Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 19
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Nægur snjór hefur verið í vetur á skíðasvæðinu í Tindastóli.
Í VESTANVERÐUM Tindastóli
liggur hið nýja skíðasvæði Skag-
firðinga, aðeins tíu mínútna akstur
frá Sauðárkróki.
Umsjónarmaður svæðisins, Viggó
Jónsson, gerði ráð fyrir að um
páskana mundi fjöldi gesta koma til
þess að bregða sér á skíði, enda um
nýjan stað að ræða, en aðeins þrjú
ár eru síðan svæðið var fyrst tekið í
notkun og margir hefðu haft sam-
band til þess að kanna hvenær yrði
opið um hátíðarnar.
Viggó sagði að um páskana yrði
mikið um að vera, nægur snjór og
troðnar brekkur og skíðaleiðir við
allra hæfi, hvort sem um byrjendur
væri að ræða eða þá sem sýndu
meistarataktana. Togbrautin, sem
er tæplega tólfhundruð metra löng,
skilar skíðafólkinu síðan í rúmlega
sjö hundruð metra hæð og þá er
snertispölur á topp Tindastóls.
Þá sagði hann að snjóbretta-
kappar hefðu góðar brekkur fyrir
sig og benti á að um hátíðirnar færi
fram brettakeppni, en einnig yrði
keppt í svigi og fleiri greinum svo
sem göngu, en skíðagöngufólk hef-
ur í æ ríkara mæli sótt á svæðið
enda um mjög fjölbreyttar göngu-
leiðir að ræða, sem njóta vaxandi
vinsælda og geta má þess einnig að
Tindastólsgangan sem fram fer um
páskana gefur stig til Íslandsmeist-
ara.
Á páskadag verður helgistund í
fjallinu, en hana annast sr. Guð-
björg Jóhannesdóttir sóknar-
prestur á Sauðárkróki.
Að aflokinni dvöl í fjallinu sagði
Viggó að aðeins væri tíu mínútna
akstur í sundlaugina á Króknum,
þar sem fólk gæti legið í góðum
nuddpottum eða í gufubaði til þess
að ná úr sér þreytunni.
Nægur snjór á skíða-
svæði Skagfirðinga
Sauðárkrókur
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 19
Í snertingu vi› flig
og páskana
Me› öllum seldum GSM-símum er
hægt a› velja á milli eftirfarandi*:
Símafrelsisstartpakki og 1.500 kr. inneign
Aukahlutapakki (ver›mæti 1.980 kr.)
2.000 kr. inneign í Símafrelsi
G
S
M
1.250 kr. næstu 12 mánu›i.
Færist á símreikning.
Nokia 3310
Léttkaupsútborgun
Ver›: 16.980 kr.
Léttkaup
Ver› á›ur: 18.001 kr.
fiú sparar: 1.021 kr.
kr.1.980
1.250 kr. næstu 12 mánu›i.
Færist á símreikning.
Motorola T191
Léttkaupsútborgun
Ver›: 16.980 kr.
Léttkaup
Ver› á›ur: 20.980 kr.
fiú sparar: 4.000 kr.
kr.1.980
*Á me›an birg›ir endast.
Tilbo›in gilda til 30. apríl í verslunum Símans um allt land
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
0
5
8
4
7
•
s
ia
.i
s
MAGNÚS Magnússon, skólastjóri
Tónlistarskólans á Egilsstöðum, af-
henti Tónskóla Ólafsfjarðar flygil að
gjöf frá Minningarsjóði um Magnús
Magnússon við hátíðlega athöfn í
Ólafsfjarðarkirkju nýlega. Flygillinn
er af gerðinni Yamaha Conservator-
ium og kostaði 1,6 milljónir króna.
Jakub Kolosowski, skólastjóri
Tónskóla Ólafsfjarðar, þakkaði hina
veglegu gjöf, og nokkrir nemendur
skólans léku á hljóðfærið.
Minningarsjóður um Magnús
Magnússon var stofnaður eftir að
Magnús féll frá árið 1980 af eigin-
konu hans, Sigríði Kristinsdóttur í
Garðshorni, og börnum þeirra hjóna,
Helgu, póstafgreiðslumanni í Ólafs-
firði, sem nú er látin; Magnúsi, sem
var fyrsti skólastjóri Tónskóla Ólafs-
fjarðar en er nú skólastjóri Tónlist-
arskólans á Egilsstöðum; Sigur-
sveini, skólastjóra Tónskóla Sigur-
sveins í Reykjavík, og Erni, píanó-
leikara og kennara við Tónskóla
Sigursveins.
Markmið sjóðsins er að styrkja
skóla í Ólafsfirði til kaupa á kennslu-
tækjum. Magnús bar mjög fyrir
brjósti skóla- og menningarmál í
bænum og vann ötullega að þeim.
Hann hafði einhvern tíma látið þau
orð falla innan fjölskyldunnar að
hann vildi heldur að sín yrði minnst á
annan hátt þegar hann félli frá en
með því að setja stein á leiðið. Við
þeirri ósk hefur Garðshornsfjöl-
skyldan orðið á myndarlegan máta.
Eftir athöfnina var boðið til kaffi-
samsætis í gamla safnaðarheimilinu.
Þar þakkaði Aðalbjörg Jónsdóttir
fyrir hönd nemenda Tónskólans og
Anna María Elíasdóttir fyrir hönd
Ólafsfjarðarbæjar. Óskar Þór Sigur-
björnsson kvaddi sér einnig hljóðs og
vakti athygli á fágætri ræktarsemi
Garðshornsfjölskyldunnar við Ólafs-
fjörð og hversu dýrmætt það er bæj-
arbúum að eiga slíka að, ekki aðeins
vegna efnislegra gjafa heldur einnig
þeirra sem ekki verða beinlínis metn-
ar til fjár. Þar nefndi hann til dæmis
Berjadaga, þar sem listamenn úr
fremstu röð hafa undanfarin þrjú ár
veitt bæjarbúum hlutdeild í list sinni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bæj-
arbúar njóta góðs af tilvist Minning-
arsjóðs um Magnús Magnússon.
Hinn 30. janúar 1987 barst sjóðnum
bréf frá Tónskóla Ólafsfjarðar þar
sem farið var fram á styrk til kaupa á
hljóðfæri og veitti sjóðurinn skólan-
um þá fyrsta framlag sitt, 40.000 kr.
Hinn 4. júlí 1991 samþykkti stjórn
sjóðsins að kaupa Petroff-flygil og
gefa hann gagnfræðaskólanum.
Hljóðfærið afhenti síðan Helga
Magnúsdóttir við hátíðlega athöfn í
skólanum hinn 18. ágúst 1991. Á eftir
hélt Örn Magnússon tónleika á nýja
flygilinn og var efnisskráin eingöngu
íslensk píanóverk.
Tónskóla Ólafsfjarð-
ar gefinn flygill
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Minningarsjóður Magnúsar
Magnússonar hefur gefið Tón-
skóla Ólafsfjarðar flygil að gjöf.
Á myndinni eru Magnús Magn-
ússon, Lidia Kolosowska og Jak-
ub Kolosowski.
Ólafsfjörður