Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 29
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 29
POPPSÖNGKONAN Britney Spears
fer með aðalhlutverkið í bíómyndinni
Crossroads, sem frumsýnd er hjá
Sambíóunum í dag. Myndin fjallar um
þrjár vinkonur, Lucy, Kit og Mimi,
sem hafa verið bestu vinkonur síðan í
æsku. Þær hafa ekki sést í átta ár, en
ákveða að endurnýja vinskapinn og
þar með er komið að miklum tíma-
mótum hjá þessum vinkonum.
Tvær þeirra vilja fara til Hollywood
til að freista gæfunnar. Sú þriðja,
Lucy sem leikin er af Britney Spears,
vill helst bara sitja heima, en fljótlega
kvikna hjá henni langanir um að sjá
heiminn og síðast en ekki síst vill hún
hitta móður sína sem hún hefur ekki
séð síðan í æsku þó föðurnum, sem
leikinn er af gamanleikaranum Dan
Aykroyd, lítist ekkert á blikuna. Vin-
konurnar þrjár halda allar saman af
stað í hálfgert óvissuferðalag með
hugann fullan af glæstum draumum,
en hvorki liggur fyrir ferðaáætlun né
of miklir fjármunir þegar af stað er
farið og fyrr en varir lenda þær í mikl-
um ævintýrum.
Á vegi þeirra verður ungur farand-
söngari að nafni Ben á ’73 árgerð af
Buick blæjubíl og þær húkka sér far
með honum alla leið til Los Angeles.
Á ferðalaginu uppgötva ungu stúlk-
urnar ýmislegt sem kemur til með að
breyta lífi þeirra auk þess sem ástin
kemur við sögu.
Leikstjóri Crossroads er Tamra
Davis. Fyrstu hugmyndir að bíómynd
með Britney Spears kviknuðu þegar
vinkonurnar Ann Carli, sem er fram-
leiðandi Crossroads, og Shonda Rhim-
es, sem sá um handritsgerðina, sátu í
kvikmyndahúsi og voru að horfa á bíó-
mynd. Ann innti Shondu einfaldlega
eftir því hvort hún væri ekki til í að
skrifa kvikmyndahandrit fyrir Britney
Spears þar sem hún hefði óljósan grun
um að hún hefði margt til brunns að
bera á listasviðinu, líkt og Will Smith.
Rhimes, sem hefur m.a. fengið
Emmy-verðlaunin fyrir sjónvarps-
leikritið Introducing Dorothy Dand-
ridge, tók hugmyndinni vel og fór
m.a. á tónleika hjá Britney til að
kynnast henni nánar á sviði og bak-
sviðs áður en hún hófst handa við
handritsgerðina. Hún segist þá fyrst
hafa komist að því hversu sterka
ímynd poppstjarnan hafi meðal ung-
linganna, en það væri ekki bara Britn-
ey á sviðinu sem væri kraftmikil og
öflug. Það ætti ekki síður við per-
sónuna Britney Spears, sem nú er 21
árs að aldri. Crossroads er frumraun
Spears á hvíta tjaldinu.
Leikarar: Britney Spears, Anson Mount
(The Truth about Tully, Tulse Luper Suit-
case); Zoe Saldana (Get Over It, Drum-
line, Center Stage); Taryn Manning
(White Oleander, 8 Mile); Dan Aykroyd
(Driving Miss Daisy, Ghostbusters, Spies
Like Us); Justin Long (Galaxy Quest,
Happy Campers); Kim Cattrall (Police
Academy, Big Trouble in Little China).
Leikstjóri: Tamra Davis.
Æsku-
vinkonur
í óvissu-
ferð
Sambíóin í Reykjavík, Nýja bíó í Keflavík
og Nýja bíó á Akureyri frumsýna Cross-
roads með Britney Spears, Anson
Mount, Zoe Saldana, Taryn Manning,
Dan Aykroyd, Justin Long og Kim
Cattrall.
Britney Spears og Anson Mount
í kvikmyndinni Crossroads.
myndarinnar. Til dæmis er hér að
finna senu þar sem E.T. og Elliot
skella sér í bað saman og lengri út-
gáfu af Halloween-deginum eftir-
minnilega. Og það er aldrei að vita
nema sá gamalkunni Harrison
Ford skjóti upp kollinum sem
skólastjórinn í skóla Elliots.
Steven Spielberg er bæði fram-
leiðandi og leikstjóri litla stranda-
glópsins E.T., sem helst af öllu
vildi bara hringja heim og láta
sækja sig. Framleiðandi myndar-
innar er Universal Pictures og
handrit er eftir Melissu Mathison,
sem er fyrrum eiginkona stór-
stjörnunnar Harrisons Fords, en
þau skildu í ágúst árið 2001 eftir
átján ára hjónaband. Myndin um
LITLA geimveran E.T., sem vann
hug og hjarta áhorfenda um heim
allan fyrir 20 árum, birtist nú að
nýju í bíóhúsunum. Hér er á ferð-
inni endurútgáfa í tilefni af tví-
tugsafmælinu, en eins og nærri má
geta eru helstu barnastjörnur
myndarinnar orðnar fullorðnar nú.
Afmælisútgáfan státar af endur-
bættum hljóð- og myndgæðum, at-
riðum sem ekki voru í upphaflegu
myndinni og einnig er búið að end-
urbæta í tölvu mörg myndskeið
E.T. hlaut á sínum tíma fimm
Golden Globe-tilnefningar og fékk
tvenn Golden Globe-verðlaun sem
besta dramatíska kvikmyndin og
fyrir tónlist. Hún var ennfremur
tilnefnd til níu Óskarsverðlauna og
fékk fjóra Óskara fyrir tæknibrell-
ur, hljóðbrellur, tónlist og hljóð.
Sagan er um unga drenginn Ell-
iott, sem eina nóttina heyrir skrýt-
in hljóð í bílskúrnum. Þegar hann
fer að kanna málið, kemur í ljós að
í bílskúrnum leynist litli geimálfur-
inn E.T. Í fyrstu verður Elliott
auðvitað logandi hræddur við
þessa skrýtnu veru, sem er bæði
með skrýtinn háls og stór augu, en
það líður ekki á löngu þar til E.T.
og Elliott verða hinir mestu mátar
og vinir.
Leikarar: Dee Vallace Stone (Cujo,
Secret Admirer, Critters, Rescue Me);
Peter Coyote (Endangered Species,
Cross Creek, Heartbreakers); Drew
Barrymore (The Wedding Singer,
Scream, Charlie’s Angels); Henry
Thomas (A Good Baby, All the Pretty
Horses, Moby Dick); Robert Mac-
Naughton (Angel City, The Electric
Grandmother, Big Bend Country).
Leikstjóri: Steven Spielberg.
E.T. á afmæli
E.T. snýr aftur í bíó.
Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka og
Borgarbíó Akureyri frumsýna endur-
útgáfu E.T. með Dee Vallace Stone, Pet-
er Coyote, Drew Barrymore, Henry
Thomas og Robert MacNaughton.
ÞAÐ er hinn ungi og margverðlaun-
aði svissneski leikstjóri Marc Forst-
er sem leikstýrir damatísku kvik-
myndinni Monster’s Ball sem
frumsýnd verður í Regnboganum í
dag. Handritshöfundar myndarinn-
ar, sem framleidd er af Lions Gate
Films Inc., eru Milo Addica og Will
Rokos. Handrit myndarinnar hefur
legið tilbúið frá árinu 1995 og hafa
margir verið kallaðir til að koma að
myndinni, en það var ekki fyrr en
myndin náði athygli Marc Forster að
hún er nú orðin að veruleika.
„Ég vildi gera mynd með áherslu á
tilfinningar fremur en hraða at-
burðarás og valdi þar af leiðandi
leikara í hlutverkin, sem ég taldi að
ættu auðvelt með að túlka tilfinning-
ar á sem raunsæjastan hátt. Ég vildi
freista þess að gera mynd um missi
og frelsun í anda frábærra kvik-
mynda áttunda áratugarins. Að
sama skapi vildi ég ekki síður ná
fram þeirri einangrun, sem fólk er að
berjast við í flóknum nútímaheimi
auk ýmissa málamiðlana, sem fólk
kann að þurfa að glíma við á lífsleið-
inni,“ segir Forster leikstjóri.
Myndin gerist í Georgíu-fylki í
suðurríkjum Bandaríkjanna og
fjallar um fangavörðinn Hank Grot-
owski sem er fyrrverandi lögreglu-
maður, drykkjurútur og kynþátta-
hatari. Faðir hans Buck er við
dauðans dyr vegna lungnaþembu og
starfar annar sonur hans Sonny við
aftökur á dauðadeild fangelsisins.
Þegar Sonny fremur sjálfsmorð
verður Hank frá sér af sorg, hættir
að vinna og leggst í þunglyndi. Kvöld
eitt rekst hann á Leticiu, gullfallega
blökkukonu, sem orðið hefur fyrir
því að sonur hennar lenti í bílslysi.
Þegar sonur hennar deyr, standa
þau Leticia og Hank óvænt frammi
fyrir því að vera nokkurs konar sálu-
félagar, sameinaðir í sorg, og taka
upp ástarsamband. Það líður þó ekki
á löngu þar til óþægilegt atvik úr for-
tíðinni er grafið upp. Hank kemst
nefnilega að því að Leticia er ekkja
Lawrence Musgroves, en Lawrence
þessi hafði einmitt verið tekinn af lífi
af þeim feðgum nokkrum árum áður.
Halle Berry fékk Óskarsverðlaun
á dögunum fyrir leik sinn í myndinni.
Leikarar: Billy Bob Thornton (Sling
Blade); Halle Berry (X-Men, Swordfish);
Peter Boyle (Young Frankenstein, Taxi
Driver, Malcolm X); Heath Ledger (The
Patriot); Sean Combs (Puff Daddy).
Leikstjóri: Marc Forster.
Sálufélagar
í sorginni
Regnboginn frumsýnir Monster’s Ball
með Billy Bob Thornton, Halle Berry,
Peter Boyle, Heath Ledger og Sean
„Puffy“ Combs.
Óskarsverðlaunahafinn Halle Berry ásamt Billy Bob Thornton.
ÚR smiðju Walt Disney verður í dag
frumsýnd teiknimynd sem er börn-
um þó ekki með öllu ókunn því hér
er á ferðinni framhaldsmynd um
Pétur Pan, eina þekktustu teikni-
myndapersónu Disney-fyrirtækis-
ins. Þessi mynd hefur hlotið nafnið
Pétur Pan 2 (Snýr aftur til Hvergi-
lands).
Í þessari nýju mynd frá Disney er
Vanda orðin fullorðin og farin að
segja börnunum sínum tveimur sög-
ur af Pétri Pan. Eldra barnið, Jóna,
hefur lítinn áhuga fyrir slíkum sög-
um og skilur ekki hætturnar, sem
sögurnar vara við, fyrr en hinn ill-
ræmdi Krókur skipstjóri eða Kobbi
krókur hefur rænt henni og fangað.
Nú eru góð ráð dýr, en með ein-
hverjum ráðum þarf að bjarga Jónu
úr prísundinni. Strákurinn Pétur
Pan, sem ætlaði sér hvorki að verða
stór né snúa aftur, sér sig knúinn til
að safna liði og vera fremstur í flokki
til að bjarga Jónu frá skipstjóranum
ógurlega.
Leikstjóri myndarinnar er Robin Budd
og handrit er eftir Temple Mathews.
Framleiðendur eru: Christopher Chase,
Michelle Robinson og Dan Rounds.
Myndin er með ensku og íslensku tali.
Íslenskar leikraddir eiga: Sturla Sig-
hvatsson (Pétur Pan); Kristrún Hauks-
dóttir (Jóna); Arnar Jónsson (Kobbi
krókur); Inga María Valdimarsdóttir
(Vanda); Örnólfur Eldon (Danni); Karl
Ágúst Úlfsson (Starri); Valur Freyr Ein-
arsson (Eiríkur); Sunna Eldon (Vanda
ung); Hjalti Rúnar Jónsson (Húni); Karl
Sigurðsson (Nebbi); Hörður Brynj-
arsson (Varði); Jón Geirfinnsson (tví-
burar). Íslensk leikstjórn var í höndum
Júlíusar Agnarssonar.
Pétur Pan
snýr aftur
Sambíóin í Álfabakka, Kringlunni og
Keflavík frumsýna Pétur Pan 2 með
leikröddum Harriet Owen, Blayne Weav-
er, Corey Burton og Jeff Bennett.
Pétur Pan er aftur kominn á kreik í nýrri Disney-mynd.
Óskarsverðlaunahafinn Mel
Gibson fer með aðalhlutverk-
ið í stríðsmyndinni We Were
Soldiers sem frumsýnd verð-
ur í dag. Hér er á ferðinni
átakanleg spennumynd, sem
gerist í svokölluðum Dauða-
dal í Víetnam, og eru fram-
leiðendur þeir sömu og stóðu
að baki stórmyndinni Brave-
heart, sem frumsýnd var árið
1995. Kvikmyndin We Were
Soldiers eða Við vorum her-
menn er byggð á sannsögu-
legum atburðum úr Víetnam-
stríðinu og blóðugri orrustu í
Dauðadalnum.
Gibson fer með hlutverk
Hal Moore, ofursta í banda-
ríska landhernum, sem í eru
400 ungir menn. Þeir lenda svo í
þeirri aðstöðu að verða umkringdir
tvö þúsund víetnömskum hermönn-
um. Afleiðingin varð eitt hrikaleg-
asta blóðbað í sögu Bandaríkjanna
þar sem ungir feður, synir og eig-
inmenn létu lífið.
Leikstjóri myndarinnar Randall
Wallace, sem fæddur er og uppalinn
í Tennessee-fylki, menntaður í
trúarbragðafræðum við Duke Uni-
versity auk þess að hafa svarta beltið
í karate, skrifaði sjálfur kvikmynda-
handritið upp úr bók Joseph L.
Galloway og Harold G. Moore, sem
sjálfur upplifði og tók þátt í átök-
unum í Víetnam og var í hópi þeirra,
sem sneru heim að stríðinu loknu.
Wallace skrifaði handrit Braveheart
auk þess sem hann hefur unnið við
handritsgerð Pearl Harbor (2001) og
The Man in the Iron Mask (1998).
Leikarar: Mel Gibson (What Women
Want, The Patriot, Lethal Weapon);
Madeleine Stowe (The General’s
Daughter, Playing by Heart, The Pro-
position); Greg Kinnear (As Good As It
Gets, Loser, The Gift); Sam Elliott (The
Contender, Pretty When You Cry, Tumb-
stone); Chris Klein (Rollerball, Americ-
an Pie 2, Say It isn’t So); Barry Pepper
(We all Fall Down, Knockaround Guys,
The Green Mile). Leikstjóri Randall
Wallace.
Mel Gibson í We were Soldiers.
Blóðbað
í Dauðadal
Smárabíó, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri frumsýna
We were Soldiers með Mel
Gibson, Madeleine Stowe,
Greg Kinnear, Sam Elliott,
Chris Klein og Barry Pepper.