Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í ALLRI umræðu um einkavæðingar- stefnuna undanfarið, hefur athyglin fyrst og fremst beinst að hneykslismálum ein- staklinga sem tengjast einkavæðingunni en síður að þeirri spurn- ingu hvort yfirleitt eigi að einkavæða eða markaðsvæða opinbera þjónustu við almenn- ing. Því ekki að gera opinberu fyrirtækin að enn þá betri þjónustu- fyrirtækjum fyrir al- menning? Orðið einkavæðing er hér notað í þeim skilningi sem einkavæðingarsinnarnir sjálfir lagt í orðið, í reynd. Sem sagt að hrifsa stór þjónustufyrirtæki úr eigu fólks- ins í landinu, og koma þeim sem ódýrast í hendur fárra einstaklinga, sem geta rakað saman fé á þeim. Drýgsta tekjulind hinna einka- væddu fyrirtækja verður svo greiðslur fyrir þjónustu, frá ríkinu, frá samfélaginu sjálfu. Áróðurinn um að einkarekin fyr- irtæki séu í öllum tilvikum betri fyrir fólkið hefur tröllriðið þjóðinni í ára- tugi. Niðurstaðan hefur verið að fyr- irtæki, sem eru mikilvæg fyrir lífs- afkomu almennings hafa verið einkavædd, og þjónustan markaðs- vædd. Nú er stefnan tekin á heil- brigðis- og menntastofnanir. Siðblinda græðginnar Bestu vinir einkavæðingarinnar bíða með peningaglampa í augum eftir vænum bita. Þegar þeir hafa komist á bragðið verður ekkert nógu gott fyrir þá. Sið- blindan verður alger. Það er ekki nóg með það að þeir fái ráðherra og þing- menn til að útvega sér bita fyrir lítið. Þeir slá tvær flugur í einu höggi. Þar sem þeir hafa náð ítökum í ríkisrekn- um fyrirtækjum valsa þeir um, af persónulegri græðgi, og koma um leið óorði á fyrirtækin, svo það verði auðveldara að fá þau fyrir lítið. Sum- ir forystumenn markaðshyggju- flokkanna eru að vísu farnir að tala um að hægja á þessu. Þeir eru farnir að ótt- ast dóm kjósenda í næstu kosningum, sér- staklega eftir því sem dæmin um hneykslin og siðblinduna hafa hrannast upp. Símamálið Einkavæðing Sím- ans er dæmi um þetta. Það er búið að gera þetta að hlutafélagi. Æstustu einkavæðing- arsinnarnir vildu selja hlut ríkisins sem allra fyrst, drífa þetta strax út. Þeir voru að þjóna hagsmunum auðsafnara sem biðu eftir að hrifsa þetta í sig. Aðrir hik- uðu og vildu bíða þess að ríkið fengi meira fyrir þetta fyrirtæki þjóðar- innar. Það var út af deilum um þetta sem allir fóru í hár saman. Í því uppistandi öllu, ásökunum og gagnásökunum, komu í ljós spilltar starfsaðferðir einkavæðingarsinn- anna og ótrúlegt bruðl með al- mannafé, og lúaleg árás á starfsfólk sem vildi opinbera spillinguna. Nú segja einkavæðingarsinnar að þetta séu dæmi um spillingu í opin- berum rekstri. Það er rangt, þetta er dæmi um spillingu í einkarekstri. Forysta Símans misreiknaði sig bara. Hún hélt að hún gæti hegðað sér eins og þetta væri venjulegt, risastórt hluta- félag, sem þyrfti ekki að lúta neinum öðrum aga en gróðafíkn fárra. Hún áttaði sig ekki á því að enn eimir eftir af opinberu eftirliti með Símanum, því fór sem fór. Betri ríkisfyrirtæki Það þarf að efla baráttu gegn einkavæðingarstefnunni. Láglauna- fólk, öryrkjar, eldri borgarar, æsku- fólk, bændur og sjómenn, talsmenn jafnréttis og byggðastefnu þurfa að taka höndum saman, með almanna- fræðslu um til hvers einkavæðingar- stefnan getur leitt, og hverju við glötum með markaðsvæðingu þjón- ustunnar. En það er líka nauðsynlegt að bæta rekstur ríkisrekinna fyrir- tækja, til að hann þjóni betur kröfum almennings, sé vinsælli. Við þurfum að reka fyrirtækin svo vel, að þau séu ekki í hættu gagnvart gróðasókn einkavæðingarsinna. Það þarf að opna rekstur og bók- hald ríkisfyrirtækjanna fyrir starfs- fólki og almenningi, svo eftirlit með þeim verði betra. Við þurfum að tryggja réttarstöðu starfsfólks og koma í veg fyrir að það sé neytt til að gera leynisamninga um laun á kostnað almennra réttinda og launajafnréttis. Við þurfum að tryggja áhrif starfs- fólks og almennings á reksturinn. Opnari rekstur Það þarf líka að gera kröfur á hendur stórum einkafyritækjum, þar sem leyndin er nánast alger og spillingin dulin. Fyrirvaralaust er fyrirtæki, sem fólk byggði sína af- komu á komið á hausinn eða flutt. Við búum við einkarekstur þar sem geðþóttaákvörðun forstjórans getur svipt starfsfólkið lífsafkomunni, jafn- vel heilu sveitarfélögin, án þess að vörnum verði við komið eða bætur fáist. Við búum við einkarekstur risafyr- irtækja þar sem forkólfarnir eru milljarðamæringar og spekúlantar, sem borga í skatt svipað og verka- maður á lægstu launum. Það er hægt að setja meiri skorður við framferði risafyrirtækja gegn starfsfólki og almenningi. Til þess þurfa almannasamtök og sveitar- félög að taka höndum saman. En besta tryggingin fyrir góðri sam- félagsþjónustu er að hún sé í höndum fólksins sjálfs. Lýðræðislegri og opnari ríkisrekstur Ragnar Stefánsson Einkavæðing Það þarf að efla baráttu, segir Ragnar Stefáns- son, gegn einkavæðing- arstefnunni. Höfundur er jarðskjálftafræðingur. Dómsmálaráðherra mælti sl. haust fyrir frumvarpi til laga þar, sem gert er ráð fyrir, að heimilt verði að dreifa ösku látinna yfir haf og óbyggðir. Hægt er að skoða frumvarpið á vef Alþingis (www.al- thingi.is, 127. löggjafa- þing, mál 371). Þegar þetta er ritað hefur fumvarpið verið sam- þykkt til þriðju um- ræðu og verður því sennilega að lögum fljótlega. Ákvæðið er þannig: „Dóms- og kirkjumála- ráðherra getur heimilað, samkvæmt nánari reglum er hann setur, að ösku verði dreift yfir öræfi eða sjó, enda liggi fyrir ótvíræð ósk hins látna þar að lútandi.“ Í athugasemdum með frumvarpinu um þetta efni segir m.a.: „Almennt ætti ekki að vera fyrirstaða fyrir því að heimila að ösku verði dreift yfir op- ið haf, firði og flóa, t.d. Faxaflóann, svo og óbyggðir. ... Ekki þykir fært að heimilað verði að dreifa ösku í byggð eða væntanlegri byggð, né heldur yfir stöðuvötn.“ Ekki veit ég hvort það er rétt, að almennt sé ekki fyrirstaða fyrir því að ösku látinna verði dreift yfir óbyggð- ir. Hitt veit ég að ég er á móti því og almennt veit fólk lítið um þetta laga- frumvarp sem og þingmál almennt. Þess vegna er hlutverk fréttamanna mikilvægt að flytja fréttir af störfum Alþingis á auðskildu máli. Ég hef frá æsku leitað til fjalla í styttri og lengri gönguferðir að sum- arlagi og í mörg ár höfum við hjónin farið í eina eða fleiri bakpokaferðir í óbyggðum á hverju sumri. Þá er fátt ynd- islegra en að svala þorstanum í tærum fjallalæk, kasta mæð- unni og setjast á stein eða leggjast í móann og horfa upp í skýin. Kyrrðin getur verið mikil og náttúran talar sinni röddu og nærir líkama og sál og það er eins og maður nálgist skapara sinn. Einmitt þess vegna get ég skilið að einhverjir vilji láta dreifa jarðneskum leif- um sínum yfir land og haf og það kann að vera eins konar náttúrurómantík. Því miður spillir þetta fyrir minni náttúrurómantík. Mér finnst fremur ólystugt að eiga von á að drekka ösku einhverra vina minna þegar ég leggst niður og teyga vatnið úr fjallalæk og ennþá verra væri að svolgra í sig ein- hvern óvin sinn. Það er ekki ólíklegt að svona aska skolist einmitt með yf- irborðsvatni í læki og dragár í næstu rigningu. Svo eru það fjallagrösin, en á þessum gönguferðum rekst maður oft á væn skæðagrös hátt til heiða og nýtur þeirra í ljúffengri fjallagrasa- mjólk um miðjan vetur þegar hálsinn er sár. Þar er reyndar vísbending um að ég sé ekki einn um þessa tilfinn- ingu að í athugasemdinni segir, að ekki verði heimilað að dreifa ösku í byggð eða yfir stöðuvötn. Flutnings- maður gerir sér nefnilega ljóst að fólk vill ekki fá slíka ösku yfir kartöflu- garðinn sinn eða sólpallinn og vill ekki draga silung úr vatni sem þannig er mengað. Mér er ljóst að þetta eru tilfinn- ingaleg rök og mörg mengunin er trúlega efnafræðilega og líffræðilega verri en aska látinna. Hins vegar eru rökin, sem liggja bak við þessa vænt- anlegu lagaheimild, reyndar einnig tilfinningaleg og ég er ekki sannfærð- ur um að frumvarpið hafi verið und- irbúið vel með því að leita umsagna hagsmunaaðila. Hvað halda t.d. útflytjendur hins tæra, íslenska vatns á erlenda mark- aði, að neytendum þar finnist um þetta efni? Það mætti skrifa á flösku- miðann: Tært íslenskt fjallavatn. Öll líkaska hefur verið síuð burt. Sjá vott- orð frá faggiltri prófunarstofu! Dreifing ösku látinna yfir óbyggðir Gísli H. Friðgeirsson Höfundur er deildarstjóri á Lög- gildingarstofu. Umhverfismál Mér finnst fremur ólyst- ugt að eiga von á því, segir Gísli H. Frið- geirsson, að drekka öskuna af einhverjum vinum mínum þegar ég leggst niður og teyga vatnið úr fjallalæk. MAÐUR er nefndur Guðmundur L. Frið- finnsson, rithöfundur á Egilsá í Skagafirði. Guðmundur er nú rúmlega hálftíræður að aldri. Hann er löngu þjóðkunnur sem mikil- virkur rithöfundur, hef- ur stundað ritstörf í hálfa öld samhliða bú- skap og fleiri störfum og gefið út fjölda bóka um margvísleg efni: skáldsögur, unglinga- bækur, smásagnasöfn, leikrit og ljóðabók, að ógleymdum þjóðlegum sagnaþáttum. Hann hefur því fengist við allar höfuðgrein- ar ritlistar á langri ævi, og jafnan hafa bækur hans notið vinsælda og verið mikið lesnar. Síðasta stóra ritverk Guðmundar var bókin Þjóðlíf og þjóð- hættir, sem út kom árið 1991. Sú bók vakti mikla athygli, enda stórvirki. Fyrir hana hlaut Guðmundur Davíðs- pennann, verðlaun Félags ísl. rithöf- unda, en einnig var hún tilnefnd sem ein af fimm fræðibókum til ísl. bók- menntaverðlaunanna. Guðmundur hefur skirfað nokkur framhaldsleikrit fyrir börn og unglinga, sem sum hafa verið flutt í útvarpi. Á liðnum vetri gerðust þau tíðindi, að Leikfélag Ak- ureyrar frumsýndi leikrit eftir Guð- mund L. Friðfinnsson í tilefni af 95 ára afmæli hans og 50 ára rithöfund- arafmælis. Leikritið, sem nefnist „Berfætlingar“, fékk já- kvæða dóma gagnrýn- enda og þeirra er það sáu. Guðmundur fæst enn við skriftir, þrátt fyrir háan aldur, og á nú fullbúið handrit að barnasögu og smá- sagnasafni, sem bíður útkomu. Um nokkurt skeið hafa Menningarsamtök Norðlendinga, ME- NOR, unnið að því, að Guðmundi L. Friðfinns- syni verði veitt heiðurs- laun listamanna. Sam- tökin álíta, að Guðmundur hafi með fjölbreyttum ritverkum sínum á hálfrar aldar rithöfundarferli unnið til þess, að Alþingi sýni honum þann sóma. Hann er fulltrúi aldarinnar, sem nú hefur kvatt og þeirrar ísl. bændamenningar, sem skilað hefur hvað drýgstum bókmenntaarfi til komandi kynslóða. Aldamótakynslóð- in bjó við gjörólíkar aðstæður þeim, sem við þekkjum í dag. Samt vann hún afrek á hinu menn- ingarlega sviði, sem munu geymast. Þjóðin stendur í þakkarskuld við hana. Menntamálanefnd Alþingis, sem tilnefnir listamenn í heiðurslauna- flokk, virðist þó vera á annarri skoð- un. Tvívegis hefur hún hafnað því að veita Guðmundi L. Friðfinnssyni heiðurslaun. Fyrir ári ákvað mennta- málanefnd að fjölga um 10 manns í heiðurslaunaflokki, enda hafði þá ekki verið tekið þar inn nýtt fólk í nokkur ár. Ekki fann Guðmundur á Egilsá náð fyrir augum nefndarmanna í það sinn, né heldur nú fyrir síðustu jól við gerð fjárlaga yfirstandandi árs, en þá ákvað meirihluti nefndarinnar, að fjöldi heiðurslaunahafa skuli vera óbreyttur þetta ár, en fjárhæð hækk- uð um 100 þús. á ársgrundvelli. Nú skipar heiðurslaunaflokk 21 listamað- ur, en sérstaka athygli vekur, að í þeim hópi situr enginn listamaður bú- settur úti á landsbyggðinni, og hefur svo ekki verið síðan 1994. Með því er engri rýrð kastað á það mikilhæfa fólk, sem þennan flokk fyllir, en að- eins bent á, að góður listamaður má síst af öllu gjalda fyrir það að vera bú- settur utan Faxaflóasvæðisins. Því varla er landsbyggðin svo rýr í roð- inu, að hún eigi ekki frambærilegt listafólk til að taka sæti í heiðurs- launaflokki. Vart trúi ég að nokkrum detti það í hug. Stjórn MENOR leyfir sér að gagn- rýna afstöðu menntamálanefndar í þessu máli. Við hljótum að spyrja, hvort góður listamaður búsettur úti á landsbyggð- inni eigi ekki að hafa sömu möguleika og aðrir til að hljóta heiðurslaun. Okkur er ljóst, að margir eru kallaðir en fáir útvaldir á akri menningar og lista og ýmis nöfn hljóta óhjákvæmi- lega að koma til álita, þegar velja skal fólk til heiðurslauna. Og sá á kvölina, sem á völina, segir orðtækið. En þá kröfu hlýtur að verða að gera til þingmanna í menntamála- nefnd, að þeir hafi a.m.k. fyrir því að kynna sér verk þess fólks, sem þeir eiga að ákvarða um, en láti ekki ann- arleg sjónarmið ráða afstöðu sinni. Á það teljum við hafa skort, hvað snert- ir rithöfundinn, Guðmund L. Friðfinnsson. Tvö verk Guðmundar voru afhent nefnd- inni fyrir ári til upplýsingar og kynn- ingar, en okkur vitanlega ekki lögð fram á fundum nefndarinnar hvorki þá né nú fyrir síðustu jól. Okkur er ekki fullkomlega ljóst, hvaða kröfur menntamálanefnd Alþingis gerir til þess fólks, sem hún telur verðugt þess heiðurs að taka sæti í heiðurs- launaflokki listamanna. Það hefur verið erfitt að henda reiður á slíku, en vafalaust hefur nefndin sínar viðmiðanir. Við hljótum þá að gera kröfu til þess, að nefndin rökstyðji afstöðu sína í þessu máli. E.t.v. þurfa menn stöðugt að vera sýnilegir í fjölmiðlum, blöðum og út- varpi, til að hljóta náð fyrir augum nefndarinnar, og hinir hógværu í landinu eigi því litla möguleika. Kannski telja nefndarmenn ekki ástæðu til, að samfélagið sýni þeim rithöfundi viðurkenningu, sem á langri ævi og með þrotlausri elju hef- ur skapað bókmenntaverk, sem þjóð- in hefur lesið sér til ánægju og fróð- leiks og tekið ástfóstri við, verk sem tengja þjóðlegan arf komandi kyn- slóðum. Er það ekki nægjanlegt? Eða þurfa menn einfaldlega að vera, það sem kallað er „fínir“ listamenn til að menntamálanefnd Alþingis veiti þeim athygli? Nokkur orð um heiðurslaun Ólafur Þ. Hallgrímsson Heiðurslaun Þurfa menn einfaldlega að vera, spyr Ólafur Þ. Hallgrímsson, það sem kallað er „fínir“ lista- menn til að mennta- málanefnd Alþingis veiti þeim athygli? Höfundur er sóknarprestur á Mælifelli í Skagafirði og for- maður MENOR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.