Morgunblaðið - 27.03.2002, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 27.03.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK 58 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanlegir Goða- foss og Brúarfoss og fara þeir aftur út ásamt Ásbirni RE og Arn- arfelli. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag fara út Brúarfoss og Otto. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin alla miðvikud. kl. 14–17, flóa- markaður, fataúthlutun og fatamóttaka, sími 552 5277, eru opin annan og fjórða hvern mið- vikud. kl. 14–17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað í síma Krabba- meinsráðgjafarinnar, 800 4040 kl. 15–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl 9 og kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13– 16 vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið, Hlaðhömrum, er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga föstudaga kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboð- um, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, á Hlað- hömrum fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi, s. 586 8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- og handa- vinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, guðs- þjónusta kl. 10.30, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrj- endur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Í dag verður línudans kl. 11, myndlist og pílukast kl. 13.30. Leikhúsferð mið- vikudaginn 10. apríl kl. 14 að sjá leikritin „Í lífs- ins ólgusjó“ og „Fugl í búri“ er Leikfélagið Snúður og Snælda sýna í Ásgarði, Glæsibæ. Skráning og allar upp- lýsingar í Hraunseli og í síma 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, félagsheimili Félags eldri borgara, Söng og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“ minn- ingar frá árum síldaræv- intýranna, og „Fugl í búri“, dramatískan gam- anleik. Sýning í dag, miðvikudag, kl. 14. Kvöldsýning verður fimmtudaginn 4. apríl kl. 20. Sýningum fer fækk- andi. Miðapantanir í síma: 588 2111 og 568 9082. Miðvikudagur: Göngu- hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði kl. 10. Söngfélag FEB, kór- æfing kl. 17. Línu- danskennsla Sigvalda kl. 19.15. Sparidagar á Örkinni 14.–19. apríl, skráning á skrifstofu FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16, blöðin og kaffi. Félagsstarfið, Furu- gerði. Í dag kl. 9 aðstoð við böðun og bókband. Kl. 12 hádegismatur, kl. 14 sögulestur og kl. 15 kaffiveitingar. Fé- lagsstarfið óskar öllum gestum sínum gleðilegra páska og opnar aftur þriðjudaginn 2. apríl með hefðbundinni dag- skrá. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi spila- salur opinn. Súpa og sal- atbar í veitingabúð í há- deginu. Kaffiveitingar í kaffitíma. Leikhúsferð í Ásgarð miðvikudaginn 3. apríl kl. 14. Leikhóp- urinn Snúður og Snælda sýna í Lífsins ólgusjó og Fugl í búri. Skráning hafin. Lagt af stað frá Gerðubergi kl. 13.30. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 11 hæg leik- fimi, kl. 13 félagsvist FEBK og glerlist, kl. 15–16 viðtalstími FEBK, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Einmánaðarfagn- aður verður fimtmu- daginn 4. apríl kl. 14. Fjölbreytt sköpunar- og skemmtidagskrá sem er samstarfsverkefni Digranesskóla, Leik- skólans Marbakka og Gjábakka. Vöfflu- hlaðborð. Allir velkomnir. Hand- verksmarkaður verður fimmtudaginn 4. apríl. Vinsamlega pantið borð sem fyrst í síma 554 3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró- leg stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur – klippi- myndir, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Kl. 13.30–15.30 páskabingó. Spilaðar verða 8–10 umferðir. Allir hjartanlega vel- komnir án tillits til ald- urs eða búsetu í Reykja- vík. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fræðslufundur í dag kl. 10 í Miðgarði, Langa- rima 21. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Félagsstarfið er opið öll- um aldurshópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15– 16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13– 16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kóræfing, kl. 13.30 bók- band, kl. 15.30 kóræfing. Öldungaráð Hauka. Fundur verður í kvöld kl. 20 á Ásvöllum. Fé- lagar fjölmennum. Kvenfélagið Hrönn. Farið verður í Kaffileik- húsið í Hlaðvarpanum föstudaginn 5. apríl. Kvöldverður og skemmtun. Húsið opnað kl. 19. Kemur í staðinn í fyrir aprílfund. Tilkynna þarf þátttöku til stjórnar fyrir 2. apríl. Orlofsnefnd húsmæðra. Húsmæður athugið. Eigum nokkur sæti laus til Portúgals 9.-16. apríl. Upplýsingar í síma 551- 2617 og 864-2617. Minningarspjöld FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533 1088 eða í bréfs. 533 1086. Í dag er miðvikudagur 27. mars, 86. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Fagnið á þeim degi og leikið af gleði, því laun yðar eru mikil á himni, og á sama veg fóru feður þeirra með spámennina. (Lúk. 6, 33.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 íþróttagrein, 8 sakar um, 9 eimurinn, 10 óhreinka, 11 blóms, 13 beiskt bragð, 15 hestur, 18 mannvera, 21 hreinn, 22 aflaga, 23 klampinn, 24 laus við fals. LÓÐRÉTT: 2 útskagi, 3 bjálfar, 4 grenjar, 5 refum, 6 and- mæli, 7 venda, 12 stings, 14 bókstafur, 15 ástand, 16 heiðursmerki, 17 yfir- höfn, 18 kuldastraum, 19 matnum, 20 beitu. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 áleit, 4 bátur, 7 ærnar, 8 lítri, 9 fíl, 11 tóra, 13 kann, 14 sækir, 15 serk, 17 álka, 20 frá, 22 mylur, 23 sát- um, 24 apann, 25 ræður. Lóðrétt: 1 ágætt, 2 elnar, 3 torf, 4 ball, 5 totta, 6 reisn, 10 ískur, 12 ask, 13 krá, 15 summa, 16 rulla, 18 látið, 19 aumur, 20 Frón, 21 ásar. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... HÚN var frekar lífleg og aðmörgu leyti frumleg söng- keppni framhaldsskólanna sem sýnd var í ríkissjónvarpinu á laug- ardagskvöldið var. Víkverji er kannski ekki beint í þeim aldurs- flokki sem límir sig við unglinga- efni í sjónvarpi en hann horfði með öðru auganu á þessa keppni og rembdist við krossgátulausnir á meðan. Það sem honum fannst ekki síst ánægjulegt við þáttinn var hversu liðlega hann gekk. Hver flytjandinn á fætur öðrum steig á svið og um leið og búið var að kynna hófst flutningur lagsins. Þetta var samt sem áður bein út- sending og engir hnökrar og ekk- ert vesen eða bið og slór með skiptingarnar. Sjálfsagt var það líka vel til fundið að fá þekkt and- lit úr At-þættinum til að kynna þátttakendur og fórst þeim það ágætlega úr hendi. En sem sagt, þetta fannst Víkverja allt saman ganga ótrúlega vel fyrir sig og fyr- ir utan hversu áheyrileg mörg at- riðin voru gekk þátturinn tækni- lega vel fyrir sig. Því eiga áhorf- endur ekki alltaf að venjast í kvöldfréttum sjónvarpsins. NETIÐ er afskaplega væn leiðtil samskipta og upplýsinga- miðlunar. Alls konar rafræn sam- skipti fara sífellt vaxandi og marg- ir hafa lag á að notfæra sér það og aðstöðu til þess. En alls ekki allir. Skatturinn hefur í ár eins og í fyrra (og kannski ennþá lengra aftur í tímann en minni Víkverja er takmarkað eins og kunnugt er) boðið upp á að menn sendi skatt- skýrsluna um Netið. Allt gott um það að segja. Hins vegar er mönn- um mismunað í skilafresti. Þeir sem gera þetta uppá gamla mát- ann og tölta með framtalið í lúgu skattstofanna á síðasta klukku- stíma skilafrests fá styttri frest en nútímafólkið sem skilar á Netinu. Af hverju í ósköpunum? Ef Netið er svona vænleg leið af hverju er þeim þá ekki frekar gert að skila fyrr? Netframteljendur geta rubbað þessu af yfir kaffi- bolla og auglýsingahléi í sjónvarp- inu. Þeir ættu ekki að þurfa lengri frest en viku eftir að framtalið hef- ur borist. Þeir sem skrifa tölurnar með læsilegri rithönd sinni og sjálfblekungi á pappírinn ættu að fá að nostra við þetta fram eftir vori. Þannig fengi skatturinn mörg framtöl mjög snemma og gæti síð- an tekið til við gamaldags fram- tölin þegar kemur fram á sumar. Og svo er nefnilega önnur mis- munun. Þeir sem telja fram á pappír hafa ekki möguleika á að sækja um frest. Það eru að minnsta kosti mjög ströng skilyrði til að fá hann. Hinir geta hins veg- ar sótt um frest og gengið að hon- um nokkuð vísum. Hvað er mis- munun ef ekki þetta? Annars er líklega allt mismunun þegar að skattinum kemur. Og allt óréttlátt í sambandi við skattinn. Af hverju þarf ég að borga meiri skatt en nágranninn? Hann sem á þó bæði bíla og hross! Og líka sumarbústað og vélsleða. Þannig má lengi nöldra yfir skattinum. Fyrst framtalsblaðinu. Síðan leið- beiningunum og flækjunni og leið- indunum sem þetta allt saman er. Svo má nöldra yfir frestinum og síðan álagningunni sjálfri. Ef ekki hversu há hún er þá yfir því af hverju Pétur og Páll mega skoða hana í skattskrám skattstofanna. Hvar værum við ef við hefðum ekki skattinn? Súrmjólkin frá Neskaupstað Í VELVAKANDA 20. mars sl. spurði ein ósátt hvers vegna súrmjólkin frá Neskaupstað fáist ekki lengur í Bónus. Skýringin er sú að mjólkursamlagið í Neskaupstað var lagt niður um áramót 2000/2001, og var framleiðslu þá sjálf- hætt. Mjólkursamlags- stjórinn hvarf til annarra starfa og geymir uppskrift- ina væntanlega á góðum stað. Það er svo til umhugsun- ar hvers vegna það tók „eina ósátta“ rúmt ár að komast að því að súrmjólk- in væri horfin úr hillum Bónusverslana. Jóhann. Reyklaus staður ÉG vil benda konunni, sem kvartaði út af því að það væru eiginlega engir reyk- lausir veitingastaðir, á Am- erican Style. Það er frábær reyklaus staður. Ódýr, góð- ur matur og frábær þjón- usta. Guðrún. Vantar blaðið MIG langar að kvarta, því við fáum Fréttablaðið hing- að á heimilið okkar alls ekki alltaf. Ég hef oft hringt og kvartað og þeir segjast ætla að kippa þessu í lag en það gerist ekkert! Mér finnst þetta lélegt. Hvað er málið? Hildur Egilsd. Góður staður VIÐ hjónin verðum að taka undir það sem við lásum í blöðunum um daginn í sam- bandi við staðinn Catalina í Kópavogi. Þessi staður er ákaflega huggulegur sér- staklega nýi staðurinn. Við fórum þarna að borða á laugardagskvöldi og verð- um að segja að maturinn var mjög góður. Eins og á bestu veitingastöðum í Reykjavík. Svo þegar teygðist úr öllu saman var okkur boðið á ball á sama stað. Þetta var mjög eftir minnilegt kvöld sérstak- lega vegna þess að þarna var hljómsveit að spila sem var vinsælasta hljómsveitin á „okkar árum“. Starfsfólk- ið var allt hið alúðlegasta, ekki svona eins og það væri „bara“ að vinna þarna. Okkur finnst að það sem vel er gert megi koma fram. Helgi og Guðrún. Fæst í Baby Sam RAGNHEIÐUR vill benda fólki, sem hefði verið að leitað sér að Cam Ciao Plus bílastól, að stólarnir fást nú í Baby Sam í Skeifunni. Tökum vel á móti fuglunum KÆRU landar. Tökum vel á móti fuglunum okkar. Þeir eru þreyttir og svangir eftir langa ferð. Höldum kisun- um inni við á næstunni. Sonja. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is EFTIR að hafa fylgst með umræðunni um fyr- irhugaðar virkj- anaframkvæmdir á há- lendinu norður af Vatnajökli og vitandi af sérfræðingum sprang- andi um svæðið með mælistikur á sama tíma og og hagfræðingar stjórnsýslukerfisins og Landsvirkjunar hafa set- ið sveittir yfir því að reikna út arðsemi Kára- hnjúkavirkjunar og nið- urstaða þeirra sú að vænta megi hagsældar á Íslandi sem endast muni allt að í 80 ár, get ég ekki orða bundist. Mér finnst Landsvirkjun vera á gráu svæði þar sem búið er að semja um verð á orku sem á ekki að sjá dags- ljósið. Ég trúi því að eðl- isgreind og innsæi þeirra mörgu sem enn eru á móti þessum glannalegu framkvæmdum veki ótta um að áætlanirnar stand- ist ekki vegna gamallar reynslu fyrri ára um framúrkeyrslu á áætl- unargerð í stíl við t.d. Kröflu, Perlu, Ráðhús, skrifstofu Alþingis, þjóð- menningarhús o.s.frv. Spurningar vakna: Erum við að ana út í eitt stærsta umhverfis- og efnahags- slys Íslandssögunnar vegna breytinga, hraða og framkvæmda á öllum sviðum vísinda og tækni í heiminum? Ættum við að leyfa næstu kynslóðum að taka ákvarðanir um hvernig best verður farið með auðlindir og um- hverfi sem í dag er van- metið, jafnvel talið einsk- is virði? Það gleymist að taka með í stóra dæmið. Vonandi verður ekki far- ið af stað með nýja góð- ærisóra sem engin inni- stæða er fyrir. Ég veit að finna má margar atvinnu- greinar og fjárfestingar sem henta okkar þjóð betur en stóriðja. Látum ekki mold og peninga fjúka út í buskann. Reyn- um að komast út úr þok- unni fyrir austan. Spurning vaknar á ný: Hver á Ísland? Sigurður Sveinsson. 160536-4709. Virkjanaframkvæmdir á hálendinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.