Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, lagði áherslu á sjálfbæra þróun í alþjóðlegu samhengi í ræðu sinni um utanríkismál á Alþingi í gær. „Sjálfbær þróun þýðir einfald- lega að við búum í sátt og samlyndi við umhverfi okkar og samfélag og skilum betra búi til afkomendanna,“ sagði ráðherra. „Með sjálfbærri þróun leitum við [...] leiða til að há- marka efnahagslega og félagslega velferð án þess að skaða grunngæði jarðar eða möguleika komandi kyn- slóða á að njóta sams konar eða meiri velferðar.“ Utanríkisráðherra sagði að við gætum gert ýmislegt hér heima fyr- ir til að vinna að sjálfbærri þróun en staðreyndin væri sú að við gætum ekki náð því markmiði ein. „Við bú- um í heimi hnattvæðingar og erum því stöðugt háð utanaðkomandi straumum og áhrifum. Ég þarf vart að minna á þær afleiðingar sem myndu verða af geislamengun í haf- inu. Markaðir okkar fyrir fisk myndu hverfa á svipstundu. Það skiptir okkur líka verulegu máli hvaða augum heimsbyggðin lítur líf- ríki jarðar og nýtingu þess. Þetta höfum við fengið að reyna í hval- veiðimálum og því miður er ýmis dæmi að finna um svipaðan áróður gegn fiskveiðum.“ Í máli ráðherra kom fram að það væri skýlaus skoðun þorra Íslend- inga að nýta bæri allar lifandi auð- lindir hafsins með sjálfbærum hætti, þar með talið hvali. „Af Ís- lands hálfu hefur verið lögð áhersla á þátttöku í alþjóðlegu samstarfi í hvalveiðimálum á vettvangi þeirra alþjóðastofnana sem fjalla um þau mál.“ Ráðherra rifjaði upp að Ís- lendingar hefðu í fyrra aftur gerst aðilar að Alþjóðahvalveiðiráðinu með fyrirvara þó við núllkvóta ráðs- ins vegna hvalveiða í atvinnuskyni. „Á ársfundi ráðsins í fyrra ákvað það að hafna fyrirvara Íslands og þar með aðild okkar. Við lítum svo á að þessi ákvörðun sé ógild þar sem ráðið hafi ekki verið bært til að taka hana. Ákvörðunin er því að engu haf- andi og hefur engin áhrif á stöðu Ís- lands sem aðila að ráðinu. Sú staða er nú uppi að sum aðildarríki Al- þjóðahvalveiðiráðsins viðurkenna aðild Íslands að ráðinu en önnur ekki. Í ljósi þess höfum við átt tví- hliða viðræður við fjölda aðildar- ríkja í því skyni að ná sem víðtæk- astri sátt um aðild okkar að ráðinu fyrir næsta ársfund þess … í maí.“ Umhverfislöggjöf ábótavant Utanríkisráðherra vék í ræðu sinni nokkrum orðum að samningn- um um Evrópska efnahagssvæðið og aðild Íslands að honum. „Með að- ild okkar að EES-samningnum gerðumst við þátttakendur í öflugu umhverfisstarfi Evrópu. Þetta sam- starf hefur fært okkur virka um- hverfislöggjöf en henni var um margt ábótavant fyrir gerð samn- ingsins. Umhverfislöggjöf og verk- efni Evrópusambandsins hafa einn- ig haft verulega þýðingu í þeirri baráttu að vernda hafið fyrir meng- un frá þéttbýli og iðnaði í Evrópu. Ísland á allt undir því að matarkista hafsins verði sem hreinust. Það er því mikilvægt að við tökum virkari þátt í bæði framkvæmd og þróun umhverfislöggjafar Evrópu. Þetta á ekki síst við um sveitarfélögin sem eru ábyrg fyrir því að framkvæma stóran hluta af þessari löggjöf. Áhersla hefur verið lögð á að efla samstarf við sveitarfélögin og að- komu þeirra að Evrópusamstarf- inu.“ Sagði ráðherra síðan að mik- ilvægt væri að vinna áfram með ESB að brautargengi sjálfbærrar þróunar bæði á Evrópska efnahags- svæðinu og í alþjóðlegri samvinnu. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að vax- andi umræða um Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands að því að undanförnu hefði leitt til þess að Íslendingar vissu meira um Evrópu en áður. „Þetta hefur leitt til þess að skoðanakannanir sýna það núna að vaxandi fjöldi Íslendinga vill að Ís- land verði innan Evrópusambands- ins.“ Vísaði Össur til nýlegrar skoð- anakönnunar Samtaka iðnaðarins, þar sem kom fram að rúmlega 90% Íslendinga vilja hefja aðildarviðræð- ur við ESB til að kanna hvað Íslandi standi til boða við aðild. Í sömu könnun kom fram að 52% þjóðar- innar væri hlynnt aðild Íslands að ESB. „Ég held að ef við sækjum um aðild að Evrópusambandinu verði það að vera gert með þeim einbeitta vilja að við náum samningum sem verða viðunandi og verða samþykkt- ir í þjóðaratkvæðagreiðslu [...]. Þess vegna var mér það miklu meira virði sem stuðningsmanni þess að við gerumst aðilar að Evrópusamband- inu að það hafi orðið umtalsverð sveifla frá þeim sem voru andvígir aðild til þeirra sem vildu það. Um 52% þeirra sem spurðir voru vildu aðild að ESB en einungis 25% voru því andvígir.“ Vísaði Össur þarna aftur til skoðanakönnunar Samtaka iðnaðarins. Og áfram hélt Össur: „Ástæðan fyrir því að Íslendingar velta því nú fyrir sér í vaxandi mæli að gerast aðilar að Evrópusamband- inu er auðvitað sú að það hefur komið í ljós með aukinni umræðu og aukinni þekkingu að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefur veðrast nokkuð; hann mun ekki til langframa þjóna hagsmunum okkar eins og æskilegast væri.“ Össur bætti því við að hann væri þeirrar skoðunar að EES-samning- urinn væri mikilvægasti viðskipta- samningur sem Íslendingar hefðu gert. Hann ætti stærstan hlut af því góðæri sem ríkt hefði hér á landi á síðustu árum. Tapa ekki fullveldinu Össur fjallaði áfram um hugsan- lega aðild Íslands að ESB og sagði m.a. að Íslendingar myndu ekki, eins og sumir héldu fram, tapa enn- frekar fullveldi sínu með inngöngu í ESB. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé hægt að færa gild rök fyrir því að innganga í Evrópusambandið leiði til þess að við endurheimtum nokkuð af því fullveldi sem sann- arlega tapaðist þegar við gengum í EES.“ Sagði Össur að eftir að við hefðum gengið í EES árið 1993 hefðu orðið breytingar á Evrópu- sambandinu sem hefðu leitt til þess að við hefðum ekki sömu áhrif á lög og reglur sem okkur varðaði eins og áður. „Með því að ganga í Evrópu- sambandið myndum við Íslendingar treysta fullveldi okkar miðað við óbreyttan EES-samning, fullveldi sem við erum hægt en bítandi að tapa misseri frá misseri.“ Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, minnti á að niðurstaða VG í Evrópuumræðunni væri skýr: „Það er ekki fýsilegt fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.“ Síðar sagði Steingrímur eftirfarandi um Evrópumál: „Ég sé engin sérstök vandamál í stöðu Íslands eins og hún er í dag. Okkur hefur vegnað prýðilega þessi fimmtíu ár sem við höfum verið sjálfstætt lýðveldi og haft fullt forræði, fullan sjálfs- ákvörðunarrétt og fullan samnings- rétt í okkar málum. Sagan er öll til marks um það hversu dýrmætur þessi sjálfsákvörðunarréttur og samningsréttur hefur verið okkur.“ Á grundvelli sjálfsákvörðunarréttar okkar, sagði Steingrímur, höfum við gætt okkar hagsmuna, ekki síst á sviði sjávarútvegs. Steingrímur sagði ennfremur að engin efnisleg rök styddu þær hugmyndir að Ís- lendingar „kæmust upp með ann- að“, eins og hann orðaði það, en að gangast undir sameiginlegu sjávar- útvegsstefnu Evrópusambandsins. „Og hún er hættuleg,“ sagði hann um sjávarútvegsstefnu ESB. Hann sagði að ef Íslendingar gengju inn í ESB myndu þeir missa sjálfstæðan samningsrétt í sjávarútvegsmálum. „Ákvarðanir um heildarveiði kvóta færast til Brussel. Því mælir enginn á móti. Og hvort sem okkur tækist hugsanlega að fá eitthvað meira sjálfstæði gagnvart nýtingu þess sem fengist viðurkennt sem sérís- lenskir stofnar er eilíflega borin von að við fengjum það gagnvart deili- stofnum og flökkustofnum.“ Hvalveiðar hefjist sem fyrst Sigríður Anna Þórðardóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og for- maður utanríkismálanefndar Al- þingis, þakkaði utanríkisráðherra í upphafi ræðu sinnar fyrir að beina kastljósinu að sjálfbærri þróun en á hana hefðu Íslendingar lagt áherslu í alþjóðlegu samstarfi. „Íslendingar hafa lengi notið virð- ingar fyrir sjávarútvegsstefnu sína, einkum fyrir það að hér á landi er sjávarútvegur arðbær atvinnugrein en jafnframt er lögð áhersla á að vernda fiskistofnana og koma í veg fyrir ofveiði. Mikilvægt er í þessu sambandi að nýta allar tegundir líf- vera í hafinu umhverfis landið sem nýtanlegar eru; þar á meðal hvali. Hvölum við Ísland hefur fjölgað mjög hratt síðan hvalveiðar lögðust af og stefnir í óefni ef ekkert er að gert. Hvalveiðar eru liður í sjálf- bærri sjávarútvegsstefnu og það ber að hefja hvalveiðar að nýju sem allra fyrst.“ Sigríður Anna vék eins og aðrir þeir sem til máls tóku einnig nokkr- um orðum að EES-samningnum og þýðingu hans fyrir Íslendinga. Ítrekaði hún þá skoðun sína að það hefði verið gæfuspor fyrir okkur Ís- lendinga þegar samningurinn var lögfestur á Alþingi árið 1993. „Samningurinn tryggir okkur að- gang að innri markaði Evrópusam- bandsins og stendur enn fyllilega undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans á sínum tíma og hefur gagnast okkur afar vel.“ Sigríður Anna minnti á að utan- ríkisráðherra hefði beitt sér fyrir því innan EFTA að EES-samning- urinn yrði uppfærður í fyrsta lagi varðandi efnislega aðlögun samn- ingsins, í öðru lagi varðandi trygg- ari þátttöku Íslendinga í nefndum og í þriðja lagi varðandi aukin áhrif Íslendinga á störf stofnana ESB. „Einnig er endurskoðun bókunar níu, sem lýtur að tollfrjálsum við- skiptum með sjávarafurðir, verkefni sem nauðsynlegt er að skoða,“ sagði hún. „Þessar hugmyndir hafa enn þá ekki fengið undirtektir af hálfu ESB en ég veit að hæstvirtur utan- ríkisráðherra mun áfram hamra það járn.“ Umræður um utanríkismál fóru fram á Alþingi langt fram eftir degi í gær og tóku margir þingmenn til máls. Í umræðunum var utanrík- isráðherra, Halldór Ásgrímsson, m.a. spurður að því hvaða líkur hann teldi á því að ESB myndi sam- þykkja það að EES-samningurinn yrði „uppfærður að nýjum og breyttum aðstæðum“. Í svari sínu ítrekaði ráðherra að ESB hefði lýst sig reiðubúið að standa að breyt- ingum á EES-samningnum. „Hins vegar hafa yfirlýsingar þeirra geng- ið í þá átt að þeir væru ekki tilbúnir til þeirra starfa fyrr en að stækk- unarferli ESB loknu. Ég tel það allsendis ófullnægjandi, einkum vegna þess að stækkunarferlið mun taka nokkurn tíma og þá er eftir fullgildingarferlið sem mun taka mörg ár án þess að ég ætla að skil- greina það hve langur tími það verð- ur. Miðað við þær aðstæður getum við gert ráð fyrir óbreyttum samn- ingi að þessu leyti til margra ára.“ Þingmenn ræddu alþjóðamál á Alþingi í gær þegar utanríkisráðherra lagði fram skýrslu sína Verður EES-samn- ingurinn óbreyttur til margra ára? Morgunblaðið/Golli Alþjóðamál einkenndu umræðurnar á Alþingi í gær. Hér má sjá Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra beina orðum sínum til Steingríms J. Sig- fússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Alþjóðamál einkenndu umræður á Alþingi í gær en þá flutti utanríkisráðherra árlega ræðu sem tileinkuð er þessum málaflokki. Arna Schram fylgdist með umræðunum en þar kom m.a. fram í máli utanríkisráðherra að við gætum gert ráð fyrir óbreyttum EES-samningi til margra ára. arna@mbl.is Í SKÝRSLU utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, um al- þjóðamál sem lögð hefur verið fram á Alþingi kemur fram að á síðasta ári hafi verið teknar 165 ákvarð- anir sem bættu 401 nýrri reglugerð inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Stór hluti ákvarðana sem tekinn er inn í EES-samninginn er tækni- legs eðlis, að því er fram kemur í skýrslunni, og snýr fremur að við- haldi og aðlögun að breytingum í tækni eða atvinnuháttum. „Ýmsar ákvarðanir geta þó haft umtalsverð efnahagsleg áhrif og breytt ýmsum forsendum í pólitískri umræðu.“ Í skýrslunni segir að rekstur EES-samningsins krefjist stöð- ugrar árvekni og að mikilvægt sé að hvergi slakni á við undirbúning ákvarðana sameiginlegu nefnd- arinnar sem bætast við samninginn. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að við upphaf síðasta árs hafi safn- ast upp mikill fjöldi gerða sem teknar höfðu verið inn í samninginn en ekki verið þýddar. „Tafði þetta birtingu gerða um rúmt ár. Lýstu fulltrúar Evrópu- sambandsins óánægju með þessar aðstæður og töldu að gagnsæi og framkvæmd samningsins væri sett í hættu. Nú hefur duglega verið tek- ið til hendi og búast má við að um mitt þetta ár verði unnt að birta þýðingar því sem næst samhliða ákvarðanatöku í sameiginlegu EES-nefndinni. Jafnframt er stefnt að því að flýta þýðingum svo þær verði handbærar mun fyrr við und- irbúning laga og reglugerða og ætti það að verða til hagræðis fyrir alla þá sem vinna við framkvæmd samningsins,“ segir í skýrslunni. 401 ný reglugerð inn í EES-samninginn SÍÐASTI fundur fyrir páska var haldinn á Alþingi í gær. Næsti þingfundur er boðaður miðvikudaginn 3. apríl nk. Þingmenn í páskafrí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.