Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
4.995
frostþol -10 C
Nitestar 250 svefnpoki
Þriggja manna með himni
og fortjaldi
APACHE kúlutjald
50+10 lítrar, með stillanlegu baki
þyngd aðeins 2,34 kg
Ferðabakpoki
0
kr.
13.995 kr.
8.995 kr.
tilboð
Fermingar-
Sími 525 3000 • www.husa.is
Nei, nei, hr. Bondevik, Dóri litli er bara að blása sápukúlur.
FÓLK sem veiktist af kamfýlóbakt-
ersýkli eftir að hafa borðað kjúk-
lingalæri frá Reykjagarði á ekki rétt
á skaðabótum þar sem Hæstiréttur
taldi að ekki hefði tekist að sýna
fram á að varan hefði verið haldin
ágalla í merkingu laga um skað-
semisábyrgð. Með þessu staðfesti
Hæstiréttur niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Á umbúðum kjúklingalæranna
voru leiðbeiningar um að kjötið ætti
annaðhvort að gegnumsteikja eða
sjóða.
Fólkið hélt því fram að Reykja-
garði hefði verið kunnugt um sýk-
inguna og því hafi merkingar á vör-
unni verið ófullnægjandi. Hæsti-
réttur taldi að ekki hefði verið leitt
nægjanlega í ljós fyrir dómnum að
Reykjagarður hefði mátt vita að
mikill hluti framleiðslunnar væri
sýktur í apríl 1999 og að fyrirtækinu
hafi borið að vara sérstaklega við og
skora á þá að fylgja leiðbeiningum
fast eftir. Var því Reykjagarður
sýknaður.
Hvor aðili ber málskostnað. Gest-
ur Jónsson, hrl. flutti málið f.h.
Reykjagarð en Jón Magnússon f.h.
fólksins sem veiktist.
Engar bæt-
ur vegna
sýktra
kjúklinga
♦ ♦ ♦
SEX hross drápust þegar þau urðu
fyrir vöruflutningabíl skammt vest-
an Langár á Mýrum aðfaranótt
mánudags.
Hrossin drápust samstundis en
ökumann sakaði ekki. Að sögn lög-
reglunnar í Borgarnesi er talið að
hrossin hafi sloppið út úr girðingu
skömmu áður en þau lentu fyrir bíln-
um. Ummerki bentu til þess að
hrossin hafi stokkið á hlið og slitið
það niður.
Talsverðar skemmdir urðu á bíln-
um sem er um 20–30 tonn að þyngd.
Sex hross
urðu fyrir vöru-
flutningabíl
Fossberg 75 ára í dag
Á mér raunar
ýmsa drauma
SJÖTÍU og fimm áreru langur tími ísögu fyrirtækis á
Íslandi, það er ekki svo
ýkja langt síðan að þjóðin
skreið út úr torfkofunum.
Eflaust hefur á ýmsu
gengið hjá hérlendu fyrir-
tæki með slíkan starfsald-
ur, en eitt er víst að slíkt
fyrirtæki hefur skapað
sér sess sem einn af föstu
punktunum í atvinnulífinu
og -sögunni. Fyrirtækið
Fossberg er einmitt 75
ára um þessar mundir og
af því tilefni svaraði Einar
Örn Thorlacius nokkrum
spurningum Morgun-
blaðsins um fortíð, nútíð
og framtíð fyrirtækisins.
Rektu aðeins söguna,
hver stofnaði Fossberg,
hvenær og í hvaða mynd?
„Það var Gunnlaugur
Jónsson Fossberg vél-
stjóri, móðurafi minn, sem fór í
land á 3. áratug síðustu aldar og
stofnaði vélaverslun 27. mars
1927. Hann kenndi hana við sjálf-
an sig og nefndi hana G J Foss-
berg vélaverslun. Hann verslaði
með nauðsynjar fyrir vélstjóra
sem hann flutti aðallega inn frá
Danmörku. Verslunin hóf starf-
semi sína í Hafnarstræti 18 en
1935 var flutt á Vesturgötu 3.
1965 var flutt á Skúlagötu 63 en í
árslok 1999 á Suðurlandsbraut 14
þar sem verslunin er nú til húsa.
Við notuðum þá tækifærið og
styttum nafnið í Fossberg ehf.
sem er þjálla, enda hafa við-
skiptavinirnir aldrei talað um
annað en Fossberg.“
Á hvaða hátt hefur fyrirtækið
helst þróast í gegn um tíðina?
„Það sem gerir Fossberg
kannski dálítið merkilegt fyrir-
tæki er hvað það hefur haldið
fast við upphafið. Fossberg er
enn að mestu leyti í eigu Foss-
berg-fjölskyldunnar og selur enn
nauðsynjar fyrir vélstjóra! En
auðvitað hefur margt breyst.
Starfsemin byrjaði í litlu húsnæði
en nú erum við með verslun,
vörugeymslu, vélasýningarsal og
skrifstofur á 1550 fermetrum hér
á Suðurlandsbrautinni þar sem
B&L var áður. Og vöruúrvalið
hefur náttúrlega aukist gríðar-
lega. Þess má geta að hér hafa
einungis verið tveir forstjórar á
eftir stofnandanum, Bjarni R.
Jónsson sem stýrði fyrirtækinu
af mikilli reisn í 40 ár og svo ég.“
Fyrir hvað stendur Fossberg í
dag, hverjar eru helstu áhersl-
urnar?
„Við köllum okkur „stórmark-
að iðnaðarmannsins“, eða
kannski „sérverslun iðnaðar-
mannsins“. Þótt auðvitað séu all-
ir velkomnir til okkar þá eru það
málmiðnaðarmennirnir sem hafa
verið okkar menn öll þessi ár en
eftir að við fluttum á Suðurlands-
brautina og keyptum allar eignir
og vörubirgðir Iselco árið 2000
höfum við verið að bæta við okk-
ur trésmíðavélum og
trésmíðavörum. En
stærstu vöruflokkarn-
ir eru handverkfæri,
slípivörur, skurðverk-
færi, skrúfboltar, járn-
smíðavélar, öryggisvörur og
margt fleira.“
Er Fossberg ern öldungur?
„Já, ég tel okkur vera það. Við
erum í alveg frábæru húsnæði
hér á Suðurlandsbrautinni og
með gott starfsfólk, en margt af
því hefur starfað hjá okkur í
nokkra áratugi. Fossberg var að
fá fyrir nokkrum vikum einkaum-
boð fyrir Metabo-rafmagnsverk-
færi sem við erum ákaflega stolt-
ir af og flestir þekkja og fyrir
nokkrum vikum fengum við
sömuleiðis einkaumboð fyrir Opt-
imum-járnsmíðavélar með þeim
árangri að við höfum aldrei fyrr
haft fyrirliggjandi jafnmikið úr-
val af vélum.“
Hvernig stendur fyrirtæki á
þessu sviði af sér sveiflur í efna-
hagslífinu?
„Mér finnst nú oft að við séum
með fingurinn á púlsi efna-
hagslífsins. Við finnum afskap-
lega fljótt ef þrengir að og und-
anfarin misseri hafa verið frekar
dauf fyrir innflytjendur. Mér
finnst þó á allra síðustu dögum
að efnahagslífið sé að taka ein-
hvern kipp og nokkrar stórar söl-
ur í gangi hjá okkur. En við höf-
um staðið af okkur sveiflur í 75 ár
og ég held að við ættum að geta
það áfram.“
Eftir önnur 75 ár, hvar verður
Fossberg þá?
„Fossberg byrjaði smátt og
hefur vaxið hægt og rólega. Ég
held að Fossberg hafi alla burði
til þess í góðu húsnæði með gott
starfsfólk og gott vöruúrval, að
halda áfram að standa við bakið á
íslenskum iðnaði. Ég á mér raun-
ar ýmsa drauma um framtíð
Fossbergs en eigum við ekki
bara að láta verkin tala?“
Hvað á að gera til hátíðar-
brigða?
„Við bjóðum öllum
viðskiptavinum upp á
kaffi og konfekt á af-
mælisdaginn, þ.e. í dag
miðvikudag. Við höfum
opið frá 8 til 18 og bjóðum menn
innilega velkomna. Við verðum
með „sprengitilboð“ í gangi á
Darex-borbrýnivélum, 35% af-
sláttur, aðeins í dag. Svo eru auð-
vitað önnur tilboð í gangi. Annars
fer starfsfólkið til Parísar um
páskana og þar verður sérstakur
hátíðarkvöldverður á laugardag-
inn kemur. Við hlökkum mikið
til.“
Einar Örn Thorlacius
Einar Örn Thorlacius er fædd-
ur í Reykjavík árið 1958. Lauk
lagaprófi frá Háskóla Íslands
1983. Var varaformaður Vöku,
sat í stúdentaráði og var vara-
maður í háskólaráði á náms-
árunum. Að loknu prófi var Ein-
ar ráðinn til Fossbergs og varð
þar forstjóri 1989. Hann sat um
skeið í stjórn Neytendasamtak-
anna. Maki Einars er Sophie
Schoonjans, hörpuleikari frá
Belgíu, og eiga þau synina Bjart
og Magnús. Frá fyrra hjónabandi
á Einar eina dóttur, Sigríði.
…og hefur
vaxið hægt
og rólega