Morgunblaðið - 27.03.2002, Síða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATLANTSSKIP hefja áætlunar-
siglingar á milli Íslands og Evrópu í
næsta mánuði. Atlantsskip munu
sigla á milli Rotterdam í Hollandi
og Kópavogs á 10 daga fresti. Með
Evrópusiglingunum verður Kópa-
vogur alþjóðahöfn.
„Við verðum ódýrari og ætlum að
leggja okkar af mörkum til þess að
stuðla að lægra vöruverði á Íslandi
og til baráttunnar gegn verðbólgu.
Við leggjum áherslu á góða þjón-
ustu og öryggi á hafinu,“ segir Stef-
án Kjærnested, framkvæmdastjóri
Atlantsskipa, í fréttatilkynningu. Í
samtali við Morgunblaðið segir
Stefán að stefnt sé að því að bjóða
allt að 20% lægri gjöld á sjófrakt en
á markaðnum almennt.
„Við stefnum að því að byggja
upp gott félag og yrðum mjög sáttir
með 5% markaðshlutdeild í Evr-
ópusiglingum en við siglum að sjálf-
sögðu áfram milli Íslands og Am-
eríku þar sem við erum með góða
markaðshlutdeild,“ segir Stefán
ennfremur.
„Við höfum ákveðið að taka slag-
inn í samkeppni á hafinu og
stefnum að því að bjóða viðskipta-
vinum okkar bestu verð, góða þjón-
ustu og viðkomu í Rotterdam og
Kópavogi á 10 daga fresti,“ segir
einnig í fréttatilkynningu.
Kópavogshöfn
besti kosturinn
Kópavogur verður alþjóðleg höfn
með Evrópuflutningum Atlants-
skipa sem flytja skrifstofur sínar og
1.000 fermetra vöruhús í Kópavogi
að Vesturvör 29 við hafnarbakkann
þar sem skip félagsins verða lestuð
og losuð. Mikil uppbygging hefur
verið undanfarin ár í Kópavogshöfn.
„Kópavogshöfn var valin vegna þess
að við vildum vera þar sem við gæt-
um haft framtíðarhöfn okkar. Þetta
töldum við vera besta kostinn eftir
að hafa skoðað bæði í Reykjavík og
Hafnarfirði. Þarna er mjög góð að-
staða, til dæmis er verið að und-
irbúa gámavöll sem er um tíu þús-
und fermetrar. Einnig er mjög góð
vöruskemma þarna sem við höfum
tekið á leigu. Þetta er allt sem við
þurfum. Kópavogur er einnig mið-
svæðis og við höfum trú á að bæj-
arfélagið sé ört vaxandi og miðja at-
hafnalífsins að færast hingað,“ segir
Stefán í samtali við Morgunblaðið.
Félagið hefur tekið skip á leigu í
Hollandi, Estime, sem ber 138
gáma, og var það sérstaklega smíð-
að árið 2001 fyrir siglingar á úthaf-
inu.
Estime siglir milli Kópavogs og
Rotterdam á 10 daga fresti. Þjón-
ustunet Atlantsskipa nær um alla
Evrópu. Tryggðar eru tíðar ferðir
milli Rotterdam og Immingham á
Englandi, Árósa, Gautaborgar, Var-
berg, Hamborgar, Cuxhaven og
Moss í Noregi. Þjónustunet Atl-
antsskipa nær einnig um Austur-
lönd fjær og Ameríku. Um 85% af
flutningum milli Íslands og um-
heimsins fara um Evrópu, 15% til
Bandaríkjanna.
Það hefur verið stefna Atlants-
skipa frá upphafi að hefja Evrópu-
siglingar. Nú eru rúm þrjú ár síðan
Atlantsskip hófu siglingar milli Ís-
lands og Ameríku. Með samningi
við flutningadeild Bandaríkjahers
árið 1998 hófu Atlantsskip að flytja
vöru fyrir Varnarliðið sem var
grunnurinn að stofnun félagsins.
Samanlagt annast Atlantsskip um
helming af öllum flutningum milli
Íslands og Ameríku, að því er fram
kemur í fréttatilkynningunni.
Atlantsskip hefja Evrópusiglingar frá Kópavogshöfn
Stefna að 20% lægra
gjaldi fyrir sjófrakt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsnæði Atlantsskipa við Kópavogshöfn.
PREMIUM Innheimtuvaktin ehf.
hefur tengst stærstu innheimtu-
þjónustu heims, TCM Group Int-
ernational, með samstarfssamningi
við TCM alþjóðainnheimtur á Ís-
landi. Í samstarfinu felst m.a. að
Premium mun sjá um sölu og
markaðssetningu fyrir TCM hér á
landi. Einnig að íslensk fyrirtæki
sem eru í viðskiptum við Premium
geta innheimt kröfur á hendur er-
lendum aðilum um viðskiptakerfi
TCM sem nær til um 108 landa en
TCM hefur starfsstöðvar í 70 lönd-
um.
„Þetta fyrirkomulag hentar ís-
lenskum fyrirtækjum mjög vel,
hvort sem það er í ferðaþjónustu,
fiskútflutningi eða öðru,“ segir Páll
Þór Jónsson, framkvæmdastjóri
Premium, í samtali við Morgunblað-
ið. „Viðskiptalöndum Íslands fer
fjölgandi með ári hverju. Viðskiptin
eru ekki bara innan Evrópu eða til
Bandaríkjanna heldur mun víðar.“
Engin eignatengsl eru enn sem
komið er á milli Premium og TCM.
TCM er upphaflega ástralskt fyr-
irtæki og var stofnað árið 1987.
Páll Þór segir að nokkur vand-
kvæði hafi verið á innheimtu krafna
sem fyrirtæki eiga gagnvart aðilum
utan við hefðbundin viðskiptalönd,
og jafnvel innan þeirra. Með sam-
starfi Premium og TCM verður
liðkað fyrir þessum samskiptum, að
sögn Páls.
Um 200 fyrirtæki eru nú í við-
skiptum við Premium, stór og smá,
en Premium var stofnað á síðasta
ári. Páll segir Premium leggja
mikla áherslu á að stunda samninga
og leysa úr málum á milli greiðenda
og kröfueigenda. „Það eru gríðarleg
vanskil hér á landi og innheimtufyr-
irtæki þurfa að sýna mikla lipurð,“
segir Páll.
Samstarf Premium og TCM
Stærsta
innheimtuþjón-
usta heims
Morgunblaðið/Sverrir
Aðstandendur Premium og TCM eru sitjandi, Vala Hauksdóttir frá TCM og
Sveinn Guðmundsson, stjórnarformaður Premium, Sigurbjörn Þorbergs-
son frá TCM, Kristján Már Unnarsson, sölu- og markaðsstjóri Premium, og
Páll Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Premium.
SPARISJÓÐURINN í Keflavík og
SPRON hafa tekið fyrsta skrefið að
hlutafélagavæðingu sparisjóðanna,
en aðalfundir beggja sjóða hafa sam-
þykkt áframhaldandi vinnu við að
undirbúa breytingu sjóðanna í hluta-
félög.
Aðalfundur Sparisjóðsins í Kefla-
vík var haldinn 14. mars og þar var
samþykkt að ljúka undirbúningi við
að breyta sjóðnum í hlutafélag fyrir
1. október nk. en þá verður endanleg
afstaða tekin.
Aðrir sparisjóðir ekki
jafnlangt komnir
Aðalfundur SPRON var haldinn
15. mars og var eftirfarandi ályktun
samþykkt á fundinum: „Aðalfundur
SPRON 2002 felur stjórn og spari-
sjóðsstjóra að vinna áfram að breyt-
ingu á rekstrarformi SPRON í hluta-
félag. Skal tillaga hér að lútandi,
gerð á grundvelli samrunaáætlunar
og niðurstöðu mats óháðs aðila um
áætlað markaðsvirði sparisjóðsins
og þar með um hlutdeild stofnfjár-
eigenda í heildarhlutafénu, lögð fyrir
fund stofnfjáreigenda þegar aðstæð-
ur eru hagstæðar að mati stjórnar.“
Aðrir sparisjóðir hafa ekki hafið
vinnu að hlutafélagavæðingu á sama
hátt og SPRON og Sparisjóður
Keflavíkur, samkvæmt upplýsingum
frá Sambandi íslenskra sparisjóða.
Sparisjóðir hafa heimild til að
breyta rekstrarforminu í hlutafélög
úr stofnfjárfélögum, samkvæmt
breytingum á lögum um viðskipta-
banka og sparisjóði sem samþykktar
voru sl. vor.
Aðferðin við hlutafélagavæð-
inguna er í grófum dráttum sú að í
upphafi er markaðsvirði sparisjóðs-
ins metið. Stofnfjáreigendur fá síðan
sama hlutfall hlutafjár og nemur
hlutfalli stofnfjár af áætluðu mark-
aðsvirði.
Sparisjóðurinn í Keflavík og SPRON
Vinna við
hlutafélaga-
væðingu hafin
KENNETH Peterson, eigandi Col-
ombia Ventures Corporation, móð-
urfyrirtækis Norðuráls á Grundar-
tanga, segir að markmiðið með
fjárfestingu sinni í Halló-Frjálsum
fjarskiptum, sé að halda áfram upp-
byggingu fyrirtækisins á sviði fjar-
skipta á öðrum sviðum en GSM-
símaþjónustu. Ekki séu áætlanir
uppi hjá fyrirtækinu um að fara inn á
það svið á næstunni.
Ingvar Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Halló-Frjálsra fjarskipta, seg-
ir að viðskiptavinir fyrirtækisins séu
um 14 þúsund talsins, bæði fyrirtæki
og einstaklingar. Nýlega hafi fyrir-
tækið orðið fyrir valinu til að sjá um
allt fastlínusímkerfi Hafnarfjarðar í
framhaldi af útboði bæjarins. Allar
stofnanir bæjarins verði á vegum
Halló. Reiknað sé með að tengingu
stofnana og fyrirtækja Hafnarfjarð-
ar við Halló verði lokið í júní næst-
komandi
„Við höfum byggt fyrirtækið upp
með það að leiðarljósi að geta boðið
upp á örugga vöru. Því einbeittum
við okkur í fyrstu að smærri fyrir-
tækjum. Í framhaldinu höfum við
hins vegar verið að fara inn í stærri
fyrirtækin.“
Ingvar segir að Halló hafi verið að
byggja upp sitt eigið símkerfi hægt
og sígandi með eigin símstöðvum.
Með tilkomu aukins hlutafjár í félag-
inu verði haldið áfram á þeirri braut
að byggja upp eigið fjarskiptanet
með öryggið í fyrirrúmi.
Viðskiptavinir Halló
eru um 14 þúsund