Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 53 GUÐNI Ágústsson landbún- aðarráðherra fékk fjölmennan hóp í ráðuneytið í síðustu viku þegar um 100 nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands komu í heimsókn í fylgd kennara. Tilgangur heimsóknarinnar, sem skipulögð var af skólanum, var að fræðast um starfsemi ráðu- neytisins, eðli starfa þar og stjórn- sýsluna almennt, en krakkarnir fóru einnig í fleiri stofnanir í sömu borgarferð. Meðal þeirra sem sett- ist í stól landbúnaðarráðherra var Leifur Gunnarsson frá Selfossi. Hafði hann orð á því að hann ætl- aði sér að setjast í þennan stól sem ráðherra árið 2020. Guðni sagði að Leifur tæki sig ágætlega út í stóln- um og aldrei að vita nema þessi áætlun ætti eftir að ganga upp. Forverinn yrði þó væntanlega ein- hver annar en hann sjálfur! Ætlar sér stólinn árið 2020! FÉLAG um verndun hálendis Austurlands, Náttúruverndarsam- tök Austurlands (NAUST) og Samtök um náttúruvernd á Norð- urlandi (SUNN) hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að samtökin skora á iðn- aðarráðherra að draga til baka frumvarp um virkjun við Kára- hnjúka og Kröflu. „Þetta gera samtökin í ljósi þess að Norsk Hydro er ekki tilbúið til að taka ákvörðun um þátttöku í álvers- framkvæmdum og því er ekki ljóst hvort eða hvenær orkukaupandi finnst. Varakrafa er frestun á af- greiðslu frumvarpsins því ástæðu- laust er að lögfesta leyfi til stór- felldustu náttúruspjalla í Íslandssögunni ef ekkert útlit er fyrir að orkan verði seld. Jafnframt skora samtökin á þingmenn Norðausturkjördæmis- ins að beita sér fyrir því að hraðað verði mati á þjóðgarði er næði frá Skaftafellsþjóðgarði að þjóðgarð- inum í Jökulsárgljúfrum og að gerð verði áætlun um friðlýsingu alls þessa svæðis. Telja samtökin að sú staða sem upp er komin gefi gott færi og tíma til þess,“ segir í frétt frá samtökunum. Frumvörp um Kárahnjúka og Kröflu verði dregin til baka Þrenn náttúruverndarsamtök skora á iðnaðarráðherra Á AÐALFUNDI Ferðafélags Ís- lands var Hjörleifi Guttormssyni af- hent svokölluð Pálsvarða, verðlaun úr minningarsjóði Páls Jónssonar. Verðlaunin eru veitt þeim sem þykir hafa skarað fram úr við kynn- ingu lands og þjóðar í máli og mynd- um, en eru ekki veitt árlega. Hjör- leifur Guttormsson hefur ritað mikið af landlýsingum, þ. á m. þrjár ár- bækur Ferðafélags Íslands og er sú fjórða væntanleg í byrjun maímán- aðar. Þá hefur hann tekið og birt mikinn fjölda ljósmynda af íslenskri náttúru og landslagi. Fyrri handhafar Pálsvörðu eru Hjálmar R. Bárðarson, sem hlaut viðurkenninguna 1995, Guðmundur Páll Ólafsson, 1996, og Ari Trausti Guðmundsson, 1999. Páll Jónsson starfaði mikið að málefnum Ferðafélags Íslands og sat m.a. í stjórn þess 1947 til 1987 og var ritari árbókar 1968-1982. Hann var mikill ferðamaður, náttúruunn- andi og góður ljósmyndari, segir í fréttatilkynningu. Ljósmynd/Gerður Steinþórsdóttir Haukur Jóhannesson, forseti Ferðafélags Íslands, afhendir Hjörleifi Guttormssyni Pálsvörðu á aðalfundi FÍ 14. mars sl. Viðurkenning úr Minningarsjóði Páls Jónssonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.