Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 35
STEFNUMÖRKUN Sam-bands íslenskra sveitarfé-laga í byggðamálum varkynnt í gær. Sambandið
leggur til að unnið verði að fram-
gangi byggðamála með það að
markmiði að búsetuskilyrði í land-
inu verði sem fjölbreytilegust og
standist á hverjum tíma samkeppni
um fólk við nálæg lönd og að byggð
dreifist sem víðast um landið.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður sambandsins, segir að vissu-
lega hafi ýmis viðkvæm mál verið
rædd í tengslum við tillögugerðina
en það sé þó ákaflega mikils vert að
tillögurnar hafi verið samþykktar
samhljóða þannig að sveitarfélögin
séu einhuga í stefnumörkuninni.
„Ég hef sagt að það sé mjög mik-
ilvægt að sveitarstjórnarmenn hafi
ákveðnar skoðanir á framvindu
mála sem með einum eða öðrum
hætti munu hafa áhrif á þróun
byggðamála og sveitarstjórnarstig-
ið í landinu. Ég tel að þeir eigi að
vera í forystusveit þeirra sem taka
slíkar ákvarðanir en eigi ekki bara
að bíða eftir því sem aðrir leggja
fram, með fullri virðingu fyrir slík-
um tillögum. Það tókst að ná góðri
sátt um stefnumörkun í byggða-
málum og þessi stefnumörkun er
að mínu viti bæði trúverðug og
raunhæf.“
Sameiningarmálin verði
tekin föstum tökum
Í tillögunum er m.a. tekið á sam-
einingarmálum sveitarfélaga og
segir þar að stefnt skuli að stækk-
un og eflingu þeirra. Unnið skuli að
því á fyrri hluta næsta kjörtímabils
að stækka sveitarfélögin með
frjálsum sameiningum og í þeirri
vinnu verði við það miðað að stærð
þeirra nái að minnsta kosti yfir
heildstæð atvinnu- og þjónustu-
svæði. Í tillögunni segir að náist
þetta markmið ekki á þeim tíma
skuli Samband sveitarfélaga beita
sér fyrir því, í samráði við ríkis-
valdið, að leitað verði annarra leiða
til þess að markmiðið náist fyrir
lok kjörtímabilsins 2006, þ.e. að
sveitarfélögin verði á bilinu 30–50
talsins. Vihjálmur segir að náðst
hafi mikill árangur í þessum efn-
um, sveitarfélögin hafi verið 204
árið 1990 en verði 105 í vor. Það
þurfi þó að gera enn betur og ljúka
þessu verkefni. Hann segir að
vissulega hafi verið nokkur styr um
þetta atriði en menn verði að hugsa
um hagsmuni heildarinnar. Mark-
miðinu megi t.d. ná með því að
hækka ákvæði um lágmarksíbúa-
tölu í sveitarfélagi með lögum frá
Alþingi. Það séu þó til fleiri en ein
leið en mestu máli skipti að þetta
náist fram í sem mestri sátt. Vil-
hjálmur tók fram að reynsla manna
af sameiningu sveitarfélaga til
þessa væri góð þótt ekki hefði hún
alltaf fallið öllum í geð.
Uppbygging kjarna á Ísafjarð-
arsvæðinu og Mið-Austurlandi
Þá er lagt til að skattalegum að-
gerðum verði beitt til þess að hafa
áhrif á byggðaþróun, s.s. í gegnum
tekju-, eigna- eða þungaskatt. Slíkt
þekkist í öðrum löndum í Evrópu
sem þó hafi ekki orð á sér fyrir að
brjóta gegn jafnræði á milli þegn-
anna. Vilhjálmur tekur fram að
þarna sé vissulega um viðkvæmt
mál að ræða en full ástæða sé til
þess að skoða þessa möguleika.
Lagt er til að byggt verði upp
öflugt þjónustu- og vaxtarsvæði á
Eyjarfjarðarsvæðinu sem valkost
við höfuðborgarsvæðið en í öðrum
landshlutum verði byggð upp öflug
þjónustu- og vaxtarsvæði, lands-
hlutakjarnar. Vegna stöðunnar í
búferlaflutningum innanlands verði
fyrst í stað lögð áhersla á uppbygg-
ingu slíkra kjarna á Ísafjarðar-
svæðinu og Mið-Austurlandi en
fólksflótti sé mestur þaðan.
Vilhjálmur segir mikilvægt að
tryggja samkeppnisgetu höfuð-
borgarsvæðisins gagnvart útlönd-
um þannig að þar geti þróast öflugt
alþjóðlegt atvinnu- og efnahagsum-
hverfi. Fyrir landið í heild sé mjög
mikilvægt að tryggja öflugt höfuð-
borgarsvæði. Tekið skuli fram að
skilgreining Sambandsins á áhrifa-
svæði höfuðborgar sé Reykjanes,
Vesturland og Suðurland þótt
áhrifa höfuðborgarsvæðisins gæti
mismunandi mikið eftir fjarlægð.
Stefnt að betri
nýtingu fjármuna
Samband sveitarfélaga leggur til
að endurskoðun á verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga verði hraðað
og samstarfsverkefnum fækkað á
sem flestum sviðum, svo sem í mál-
efnum fatlaðra, heilbrigðisþjón-
ustu, framhaldsskólum, tónlistar-
námi og húsnæðismálum.
Þá er lagt til að atvinnuþróun-
arstarf á landsbyggðinni verði end-
urskipulagt með það að markmiði
að þeir fjármunir sem til þess er
varið nýtist betur en nú er. Einnig
verði samvinna opinberra sjóða
sem vinna að eflingu atvinnulífs
aukin og kostir þess skoðaðir að
sameina þá í einn deildaskiptan
sjóð sem veiti fjármagni til ráð-
gjafar og hlutafjárþátttöku og
marki ákveðna stefnu um upp-
byggingu ákveðinna atvinnuþátta.
Morgunblaðið/Golli
Sigurgeir Sigurðsson, formaður nefndarinnar um byggðamál, og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nauðsynlegt að
ljúka sameiningu
sveitarfélaganna
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur
kynnt stefnumörkun í byggðamálum þar
sem m.a. var tekið á viðkvæmum málum
eins og sameiningu sveitarfélaganna, upp-
byggingu landshlutakjarna og skattamálum.
atvinnu-
kvarðanir
ingar bú-
r það svo,
r réttlæti
kannski
ð harðast
óðina inn í
ð komum
rir að at-
og þannig
að vaxta-
bankans?
alvöru að
ru í evru-
ið það að
t í löndum
ðu hentað
u sem við
höfum háð að undanförnu við
þensluna? Ég held ekki. Þvert á
móti sýnir reynsla okkar Íslend-
inga nú svo ekki verður um villst að
sveigjanleiki í hagstjórn er grund-
vallaratriði ef takast á að verja
efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinn-
ar,“ sagði Davíð.
Hafa tryggt mjúka
lendingu efnahagslífsins
Forsætisráðherra fjallaði einnig
um reynsluna af auknu sjálfstæði
Seðlabankans og forræði bankans
á vaxtaákvörðunum og sagði ekki
fara á milli mála að þeir sem um
vaxtamál véluðu innan bankans
teldu að hér hefði allt verið fyrir
löngu farið í bál og brand ef stýri-
vextir bankans væru þeir sömu og
stýrivextir Evrópska seðlabank-
ans. „Sú ákvörðun að auka sjálf-
stæði bankans, setja honum verð-
bólgumarkmið og fela honum
forræði yfir vaxtaákvörðunum var
einmitt byggð á þeirri forsendu að
þar með væri best tryggt að stefn-
an í peningamálum þjóðarinnar
væri í samræmi við efnahagsað-
stæður bæði í bráð og lengd.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar,
peningamálastefnan og ábyrg af-
staða aðila vinnumarkaðarins hafa
nú tryggt mjúka lendingu efna-
hagslífsins. Dregið hefur úr
spennu á vinnumarkaði, umskipti
hafa orðið á viðskiptajöfnuðinum,
gengi íslensku krónunar hefur
styrkst og haldist stöðugt og verð-
bólga nálgast nú óðfluga það mark
sem bankanum var sett að halda
henni innan. Það er því eðlilegt að
síðustu vikur og mánuði hafi mjög
verið horft til Seðlabankans og
vaxtaákvarðana hans. Þétt taum-
hald bankans var óumdeilanlega
nauðsynlegt á meðan hallaði undan
fæti. Nú er jafnara undir og því ber
að fagna að bankinn meti það svo
að vaxtalækkunarferill geti nú haf-
ist í þeim tilgangi að íslenskt efna-
hagslíf fái betra svigrúm til að vaxa
og dafna. Eins og fram kom hjá
formanni bankastjórnar hér áðan
mun bankinn þó fara að öllu með
gát, eins og honum er auðvitað
bæði rétt og skylt,“ sagði Davíð
Oddsson í ræðu sinni.
kkun stýrivaxta Seðlabankans í ræðu á ársfundi bankans
nvægi er að
í hagkerfinu
ði á ársfundi Seðlabankans að gott jafnvægi væri að
í að bankinn mæti það svo að vaxtalækkunarferill
það þyrfti yfirgripsmikið þekkingarleysi til að kom-
æti nokkru sinni endurspeglað íslenskan veruleika.
Morgunblaðið/Þorkell
na. Seðla-
umhverfi,
og Efna-
Evrópu,
um geng-
stundum í
æri sú að
ru sjálfum
i og geng-
il áhrif á
etur hins
orfa fram
áhrif sem
g. Tregða
vexti síð-
st áhyggj-
nnar. Þótt
muni líkast
oka þessa
anfarinna
æmt fyrir
og hefur
ðustu vik-
numarkaði
valdið því
að þessi skammtímasjónarmið hafa
vegið þyngra en ella í afstöðu Seðla-
bankans. Bankinn hefur talið það af-
ar mikilvægt að stuðla að því að
rauðu strikin haldi. Þá er það einnig
ljóst af þeim tölum sem hafa verið að
berast úr hagkerfinu allt til þessa, að
öldufaldur þenslu og spennu í efna-
hagslífinu reis hærra en áður var tal-
ið og hefur hnigið hægar og minna
en reiknað var með,“ sagði Birgir Ís-
leifur Gunnarsson.
Viðburðaríkt ár í fyrra
Birgir Ísleifur sagði í ræðu sinni á
ársfundinum að árið 2001 hefði verið
viðburðaríkt í sögu Seðlabankans.
Ný lög um bankann hefðu tekið gildi
og breytingar hefðu verið gerðar á
undirstöðum peningastefnunnar.
Hann sagði að með hinum nýju lög-
um hefði bankanum verið tryggt
fullt sjálfstæði til þess að beita
stjórntækjum sínum í þágu verð-
bólgumarkmiðs og að það væri lík-
lega mikilvægasta nýmælið í lögun-
um.
Þá sagði hann að þáttaskil hefðu
orðið í sögu gengismála og fram-
kvæmd peningastefnu á Íslandi þeg-
ar formlegt verðbólgumarkmið var
tekið upp á síðasta ári og horfið var
frá því að nota stöðugt gengi sem
millimarkmið og akkeri peninga-
stefnunnar. Stöðugt gengi hefði ver-
ið kjölfesta peningastefnunnar með
einhverju móti nánast alla tíð frá því
að krónan varð til sem sjálfstæður
gjaldmiðill, þótt sveigjanleikinn
hefði stundum verið svo mikill að
jaðraði við flot.
Um verðbólguhorfur sagði Birgir
Ísleifur að líkur hefðu aukist á að síð-
asta verðbólguspá Seðlabankans frá
því í byrjun febrúar mundi standast.
Sú staðreynd að gengi íslensku
krónunnar hefði lækkað um 2,32%
síðan verðbólguspáin var gerð yki
líkurnar á því að markmiðið um 2,5%
verðbólgu næðist á árinu 2003.
sfundi bankans í gær
ngis-
undir-
ðbólga
ið/Þorkell
i á árs-
að verð-
ars þess
a.
FORSVARSMENN fjár-
málastofnana, sem Morg-
unblaðið hafði samband
við, lýstu yfir ánægju
með boðaða lækkun á
stýrivöxtum Seðlabank-
ans í gær.
„Okkur líst afar vel á
ákvörðun Seðlabankans
um að lækka stýrivexti
um 0,5%, og teljum hana
hafa verið afar vel rök-
studda á ársfundi bank-
ans og tímabæra, eins og
fram hefur komið áður,“
segir Halldór J. Krist-
jánsson, bankastjóri
Landsbanka Íslands hf.
„Ég vil lýsa mikilli
ánægju með að ferill
vaxtalækkana er hafinn.“
Hann segir að Lands-
bankinn muni tilkynna
frekari vaxtalækkanir í
dag, sem í aðalatriðum
muni taka mið af því sem
Seðlabankinn hefur gert.
Árni Tómasson, banka-
stjóri Búnaðarbanka Ís-
lands hf., segir vaxta-
lækkun Seðlabankans í
samræmi við það sem
Búnaðarbankinn hafi ver-
ið búinn að leggja mat á
og hafi fylgt fram með til-
kynningu um lækkun
vaxta í síðustu viku. Svo
sé að sjá sem Seðlabank-
inn hafi metið stöðuna
með hliðstæðum hætti.
„Við höfum í hyggju að
fylgja eftir þessari lækk-
un, að svo miklu leyti sem
hún var ekki þegar komin
fram, í fyrri ákvörðunum
okkar. Þegar á heildina
er litið munum við fylgja
ákvörðun Seðlabankans
eftir í öllum meginatriðum. Inn-
lánsvextir munu sennilega ekki
lækka eins mikið en vaxtalækk-
uninni verður fylgt eftir að fullu í
öllu því sem máli skiptir varðandi
útlánin,“ segir Árni Tómasson.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka hf., segist fagna
þessu skrefi Seðlabankans, að
lækka vaxtastigið í landinu. Það
hafi að mati Íslandsbanka verið
tímabært í nokkurn tíma.
„Mikilvægt er að vextir
á peningamarkaði fylgi
eftir og lækki að sama
skapi,“ segir Bjarni. „Það
hefur ekki gerst í síðustu
tveimur vaxtalækkunum
Seðlabankans. Því hlýtur
það að vera Seðlabank-
anum keppikefli að búa
svo um hnútana að svo
verði nú. Leiðir til þess
snúa að því að auka pen-
ingamagnið í umferð.“
Bjarni segir að Seðla-
bankinn ákvarði vaxta-
stigið í landinu. Íslands-
banki muni fylgja
Seðlabankanum í vaxta-
lækkun hans. Ákvarðanir
um nákvæma útfærslu á
því verði væntanlega
teknar í dag.
Guðmundur Hauksson,
sparisjóðsstjóri SPRON,
segir að með vaxtalækkun
Seðlabankans sé komin
heilsteypt vaxtastefna,
þar sem allir aðilar vinni
að sama marki.
Hann segir ljóst að við-
skiptabankarnir hafi stig-
ið ákveðið skref í síðustu
viku er þeir tilkynntu fyr-
irhugaða vaxtalækkun
sína og nú styðji Seðla-
bankinn við þá viðleitni
þeirra. Þar með sé ljóst að
sparisjóðirnir muni fylgja
sömu línu. Vonandi verði
þetta til þess að framhald
verði á því að menn taki
höndum saman um að ná
niður verðbólgunni.
„Ég held að það skref
sem Seðlabankinn er að
stíga sé mjög raunsætt,“
segir Guðmundur. „Það
hefur náðst mikill árangur í að ná
niður verðbólgunni og ég tel að
það sé mikilvægt að allir gangi í
takt. Ég held að þetta sé viðleitni
til að skapa þá festu sem menn
vilja ná.“
Guðmundur segir að sparisjóð-
irnir muni lækka vexti með svip-
uðum hætti og á sama tíma og við-
skiptabankarnir, um
næstkomandi mánaðamót.
Árni
Tómasson
Halldór J.
Kristjánsson
Bjarni
Ármannsson
Guðmundur
Hauksson
Forsvarsmenn fjármálastofnana
Vaxtalækkun mun
taka mið af ákvörðun
Seðlabankans