Morgunblaðið - 10.03.2002, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
VERIÐ er að ganga frá kaupum á
hlut Jóns Ólafssonar í Íslandsbanka,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, og er gert ráð fyrir að
samningum ljúki um helgina eða fyr-
ir aðalfund Íslandsbanka á morgun,
mánudag. Mun Jón þá jafnframt
draga framboð sitt til baka til vara-
stjórnar bankaráðs.
Jón Ólafsson og félög honum
tengd eiga alls rétt tæpan 6% hlut í
Íslandsbanka en heildarhlutafé
bankans er um 10 milljarðar. Gengi
bréfanna í þessum viðskiptum mun
vera rétt undir 5, samkvæmt heim-
ildum blaðsins, en lokagengið í við-
skiptum með Íslandsbankabréfin á
föstudag var 4,81. Miðað við mark-
aðsvirði Íslandsbanka er því heild-
arverðmæti bréfa Jóns Ólafssonar
tæpir þrír milljarðar króna. Kaup-
andi eða a.m.k. milligönguaðili um
kaupin er Kaupþing.
Jón Ólafsson var sem kunnugt er
hluti af Orca-hópnum svonefnda sem
keypti 26,5% hlut sparisjóðanna og
Kaupþings í Fjárfestingabanka at-
vinnulífsins í ágúst 1999. Auk Jóns
mynduðu þennan hóp Eyjólfur
Sveinsson, Jón Ásgeir Jóhannesson
og Þosteinn Már Baldvinsson.
Við sameiningu FBA og Íslands-
banka árið 2000 varð eignarhalds-
félagið Orca, FBA-Holding stærsti
hluthafinn í bankanum en alls átti
Orca-hópurinn um 18% hlut í Ís-
landsbanka í gegnum nokkur félög.
Fyrr á þessu ári var tilkynnt um
kaup Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
og Þorsteins Más á hlut Eyjólfs
Sveinssonar í bankanum á genginu
4,3 sem Eyjólfur sjálfur mat þá í
samtali við Morgunblaðið á hærri
fjárhæð eða á bilinu 4,7 til 4,8 vegna
greiðslna sem hann fengi á næsta
ári.
Ef Jón dregur framboð sitt til
baka í bankaráðskosningunni á aðal-
fundi Íslandsbanka á morgun er ein-
sýnt að bankaráðið allt verði sjálf-
kjörið, bæði aðal- og varastjórn.
Jón Ólafsson selur um 6%
hlut sinn í Íslandsbanka
Mun draga framboð sitt til varastjórnar bankans til baka
Á SÍÐASTA ári voru 89 ökumenn
sviptir ökuréttindum á grundvelli
umferðarpunkta, þar af voru að-
eins tvær konur. 76 af þeim 87
körlum sem voru sviptir ökuleyfi á
grundvelli punktakerfis voru á
aldrinum 17–20 ára. Elsti karlmað-
urinn var 36 ára. Konurnar tvær
sem voru sviptar ökuleyfi voru
báðar 17 ára.
Ef marka má tölur ríkislögreglu-
stjóra um sviptingu ökuréttinda á
grundvelli umferðarpunkta virðist
það taka ákveðinn hóp ungra karl-
manna fjögur ár að átta sig á um-
ferðarreglunum. Alger skil verða
við tuttugu ára aldur, en í fyrra
voru tuttugu tvítugir ökumenn
sviptir ökuréttindum en aðeins
einn og tveir ökumenn eru sviptir
réttindum í aldurshópunum þar á
eftir. Þannig voru aðeins fimm
ökumenn á aldrinum 21–30 ára
sviptir ökuleyfi.
87 ungir karlmenn
sviptir ökuleyfi
TÓLF ára stúlka lést og tveir slös-
uðust alvarlega er tveir bílar, jeppi
og fólksbifreið, rákust saman of-
arlega í Lögbergsbrekku á Suður-
landsvegi í gærmorgun. Stúlkan
sem lést var farþegi í jeppanum en
bílstjóri fólksbifreiðarinnar var
einn í bílnum. Tilkynning um slysið
barst lögreglunni í Kópavogi
klukkan 7.24 í gærmorgun. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu voru
tveir fluttir á bráðamóttöku Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi og samkvæmt upplýsingum
læknis á vakt þar voru þeir lagðir
inn á gjörgæsludeild alvarlega
slasaðir. Að sögn lögreglu komu
bílarnir úr gagnstæðum áttum en
tildrög slyssins voru að öðru leyti
ókunn er Morgunblaðið fór í prent-
un. Loka þurfti Lögbergsbrekku
tímabundið fyrir umferð í kjölfar
slyssins.
Þrír þurftu að leita á slysadeild
eftir að strætisvagn og fólksbíll
lentu í árekstri á gatnamótum
Njarðargötu og Hringbrautar í
gærmorgun. Kalla þurfti á tækjabíl
slökkviliðsins og beita varð klipp-
um til að ná farþegunum, manni og
barni í bílstól, úr bílnum.
Ekki fengust upplýsingar um líð-
an þeirra, en þau voru í rannsókn
þegar Morgunblaðið ræddi við
lækni á slysadeild í gær. Ökumað-
ur strætisvagnsins leitaði einnig á
slysadeild til aðhlynningar.
Sá sem lést í hörðum árekstri
jeppa og fólksbifreiðar um þrettán
kílómetra austur af Selfossi um
klukkan hálfátta á föstudagskvöld
var karlmaður fæddur árið 1979.
Samkvæmt upplýsingum lækna á
bráðamóttöku í Fossvogi er líðan
hjóna og tveggja barna þeirra sem
lentu í slysinu eftir atvikum.
Morgunblaðið/Júlíus
Kalla þurfti á tækjabíl slökkviliðsins til að ná farþegunum út úr bíl sem lenti í árekstri við strætisvagn á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar.
Banaslys við
Lögberg í
gærmorgun
Á SÍÐASTA ári voru 108 börn í lang-
tímavistun hjá bændum sem eru fé-
lagar í Landssamtökum vistforeldra
í sveitum. Auk þess voru 86 börn í
skammtímavistun. Ásta Ólafsdóttir,
fulltrúi samtakanna á Búnaðarþingi,
sagði að um væri að ræða börn sem
hefðu af ýmsum ástæðum ekki getað
alist upp hjá foreldrum sínum og því
verið búið heimili í sveitum fyrir
milligöngu barnaverndaryfirvalda.
Ásta sagði að í sveitunum væri
þessum börnum búið heimili í rólegu
og öruggu umhverfi. Þar væru þau í
góðum tengslum við náttúruna og
dýrin. „Okkar markmið er að þessi
börn, sem af einhverjum ástæðum
geta ekki búið í foreldrahúsum, fái
gott atlæti í öruggu og fjölskyldu-
vænu umhverfi,“ sagði Ásta.
Ásta sagði að börnin væru tekin í
vistun á ýmsum aldri. Í dag bæri
þjóðfélaginu skylda til að börn fram
að 18 ára aldri ættu heimili, en áður
var miðað við 16 ára aldur. Hún sagði
að framkvæmdastjóri Barnavernd-
arstofu hefði lýst ánægju með þetta
úrræði og lýst vilja til að efla það.
Miklar kröfur eru gerðar til vist-
foreldra í sveitum. Þeir þurfa að
uppfylla tiltekin skilyrði og hafa far-
ið á námskeið. Ásta sagði að Lands-
samtök vistforeldra í sveitum hefðu
áhuga á að auka menntun vistfor-
eldra. Tilgangurinn væri að gera
vistforeldra betur í stakk búna til að
annast börn og unglinga sem þurfa á
meiri félagslegri aðstoð að halda en
börn almennt. Ásta sagði að vistfor-
eldrar í sveitum tækju einnig börn til
sumardvalar sem vísað væri til
þeirra af barnaverndaryfirvöldum.
108 börn í lang-
tímavistun í sveit
KAUPFÉLAG Borgfirðinga hefur
á skömmum tíma selt rúmlega 20
frystikistur. Bjarki Þorsteinsson,
verslunarstjóri í verslun KB á
Hyrnutorgi, segist aldrei hafa
upplifað aðra eins sölu.
Skýringin á þessari góðu sölu
er sú að Norðlenska, sem rak til
skamms tíma sláturhús og frysti-
hús í Borgarnesi, ákvað að loka
frystiklefum, en þar hefur fólk
getað leigt sér aðstöðu til að
geyma kjöt.
Yfir hundrað manns hefur
leigt sér frystiklefa
Eitthvað á annað hundrað
manns hefur notfært sér þessa
frystiklefa, en þetta fólk situr nú
uppi með kjöt sem það þarf að
koma í geymslu.
Norðlenska taldi að of dýrt
væri að reka þessa frystiaðstöðu,
en auk þess samræmist það ekki
heilbrigðiskröfum að menn gætu
hugsanlega komið með kjöt af
heimaslátruðum gripum og
geymt það í sama húsi og kjöt
sem ætlað væri í almenna sölu.
Bjarki og Guðsteinn Einarsson,
kaupfélagsstjóri í Borgarnesi,
voru fljótir að átta sig á því að
ákvörðun um að loka frystiklef-
unum fæli í sér viðskiptatækifæri
fyrir Kaupfélagið. Þeir náðu
samningum við Bræðurna Orms-
son um hagstætt verð á frysti-
kistum og hafa á skömmum tíma
selt margar kistur.
„Ég hef aldrei selt jafnmikið af
frystikistum á jafnskömmum
tíma. Ætli ég hafi ekki selt rúm-
lega 20 frystikistur á þremur vik-
um. Það gerir um eina frystikistu
á dag,“ sagði Bjarki.
Bjarki sagðist venjulega selja
talsvert af frystikistum í slát-
urtíðinni á haustin. Þessi sala
væri hins vegar búin að slá öll
met.
Hver frystikista kostar um 50
þúsund krónur. Heildarsala KB á
frystikistum er því komin yfir
eina milljón króna.
Kaupfélag
Borgfirðinga
Hefur selt
rúmlega
20 frysti-
kistur