Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 26
LISTIR
26 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
A
D
S
L
I
N
T
E
R
N
E
T
G
S
M
H
E
I
M
A
S
Í
M
I
Verslun Kringlunni
Nokia 3310
Einfaldur og þægilegur sími sem er læstur á
farsímakerfi Íslandssíma.
Fermingar
fjölskyldunnar
í Kringlunni
tilboð
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
73
25
03
/2
00
2
Sagem MW 936
Nettur og ódýr WAP sími
sem er læstur á
farsímakerfi Íslandssíma.
6.000 kr. inneign
STRAX
5.900 kr.
MegADSL
256 Kb/s / 100 MB
Verð 2.900 kr.
600 MB
inneign í 3 mánuði
200 MB inneign á mánuði
1
2
15.900 kr.
6.000 kr. inneign STRAX
50% afsláttur
af stofngjaldi
3
LÍKLEGA eru þau fá leikritin
sem geta státað af lengri titli en
þetta en hvort hann er bein þýðing
eða hugarsmíð þýðandans kemur
ekki fram í leikskrá. Reyndar er
þess ekki getið í leikskrá hver er
þýðandi verksins og verður að gera
ráð fyrir að hann og höfundur leik-
gerðar séu einn og sami maðurinn.
Ekki kemur heldur fram í hverju
leikgerðin er fólgin nema átt sé við
lauslega staðfærslu og er þá frjáls-
lega farið með „leikgerð“ ef svo er.
Einn koss enn er hefðbundinn
misskilningsfarsi, þar sem aðalper-
sónan Jónatan hefur komið sér upp
því hentuga skipulagi í kvennamál-
um að halda við þrjár flugfreyjur
sem allar fljúga hver sína áætlunina
og Jónatan nýtur þess að hafa alltaf
eina þeirra undir sænginni meðan
hinar eru á flugi erlendis. En þetta
tekur enda þegar leikritið hefst þar
sem nýjar hraðfleygari þotur eru
teknar í notkun og áætlanir raskast
og þær eru að lenda í tíma og ótíma
hver ofan í aðra. Vinur Jónatans,
Róbert, kemur í heimsókn og er
fljótur að átta sig á aðstæðum og
gerir sitt besta til að hjálpa Jónatan
úr klípunni. Önnur hjálparhella er
Dísa, ráðskonan hans Jónatans, sem
er þó við það að fá sig fullsadda af
öllu saman.
Þetta er skemmtilegt leikrit og
leikhópurinn gerir úr þessu bráð-
skemmtilega sýningu undir mark-
vissri leikstjórn Rósu Guðnýjar. Yf-
irbragð sýningarinnar er raunsætt
en leikstíll nokkru ýktari, hraðinn er
góður en sérstaka athygli vakti
hversu skýr framsögn allra leikenda
var og skilaði sér nánast hvert ein-
asta orð textans. Þarna sannaðist
hið augljósa að hraði í leik er tækni-
legt fyrirbrigði og þarf ekki að bitna
á framsögninni. Er greinilegt að
reynsla Rósu Guðnýjar af gaman-
leik hefur skilað sér til leikhópsins
með afgerandi hætti.
Enn má telja til hróss hversu
skýrt mótaðar persónur leiksins eru
þrátt fyrir að persónusköpun höf-
undar bjóði ekki upp á mikla köfun í
sálardjúpin. Jónatan var ofur-
spenntur á barmi taugaáfalls allan
tímann án þess þó að Egill Pálsson
missti tökin og Guðmundur Karl
Ellertsson hélt vel utan um glæsi-
mennið Róbert sem vissi vel af sér
þótt hann væri engin sérstök mann-
vitsbrekka. Soffía Fransiska Rafns-
dóttir, Kristjana Emma Kristjáns-
dóttir og Anna Margrét Val-
geirsdóttir gerðu flugfreyjunum
þremur góð skil og tókst að gera
þær furðu ólíkar innbyrðis í hegðun
og töktum þrátt fyrir að segja megi
að um eitt og sama hlutverkið sé að
ræða, lítill munur á þeim af hálfu
höfundarins en því mikilvægara að
leikendur finni sér eitthvað til sem
greinir þær hverja frá annarri. Þar
hefur leikstjórinn örugglega lagt
þeim sitthvað til. Loks verður að
nefna Margréti Sigurðardóttur í
hlutverki Dísu ráðskonu en hún
„átti salinn“ á köflum og var vel að
því komin þar sem hún sýndi vel
hugsaðan og útfærðan gamanleik.
Af sýningu leikfélags Blönduóss
mega bæjarbúar og nærsveitamenn
hafa góða skemmtun um páskana og
vafalaust eitthvað fram eftir apríl-
mánuði.
LEIKLIST
Leikfélag Blönduóss
Höfundur: Marc Camelotti. Leikgerð: Sig-
urður Atlason. Leikstjóri: Rósa Guðný
Þórsdóttir.
EINN KOSS ENN OG ÉG SEGI EKKI ORÐ
VIÐ JÓNATAN
Með þrjár í takinu
Hávar Sigurjónsson
RÉTTINDASTOFA Eddu – miðl-
unar og útgáfu hefur gengið frá
samningum við Harvill Press um
útgáfu á Atómstöðinni eftir Halldór
Laxness í Englandi. Þá hefur verið
samið við Editoro Globo um að gefa
út Sjálfstætt fólk í Brasilíu, auk
þess sem sú bók kom nýverið á
markað í Hollandi og hefur hún nú
þegar verið endurprentuð.
Gefur einnig út verk
Saramagos og Nootebooms
Atómstöðin kom fyrst út í Bret-
landi árið 1961 í innbundnu formi
og í kilju. Magnús Magnússon þýddi
verkið. Sagan hefur verið ófáanleg
undanfarna fjóra áratugi í Eng-
landi en árið 1982 kom hún út hjá
litlu forlagi í
Bandaríkjunum.
Harvill Press er
meðal virtustu
bókaforlaga í
hinum ensku-
mælandi heimi
og gefur út verk
eftir marga af
helstu höfundum
samtímans, bæði
austan hafs og
vestan. Má þar
nefna Jose Saramago sem fékk bók-
menntaverðlaun Nóbels 1998 og
Cees Nooteboom sem hlotið hefur
bókmenntaverðlaun Evrópu. Áður
hefur forlagið gefið út Sjálfstætt
fólk og Brekkukotsannál.
Sjálfstætt fólk í Brasilíu
Sjálfstætt fólk kemur út á portú-
gölsku í Brasilíu hjá Editora Globo
en síðast var gefið út verk eftir
Halldór Laxness í því landi árið
1970 og var það Atómstöðin. Út-
gáfufyrirtækið Editoro Globo
stendur á gömlum merg en það var
stofnað árið 1883. Það gefur út
bækur, dagblöð, tímarit, myndbönd
og DVD-diska en meðal erlendra
höfunda á útgáfulista forlagsins
eru Marcel Proust, Sommerset
Maugham, George Orwell og Balz-
ac.
Seldist upp
á skömmum tíma
Sjálfstætt fólk gengur nú í end-
urnýjun lífdaga út um víða veröld.
Bókin kom út í Hollandi í febrúar sl.
en þar hefur hún ekki verið fáanleg
síðan fyrir síðari heimsstyrjöld.
Fyrsta prentun seldist upp á
skömmum tíma og er önnur prent-
un nú á leið í verslanir.
Þá er þess skemmst að minnast
að nýlega var greint frá því að
Gyldendal hefði keypt útgáfurétt-
inn á Sjálfstæðu fólki í Danmörku.
Sagan verður í fyrsta sinn gefin út í
einu bindi þar í landi á afmælisdegi
Halldórs Laxness, 23. apríl næst-
komandi, með formála eftir Uffe
Ellemann-Jensen fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Dana.
Atómstöðin kemur
út í Englandi
Hefur verið
ófáanleg í
fjörutíu ár
Halldór
Laxness