Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 59
DAGBÓK
Innilegar þakkir til vina og vandamanna sem
heiðruðu mig á áttræðisafmæli mínu hinn
2. mars. Lifið heil.
Þráinn Þórisson.
Söngnámskeið
fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa
Fjögurra vikna vornámskeið
hefst 7. apríl nk.
Upplýsingar og skráning í símum
699 2676 og 426 8306
Söngsetur Estherar Helgu,
Bolholti 4, Reykjavík.
ÞRETTÁN íslensk pör
voru í hópi þeirra 405 para
sem tóku þátt í Evrópu-
mótinu í blönduðum flokki
í Ostend í Belgíu um miðj-
an mánuðinn. Keppt var
bæði í tvímenningi og
sveitakeppni. Bryndís Þor-
steinsdóttir og Ómar Ol-
geirsson komust í 130 para
úrslit tvímenningskeppn-
innar, en gekk illa á loka-
sprettinum og enduðu í
116. sæti. Sveit Önnu Ív-
arsdóttur stóð sig best í
sveitakeppninni, varð í 28.
sæti af 92 sveitum. Sveitin
„Alla“ kom næst í 47. sæti,
en hafði verið í toppbarátt-
unni fram að lokaumferð-
unum.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 62
♥ KDG83
♦ 1098
♣KG6
Vestur Austur
♠ 1073 ♠ ÁDG54
♥ 9752 ♥ Á6
♦ D3 ♦ 76542
♣10985 ♣2
Suður
♠ K98
♥ 104
♦ ÁKG
♣ÁD743
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass 1 spaði 1 grand
Pass 2 tíglar * Pass 2 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
* Yfirfærsla.
Spilið að ofan kom upp
undir lok sveitakeppninnar
og nánast undantekningar-
laust varð suður sagnhafi í
þremur gröndum eftir
spaðaopnun austurs. Með
útspili í spaða sjást átta
slagir og flestir sagnhafar
reyndu við þann níunda
með því að svína fyrir
tíguldrottningu. Sem er
kannski eðlileg leið í ljósi
sagna, en illa til fundin í
þessari legu. Hið merki-
lega við spilið er nefnilega
það að svíningin í tígli er
óþörf!
Sjáum til. Inni á spaða-
kóng byrjar sagnhafi á því
að háma í sig fimm slagi á
lauf.
Norður
♠ --
♥ KDG
♦ 1098
♣ --
Vestur Austur
♠ 10 ♠ G5(4)
♥ 975 ♥ Á
♦ D3 ♦ 76(5)
♣ -- ♣ --
Suður
♠ 9
♥ 104
♦ ÁKG
♣ --
Austur á eftir að henda
af sér í fimmta laufið. Ef
hann kastar spaða getur
sagnhafi áhyggjulaus sótt
slag á hjarta, svo vænt-
anlega hendir austur tígli.
Þá ljóst að hann er kominn
niður á tvo tígla og þar
með er óhætt að spila litn-
um ofanfrá! Ágóðinn felst í
því að næla í Dx í bak-
höndinni.
Þetta er dæmigerð „bók-
arlega“.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur miklar gáfur og ert
fljótur að tileinka þér nýja
hluti. Þú gefur ekki þitt eftir
fyrr en í fulla hnefana.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þegar allt kemur til alls er
það vináttan sem skiptir
mestu máli. Sinntu því vinum
þínum og gefðu þér tíma til að
hlusta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur reynst hollt að
draga sig aðeins í hlé frá
skarkala lífsins. Gefa sér tíma
til íhugunar og nota tóm-
stundirnar á uppbyggilegan
máta.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki vera of upptekin(n) af
því sem aðrir á vinnustaðnum
eru að segja eða gera. Vertu
þú sjálfur og sýndu frum-
kvæði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vertu varkár og settu þig
ekki í neinar skuldbindingar
því þótt samningurinn hljómi
vel núna geta aðstæður
breyst fyrr en varir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú samþykkir að fara í
ferðalag. Hafðu fyrirhyggju
og góða stjórn á fjármálun-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert einum of ánægður með
sjálfan þig og hefðir gott af
því að sýna meiri auðmýkt
gagnvart öðrum og umhverfi
þínu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að sýna þolinmæði í
dag og þarft á öllu þínu að
halda, til að missa ekki stjórn
á skapi þínu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gefðu þér allan þann tíma
sem til þarf í að útfæra hug-
mynd þína og þá fyrst get-
urðu sett kraft í að fram-
kvæma hana.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki eru allir viðhlæjendur
vinir. Hafðu þetta í huga þeg-
ar til þín streyma yfirlýsingar
frá hinum og þessum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það verður reynt að bera í þig
einhverjar sögur, en mundu
bara að þú ert engu nær um
þann sem talað er um, heldur
um þann er mælir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver hefur mikla þörf fyr-
ir að gera allt til að gleðja þig.
Mundu bara að ekki er allt
sem sýnist.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það vefst eitthvað fyrir þér að
taka ákvörðun um framhaldið
í erfiðu máli. Hristu af þér
slenið og haltu ótrauður
áfram.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÚR NJÓLU
Meistari hinna mikli þú,
mig þinn andi hneigi,
svo hugurinn nokkuð hugsa nú
um hátign þína megi.
Nú er fögur næturstund,
nú ber skrautið frána
þakið bláa, er þandi mund
þín yfir höllu mána.
Lít eg sveima hæða hyl
herinn alskínandi;
því vill hefjast himna til
hugurinn lofsyngjandi.
Björn Gunnlaugsson
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 27.
mars, er áttræður Sigurður
Njálsson, fyrrverandi for-
stjóri Alþjóða líftrygginga-
félagsins, Efstaleiti 14,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Guðný Þorsteinsdóttir.
Þau verða að heiman á af-
mælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 27.
mars, er sjötug Geirþrúður
Charlesdóttir, aðalgjald-
keri, Urðarvegi 6 á Ísafirði.
Af því tilefni býður hún og
fjölskylda hennar ættingj-
um og vinum á tónleka í
Hömrum, sal Tónlistarskól-
ans, á afmælisdaginn kl.
20.30 og á eftir að þiggja
létta nátthressingu fyrir
svefninn.
70 ÁRA afmæli. 3. aprílnk. verður sjötug
Halldóra Traustadóttir frá
Grímsey. Hún og eiginmað-
ur hennar, Óli Hjálmar Óla-
son, taka á móti gestum á
Hótel KEA á Akureyri,
laugardaginn 30. mars kl.
19. Ættingjar og vinir eru
hjartanlega velkomnir.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4
exd4 4. Rxd4 Dh4 5. Rc3
Bb4 6. Be2 Dxe4 7. Rdb5
Bxc3+ 8. bxc3 Kd8 9. O-O
Rge7 10. He1 Dh4
11. Bf3 Dc4 12.
Hb1 a6 13. Rd4
Rxd4 14. cxd4 d5
15. Ba3 Rc6 16. Dc1
Be6 17. Be2 Dxd4
18. Hxb7 Kc8 19.
Hb3 Dh4 20. Bb2
Rd4 21. Bxd4 Dxd4
22. Da3 Df4 23.
De7 Dd6 24. Dxd6
cxd6 25. Heb1 Kc7
26. Hc3+ Kd8 27.
Hb7 Bd7 28. h4
He8 29. Bd3 h6 30.
f3 He1+ 31. Kf2
Ha1 32. a3 Hc8
Staðan kom upp á Ís-
landsmóti skákfélaga sem
haldið var í húsakynnum
Brimborgar. Helgi Ólafs-
son (2.520) hafði hvítt gegn
Arinbirni Gunnarssyni
(2.165). 33. Hxd7+! og
svartur gafst upp enda
verður hann manni undir
eftir 33...Kxd7 34. Bf5+.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Þorvaldur Halldórsson
í Grensáskirkju
ÞORVALDUR Halldórsson, söngv-
ari, verður sérstakur gestur á sam-
verustund aldraðra í Grensáskirkju í
dag, miðvikudaginn 27. mars.
Þorvaldur er landsmönnum að
góðu kunnur. Hann hefur í áratugi
verið einn ástsælasti dægurlaga-
söngvari þjóðarinnar en mörg síðari
árin starfað mikið á kirkjulegum
vettvangi og sungið trúarlega
söngva. Sem stendur er hann ráðinn
af prófastsdæmunum í Reykjavík til
að taka þátt í samverustundum á
vegum safnaðanna og flytja þar tón-
list.
Samverustundin í Grensáskirkju
hefst kl. 14 og að dagskrá lokinni er
kaffisopi og meðlæti sem Kvenfélag
Grensássóknar ber fram.
Aðgangur að samverustundinni
er að sjálfsögðu opinn öllum, óháð
aldri, kyni og búsetu.
Dymbilvika og páskar
í Hallgrímskirkju
AÐ venju verður helgihald með fjöl-
breytilegu sniði í Hallgrímskirkju í
dymbilviku og um páska.
Á skírdagskvöld verður messa
með altarisgöngu í umsjá séra Jóns
Dalbú Hróbjartssonar og að henni
lokinni verður svonefnd Getsemane-
stund, þar sem altari kirkjunnar
verður afskrýtt og komið fyrir alt-
arisklæði eftir frú Unni Ólafsdóttur
með mynd af pelíkana, sem er fornt
tákn písla Krists og friðþæging-
arinnar. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju munu annast söng
við guðsþjónustuna.
Á föstudaginn langa verður guðs-
þjónusta kl. 11 í umsjá séra Sigurðar
Pálssonar. Scola cantorum annast
söng í þeirri guðsþjónustu undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Lestur
Passíusálma hefst síðan kl. 13:30 og
mun Lára Bryndís Eggertsdóttir
leika á milli lestra. Um kvöldið, kl.
21, flytur Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Kammersveit Hallgríms-
kirkju, ásamt Mary Nessinger
mezzosópran og Garðari Thór Cort-
es tenór, Passíu eftir Hafliða Hall-
grímsson undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar.
Páskadag kl. 8 er hátíðarguðs-
þjónusta í umsjá séra Sigurðar Páls-
sonar og kl. 11 hátíðarmessa í umsjá
séra Jóns Dalbú Hróbjartssonar.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
við báðar guðsþjónusturnar undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Annan í
páskum er fermingarmessa kl. 11.
Helgihald á páskum
í Hjallakirkju
SKÍRDAGSKVÖLD, fimmtudaginn
28. mars kl. 20, verður passíustund í
Hjallakirkju, Kópavogi. Atburðir
skírdagskvöldsins verða rifjaðir
upp, þátttakendur í stundinni feta í
fótspor lærisveina Jesú er þeir áttu
samfélag við hann við stofnun heil-
agrar kvöldmáltíðar. Brauðið sem
neytt verður er sérbakað fyrir
stundina og verður því altaris-
gangan með óhefðbundnu sniði. Fé-
lagar í kór kirkjunnar leiða sálma-
sönginn.
Föstudaginn langa, 29. mars kl.
17, heldur Kammerkórinn Vox
Gaudiae passíutónleika. Á tónleik-
unum syngur kórinn passíuverk
ásamt einsöngvurum. Aðgangseyrir
er greiddur við innganginn. Um
kvöldið kl. 20 verður stund sem við
nefnum: Kvöldvöku við krossinn. Þá
er leitast við að lifa atburði dagsins á
myndrænan hátt og minnast dauða
Krists með táknrænum hætti. Í kór-
dyrum kirkjunnar verður reistur
kross sem minnir á krossinn á
Golgata-hæð, þann sem frelsari okk-
ar og Drottinn var negldur á og líf-
látinn. Við hann munu fermingar-
börn lesa sjö orð Krists á krossinum.
Fólk úr kirkjustarfinu annast lestur
píslarsögunnar og kór kirkjunnar
leiðir safnaðarsöng. Þátttakendur í
kvöldvökunni yfirgefa kirkjuna
myrkvaða. Í henni verða ekki tendr-
uð ljós fyrr en árla á páskadags-
morgun. Þá hefst hátíðarguðsþjón-
usta kl. 8 árdegis, sannkölluð
upprisuhátíð. Kór kirkjunnar syng-
ur og leiðir safnaðarsöng. Að guðs-
þjónustu lokinni er kirkjugestum
boðið í morgunkaffi. Fólk er hvatt til
að leggja leið sína í Hjallakirkju yfir
páskahátíðina.
KIRKJUSTARF