tekjur af eigin atvinnurekstri eða leigu húsnæðis. Skráning og uppl. í afgr., s. 562-2571. Árskógar 4. Á morgun klukkan 9 opin handa- vinnustofan, klukkan 10.15 leikfimi, klukkan 11 boccia, klukkan 13.30–16.30 opin smíða- stofan/útskurður, klukk- an13.30 félagsvist, klukkan 16 myndlist. Allar upplýsingar í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 sam- verustund, kl. 13.30– 14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 bútasaumur. Eldri borgarar Kjal- arnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtu- dögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Leik- húsferð á leikritið „Með fulla vasa af grjóti“ fimmtud. 21. mars. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun klukk- an 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun klukk- an 8 böðun, klukkan 9 fótaaðgerð og myndlist, klukkan 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, klukkan 10 versl- unin opin, klukkan 11.10 leikfimi, klukkan 13 föndur og handavinna, klukkan 13.30 enska framhald. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. 21. mars fé- lagsvist á Garðaholti kl. 19.30 á vegum Kven- félags Garðabæjar. Mán. 11. mars kl. 9 leir, kl. 9.45 boccia, kl. 11.15 og 12.15 leikfimi, kl. 13.05, róleg stóla- leikfimi, kl. 13 gler/ bræðsla, kl. 15.30 tölvu- námskeið, kl. 9–14 fóta- aðgerðastofan. Fótaaðgerðastofan verður lokuð óákveðinn tíma vegna veikinda. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á morg- un félagsvist kl. 13.30. Á þriðjudag hefst spænskukennsla kl. 16.30–18. Fimmtud. op- ið hús í boði Sjálfstæð- isfél. í Hafnarfirði. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara Söng- og gam- anleikinn „Í lífsins ólgu- sjó“, minningar frá ár- um síldarævintýranna og „Fugl í búri“, dramatískan gamanleik. Sýningar: Miðviku- og föstud. kl. 14 og sun- nud. kl. 16. ath. leiksýn- ingin í dag, sunnudag, fellur niður vegna for- falla. Miðapantanir í s.: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Sunnud: Fé- lagsvist kl. 13.30. Dans- leikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Danskennsla fellur niður. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Á morg- un kl. 9–16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 14 fé- lagsvist Gerðuberg, félagsstarf. Í dag kl. 13–16 sýning Braga Þórs Guðmunds- sonar, listamaðurinn á staðnum. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spila- salur opinn, dans fellur niður. Veitingar í veit- ingabúð. Aðstoð við skattframtal verður veitt miðvikudaginn 20. mars, skráning hafin. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun kl. 9 handa- vinna, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 11 hæg leikfimi, kl. 13 lomber og skák, kl. 17.15 kórinn. kl. 20 skapandi skrif. Hand- verksmarkaður verður fimmtudaginn 14. mars kl. 14–16. Panta þarf borð sem fyrst. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9. 55 róleg stólaleikfimi, kl. 13 brids, kl. 20.30 fé- lagsvist. Hraunbær 105. Á morgun kl. 9 perlu- saumur, postulínsmálun og kortagerð, kl. 10 bænastund, kl. 13 hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 10 boccia, kl. 13 frjáls spilamennska, kl. 13.30 gönguferð. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10 ganga, kl. 9 fótaaðgerð. Fé- lagsstarfið er opið öllum aldurshópum, allir vel- komnir. Vesturgata 7. Á morgun kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13 kór- æfing. Sigrún Ingv- arsdóttir félagsráðgjafi verður með viðtalstíma á föstud. kl. 14–16. Hún býður upp á félagslega ráðgjöf og upplýsingar, t.d. um bætur frá Tryggingastofnun, bú- setuúrræði og margt fleira. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og sund, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla, leikfimi og spil- að. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga. Skrán- ing kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Bridsdeild FEBK í Gullsmára. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Kvenfélag Grens- ássóknar fundur mánu- daginn 11. mars kl. 20. gestur fundarins Jóna Hrönn Bolladóttir. Kvenfélag Bústaða- sóknar heldur fund 11. mars kl. 20. Skemmti- atriði, takið með ykkur gestir. SVDK, Hraunprýði, heldur fund í húsi fé- lagsins í Hjallahrauni 9, þriðjudaginn 12. mars kl. 20. Bingó, kaffiveit- ingar. Kvenfélagið Hrönn heldur skemmtikvöld mánud. 11 mars í Húna- búð Skeifunni 11, kl. 20. Sjávarréttir, skemmti- atriði. Félagsstarfi Sléttuvegi 11–13. Vegna afmælis Þorgerðar Sveinsdóttur stendur sýning á verk- um hennar uppi í fé- lagsmiðstöðinni frá kl. 10–16, dagana 11 til 13. mars. Allir velkomnir. Kvenfélag Breiðholts. Fundur verður í safn- aðarheimili Breiðholts- kirkju 12. mars kl. 20. Kynntar verða snyrti- vörur gerðar úr lífrænt ræktuðum blómum og jurtum. Hríseyingafélagið. Páskabingó verður í Skipholti 70, 2. hæð sunnudaginn 10. mars kl. 14. Félagar fjöl- mennið og takið með ykkur gesti. ITC Harpa heldur deild- arfund í Borgartúni 22, sal Flugvirkjafélags Ís- lands, þriðjud. 12. mars kl. 20–22. Allir velkomn- ir. Upplýsingar gefur Lilja, s. 581-3737. Heimasíðan er http:// www.life.is/itcharpa. Í dag er sunnudagur 10. mars, 69. dagur ársins 2002. Miðfasta. Orð dagsins: Sjá, Guð háleitur í fram- kvæmdum máttar síns, hver er slík- ur kennari sem hann? (Jobsbók 36, 22.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.