Morgunblaðið - 27.03.2002, Síða 16
SUÐURNES
16 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEISTARINN.IS
páskana
Um
Útgáfudögum Morgunblaðsins verður
fjölgað nú um páskana og kemur blaðið út
sunnudaginn 31. mars og
þriðjudaginn 2. apríl.
Áskriftardeildin verður opin á skírdag
kl. 6–14, á páskadag kl. 8–14 og
opnar kl. 6 á þriðjudagsmorgninum.
Hægt er að hafa samband í síma
569 1122 eða með því að
senda póst á askrift@mbl.is.
BANDARÍSKUR stálframleiðandi
hefur sýnt áhuga á að koma upp
stálpípugerð við Helguvíkurhöfn í
Reykjanesbæ. Eigendur fyrirtæk-
isins hafa átt í könnunarviðræðum
við fulltrúa stjórnvalda og bæjaryf-
irvalda og er reiknað með að hægt
verði að ljúka samningum á síðari
hluta ársins. Verði þessar hug-
myndir að veruleika munu 250
starfsmenn vinna við að framleiða
150 til 200 þúsund tonn af stálpíp-
um á ári í upphafi.
Bandarískt stálfyrirtæki hefur
verið að leita fyrir sér um aðstöðu
fyrir stálpípuverksmiðju í Evrópu,
meðal annars í Noregi og Svíþjóð.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir að fulltrúar
fyrirtækisins hafi haft samband við
Pétur Jóhannsson, hafnarstjóra hjá
Hafnasamlagi Suðurnesja, til að
kanna möguleika á slíkri aðstöðu í
Helguvík. Þar sé einmitt gert ráð
fyrir þungaiðnaði og hafnarstjórinn
hafi því svarað erindinu jákvætt.
Þurfa ekki sérlög
Tóku fulltrúar fyrirtækisins upp
könnunarviðræður við fulltrúa frá
Fjárfestingarstofunni, Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu Reykjanes-
bæjar og Hafnasamlagi Suðurnesja,
og síðar komu til skjalanna fulltrú-
ar iðnaðarráðuneytisins og lögmað-
ur Reykjanesbæjar. Hefur verið
farið í gegn um óskir bandaríska
fyrirtækisins og hvað í boði er í
Helguvík.
Samkvæmt upplýsingum Páls
Magnússonar, aðstoðarmanns iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, er ekki
gert ráð fyrir sérstakri aðkomu ís-
lenskra stjórnvalda að byggingu
verksmiðjunnar eða rekstri hennar
umfram þá aðstoð sem iðnaðarráðu-
neytið og Fjárfestingarstofan hafa
veitt Suðurnesjamönnum í samn-
ingaviðræðunum. Ekki er gert ráð
fyrir að framkvæmdin kalli á breyt-
ingar á lögum eða að leggja þurfi
fram sérlög vegna hennar. Hafna-
samlagið og Reykjanesbær muni
semja beint við erlenda fyrirtækið
um hafnargjöld og fasteignagjöld.
Falla undir tollahagræði EES
Hugmyndir bandaríska stálfyrir-
tækisins ganga út á það að reisa
stálpípuverksmiðju í Helguvík. Í
upphafi er stefnt að framleiðslu á
150–200 þúsund tonnum af pípum
til útflutnings á Evrópumarkað og
jafnvel á markað í Norður-Evrópu,
að sögn Inga G. Ingasonar, fram-
kvæmdastjóra á almennu sviði
Fjárfestingarstofu. Að sögn Ólafs
Kjartanssonar, framkvæmdastjóra
Markaðs- og atvinnumálskrifstofu
Reykjanesbæjar, er um að ræða há-
gæða stálpípur sem meðal annars
eru ætlaðar til nota í sérstökum
iðnaði. Reiknað er með að stálið
verði flutt inn frá Austur-Evrópu,
meðal annars frá verksmiðjum fyr-
irtækisins í Eystrasaltslöndunum,
en einnig víðar að. Framleiðsluferl-
ið er ekki orkufrekt. Ingi segir að
með því að framleiða pípurnar hér
njóti framleiðslan tollahagræðis á
Evrópumarkaði, í samræmi við
EES-samninginn.
Áætlað er að stofnkostnaður stál-
pípugerðarinnar verði um 4 millj-
arðar króna. Þar verða störf fyrir
um 250 manns.
Bandaríska fyrirtækið leitaði að
aðstöðu þar sem hægt væri að
koma fyrir hafnsækinni stóriðju við
höfn sem öruggt væri að lokaðist
ekki vegna ísa. Þá vildu fulltrúar
þess finna stað nálægt alþjóðlegum
siglingaleiðum fragtskipa sem fyr-
irtækið hyggst nýta sér. Ellert Ei-
ríksson bæjarstjóri segir að ákjós-
anlegar aðstæður séu í Helguvík
fyrir starfsemi af þessu tagi. Að
vísu geri fyrirtækið kröfu um að
geta byggt verksmiðju sína við
sjálfa höfnina og þurfi að sprengja
lóðina niður í hæð hafnarinnar.
Bæjarstjórinn er bjartsýnn
Ellert líst vel á verkefnið, segir
að þetta fyrirtæki muni skapa mikla
vinnu, ef það verður að veruleika,
og yrði góður greiðandi fasteigna-
gjalda. Þá yrði tilkoma verksmiðj-
unnar mikil lyftistöng fyrir Hafna-
samlagið sem verið hefur í
fjárhagsvandræðum undanfarin ár.
Höfnin gæti nú farið að standa und-
ir sér sjálf, þótt ekkert annað kæmi
til. Og Ellert er bjartsýnn á að
verksmiðjan muni rísa, segir að bú-
ið sé að leggja mikla vinnu í málið
og ekkert hafi komið fram sem
bendir til annars en að það geti
gengið.
Samkvæmt upplýsingum Páls
Magnússonar eru samningaviðræð-
ur við bandaríska stálfyrirtækið
komnar það langt að það hefur ráð-
ið sér íslenkt lögfræðifirma til að
vera sér innan handar við lúklingu
samninga. Að þeim loknum verði
drög að samningum lögð fyrir fjár-
mögnunaraðila verksmiðjunnar og
reikna megi með því að endanlegir
samningar gætu legið fyrir á síðari
hluta ársins.
Bandarískt stálfyrirtæki hefur áhuga á stórri verksmiðjulóð
Hyggjast framleiða
pípur til útflutnings
AP
Hráefnið kemur í stórum rúllum
og verður stálið valsað í pípur.
Helguvík
„SÝNINGARNAR eru alltaf að
verða betri og betri. Nú mega þeir í
Versló fara að vara sig,“ sagði
Gígja Eyjólfsdóttir, formaður Nem-
endafélags Grunnskólans í Grinda-
vík, en sýningar á stóru leikriti sem
unglingar í efstu bekkjum skólans
sjá um eru alltaf að verða betri og
betri.
Bergur Ingólfsson er leikstjóri
og handritshöfundur að „Gula
flamingóinum“ sem nú var settur
upp. Verkið byggist að nokkru
leyti á lögum og textum eftir
Bubba Morthens. Í upphafsatriði
leikritsins mæta leikarar á sviðið
með frystihúsasvuntur og syngja
1.000 þorskar á færibandi þokast
nær, lína sem einhverjir kannast
við úr textum Bubba. Annars er
söguþráðurinn í stuttu máli á þá
leið að hér greinir frá reiðum ung-
um manni að nafni Þór sem búinn
er að fá nóg af grámyglunni í litlu
sjávarþorpi þar sem hann býr.
Draumarnir snúast um að fara út í
heim og verða frægur. Guli flam-
ingóinn er skemmtistaður sem
sagður er stökkpallur upp í
stjörnuhimininn og þangað liggur
leið Þórs.
Moldar-Gnúpur enn á ferð
Auk þessa stóra leikrits voru
mörg góð atriði hjá miðstiginu en
yngri börnin voru með sína árshá-
tíð í síðustu viku með hefðbundinni
kökuveislu. Meðal atriða hjá mið-
stiginu var leikrit samið af einum
kennara skólans, Jóni Gröndal, og
byggist á sögu Moldar-Gnúps, ætt-
föður Grindvíkinga.
„Sagan styðst við brot úr sögu
Grindvíkinga og aðdragandinn
segir meðal annars frá því þegar
þeir Moldar-Gnúpur Hrólfsson og
æskuvinur hans, Þórir haustmyrk-
ur Vígbjóðsson, voru reknir frá
Noregi fyrir morð og rán. Fóru
ránshendi um bæi á Íslandi en voru
reknir frá Álftaverum fyrir að
drepa nokkra þræla og stela dóttur
eins bóndans. Þeir eru sem sagt á
ferð vestur með ströndinni með allt
sitt fólk, geitur, þræla og annað
sem búslóð fylgdi í þá daga. Við
grípum á þekktum þáttum en tök-
um okkur líka skáldaleyfi á köflum.
Mér finnst krakkarnir skila þessu
ljómandi vel,“ sagði Jón Gröndal.
Nú má Versló
fara að vara sig
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Þau léku í leikritinu um Moldar-Gnúp, f.v. Þorsteinn Finnbogason sem
sögupersónan, Erla B. Jensdóttir sem ambáttin Melkorka og Eiríkur M.
Reynisson sem lék Þóri haustmyrkur Vígbjóðsson.
Grindavík
HÚSAFRIÐUNARNEFND hefur
ákveðið að veita Reykjanesbæ 250
þúsund króna styrk vegna endur-
bóta á Fisherbúð í Keflavík og jafn
háa fjárhæð til endurbóta á Gömlu
búð sem einnig er í elsta hluta
Keflavíkur.
Greint var frá ákvörðun Húsa-
friðunarnefndar á fundi bæjarráðs
Reykjanesbæjar fyrir skömmu. Þar
kom einnig fram að nefndin hefur
samþykkt að Arinbjörn Vilhjálms-
son arkitekt annist ráðgjöf og eft-
irlit vegna endurbóta beggja
húsanna.
Ellert Eiríksson bæjarstjóri seg-
ir ánægjulegt að fá viðurkenningu
Húsafriðunarnefndar fyrir gildi
þessarra húsa. Hann segir að pen-
ingarnir verði notaðir til að und-
irbúa endurbygginguna, segir jafn-
framt ljóst að þeir dugi skammt en
vonast væri eftir frekari styrkjum á
næstu árum.
Einnig hefur komið fram að
Húsafriðunarnefnd styrki ekki end-
urgerð Duusgötu 2-4 þar sem það
verk hafi fengið framlög á fjár-
lögum.
Styrkur til endurbóta
á gömlum húsum
Keflavík
TÓNLEIKAR til styrktar óp-
erufélaginu Norðurópi verða
haldnir í Safnaðarheimili Kefla-
víkurkirkju föstudaginn langa,
klukkan 20.
Fluttar verða aríur úr ýms-
um óperum og fram koma
söngvararnir Dagný Jónsdótt-
ir, Elín Halldórsdóttir, Sigríður
Aðalsteinsdóttir, Hrólfur Sæ-
mundsson, Jóhann Smári Sæv-
arsson og Manfreð Lemke. Þá
leikur Anne Champert píanó-
leikari og tónlistarstjóri við rík-
isóperuna í Saarbrücken.
Tónleikar
til styrkt-
ar Norð-
urópi
Keflavík