Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 61
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 1.45 og 3.45. Ísl. tal. Vit 320
Mán kl. 3.45.
1/2
Kvikmyndir.is
DV
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Sýnd kl. 1.45 og 3.50. Ísl tal. Mán kl. 3.50. Vit 349
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6.
Ísl tal Vit 338.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
DV
4
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.I. 12 ára. Vit 347.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Vit 348. B.i. 16.
Sýnd kl. 1.45, 3.50, 5.55, 8 og 10.10.
Mán kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.10.Vit 349.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit . 351
Ó.H.T Rás2
HK DV
Ekkert er hættulegra en einhver
sem hefur engu að tapa!
Frá leikstjóra
The Fugitive
Frumsýning
Frumsýning
Sean Penn og Michelle Pfeiffer sýna hér
stórleik og Sean hlaut tilnefningu til Óskars-
verðlauna fyrir leik sinn hér. Myndin hrífur
mann með sér og lætur engann ósnortinn.
Sýnd kl. 8.
B.i. 12 ára. Vit nr. 345.
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna2
Sýnd kl. 10.15.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Vit nr. 351.
4
Úr sólinni
í slabbið!
Cuba Gooding Jr fer á kostum sem tannlæknir frá
Miami sem þarf að fara í óvænta ferð til Alaska
og lendir í ýmsum hrakförum.
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 4 og 6. Mán kl. 6.
www.regnboginn.is
Þann 3. október 1993 var úrvalslið bandarískra hermanna
sent á vettvang inn í höfuðborg Sómalíu, til að handtaka
tvo hryðjuverkamenn. Aðgerðin átti að taka eina klukku-
stund en misheppnaðist og endaði með skelfingu
Leikstjóri
Ridley Scott
(Gladiator)
Framleiðandi
Jerry Bruckheimer
(The Rock)
Svakalegasta
stríðsm
ynd
seinni ára sem
sat á toppnum
í 3 vikur í
Bandaríkjunum
Frumsýning
Sýnd kl. 6 og 9.
No Man´s
Land
Ein eftirminnilegasta mynd ársins! Vann Golden Globe sem besta erlenda myndin og
besta handrit á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Tveir bosnískir hermenn álpast inn í
einskis manns land og lenda í ótrúlegum hrakningum. Margt getur gerst á víglínunni.
Tilnefnd til
Óskarsverðlauna
- sem besta
erlenda myndin
Sýnd kl. 8 og 10.
1/2
SG DV
1/2
MBL ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Franskir Dagar
Hefnd Matthieu
Sýnd kl. 6.
Mán kl. 10.
Helgarfrí
Sýnd kl. 4 og 8
Mán kl. 6.
Um ástina
Sýnd kl. 10.
Mán kl. 8.
Sinfóníuhljómsveitin
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
Stórviðburður í tónlistarlífinu: Sinfóníuhljómsveitin, ásamt
rokksöngvurum frá West End og aðstoðarmönnum, flytur öll
vinsælustu lög hljómsveitarinnar Queen í Laugardalshöllinni
16. mars. Miðasala er hafin. Tryggðu þér miða í tæka tíð.
laugardaginn 16. mars kl. 17:00 í LaugardalshöllGræn áskriftaröð
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
voru rétt búnir að stofna útgáfuna
Constellation sem hefur gefið út
hljómsveitina upp frá því og gaf ein-
mitt út fyrstu eiginlegu breiðskíf-
una, f#a#oo, sem kom út í júní fyrir
fjórum árum.
Á snældunni All Lights Fucked
On The Hairy Amp Drooling voru
lög stutt og snörp, en á nýju plöt-
unni var annað uppi á teningnum;
lögin á skífunni voru aðeins þrjú og
öll vel yfir fimmtán mínútur að
lengd. Á henni má vel heyra hvernig
GYBE skreytir tónlistina með töl-
uðu máli og ýmiss konar sérkenni-
legum hljóðbútum héðan og þaðan,
en að sögn eru liðsmenn sífellt með
upptökutæki á sér til að taka upp
sérkennileg hljóð til að nota í tónlist.
f#a#oo kom upphaflega út í 500
tölusettum árituðum eintökum í
Kanada en Kranky útgáfan banda-
ríska tók svo að sér að gefa plötuna
út um heim allan. Platan þótti og
þykir mikið tímamótaverk, en í kjöl-
farið lagðist sveitin í ferðalög og hélt
meðal annars í ferð yfir þver Banda-
ríkin. Á meðan á þeirri ferð stóð
hljóðrituðu lisðmenn tvö lög á næstu
plötu, Slow Riot For New Zero Kan-
ada, en þótt lögin séu ekki nema tvö
er platan nálægt hálftíma að lengd.
Auðn og eyðilegging
Mikið var lagt í umslag skífunnar,
sem gefin var út í glitskreyttu
pappahulstri, á framhlið er hebr-
eska orðið tóhú-va-bóhú, auðn og
eyðilegging, og inní er vitnað í Jer-
emía á hebresku og ensku: „Ég lit-
aðist um, og sjá, þar var enginn
maður, og allir fuglar himinsins
voru flúnir. Ég litaðist um, og sjá,
aldingarðurinn var orðinn að eyði-
mörk og allar borgir hans gjör-
eyddar af völdum Drottins, af völd-
um hans brennandi reiði,“ en þess
má einnig geta að á umslaginu eru
leiðbeiningar um hvernig búa eigi til
bensínsprengju. Fyrir vikið vilja
margir tengja liðsmenn GYBE við
hryðjuverkasamtökin Earth Liber-
ation Front, ELF, sem hafa meðal
annars á stefnuskrá sinni að brenna
mannvirki. Dregur ekki úr þeim
vangaveltum að í kynning-
armyndbandi ELF er tónlist af
Slow Riot for New Zero Kanada
notuð sem undirleikur við áróð-
urinn.
Afrakstur tónleikaferða GYBE
um heiminn í kjölfar f#a#oo og
Slow Riot For New Zero Kanada
var bunki laga sem flest urðu til sem
tónleikaspuni. Þegar tími gafst
hljóðritaði sveitin aðra breiðskífu
sína og gaf út fyrir hálfu öðru ári.
Platan heitir Lift Your Skinny Fists
Like Antennas to Heaven / Levez
Vos Skinny Fists Comme Antennas
To Heaven og fékk fyrirtaks dóma
sem hún átti fyllilega skilið. Í viðtali
vegna hennar sagði Efrim að öll tón-
list GYBE væri samin til að spila
hana hátt á tónleikum og að sveitin
nái aldrei betur saman en á sviði.
Það verður fróðlegt að sjá það í Óp-
erunni í vikunni og ljóst að tónleik-
arnir eru algjör hvalreki fyrir sem
sem gaman hafa af framsækinu
rokki.
Fjölmörg hliðarverkefni
Eins og fram kemur eru hlið-
arverkefni GYBE fjölmörg og svip-
ar mörgum til tónlistar móðursveit-
arinnar. Einna næst henni stendur
A Silver Mt. Zion sem Efrim stýrir,
en helsta plata hennar er fyrsta
skífan, He Has Left Us Alone But
Shafts of Light Sometimes Grace
The Corner of Our Bedrooms. Fyrir
stuttu kom út platan Born Into
Trouble as the Sparks Fly Upward
sem skrifuð er á The Silver Mt. Zion
Memorial Orchestra & Tra-La-La
Band. Af öðrum má nefna 1-Speed
Bike, Exhaust, Fly Pan Am, Mol-
asses, HRSTA og Shalabi Effect, en
fyrir skemmstu kom úr enn ein
framúrskarandi hliðarplata GYBE.
Sings Reign Rebuilder heitir platan
og fyrir henni er skrifuð hljóm-
sveitin Set Fire to Flames, þrettán
manna, skipuð fimm liðsmönnum
GYBE og restinni úr Fly Pan Am og
Hanged Up.
Eins og getið er í upphafi eru
þessi skrif til komin vegna þess að
Godspeed You Black Emperor!
heldur tvenna tónleika hér á landi í
vikunni; leikur í Íslensku óperunni
næskomandi miðvikudagskvöld og
fimmtudagskvöld. Uppselt er á fyrri
tónleikana, og seldist víst upp á met-
tíma, en að sögn Hljómalind-
armanna, sem flytja sveitina inn,
eru einhverjir miðar eftir á seinni
tónleikana. Enginn mun sjá eftir því
að sjá þá báða.
Fáar hljómsveitir hafa vakið aðra eins athygli og umtal síðustu misseri og kan-
adíski fjöllistaflokkurinn Godspeed You Black Emperor! Sveitarmenn og -konur
hafa verið tregir til að gefa út plötur á þeim sex árum sem sveitin hefur verið að
og þóttu því mikil tíðindi þegar tvöföld plata kom út í haust.