Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
BANKASTJÓRN Seðlabankans
ákvað í gær að lækka stýrivexti bank-
ans um 0,5%. Var greint frá þessari
ákvörðun á ársfundi bankans. Davíð
Oddsson forsætisráðherra fagnaði
því í ræðu sinni á ársfundinum að
Seðlabankinn mæti það svo að vaxta-
lækkunarferill gæti nú hafist í þeim
tilgangi að íslenskt efnahagslíf fengi
betra svigrúm til að vaxa og dafna.
Forsætisráðherra sagði að kafla-
skil hefðu orðið og nú horfði vel í ís-
lensku efnahagslífi. Gott jafnvægi
væri að myndast í hagkerfinu og tek-
ist hefði að festa í sessi kaupmátt-
araukningu undanfarinna ára. Inn-
viðir hagkerfisins væru betri og
traustari en áður og kæmi ekki til
óvæntur andbyr mætti ætla að fram-
undan væri tímabil hagvaxtar og
áframhaldandi kaupmáttaraukning-
ar.
,,Aðgerðir ríkisstjórnarinnar, pen-
ingamálastefnan og ábyrg afstaða
aðila vinnumarkaðarins hafa nú
tryggt mjúka lendingu efnahagslífs-
ins. Dregið hefur úr spennu á vinnu-
markaði, umskipti hafa orðið á við-
skiptajöfnuðinum, gengi íslensku
krónunar hefur styrkst og haldist
stöðugt og verðbólga nálgast nú óð-
fluga það mark sem bankanum var
sett að halda henni innan,“ sagði
Davíð.
Auknar líkur á að verðbólguspá
bankans gangi eftir
Birgir Ísleifur Gunnarsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabankans,
greindi frá ákvörðun um vaxtalækk-
unina í ræðu sinni á ársfundinum.
Hann sagði að þróun gengis að und-
anförnu hefði verið hagstæð og tvær
síðustu mælingar bentu til lítillar
undirliggjandi verðbólgu. Auknar
líkur virtust því á að verðbólguspá
bankans fyrir árið í ár gengi eftir. Þá
sagði hann að nýjustu upplýsingar
Þjóðhagsstofnunar staðfestu að
framleiðsluspenna hyrfi í ár. Af þess-
um ástæðum hefði bankastjórn
Seðlabankans ákveðið að lækka vexti
í endurhverfum viðskiptum við lána-
stofnanir. Aðhald í peningamálum
væri þó enn mikið, enda nauðsynlegt
til að tryggja viðunandi verðbólgu.
Bankar og sparisjóðir ætla að
fylgja lækkuninni eftir
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, lýsti mikilli
ánægju með að ferill vaxtalækkana
skyldi vera hafinn. Bankinn myndi
tilkynna frekari vaxtalækkanir í dag,
sem í aðalatriðum tækju mið af því
sem Seðlabankinn hefði gert.
Árni Tómasson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði að bankinn hefði í
hyggju að fylgja þessari lækkun eft-
ir, að svo miklu leyti sem hún væri
ekki þegar komin fram.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, sagði það mat bankans
að tímabært hefði verið að lækka
stýrivexti Seðlabankans í nokkurn
tíma. Þá væri mikilvægt að vextir á
peningamarkaði fylgdu á eftir og
lækkuðu að sama skapi og að það
hlyti að vera keppikefli Seðlabankans
að búa svo um hnútana að svo yrði.
Guðmundur Hauksson, sparisjóðs-
stjóri SPRON, sagði að sparisjóðirn-
ir myndu lækka vexti með svipuðum
hætti og á sama tíma og viðskipta-
bankarnir, um næstkomandi mán-
aðamót.
Tryggð hefur verið mjúk
lending efnahagslífsins
Gott jafnvægi/34–35
Forsætisráðherra segir vaxtalækkunarferil
hafinn með 0,5% lækkun stýrivaxta Seðlabankans
VALLARVINIR ehf., flugaf-
greiðslufyrirtæki með starfsemi á
Keflavíkurflugvelli, hafa samið við
þýska leiguflugfélagið LTU um að
annast farþegaafgreiðslu og alla
þjónustu við vélar þess í Íslandsflugi
næsta sumar. Hefur félagið auglýst
eftir yfirmanni farþegasviðs og verða
fimm til tíu starfsmenn ráðnir til við-
bótar til að sinna þessu verkefni.
Þórarinn Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Vallarvina, sem tóku
til starfa árið 1997, tjáði Morgun-
blaðinu að fyrirtækið væri nú að stíga
nýtt skref í þjónustu við afgreiðslu
flugvéla, sem væri farþegaflug. Vall-
arvinir hafa undanfarin ár annast af-
greiðslu fyrir fraktflugfélögin Blá-
fugl og Cargolux og segir Þórarinn
fyrirtækið því hafa yfir öllum nauð-
synlegum tækjum og búnaði að ráða
til að afgreiða flugvélar. Fyrirtækið
hefur nú aðgang að fimm innritunar-
borðum í Leifsstöð.
Vallarvinir
annast þjón-
ustu við far-
þegaflug LTU Morgunblaðið/Golli
ATLANTSSKIP stefna að því
að bjóða allt að 20% lægri
gjöld á sjófrakt til Evrópu, en
félagið er að hefja áætlunar-
siglingar á milli Íslands og
Evrópu í næsta mánuði. Atl-
antsskip munu sigla á milli
Rotterdam í Hollandi og
Kópavogs á tíu daga fresti.
Með Evrópusiglingunum
verður Kópavogur alþjóða-
höfn.
„Við verðum ódýrari og
ætlum að leggja okkar af
mörkum til þess að stuðla að
lægra vöruverði á Íslandi og
til baráttunnar gegn verð-
bólgu. Við leggjum áherslu á
góða þjónustu og öryggi á
hafinu,“ segir Stefán Kjærne-
sted, framkvæmdastjóri Atl-
antsskipa, í samtali við Morg-
unblaðið.
Kópavogshöfn
besti kosturinn
Kópavogur verður alþjóð-
leg höfn með Evrópuflutning-
um Atlantsskipa sem flytja
skrifstofur sínar og 1.000 fer-
metra vöruhús í Kópavogi að
Vesturvör 29 við hafnarbakk-
ann þar sem skip félagsins
verða lestuð og losuð. Mikil
uppbygging hefur verið und-
anfarin ár í Kópavogshöfn.
„Kópavogshöfn var valin
vegna þess að við vildum vera
þar sem við gætum haft fram-
tíðarhöfn okkar. Þetta töldum
við besta kostinn eftir að hafa
skoðað bæði í Reykjavík og
Hafnarfirði. Þarna er mjög
góð aðstaða, til dæmis er ver-
ið að undirbúa gámavöll sem
er um tíu þúsund fermetrar.
Einnig er mjög góð vöru-
skemma þarna sem við höfum
tekið á leigu. Þetta er allt
sem við þurfum. Kópavogur
er einnig miðsvæðis og við
höfum trú á að bæjarfélagið
sé ört vaxandi og miðja at-
hafnalífsins að færast hing-
að,“ segir Stefán Kjærnested.
Atlantsskip sigla
milli Kópavogs og
Rotterdam
Stefna
að lægri
farm-
gjöldum
Stefna að/20
„MÉR finnst þetta mjög áhugaverður kostur og
við munum leggja okkur fram við að ná honum í
höfn,“ segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra um hugmyndir bandarísks stálfyrirtækis
sem óskað hefur eftir aðstöðu til að reisa stálpípu-
gerð við Helguvíkurhöfn í Reykjanesbæ. Ráð-
herra kynnti málið fyrir samráðherrum sínum á
ríkisstjórnarfundi í gær.
Eigendur bandarísks stálfyrirtækis hafa átt í
könnunarviðræðum við stjórnvöld og bæjaryfir-
völd í Reykjanesbæ um byggingu stálpípuverk-
smiðju í Helguvík. Fyrirtækið hyggst flytja inn
hráefni frá Austur-Evrópu, framleiða þar stálpíp-
ur til sérstakra iðnaðarnota og selja á Evrópu-
markaði og ef til vill í Norður-Ameríku. Fram-
leiðsla þessi félli undir tollaákvæði Evrópska
efnahagssvæðisins og nyti þess við sölu á Evr-
ópumarkaði.
Talið er að uppbygging verksmiðju við Helgu-
vík myndi kosta um 4 milljarða króna og að um
250 manns fengju vinnu við framleiðsluna í upp-
hafi.
Jákvæð áhrif á efnahaginn
Að lokinni athugun á fleiri kostum í Evrópu
hafa fulltrúar fyrirtækisins valið Helguvík og
verða nú teknar upp formlegar samningaviðræð-
ur við bæjaryfirvöld og Hafnasamlag Suðurnesja
um aðstöðuna. Er við því búist að endanlegir
samningar gætu legið fyrir á síðari hluta ársins.
Valgerður Sverrisdóttir segist leyfa sér að vona
að bandaríska fyrirtækinu sé full alvara með að
ráðast í þetta verkefni í ljósi þess að það hafi nú
valið Helguvíkurhöfn og ekkert hafi enn komið
fram sem bendi til annars en það geti gengið eftir.
Ráðherra sagði jákvætt ef það yrðu til 250 störf
við verksmiðjuna og mikil umsvif sköpuðust einn-
ig við byggingu hennar. Þá væri mikilvægt fyrir
efnahagslífið að fá aukna starfsemi, ekki síst
vegna þess samdráttar sem verið hefði.
Viðræður um 250 starfsmanna
stálpípuverksmiðju í Helguvík
Framleiða/16
SNÓTIR af öllum stærðum og
gerðum streymdu á vinnustaði for-
eldra sinna í gær, en sá dagur var
tileinkaður verkefninu „Dæturnar
með í vinnuna“ sem Auður í krafti
kvenna stendur fyrir. Dætur
starfsmanna Morgunblaðsins létu
sig ekki vanta í húsakynni blaðsins
í gær og notuðu þær tækifærið til
að skoða vinnustað mömmu eða
pabba í krók og kima. Á myndinni
má sjá þær í prentsmiðjunni þar
sem þær fræddust um starfið og
er ekki að sjá annað en að fylgst
sé með útskýringunum af athygli.
Stúlkur
kynntu sér
starfið
Stúlknafjöld/11