Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 55 OPIÐ hús verður hjá Jóa byssu- smið á Dunghaga 18 í Reykjavík, skírdag 28. mars og laugardaginn 30. mars, kl. 12–18 báða dagana. Kynning verður á rifflum frá J.P. Sauer og miðunarsjónaukum frá Schmidt&Bender og Pecar Berlín í Þýskalandi. Á fimmtudeginum verður sér- stök kynning á veiðum af kajak í umsjá Róberts Schmidts. Báða dagana verða kynntar skotveiðar erlendis, segir í fréttatilkynningu- .Verkstæði Jóa byssusmiðs flutt JÓHANN Vilhjálmsson byssu- smiður hefur flutt verkstæði sitt og verslun að Dunhaga 18 í Reykjavík, þar sem Skóstofan var áður til húsa. Jafnframt hefur hann tekið við vöðluviðgerðum og rekstri vöðlu- og stangarleigu þeirrar sem Skóstofan annaðist áð- ur. Opið hús hjá Jóa byssusmið Á FÉLAGSFUNDI Framsóknar- félags Þorlákshafnar og Ölfuss sl. mánudagskvöld var tillaga upp- stillingarnefndar að framboðslista fyrir sveitarstjórnakosningar í vor lögð fram og samþykkt samhljóða. Eftirfarandi einstaklingar skipa listann frá fyrsta sæti til þess fjórtánda: Baldur Kristjánsson sóknar- prestur, Þorlákshöfn, Páll Stefáns- son dýralæknir, Stuðlum, Valgerð- ur Guðmundsdóttir skrifstofu- stjóri, Þorlákshöfn, Ásgeir Ingvi Jónsson verkstjóri, Þorlákshöfn, Margrét Stefánsdóttir tónlistar- kennari og söngkona, Hvoli, Sig- urður Garðarsson verksmiðju- stjóri, Þorlákshöfn, Helga Ragna Pálsdóttir bóndi, Kjarri, Jón Ara- son sjómaður, Þorlákshöfn, Ólöf Haraldsdóttir bóndi, Breiðabóls- stað, Dagný Erlendsdóttir aðstoð- arleikskólastjóri, Þorlákshöfn, Benedikt Benediktsson bóndi og gæslumaður, Kvistum, Þráinn Jónsson verkstjóri, Þorlákshöfn, Hrafnkell Karlsson bóndi, Hrauni, Júlíus Ingvarsson verktaki, Þor- lákshöfn. Sigurður Þráinsson bæjar- fulltrúi sem skipaði fyrsta sæti listans við síðustu sveitarstjórna- kosningar gaf ekki kost á sér áfram, segir í fréttatilkynningu. Listi Fram- sóknar- manna í Ölf- usi ákveðinn KONUR sem fengið hafa eggja- stokkakrabbmein hafa myndað áhugahóp sem áformar að hittast síðasta miðvikudag í hverjum mán- uði. Í dag, miðvikudaginn 27. mars kl. 17, verður hist í húsi Krabba- meinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Guðrún Sigurjónsdóttir, formaður Samhjálpar kvenna, segir frá starfi þess hóps, sem sinnir konum sem hafa greinst með brjóstakrabba- mein, segir í fréttatilkynningu. Fundur um eggjastokka- krabbamein VIÐSKIPTA- og hagfræðideild Háskóla Íslands efnir til morgun- verðarfundar á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, í dag, miðviku- daginn 27. mars kl. 8.30–10, um hlutverk stjórna í fyrirtækjum. Erindi halda: Runólfur Smári Steinþórsson, dósent í Viðskipta- og hagfræðideild HÍ, Áslaug Björgvinsdóttir, lektor í Lagadeild HÍ, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar og Kaldbaks hf. Fundastjóri er Gylfi Magnússon, dósent í við- skipta- og hagfræðideild HÍ. Skráning er á netfanginu astad- is@hi.is. Aðgangseyrir er kr. 1500, sem greitt er á staðnum. Innifalið er morgunverður og kaffi, segir í fréttatilkynningu. Hlutverk stjórna í fyrirtækjum Í VELDI Vatnajökuls – þjóðgarð- ur elds og ísa – Ísland fyrir ís- lenska ferðamenn, heitir námskeið á vegum Endurmenntunar Há- skóla Íslands sem verður haldið 17.–29. apríl, mánudaga og mið- vikudaga, kl. 20.15–22:15. Fjallað verður um hvort ástæða sé til að stofna risaþjóðgarð á há- lendi Íslands – og þá hvar, hver séu einkenni og sérkenni svæð- isins, hvað þurfi að vernda og fleira. Kennarar verða Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur og rithöfundur, Nele Lienhopp, Sig- rún Helgadóttir náttúrufræðingur og Magnús Tumi Guðmundsson, dósent við HÍ. Verð er 9.700. Skráning er á http://www.endurmenntun.hi.is. Námskeið um þjóðgarða JARÐFRÆÐI Reykjaness, í nám- skeiðaröðinni Ísland fyrir íslenska ferðamenn, verður hjá Endur- menntun Háskóla Íslands fimmtu- daginn 4. og 11. apríl kl. 20.15- 22.15. Á námskeiðinu verður farið í f erðir laugardagana 6. og 13. apríl og sunnudaginn 14. apríl. Kennarar eru Hreggviður Norð- dahl og Helgi Torfason jarðfræð- ingar. Verð á námskeiðið er kr. 14.800. Námskeiðið er ætlað áhugafólki um jarðfræði og náttúru, kennur- um, leiðsögumönnum, fólki í ferða- þjónustu og öðrum. Farið verður í jarðfræði Reykjanesskagans og mótun hans síðustu 5-600 þúsund árin. Sprungusveimar, brot og jarð- skjálftar, rek hafsbotnsins, berg- tegundir og breytileg ásýnd eftir umhverfi o.fl. Farið verður í þrjár heilsdags- ferðir um Reykjanes: Keflavík-Mið- nes, Reykjavík-Grindavík-Svarts- engi, Krísuvík-Selvogur. Skráning: http://www.endur- menntun.hi.is Námskeið um jarðfræði Reykjaness OFFITUNÁMSKEIÐ fer fram á Húsavík 12.–18. apríl. Þátttakend- ur gista á Fosshótel Húsavík, en meðferðin fer að miklu leyti fram þar. Meðferð er miðuð við getu hvers og eins og byggist upp á lækn- isskoðun, viðtali við hjúkrunar- fræðing og næringarfræðing, auk líkamsþjálfunar í formi sundleik- fimi, æfinga í tækjasal og göngu- ferða, slökunar og svæðanudds. Einnig verður kennd matreiðsla þar sem þátttakendur læra að matreiða hollan og góðan mat und- ir handleiðslu matreiðslumeistara og næringarfræðings. Að nám- skeiði loknu verður boðið upp á eftirfylgni til að stuðla að því að þátttakendur nái settu markmiði. Laugardaginn 13. apríl kl. 13–18 fer fram fræðsludagskrá á Foss- hótel Húsavík. Þar halda erindi: Óttar Guðmundsson læknir, Ás- laug Halldórsdóttir hjúkrunar- færðingur, Ásgeir Böðvarsson læknir, Valur Kristinsson læknir, Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrun- arfræðingur, Guðrún Þóra Hjalta- dóttir næringarfræðingur og Sveinbjörn Sigurðsson sjúkraþjálf- ari, segir í fréttatilkynningu. Námskeið um offitu HEILBRIGÐISSTOFNUN Þing- eyinga og Ráðgjöf í reykbindindi – grænt númer – standa fyrir nám- skeiði til reykleysis í Mývatnssveit dagana 9. til 14. maí. Þátttakendur byrja strax und- irbúning meðferðar með hand- leiðslu og ráðgjöf símaþjónustunn- ar Ráðgjafar í reykbindindi. Meðferðin felst í læknisskoðun, líkamsþjálfun, fræðslu, viðtölum við hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá Ráðgjöf í reykbindindi, slökun og gönguferðum í rómuðu um- hverfi Mývatnssveitar. Þátttakendur gista í Hótel Reynihlíð og fer meðferð að miklu leyti fram þar. Föstudaginn 10. maí kl. 13-18 verður fræðsludag- skrá í Hótel Reynihlíð, segir í fréttatilkynningu. Námskeið um reykbindindi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun: „Stjórn SMS – Samskipta með síma ehf. – á Stöðvarfirði lýsir yfir fullum stuðningi við störf og mál- flutning framkvæmdastjóra fyrir- tækisins á opinberum vettvangi síð- ustu vikur. Stjórnin harmar að umræðunni hafi verið stillt upp sem úlfúð á milli bæjarfélaga sem hvort um sig hefur reynt að nýta nútímatækni til auk- innar fjölbreytni í atvinnulífi stað- anna og hvetur til jákvæðari um- ræðu um flutning starfa út á land. Stjórnin telur mjög brýnt að hrað- að verði flutningi verkefna frá Al- þingi til fjarvinnslu á Stöðvarfirði í samræmi við gefin fyrirheit. Ennfremur skorar stjórn SMS á ráðherra og aðra ráðamenn að standa við margítrekaðar yfirlýsing- ar um flutning verkefna út á lands- byggðina. Áralangar tafir á efndum verða ekki túlkaðar sem annað en viljaleysi og eru einungis til þess fallnar að rýra traust íbúa hinna dreifðari byggða á kjörnum fulltrú- um sínum.“ Hraðað verði flutningi verk- efna út á land NÝLEGA var undirritaður á Bif- röst samstarfssamningur milli Við- skiptaháskólans á Bifröst og Við- skiptaháskólans í Otaru í Japan. Samkvæmt samningnum munu tveir nemendur frá Bifröst stunda nám í Japan árlega og verða þeir nemendur sem kost fá á námsvist næsta vetur valdir nú í mars. Í Ot- aru munu nemendurnir bætast í al- þjóðlegan skiptinemahóp frá Asíu, Evrópu, Ameríku og Eyjaálfu sem stunda nám á ensku við skólann með áherslu á menningartengda markaðsfræði og hagfræði Asíul- anda. Að auki gerir samningurinn ráð fyrir virku rannsóknarsamstarfi og kennaraskiptum. Viðskiptaháskólinn í Otaru er staðsettur í bænum Otaru í útjaðri borgarinnar Sapporo á Hokkaídó- eyju, nyrstu eyju Japans. Í Otaru búa um 170 þúsund manns, en um 4 þúsund nemendur stunda nám við skólann, þar af nokkur hundruð er- lendra stúdenta. Við skólann starf- ar íslenskur prófessor, dr. Jón Þrándur Stefánsson. Samningurinn er mikilvægur skólanum og íslensku atvinnulífi þar sem mikill skortur hefur verið á viðskiptamenntuðu fólki með sér- þekkingu á japönskum aðstæðum í viðskiptalífi og menningu. Þrátt fyrir mikil og vaxandi viðskipti milli Íslands og Japans hafa fáir Ís- lendingar stundað þar við- skiptanám og hefur slíkt háð nánari viðskiptatengslum. Nýstofnað sendiráð Íslands í Tókýó veitti Viðskiptaháskólanum aðstoð við samningsferlið, segir í fréttatilkynningu. Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, og Atsushi Takahashi, framkvæmdastjóri alþjóðadeildar Viðskiptaháskólans í Ot- aru, undirrita samstarfssamning skólanna tveggja á Bifröst. Samdi við jap- anskan háskóla ATKVÆÐAGREIÐSLA utan kjör- fundar vegna sveitarstjórnarkosn- inga sem fram fara 25. maí næst- komandi hefst 2. apríl. Atkvæðagreiðslan hefst því áður en framboðsfrestur rennur út sam- kvæmt lögum um kosningar til sveit- arstjórna, segir í frétt frá dóms-, kirkjumála- og félagsmálaráðuneyt- unum. Samkvæmt kosningalögum fer at- kvæðagreiðsla utan kjörfundar þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil bókstaf þess lista, þegar um listakosningu er að ræða, sem hann vill kjósa og má hann jafnframt geta þess hvernig hann vill hafa röðina á listanum. Í frétt ráðuneytanna er bent á að stjórnmálasamtök sem buðu fram við síðustu alþingiskosningar eiga sér fastan listabókstaf. Listabókstaf- ir annarra samtaka sem bjóða fram við sveitarstjórnarkosningar, verða hins vegar ákveðnir af yfirkjörstjórn að framboðsfresti liðnum. Samkvæmt kosningalögum skal ekki meta atkvæði ógilt, þó gallað sé, ef greinilegt er hvernig það á að falla. Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land og hjá hreppstjórum. Ennfrem- ur á sjúkrahúsum, fangelsum, dval- ar- og vistheimilum samkvæmt ákvörðun sýslumanns. Ef kjósandi getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barns- burðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi, hafi kjósandi sótt um það skriflega eigi síðar en fjórum dögum fyrir kjördag. Erlendis fer atkvæðagreiðsla fram á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnunum, hjá kjörræðismönnum eða á öðrum stöðum samkvæmt ákvörðun utan- ríkisráðuneytisins. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 2. apríl Rangt föðurnafn Þau mistök urðu við vinnslu fréttar Morgunblaðsins í gær af er- indi Jóns Karls Ólafssonar á mál- þingi um samgönguáætlun að rang- lega var farið með föðurnafn hans. Velvirðingar er beðist á þessu rang- hermi. Rangt föðurnafn í bridsþætti Rangt var farið með föðurnafn Steingríms Gauts Péturssonar í bridsþætti í Morgunblaðinu í gær og er beðist velvirðingar á því. Þar var einnig ranglega sagt að þrír félagar í bridssveit sem nefnir sig Ógæfu- mennina séu núverandi Norður- landameistarar ungmenna í brids; þeir eru tveir. LEIÐRÉTT HJÁ versl- unum og umboðs- mönnum Tals fylgir nú Bíókort og 6.000 króna inn- eign í GSM-símum í Talfrelsi og Tali 12. Gegn framvísun Bíókortsins er fjórum sinnum frítt á mynd að eigin vali í Smárabíói eða Regnboganum. Þá er í eitt skipti frítt á bíómyndina Spider-Man í Smárabíói eða Regn- boganum. Einnig felast í Bíókortinu afslátt- arkjör á geisladiski, tölvuleik og DVD-mynd í verslunum Skífunnar svo og eitt skipti frítt í sund og dag- skort á skíði í Bláfjöllum, Skálafelli eða Hengli, segir í fréttatilkynningu. Bíókort – nýj- ung hjá Tali UM síðustu sjómannadagshelgi kom hópur Frakka í heimsókn til Pat- reksfjarðar. Heimsóknin tókst það vel að búið er að skipuleggja aðra heimsókn Frakka til Patreksfjarðar. „Við erum að skipuleggja leiðang- ur til að minningar um góletturnar með hvítu seglin og fiskimennina okkar sem kallaðir voru Les Island- is, eða Íslendingarnir,“ segir í skeyti frá Frökkunum til Patreksfirðinga. „Við viljum ennfremur óska þess að götu eða torgi yrði gefið nafn við þetta tækifæri í minningu fiskimann- anna frönsku, t.d. Gólettu-torg, Bin- ic-mannagata eða eitthvað svipað,“ segir í bréfinu. Til stendur að um tuttugu til þrjá- tíu Frakkar komi til Patreksfjarðar um sjómannadagshelgina. Í hópnum eru til að mynda myndhöggvari, list- málarar, hljóðfæraleikarar, afkom- endur skútukarlanna, skipstjórar og útgerðarmenn stærri fiskiskipa, blaðamaður, sagnfræðingur og vís- indamenn. Patrick Stein, ungur myndhöggv- ari sem hefur hlotið alþjóðlega við- urkenningu, hefur í hyggju að höggva út minnismerki á staðnum. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur kosið nefnd vegna þessa og skipa hana Jón Gunnar Stefánsson bæjar- stjóri, Þuríður Ingimundardóttir og María Óskarsdóttir, en hún er að- altengiliður við Frakkana. Í framhaldi af heimsókninni verð- ur komið á vinarbæjartengslum milli staðanna. Frakkar efla tengslin við Pat- reksfirðinga Patreksfirði. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.