Morgunblaðið - 27.03.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VERÐ var lækkað um 3% í fjölda
verslana við Laugaveg um síðustu
helgi. Bolli Kristinsson kaupmaður
segir að forsvarsmenn ASÍ hafi átt
fund með fulltrúum Laugavegssam-
takanna á föstudag og skömmu síðar
hafi verðlækkun verið komin til fram-
kvæmda í fjölmörgum verslunum.
„Við viljum taka þátt í þeirri við-
leitni að halda verðlagi fyrir neðan
rauða strikið. Eftir fundinn á föstu-
dag var sent dreifibréf í allar versl-
anir við Laugaveginn með tilmælum
um verðlækkun og tóku velflestir vel
í það,“ segir Bolli.
NTC ehf. rekur verslanir við
Laugaveg og í Kringlunni og segir
Bolli að verð hafi líka verið lækkað í
verslunum félagsins í Kringlunni sem
eru átta.
60–70% hafa lækkað verð
Jón Sigurjónsson í versluninni
Jóni og Óskari kveðst telja að 60–
70% kaupmanna við Laugaveginn
hafi lækkað verð fyrir síðustu helgi.
„Einhverjir lækka verðið meira en
um 3%. Við erum til að mynda með
5% staðgreiðsluafslátt og leggjast
þessi 3% ofan á hann. Þannig er því
líklega háttað víðar,“ segir hann.
Um 200 verslanir eru við Lauga-
veg og hafa þeir kaupmenn sem
lækkað hafa verð hengt blað með
rauðu striki út í glugga, segir Jón
ennfremur.
Beinir ASÍ þeim tilmælum til fólks
á heimasíðu sinni að beina viðskipt-
um frekar til þeirra kaupmanna sem
lækkað hafa verð að undanförnu.
„Frekar en þeirra sem ekki axla sinn
hluta ábyrgðarinnar,“ segir ASÍ.
Allmargir sérvörukaupmenn í
Smáralind urðu við tilmælum ASÍ
um verðlækkun í síðustu viku, svo
sem greint hefur verið frá í Morg-
unblaðinu.
3% verðlækkun í fjölda
verslana við Laugaveg
Morgunblaðið/Golli
LÁTINN er í Reykja-
vík Sveinn Þormóðs-
son ljósmyndari. Hann
fæddist þann 26. júní
1926 og var því á 76.
aldursári þegar hann
lést.
Foreldrar Sveins
voru Theódóra Stef-
ánsdóttir, húsfreyja
frá Krókvöllum í Garði,
og Þormóður Sveins-
son, fisksali úr Þing-
vallasveit.
Sveinn hóf störf ung-
ur hjá setuliðinu eða
tólf ára gamall og vann
þá meðal annars sem túlkur fyrir
starfsmenn þess. Síðar var hann
sendibílstjóri um árabil.
Um 1950 tók hann að ljósmynda
fyrir Morgunblaðið í lausamennsku
meðfram sendibílastarfinu en síðar
var hann ráðinn fastur starfsmaður
blaðsins. Árið 1976 hóf hann störf á
Dagblaðinu og við sameiningu þess
og Vísis var hann ráð-
inn til DV. Sveinn starf-
aði hjá DV þar til hann
slasaðist fyrir einu og
hálfu ári. Sveinn var
einna þekktastur fyrir
ljósmyndir frá íþrótta-
viðburðum og myndir
af vettvangi lögregl-
unnar. Árið 1999 gaf
hann Reykjavíkurborg
filmusafn sitt frá ára-
bilinu 1950 til ársins
1974 í tilefni af útgáfu
ævisögu sinnar, Á hæl-
um löggunnar.
Sveinn var kvæntur
Dagfríði Pétursdóttur og áttu þau
sjö börn, Sveineyju, Þormóð, Braga
Rúnar, Kristínu, Sigríði, Theódóru
og Hörð Inga. Eru fimm af þeim
systkinum búsett erlendis.
Að leiðarlokum þakkar Morgun-
blaðið Sveini störf hans fyrir blaðið
og sendir ástvinum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Andlát
SVEINN
ÞORMÓÐSSON
GERA má ráð fyrir því að það
muni taka bróðurpartinn af þessu
ári að finna nýjan samstarfsaðila
vegna byggingar álvers á Reyð-
arfirði og menn geti í fyrsta lagi
búist við ákvörðun einhvern tím-
ann seint á næsta ári hjá slíkum
aðila.
Þetta segir Geir A. Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður Reyðaráls.
Aðspurður hvort menn muni hefja
leit að nýjum samstarfsaðila segir
Geir að stjórnvöld, Landsvirkjun
og Reyðarál eigi eftir að ræða
hvernig staðið verði að því að finna
nýjan aðila. „Ég reikna með því að
menn að vinni því að einhverju
leyti í sameiningu. Við erum auð-
vitað í ákveðnu samstarfi við Norð-
mennina og það er alls ekki úti-
lokað að þeir taki þátt í verkefninu
þegar upp er staðið,“ sagði Geir.
Hann segir að Norsk Hydro eigi
enn helmingshlut í Reyðaráli á
móti Hæfi og það hafi ekki breyst
og standi heldur ekki til.
Ákvörðun í fyrsta
lagi seint á næsta ári
Stjórnarformaður Reyðaráls
„IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur
reynst okkur vel vegna hugmynda
um stækkun Norðuráls,“ segir
Kenneth Peterson, eigandi Col-
umbia Ventures Corporation, móð-
urfyrirtækis Norðuráls.
„Meginvandamálið hefur verið
skortur á raforku. Stækkun verk-
smiðjunnar tekur nokkur ár og þarf
töluverðan tíma til að undirbúa slíkt.
Viðbótarraforka hefur einfaldlega
ekki verið í boði.“
Hann segir að álmarkaðurinn taki
stöðugum breytingum og það sama
eigi við um fjárfestingar Columbia
Ventures. Því hefði verið gott ef raf-
orkan hefði verið til staðar til stækk-
unar Norðuráls.
Iðnaðarráðu-
neytið hefur
reynst vel
Kenneth Peterson
anfarin tvö ár hafi gjörbreytt hlut-
fallslegu verðlagi hérlendis miðað
við nágrannalönd. Í árslok 1999 var
neysluverðlag í viðskiptalöndunum
um 16% lægra að meðaltali en hér á
landi en í desember síðastliðnum
var það orðið 4% hærra.
Í Hagvísum segir að umskiptin
hafi orðið mest gagnvart Banda-
ríkjunum. Verðlag hafi verið um
fjórðungi lægra í Bandaríkjunum
en á Íslandi í árslok 1999 en það
hafi verið 8% hærra í lok síðasta
árs.
SKULDIR heimila hér á landi hafa
vaxið hraðar en í Bretlandi, Þýska-
landi, Bandaríkjunum og Japan en
þær voru rúm 80% af ráðstöf-
unartekjum í árslok 1990. Í árslok
árið 2001 voru þær orðnar 170% af
ráðstöfunartekjum. „Slík þróun er
umhugsunarefni og setur aukinni
einkaneyslu og íbúðafjárfestingu í
framtíðinni þröngar skorður,“ seg-
ir m.a. í nýútkomnum Hagvísum
Þjóðhagsstofnunar.
Þá kemur fram í Hagvísum að
lækkun á verðgildi krónunnar und-
Skuldir heimila 170%
af ráðstöfunartekjum
$ (.//01200.
*+,
#-(
#.(
#$(
#/(
#((
-(
.(
01( 01# 01/ 01) 01$ 012 01. 013 01- 011 0(( 0(#
4
56
LANDSVIRKJUN hefur skilað inn
drögum að mati á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu til Skipulags-
stofnunar ríkisins. Að sögn Stefáns
Thors, skipulagsstjóra ríkisins, eru
drögin nú til yfirlestrar hjá stofnun-
inni og verða það til 8. apríl. „Eftir
það mun framkvæmdaraðili vinna úr
athugasemdum Skipulagsstofnunar
og senda stofnuninni í framhaldi af
því matsskýrslu samkvæmt 10. grein
laga. Þá hefur skipulagsstofnun tvær
vikur til þess að meta hvort skýrslan
sé í samræmi við matsáætlun. Ef svo
verður þá verður hún auglýst og hið
formlega ferli hefst.“
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir Lands-
virkjun hafa sent inn tilbúna skýrslu
en skipulagsstofnun ákveði síðan
hvort skýrslan sé nógu góð til að hún
verði útgefin og tekin til umfjöllunar.
„Ef þetta gengur upp, munum við
væntanlega auglýsa skýrsluna og
gefa hana út um miðjan apríl og þá fer
í hönd kynningartímabil. Það má því
gera ráð fyrir að í sumar geti legið
fyrir niðurstaða í málinu. En hana
geta menn að vísu kært til umhverf-
isráðherra ef svo ber undir.“
Spurður um raforkusölu vegna
mögulegrar stækkunar Norðuráls á
Grundartanga, segir Þorsteinn að hjá
Landsvirkjun sé það í grundvallarat-
riðum þannig að enginn virkjunar-
kostur sé beint tengdur ákveðnum
notanda. „Menn hafa vissulega að
undanförnu rætt nokkuð um Norður-
ál en það er líka áhugi af hálfu ÍSAL
um stækkun þar. Búðarhálsvirkjun
sem við erum þegar byrjuð að und-
irbúa í framkvæmdum og hins vegar
Norðlingaölduveita eru kostir sem við
höfum talið að væru fljótvirkastir til
þess að geta orðið við óskum annars
hvors þessara aðila um fyrsta hlutann
af sinni stækkun. Talað hefur verið
um 90.000 tonna stækkun hjá Norð-
uráli og líklega heldur meira hjá
ÍSAL og þá gætu þessir kostir komið
inn í þá mynd. Okkur ber á hverjum
tíma,“ segir Þorsteinn, „að hafa leiðir
til þess að geta orðið við aukinni eft-
irspurn viðskiptavina okkar.“
Mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu
Landsvirkjun hefur
skilað inn drögum
EFNAHAGSBROTADEILD ríkis-
lögreglustjóra hefur gefið út ákæru á
hendur lögfræðingi, sem stundaði
innheimtustarfsemi í nafni fyrirtækis
síns en honum er gefið að sök að hafa
notað fé sem hann innheimti fyrir um-
bjóðendur sína í eigin rekstur og að
hafa þar af leiðandi ekki staðið um-
bjóðendum sínum skil á fénu.
Innheimtufyrirtækið lagði síðar
upp laupana, en fjárhæðir sem talið
er að hafi verið skotið undan hlaupa á
nokkrum milljónum króna.
Ákæran var þingfest fyrir héraðs-
dómi í gær.
Lögfræðingur
í innheimtu
ákærður
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
fer í opinbera heimsókn til Víet-
nam dagana 3.-6. apríl næstkom-
andi en hann
hefur þegið boð
Phan Van Kai,
forsætisráðherra
Víetnam, þar
um. Með heim-
sókninni er end-
urgoldin heim-
sókn fyrrverandi
forsætisráðherra
Víetnam hingað
til lands í júní
1995.
Í fréttatilkynningu frá forsæt-
isráðuneytinu segir að með í för
verði viðskiptasendinefnd undir
forystu Útflutningsráðs Íslands. Í
henni verða fulltrúar um 15 fyr-
irtækja sem ýmist hyggja á eða
stunda viðskipti við Víetnam. Þá
verður í heimsókninni undirritaður
tvísköttunarsamningur milli
ríkjanna og sérstök yfirlýsing um
að hvetja til og greiða fyrir aukn-
um viðskiptum þeirra í milli.
Þá segir að forsætisráðherra
muni heimsækja höfuðborgina,
Hanoi, og Ho Chi Minh borg og
meðal annars eiga viðræður við
forsætisráðherra landsins, forseta
og forseta þings Víetnam.
Með forsætisráðherra í för
verða eiginkona hans, embættis-
menn í forsætisráðuneytinu og
fulltrúi viðskiptaþjónustu utanrík-
isráðuneytisins.
Forsætis-
ráðherra í
heimsókn
til Víetnam
Davíð
Oddsson
♦ ♦ ♦