Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Hunang
frá miðnætti
Country stemning
í kvöld til miðnættis;
Með Country
hljómsveitinni
Jón forseti í Nashville
frá kl. 21
KL. 12.00 - 15.00
KL. 17.00 - 19.00
KL. 12.00 - 22.00
P
P
A
.P
A
R
IS
P
H
O
T
O
F
.
D
IS
E
G
N
I
LUMIERE
DOR
LeClerc förðunarvörurnar eru einstakar hvað efnisinnihald
varðar, en það er einkum hrísgrjónapúður og hrísgrjónasterkja.
Frábærir pastellitir • Gloss f.varir • Glans augnskuggar • Naglalökk • Fjölnotakrem
ARNE er glaðbeittur, eins og hann á
vanda til, og er mættur með félaga
sína, þá Örvar og Finnann Iiro.
Fyrir þá sem ekki vita stunda þeir
félagar það sem kallað er BASE-
stökk en það er skammstöfun á
ensku orðunum „building“, „an-
tennae“, „span“, „earth“ eða bygg-
ing, loftnet, teymi, jörð. Einhverjir
ættu svo að kannast við þann síðar-
nefnda, en hans aðalstarfi hefur ver-
ið töfrabrögð og kom hann hingað til
lands á síðasta ári til sýningarhalds.
Ólöglegt
„Ég og Iiro vorum samferða,
u.þ.b. hálfa leið,“ útskýrir Arne. „Að-
allega af því að við erum vinir. Ég
bauð honum með og var glaður að
hann þáði það.“
Myndin er í fullri lengd og í henni
fylgjumst við með ferðalagi Arne frá
austurströnd Bandaríkjanna til vest-
urstrandarinnar. BASE-stökk af
byggingum er ólöglegt og því kom-
ust Arne og félagar oft í kast við lög-
in á ferðalaginu. Myndina segja þeir
oftast „skotna“ með þremur mynda-
vélum. Einn þeirra hafi þá komið sér
fyrir á lendingarstaðnum; einn uppi í
byggingunni o.s.frv.
„Ég myndi segja að myndin nálg-
aðist það að vera vegamynd, en
meira spennuhlaðin en venja er,“
staðhæfir Arne. Myndin er enda
undirtitluð hasarmynd.
Iiro segir þá oft hafa þurft að
smygla fallhlífunum inn í bygging-
arnar, framhjá öryggisvörðum og
svo hafi þeir þurft að flýja af vett-
vangi, undan æpandi lögregluþjón-
um.
Arne segir að myndin sem slík hafi
ekki verið ákveðin fyrirfram.
„Þetta var engan veginn skipu-
lagt. Ég hef verið að taka upp til að
eiga einhvers konar dagbók. Svo hef
ég verið að selja sjónvarpsstöðvum
myndbúta. En svo sá Dúi (Stein-
grímur Dúi Másson, kvikmynda-
gerðarmaður og umsjónarmaður
Adrenalíns) þetta og leist vel á. Hann
þrýsti á að gera mynd og mér fannst
það bara hið besta mál.“
Hann segir Dúa hafa séð um alla
klippingu og slíkt og hann hafi ekki
gert neitt, fyrir utan að taka upp að
sjálfsögðu.
Arne á von á því að myndin gefi já-
kvæða ímynd af BASE-stökkum. Að-
spurður hvort hann vonist til að
myndin geri eitthvað fyrir hann per-
sónulega segir hann hlæjandi að ekki
væri verra ef efnahagurinn myndi
batna í kjölfarið.
„En að gríni slepptu þá held ég að
myndin sé athyglisverð tilraun, þar
sem að þetta hefur ekki verið gert
áður. Ég vona líka að Íslendingar
eigi eftir að taka myndinni vel þar
sem einhverjir þeirra muna líklega
eftir mér úr þáttunum. Fyrir utan
það er þetta að mínu mati besta efnið
sem við höfum náð í tengslum við
þessi ævintýri mín.“
Engin heimspeki
Ef myndin verður farsæl skýtur
hann ekki loku fyrir það að reyna að
koma henni á kvikmyndahátíðir og í
frekari dreifingu.
Arne í Ameríku leitast ekki við að
varpa fram einhverjum heimspeki-
legum spurningum um af hverju þeir
séu að þessu o.s.frv. Iiro tekur orðið.
„Ég held að þegar fólk sér hvernig
við erum að loknu stökki; alla ástríð-
una og æsinginn sem skín úr aug-
unum, skilur það betur hvað þetta
gengur út á.“
Það verður mikil viðhöfn í bænum
í kvöld vegna frumsýningar mynd-
arinnar. Kvöldið byrjar á því að Arne
og félagar lenda á Hagatorgi við Há-
skólabíó í kjölfar mikillar fallhlífa-
stökkssýningar. Myndin sjálf verður
svo sýnd kl. 20.00. Að sýningu lokinni
verður svo frumsýningarteiti á
Hverfisbarnum þar sem Iiro ætlar
að sýna brögð og brellur.
Brot úr mynd-
inni: Arne lætur
vaða.
Morgunblaðið/Sverrir
Arne Århus.
Öll ástríðan og
allur æsingurinn
Ævintýramaðurinn Arne Århus heillaði land-
ann hér um árið með skemmtilegum innskotum
sínum í sjónvarpsþættinum Adrenalin. Arnar
Eggert Thoroddsen rifjaði upp gömul kynni og
ræddi við Arne og félaga hans vegna kvik-
myndarinnar Arne í Ameríku.
Filmundur frumsýnir Arne í Ameríku
arnart@mbl.is