Morgunblaðið - 27.03.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBelgíska liðið Anderlecht hefur
áhuga á Indriða Sigurðssyni/B1
Njarðvík og Keflavík með góða
stöðu í úrslitum körfunnar/B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Morgunblaðinu
í dag fylgir
auglýsingablaðið
„Ótrúlega ódýrt“
frá Plúsferðum.
Blaðinu
verður dreift
um allt land.
ÓRÓI er meðal heilsugæslulækna
vegna breytinga á greiðslufyrir-
komulagi fyrir læknisvottorð að
sögn Þóris B. Kolbeinssonar, for-
manns Félags íslenskra heimilis-
lækna. Hann segir marga heim-
ilislækna hafa tjáð sér að þeir
myndu ekki vinna við vottorð og
þeir telji að sú kjaraskerðing sem
þeir hafi orðið fyrir vegna breyt-
inganna jafngildi uppsögn. Segir
hann nokkra lækna hafa íhugað al-
varlega að segja upp.
Kjaranefnd hefur fellt þann úr-
skurð að vinna heilsugæslulækna
við útgáfu læknisvottorða teljist
hluti af aðalstarfi þeirra og þeim
sé því ekki heimilt að taka sér-
staka þóknun fyrir þau umfram
það sem kjaranefnd ákveður.
Stjórn Læknafélags Íslands hef-
ur samþykkt ályktun þar sem mót-
mælt er „þeirri gríðarlegu kjara-
skerðingu sem í niðurstöðu
kjaranefndar felst að óbreyttu sem
og þeirri truflun og afkastaskerð-
ingu sem verður fyrirsjáanlega í
starfi heilsugæslulækna með því
að unnið verði að þessum vott-
orðum í venjulegum vinnutíma“,
segir í ályktuninni.
Ekki vitað hvenær úrskurður
kjaranefndar liggur fyrir
Þórir B. Kolbeinsson segir að
fulltrúar FÍH hafi átt fund með
kjaranefnd og fengið vilyrði fyrir
því að kjaraskerðing verði bætt.
Sagði hann kjaranefnd hafa beint
þeim tilmælum til læknanna að
þeir sinntu vottorðagerð þar til úr-
skurður lægi fyrir. Ekki er vitað
hvenær að því kemur. Þórir sagði
sína menn ekki hafa tekið vel í
þessa beiðni og margir hefðu tjáð
sér að þeir myndu ekki sinna
vinnu við vottorð að svo stöddu.
Vottorð lækna eru annars vegar
fyrir opinbera aðila og fyrir þá
sem njóta stuðnings almanna-
trygginga eða félagslegrar aðstoð-
ar. Greiddi Tryggingastofnun rík-
isins fyrir þau þar til
heilbrigðisráðherra breytti þeirri
framkvæmd og verða sjúklingar
nú sjálfir að greiða fyrir sum vott-
orðin. Hins vegar gefa læknar út
vottorð vegna einstakra sjúkdóma
eða heilbrigðis skjólstæðinga sinna
og segir Þórir langa hefð fyrir því
að læknar fái greitt fyrir þau frá
viðkomandi einstaklingum.
Vænlegri kjör fyrir
lækna með sérgrein
Síðustu tíu ár hafa tuttugu
heimilislæknar horfið frá sérgrein
sinni að sögn Þóris. Segir hann
þessa lækna suma hverja hafa tek-
ið upp annað sérnám þar sem kjör
séu vænlegri. Segir hann þá kjara-
skerðingu sem heilsugæslulæknar
hafi orðið fyrir með þessum að-
gerðum ekki bæta stöðuna í stétt
heimilislækna eða vera til þess að
laða unga lækna í þessa sérgrein.
Heilsugæslu-
læknar íhuga
uppsagnir
Formaður FÍH segir óróa meðal
heilsugæslulækna vegna breytinga
á vottorðagreiðslum
LETTI, sem nýlega var framseldur til heima-
lands síns eftir að Hæstiréttur úrskurðaði að
það væri heimilt, hefur játað á sig fimm rán-
morð. Hann er jafnframt talinn hafa haft ástæðu
til að fremja morð hérlendis til að fá dóm sam-
kvæmt íslenskum lögum og komast þannig und-
an refsingu í heimalandi sínu.
Áður hafði verið talið að morðin væru þrjú en
í skeyti sem Alþjóðadeild ríkislögreglustjórans
hefur borist frá Interpol í Riga, kemur fram að
morðin eru fimm. Maðurinn, Jurijs Eglitis, var
handtekinn í nóvember síðastliðnum að ósk lög-
regluyfirvalda í Riga en hann var grunaður um
að vera valdur að dauða þriggja manna í Lett-
landi á árunum 1997 til 2000. Eins og Morg-
unblaðið hefur greint frá var einn mannanna
myrtur með exi árið 1997. Hin morðin voru
framin árið 2000 og árið 2001 og voru bæði fórn-
arlömbin skotin til bana. Allir voru myrtir eftir
að hafa komið að þjófum við innbrot.
Héraðsdómur hafnaði framsalskröfu en
Hæstiréttur úrskurðaði síðar að heimilt væri að
framselja manninn.
Að sögn Smára Sigurðssonar, yfirmanns Al-
þjóðadeildar ríkislögreglustjórans, er málið enn
í rannsókn ytra og hefur maðurinn nú játað á sig
fimm ránmorð. „Framsali á honum var hafnað
vegna þess að talið var að ekki væri búið að af-
nema dauðarefsingu,“ segir hann. „En til að
eyða öllum misskilningi þá var það gert í febr-
úar sl. í lettneska þinginu. Þannig að hann á
slíkt ekki yfir höfði sér þótt maður skyldi halda
að hann fengi ansi langan dóm.“
Myrða samfanga sína til að
fá dóma í dvalarlandinu
Dómsmálaráðuneytið lagði áherslu á að Lett-
anum yrði komið úr landi sem fyrst, í ljósi
þeirra upplýsinga sem fyrir lágu um þau alvar-
legu brot sem hann var sakaður um. Hann var
hafður undir sérstöku eftirliti á meðan hann
sætti gæsluvarðhaldi í fangelsinu að Litla-
Hrauni til að fyrirbyggja að hann myrti sam-
fanga sína eða skaðaði fangaverði. Þekkt er að
menn, sem eiga yfir höfði sér framsal til heima-
landa sinna, t.d. í Eystrasaltsríkjunum þar sem
ástand í fangelsismálum er lakara en á Norð-
urlöndum, fremji það alvarleg afbrot í dvalar-
landinu, að þeir verði ekki framseldir strax.
Nokkuð mun hafa kveðið að þessu í Svíþjóð, að
erlendir menn, grunaðir um alvarleg brot í
heimalandi sínu, hafi framið morð í þeim til-
gangi að fá fangelsisdóm í Svíþjóð, vitandi að
ekki kæmi til framsals meðan þeir væru í af-
plánun. Dómsmálaráðuneytið hafði upplýsingar
um þessa þróun mála og lagði m.a. af þeim sök-
um áherslu á framsal Lettans héðan.
Stefán Eiríksson skrifstofustjóri í dómsmála-
ráðuneytinu segir, spurður hvort Lettinn hafi í
ljósi alls þessa verið hættulegur meðan hann
dvaldi á Dalvík, þ.e. áður en upp um hann
komst, að ekki sé óeðlilegt að velta fyrir sér
hvort hann hefði hugsanlega gengið til verks þá
þegar. Þó hafi hættan aukist eftir að hann var
handtekinn og mátti gera sér ljóst að hans biði
hugsanlega ævilangt fangelsi í Lettlandi.
Letti játar fimm ránmorð
Var talinn hafa haft
ástæðu til að fremja
morð hérlendis
ÞAÐ ERU fleiri en ferming-
arbörnin sem þurfa á snyrtingu
að halda og hann Sesar virtist
láta sér vel líka að fá páskaklipp-
ingu hjá Sóleyju Möller hunda-
hársnyrti. Hún segir brjálað að
gera fyrir páskana og það hafi
verið að aukast frekar en hitt og
hún vinni langt fram eftir kvöld-
um: „Það má eiginlega segja að
ég sé að nótt sem nýtan dag fyrir
páskana. Fólk tekur hundana
sína með í veislurnar og jafnvel
fermingarmyndatökur líka og vill
því auðvitað að þeir séu vel til
hafðir.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margir í
ferming-
arklippingu
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins lögðu í gær fram í borg-
arráði tillögu um að fundin yrði leið
til að sinna reglubundnu og sjálf-
stæðu eftirliti með fjárreiðum borg-
arsjóðs og fyrirtækja borgarinnar.
Er lagt til að borgarritara, borgar-
lögmanni og borgarendurskoðanda
verði falið að leggja tillögur um þetta
efni fyrir borgarráð.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað í
borgarráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, einn borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, tjáði Morgunblaðinu
að mikilvægt væri að standa að
reglulegu og sjálfstæðu eftirliti með
öllum fjárreiðum borgarsjóðs og
stofnana og fyrirtækja borgarinnar
þar sem eignarhlutdeild væri yfir
50%. Hann sagði uppákomuna hjá
Strætó bs. sýna nauðsyn þess að
borgin hefði yfir að ráða mjög virku
eftirlitskerfi.
Kvaðst hann sjá fyrir sér svipað
starf og Ríkisendurskoðun sinnir
fyrir ríkið. Einnig að hægt væri að fá
stjórnsýsluendurskoðun til að skapa
sem mest aðhald. Þetta væri gott fyr-
ir stofnanir borgarinnar og gott fyrir
borgarfulltrúa að geta gengið að
hlutlausum upplýsingum um stöðu
fyrirtækja og sjóða borgarinnar.
Sjálfstæðismenn í borgarráði
Vilja styrkja endur-
skoðun á fjárreiðum
MAÐURINN sem lést eftir
að hafa hlotið alvarlega
áverka af völdum hnífstungu
hinn 6. mars sl. hét Steindór
Kristinsson, til heimilis á
Grettisgötu 19a í Reykjavík.
Steindór var fimmtugur,
fæddur 26. apríl 1952.
Konan sem grunuð er um
að hafa stungið Steindór á
heimili hans situr enn í
gæsluvarðhaldi. Hún hefur
ekki játað á sig árásina en
vitni voru að atburðum. Stein-
dór gekkst undir aðgerð á
Landspítala – háskólasjúkra-
húsi og var talinn á góðum
batavegi. Honum hrakaði
nokkrum dögum síðar og lést
á sunnudagsmorgun.
Lést eftir
hníf-
stungu