Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 11
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
lagði í gær lögbann á að Fréttablað-
ið seldi og birti smáauglýsingar í
blaðinu eins og þær hafa birst undir
nafninu flokkaðar auglýsingar. Lög-
bannið var lagt á að kröfu Útgáfu-
félags DV. Fulltrúi sýslumanns
féllst á réttmæti lögbannsbeiðninn-
ar á mánudagsmorgun gegn því að
DV legði fram tryggingu sem barst
í gær og tók lögbannið þá gildi.
Skv. upplýsingum frá DV nema
tryggingar vegna lögbannsins 10
milljónum króna, þar af voru sjö
lagðar fram í gær. Útgáfufélag DV
þarf að höfða staðfestingarmál fyrir
héraðsdómi innan viku frá gildis-
töku lögbannsins.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnistofnunar segir að fregnir af
lögbanninu og af samningi eigenda
DV og Fréttablaðsins hafi vakið at-
hygli stofnunarinnar. Hugsanlegt
sé að stofnunin kalli eftir samningn-
um og meti hvort hann sé í sam-
ræmi við samkeppnislög.
Skýrt ákvæði í samningum
Hjalti Jónsson, framkvæmda-
stjóri DV, segir að lögbannskrafan
byggist á ákvæði í kaupsamningi
sem gerður var í desember á milli
núverandi eigenda DV og Frjálsrar
fjölmiðlunar, sem seldi hlut sinn í
útgáfunni, þess efnis að FF skuld-
bindi sig til þess að fara ekki út í
samkeppni við DV á sviði smáaug-
lýsinga. Mjög skýrt sé kveðið á um
þetta í samningnum. Þar sé kveðið
á um að til ársloka 2004 muni FF,
dótturfélög eða hlutdeildarfélög
ekki stofna til samkeppni með bein-
um eða óbeinum hætti m.a. með
sölu smáauglýsinga.
,,Við höfðum áður með vísan til
þessa samnings ritað forsvars-
mönnum Fréttablaðsins og Frjálsr-
ar fjölmiðlunar bréf og óskað eftir
að þeir virtu samkomulagið og
hættu birtingu þessara auglýsinga.
Við því var ekki orðið þannig að við
sáum okkur knúna til að grípa til
þessa réttarfarslega úrræðis til
þess að staðið yrði við gerða samn-
inga,“ sagði Hjalti. Það sem hefði
vakað fyrir FF með því að skrifa
undir fyrrgreindan samning hefði
verið að auka söluverðmæti DV og
að sama skapi hefði þetta ákvæði
bein áhrif á gengi hlutabréfa í DV.
Að því gefnu að Fréttablaðið ætlaði
sér að virða lögbannið sagðist Hjalti
ekki búast við að sjá smáauglýs-
ingar í Fréttablaðinu í dag.
Eigandur DV og FF greinir ekki
eingöngu á um auglýsingar því
Hjalti segir að Fréttablaðið hafi
notað ljósmyndir DV í heimildar-
leysi frá því í janúar á þessu ári.
Þegar Fréttablaðið hóf göngu sína
fyrir tæplega ári var gerður munn-
legur samningur um aðgang
Fréttablaðsins að ljósmyndasafni
DV og fyrir þjónustu ljósmyndara
DV. Á haustmánuðum hefði verið
leitað eftir því að gera skriflegan
samning og hækka gjaldið. Því
hefði aldrei verið svarað en Frétta-
blaðið haldi engu að síður áfram að
nota myndirnar. Þá hefðu þeir
byggt upp myndasafn blaðsins með
myndum úr safni DV og frá ljós-
myndurum blaðsins. Í þessu fælist
brot á höfundarrétti ljósmyndara
og DV. Haft hefði verið samband
við Blaðamannafélag Íslands vegna
málsins.
Kröfur DV fráleitar
Helgi Jóhannesson, hrl. og lög-
maður Fréttablaðsins, segir kröfur
DV fráleitar. Ekki sé verið að
brjóta umræddan samning með
birtingu smáauglýsinga í Frétta-
blaðinu. ,,Þeir byggja á samningi
sem gerður var þegar Frjáls fjöl-
miðlun seldi DV og í þeim samningi
er kveðið á um að Frjáls fjölmiðlun
og dótturfyrirtæki stofni ekki til
nýrrar samkeppni við DV en þegar
samningurinn var gerður hafði
Fréttablaðið komið út í hálft ár og
það var ekki aðili að þessum samn-
ingi. Í samningnum var eingöngu
verið að taka fyrir nýja samkeppni
af hálfu Frjálsrar fjölmiðlunar.
Fréttablaðið hefur alltaf verið aug-
lýsingablað þannig að allar sam-
keppnishömlur á það hljóta að vera
túlkaðar mjög þröngt,“ sagði Helgi.
Hann benti auk þess á að Frjáls
fjölmiðlun ætti einungis um 24%
hlut í Fréttablaðinu í dag þannig að
Fréttablaðið sem slíkt gæti ekki
verið bundið við þann samning.
Áfram litlar auglýsingar
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri
Fréttablaðsins, segir að blaðið hafi
aldrei birt smáauglýsingar heldur
hafi litlar auglýsingar í blaðinu ver-
ið nefndar flokkaðar auglýsingar.
Það hafi verið gert áður en FF seldi
hlut sinn í DV og lögbannið geti
varla náð til auglýsinga sem birtust
áður en sölusamningurinn var gerð-
ur.
Fréttablaðið muni taka tillit til
lögbannsins en muni eftir sem áður
selja og birta litlar auglýsingar
enda hafi enginn bannað það. Gunn-
ar Smári minnir á að málið eigi eftir
að fara fyrir héraðsdóm þar sem
tekist verður á um efnisatriði máls-
ins og er hann sannfærður um að
lögbanninu verði hnekkt.
Aðspurður hvort Fréttablaðið
hafi notað ljósmyndir úr mynda-
safni DV í heimildarleysi og ekki
greitt fyrir ljósmyndaþjónustu eins
og Hjalti Jónsson, framkvæmda-
stjóri DV heldur fram, segir Gunn-
ar Smári að það sé af og frá.
Í sölusamningi FF og núverandi
eigenda DV hafi verið vísað til
samnings Fréttablaðsins um ljós-
myndaþjónustu og kveðið á um að
FF hefði sambærilegan aðgang og
Fréttablaðið að ljósmyndasafni DV.
Fáeinum dögum eftir að FF seldi
hlut sinn í DV hafi DV á hinn bóg-
inn hætt að veita Fréttablaðinu
ljósmyndaþjónustu en Gunnar segir
að skv. sölusamningnum hafi
Fréttablaðið áfram fullan rétt á að
nýta sér myndasafnið. Varðandi
greiðslur fyrir ljósmyndaþjón-
ustuna segir hann að öllum hafi ver-
ið ljóst að þær færu fram í end-
anlegu uppgjöri milli FF og
núverandi eigenda DV. Því uppgjöri
væri ekki lokið.
Lögbann á smáauglýs-
ingar Fréttablaðsins
VOPNALEIT og gegnumlýsing af
farangri getur orðið að veruleika í
innanlandsflugi hér á landi ef drög
að nýrri reglugerð Evrópusam-
bandsins verða samþykkt. Myndi
það þýða verulegan útgjaldaauka í
innanlandsfluginu.
Þetta kom fram í máli Þorgeirs
Pálssonar flugmálastjóra á mál-
þingi um samgönguáætlun 2003-
2014 sem haldið var í fyrradag.
Sagði hann að nú væri svokölluð
flugvernd (Airport Security) á
Keflavíkurflugvelli og öðrum al-
þjóðlegum flugvöllum. Flugvernd-
in felst í fyrirbyggjandi aðgerðum
til að koma í veg fyrir ólögmætar
uppákomur sem geta beinst gegn
öryggi flugsamgangna. Sagði Þor-
geir standa til um næstu áramót
að taka upp gegnumlýsingu á öll-
um farangri sem fer í lestarrými í
flugvélum í millilandaflugi. „Hver
einasta taska fer þá í gegn um
grandskoðun og sömuleiðis allur
flutningur,“ sagði hann.
Myndi gilda fyrir allar vélar
sem flytja fleiri en 19 farþega
Hingað til hafa minni varúðar-
ráðstafanir verið viðhafðar hvað
þetta varðar í innanlandsflugi en
að sögn Þorgeirs getur það breyst.
„Samkvæmt drögum að reglugerð
Evrópusambandsins sem er núna í
meðhöndlun á Evrópuþingi er
þetta það sem koma skal líka fyrir
innanlandsflugið, þ.e.a.s. á öllu
Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta
mun gilda fyrir allar vélar sem eru
yfir 10 tonn eða flytja fleiri en 19
farþega. Auðvitað er ekki auðvelt
að koma þessu við. Þetta kostar
gríðarlega fjármuni og það er ljóst
að ef þarf að taka þetta upp hér á
landi í óbreyttu formi yrði þetta
feiknalega dýrt.“
Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að flugfélög í innanlandsflugi
hafa tapað 1,7 milljörðum króna á
síðustu fjórum árum. Hins vegar
kom ekki fram í máli Þorgeirs
hver myndi bera þennan kostn-
aðarauka, flugfélög, farþegar eða
stjórnvöld.
Gætum fengið
sérskilmála
Sagði Þorgeir menn hins vegar
gera sér vonir um að hægt yrði að
semja um aðra skilmála fyrir Ís-
land. „Við erum langt í burtu frá
öðrum löndum og vélar í innan-
landsflugi hérna komast yfirleitt
ekki til annarra landa því þær eru
ekki með nægilegt eldsneyti til
þess. Okkar innanlandskerfi er
auðvitað alveg aðskilið, bæði land-
fræðilega og á annan hátt þannig
að það fer ekkert á milli hvorki
farþegar né farangur. Þannig að
það eiga að vera forsendur til þess
að við getum fengið svolítið aðra
skilmála fyrir innanlandsflugið en
hverjir þeir verða er ekki ljóst á
þessari stundu,“ sagði hann.
Drög að nýrri reglugerð ESB
Flugvernd komi
í innanlandsflugi
SJALDAN hefur hlutfall
kvenna verið jafn hátt á
vinnustöðum vítt og breitt
um landið og raunin var í
gær þegar stúlkur gerðu
innreið á vinnustaði for-
eldra sinna. Ekki var þó
um yfirtöku að ræða held-
ur friðsamlega heimsókn
sem helgaðist af verkefn-
inu „Dæturnar með í vinn-
una“ sem Auður í krafti
kvenna á veg og vanda af.
Það er orðinn árlegur
viðburður að foreldrar og
aðrir fullorðnir bjóði frísk-
um stelpum með sér í vinn-
una á degi sem sérstaklega
er tileinkaður þessu verk-
efni. Dagurinn er ætlaður
stúlkum á aldrinum 9–15
ára en markmiðið með
verkefninu er að kynna
þeim þau atvinnutækifæri
sem til eru enda eru ungar
stúlkur í dag starfskraftar
framtíðarinnar.
Fjöldi fyrirtækja tók
vel á móti stúlkunum
Fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir tóku vel á móti
dætrum landsins og mátti
meðal annars sjá þær
hasla sér völl í bönkum,
hjá lögreglunni, endur-
skoðendum, fjármála- og
tryggingarfyrirtækjum,
auk þess sem ýmis opinber
fyrirtæki og bæjarfélög
létu ekki sitt eftir liggja
við að taka vel á móti telp-
unum.
Í gær var því nokkuð al-
gengt að sjá lágvaxna
kvenkyns framkvæmda-
stjóra, borgar- og bæj-
arfulltrúa, blaðamenn,
mjólkurfræðinga, skóla-
fulltrúa og svo mætti lengi
telja. Er óhætt að segja að
rödd ungra stúlkna hafi
fengið að hljóma vítt og
breitt um landið af þessu
tilefni.
Morgunblaðið/Sverrir
Dætur starfsmanna bæjarskrifstofanna í Mosfellsbæ mættu galvaskar í vinn-
una hjá foreldrum sínum í gær. Stelpurnar fóru í hlutverk bæjarstjórnar þar
sem þær lögðu m.a. til að skóladagurinn yrði styttur. Þurfti hin „nýja“ bæj-
arstjórn að vísa þessu róttæka erindi til umsagnar fræðslunefndar bæjarins.
Morgunblaðið/Júlíus
Ekki vantaði kvenkyns löggæslumenn og fengu nokkrar dætur lögreglumanna
að prófa Harley Davidson-mótorhjól hjá Árna Friðleifssyni varðstjóra. Er ekki
annað að sjá en gripurinn freisti og hver veit nema að eftir nokkur ár megi sjá
þessar sömu stúlkur þjóta um á mótorhjólum merktum lögreglunni.
Stúlkna-
fjöld á
starfs-
vett-
vangi
Morgunblaðið/Kristinn
Telpur sóttu meðal annars slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi heim þar sem þær fengu innsýn í störf þeirra sem þar hlúa að slösuðu fólki.
TÖLUVERÐUR reykur
myndaðist í íbúðarhúsi á Ólafs-
vík í gær eftir að húsráðandi
kveikti undir röngum potti á
eldavél. Að því búnu brá hann
sér frá í stutta stund og ekki
leið á löngu þar til reykur tók
að liðast upp úr pottinum
Nágrannar heyrðu í reyk-
skynjara og gerðu slökkviliði
viðvart kl. 15:47. Slökkviliðs-
menn komu á vettvang tveimur
mínútum síðar og slökktu þeir í
pottinum og reykræstu. Talið
er að nokkrar skemmdir hafi
orðið af völdum reyks.
Kveikti
undir röng-
um potti
BROTIST var inn í úra- og
skartgripaverslun í Hamra-
borg í Kópavogi í fyrrinótt.
Rúða var brotin í verslun-
inni um klukkan 3:30. Þjófa-
varnarkerfi fór í gang en þjóf-
inum, eða þjófunum, tókst
engu að síður að komast í
burtu með talsvert magn úra
og skartgripa. Ekki var ljóst í
gær hvert verðmæti þýfisins
er, að sögn lögreglunnar í
Kópavogi.
Úrum og
skartgrip-
um stolið