Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 6

Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hefur að fengnu áliti Páls Hreinsson- ar lagaprófessors um dóm Hæsta- réttar í máli Öryrkjabandalagsins um aðgang að minnisblaði, gefið út svonefnt umburðarbréf til allra ráðuneyta um meðferð gagna sem undirbúin eru fyrir ríkisstjórnina og miðlun upplýsinga af fundum henn- ar. Jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að hefja á ný útgáfu til- kynninga til fjölmiðla um dagskrá ríkisstjórnarinnar að loknum fund- um hennar. Páll Hreinsson segir í álitsgerð sinni að með dómi sínum hafi Hæsti- réttur mótað nýjar reglur sem höggvi skarð í þá löggjafarstefnu sem mörkuð hafi verið með upplýs- ingalögunum. Dómurinn talinn marka þáttaskil í meðferð gagna Í umburðarbréfi forsætisráðherra segir að dómurinn marki þáttaskil í meðferð gagna, sem undirbúin eru fyrir ríkisstjórnina, og framkvæmd upplýsingalaga m.t.t. þeirra. ,,Í ljósi þeirra ályktana sem af dómnum verða dregnar og hjálagðs álits á fordæmisgildi hans er því hér með beint til ráðuneytanna að gæta að eftirtöldum atriðum við meðferð gagna sem undirbúin eru fyrir rík- isstjórn eða fundi tveggja eða fleiri ráðherra: Áritun gagna sem undirbúin eru fyrir ríkisstjórn eða fundi tveggja eða fleiri ráðherra. Þegar gögn, sem undirbúin hafa verið fyrir ríkisstjórn eða fundi tveggja eða fleiri ráðherra, eru send stjórnvöldum utan stjórn- arráðsins til frekari vinnslu í þágu stjórnarstefnunnar, skulu þau árituð um trúnað skv. 1. tölul. 4. gr. upplýs- ingalaga, ef ástæða er til að undan- þiggja þau aðgangi á þeim grund- velli. Slíka áritun má t.d. færa með svohljóðandi stimplun: Undanþegið aðgangi skv. 1. tölul. 4. gr. uppl.,“ segir í umburðarbréfi forsætisráð- herra. Þar segir einnig um hlutverk nefnda, sem skipaðar eru til að und- irbúa stefnumótun í þágu ríkis- stjórnarinnar, að þegar utanaðkom- andi gagna er aflað, „sem ætla má að lögð verði til grundvallar við póli- tíska stefnumörkun af hálfu ráð- herra eða ríkisstjórnar, er ástæða til að þess sé getið sérstaklega í skip- unarbréfum nefnda, sem falið er slíkt hlutverk. Sama á við um erind- isbréf til sérfræðinga, sem til er leit- að í sama skyni.“ Slá skjaldborg um pólitíska umfjöllun og stefnumótun Í álitsgerð sinni segir Páll Hreins- son að finna megi svipaðar eða sam- bærilegar undanþágur frá upplýs- ingarétti almennings í öllum Evrópuríkjum og fram komi í um- ræddu undanþáguákvæði 1. töluliðar 4. gr. upplýsingalaganna. Skjöl, sem útbúin eru fyrir fundi ráðherra og ríkisstjórnar, hafi oft að geyma vangaveltur, álit, stöðumat eða tillögur, sem síðan er byggt á við pólitíska stefnumörkun. Slík undan- þáguákvæði séu almennt studd þeim rökum að nauðsyn beri til að slá skjaldborg um pólitíska umfjöllun og stefnumótun ríkisstjórnar. Nauðsynlegt sé að gefa ráðherr- um færi á að láta undirbúa mál fyrir ríkisstjórnarfundi þar sem kostir þeirra og gallar eru ræddir opinskátt og grundvöllur lagður að sátt um pólitíska stefnu ríkisstjórnar á hverjum tíma. Slík undanþágu- ákvæði séu vafalítið einnig byggð á þeim raunsæisviðhorfum að ef þau væru ekki sett ,,væri hætt við að pólitísk stefnumótun myndi flytj- ast út af fundum ríkisstjórnar yfir í ,,reykfyllt bakherbergi úti í bæ“ þar sem upplýsingalögin gilda ekki,“ segir í álitsgerð Páls. Þrengri skýring og óvænt niðurstaða Fram kemur að umrætt ákvæði á sér fyrirmynd í dönsku upplýsinga- lögunum. Páll telur að niðurstaða meirihluta Hæstaréttar feli í sér þrengri skýringu á efnisinntaki 1. töluliðar 4. greinar upplýsingalag- anna en dæmi séu um hér á landi og einnig ef borið sé saman við túlkun á sambærilegu ákvæði dönsku lag- anna. Dómur Hæstaréttar byggist þannig á þrengri skýringu en búast hafi mátt við, að mati hans. ,,Þegar virtir eru þeir varnaglar, sem slegnir eru í forsendum dóms- ins, blasir á hinn bóginn við sú óvænta niðurstaða að stjórnvöld virðast hafa það í hendi sér með merkingu fyrirvara á skjöl að við- halda nánast óbreyttri stjórnsýslu- framkvæmd. [...] er slíkt fyrirkomu- lag ekki í samræmi við þá löggjafarstefnu sem upplýsingalögin eru byggð á,“ segir í álitsgerðinni. Hann segir einnig að forsendur dómsins séu ekki aðeins sérstæðar fyrir þá sök að með þeim búi Hæsti- réttur til nýja reglu um afmörkun undanþáguákvæðisins heldur séu þær einstæðar sökum þess að hin nýja regla gangi þvert á þá löggjaf- arstefnu, sem mörkuð hafi verið með upplýsingalögunum. Dönsku upplýsingalögin hafi verið byggð á því viðhorfi að það væru ákvæði laganna og heimfærsla efnis og eðlis skjalanna til þeirra, sem réði því hvort skjal félli undir undanþáguákvæðin en ekki merk- ingar stjórnvalda á skjölum. ,,Þess- ari löggjafarstefnu var fylgt við gerð frumvarps til upplýsingalaga, sem varð að lögum nr. 50/1996. Í sam- ræmi við þessa löggjafarstefnu segir því t.d. í athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins að fyrirmæli yfir- manns til undirmanns um að gæta þagmælsku um tilteknar upplýsing- ar geti ekki takmarkað aðgang að upplýsingum samkvæmt 1. mgr. 3. gr. og 9. gr. frumvarpsins nema fyrirmælin eigi sér skýra stoð í sér- ákvæði laga um þagnarskyldu. Þar sem reynslan sýnir að ávallt er hætt við að stjórnvöld fari offari við merk- ingar á skjölum og undanþiggi þá fleiri skjöl en heimilt er, hefur fram- angreind löggjafarstefna verið talin til einkenna á þróaðri upplýsingalög- gjöf. Með þeim nýju reglum, sem Hæstiréttur hefur mótað á þessu sviði, er höggvið skarð í þessa stefnu,“ segir í álitsgerð Páls Hreinssonar lagaprófessors. Forsætisráðherra sendir ráðuneytum umburðarbréf um meðferð gagna vegna dóms Hæstaréttar Gögn vegna undirbún- ings ríkisstjórnarfunda skulu árituð um trúnað Á AÐALFUNDI Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, mánudaginn 25. mars 2002, tók Gunnar Páll Pálsson, hagfræðingur, við formennsku í fé- laginu af Magnúsi L. Sveinssyni. Á fundinum voru einnig samþykktar breytingar á lögum félagsins. Magnús hafði gegnt starfi for- manns félagsins í 22 ár en starfað hjá félaginu alls í 42 ár. Hann til- kynnti fyrr á árinu að hann myndi ekki gefa kost á sér til áframhald- andi setu sem formaður. Ný stjórn félagsins samþykkti einróma að leggja til að Gunnar Páll Pálsson yrði formaður og var það einnig einróma samþykkt í trúnaðar- mannaráði félagsins. Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson Gunnar Páll Pálsson og Magnús L. Sveinsson. Formannsskipti hjá VR ÖLL sveitarfélög á Vestfjörðum ásamt aðilum úr atvinnu-, mennta- og menningarlífi standa að byggðaáætl- un fyrir Vestfirði sem lögð hefur verið fram til stuðnings við þingsályktun- artillögu um stefnu í byggðamálum 2002 til 2005 sem nú liggur fyrir Al- þingi. „Verkefni í áætluninni eru yfir áttatíu sem undirstrikar þá trú sem Vestfirðingar hafa sjálfir á nýsköpun atvinnulífsins á sínu svæði og þá möguleika sem Vestfirðir hafa til virkilegrar eflingar atvinnulífsins,“ segir í frétt frá sveitarfélögunum. Í byggðaáætlun fyrir Vestfirði er markmiðið að fólki fjölgi á svæðinu í svipuðu hlutfalli og á landsvísu. Lögð er áhersla á að sambærilegar aðstæð- ur séu fyrir atvinnulíf sem íbúa án til- lits til hvar á landinu þeir búa og segir í fréttinni að þetta sé í samræmi við þingsályktun um stefnu í byggðamál- um. Í áætluninni er sjávarútvegur sá- grunnur sem tillögur byggjast á. Áætlunin hefur verið kynnt ráð- herra byggðamála og þingmönnum Vestfirðinga og iðnaðarnefnd Alþing- is. Er það von sveitarfélaganna að þau jákvæðu viðbrögð sem þar fengust skili sér inn í endanlega byggðaáætl- un 2002 til 2005 fyrir landið í heild. Kynntu eig- in byggða- áætlun netin úr Agli Halldórssyni og skip- verjar komnir í páskafrí. Egill Hall- dórsson er 100 tonna stálskip, smíð- eru uppi um að sjór hafi komist inn um lensikerfið,“ sagði Jón Þór í gær. Á mánudag var lokið við að taka EKKI mátti miklu muna að netabát- urinn Egill Halldórsson SH 2 sykki í höfninni í Ólafsvík í gærmorgun. „Það mátti ekki tæpara standa. Við héldum satt að segja að við vær- um að missa bátinn niður,“ sagði Jón Þór Lúðvíksson, slökkviliðsstjóri í Ólafsvík, í samtali við Morgunblaðið. Það tók slökkviliðsmenn um tvær klukkustundir að dæla úr bátnum og koma honum á réttan kjöl, en 45° halli var kominn á hann í morgun. Slökkviliðið var kallað út klukkan hálfátta í morgun til að dæla úr bátnum. Hófst það þegar handa við að dæla úr skipinu. Síðar bættist við aðstoð frá slökkviliðinu á Grundar- firði, sem kom með aukadælur. Nú er búið að rétta skipið af en ekki er ljóst hvað olli lekanum, en sjór var kominn í vélarrúm og lestin var orð- in full þegar slökkviliðsmenn komu að. „Báturinn var orðinn fullur af sjó og hékk nánast í landfestunum. Það er vitað að allt var í lagi með bátinn í gærkvöldi þannig að hann hefur fyllt sig á skömmum tíma í nótt. Ekki er vitað hvað olli lekanum en getgátur að á Seyðisfirði árið 1976. Áður hefur skipið borið nöfnin Ársæll SH, Farsæll SH og Langanes ÞH. Næstum sokkinn í höfninni Morgunblaðið/Alfons Egill Halldórsson SH hallaðist á tímabili um 45° og ekki mátti miklu muna að hann sykki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.