Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 39

Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 39 hans aldrei bundinn við viðfangsefni þess, heldur horfði hann til framtíðar af góðri yfirsýn og hafði jafnræði keppinauta í samkeppni að leiðarljósi. Forsjárhyggja, miðstýring og einok- un voru honum ekki að skapi, slíkt fyrirkomulag taldi hann ekki til þess fallið að draga fram bestu kosti mannsins og þess vegna mannlegu samfélagi hvorki samboðið né til góðs. Ingvar gerði sér ekki far um að vera óvenjulegur maður, en það var hann á sinn hátt. Áhugamál hans spönnuðu mjög vítt svið, frá fé- lagsstörfum og þjóðmálum til list- greina og atvinnuþróunar, frá verald- legum málefnum til huglægra viðfangsefna. Hann var frjálslegur og hispurslaus í fasi, hafði skýra afstöðu til viðfangsefna líðandi stundar, var óvenju gestrisinn heim að sækja og naut þess að taka móti gestum. Ágæt- ir mannkostir Ingvars nýttust vel í er- ilsömum störfum sem honum voru fal- in af fyrirtæki hans og íbúum í Njarðvík og Reykjaneskjördæmi. Ég vil nota þetta tækifæri til að færa Ingvari Jóhannssyni þakkir fyrir vin- áttu, traust og gott samstarf, fórnfýsi og alúð við þau mörgu störf sem hann leysti af hendi á vegum Sjálfstæðis- flokksins. Ingvar Jóhannsson reyndist þeim vel sem til hans leituðu. Hann kærði sig ekki um að gefa gyllivonir eða vil- yrði um nokkurt það sem hann var ekki viss um að geta uppfyllt, en hann vann af ósérhlífni að framgangi þeirra málefna og erinda sem hann tók að sér að koma fram. Hann var góður fé- lagi, ærlegur og vænn maður sem ávann sér virðingu samferðamanna sinna. Að leiðarlokum flyt ég honum þakkir fyrir hreinskilni og sanngirni, fórnfýsi og dyggan stuðning við sam- eiginlegan málstað okkar, og góðan stuðning, tiltrú og trúnað við mig. Ég votta eftirlifandi eiginkonu Ingvars, Höllu Einarsdóttur, dætrum þeirra og fjölskyldu allri samúð og virðingu. Algóður guð veiti þeim huggun í harmi og honum góðar við- tökur í ríki hins hæsta. Árni Ragnar Árnason alþm. Fyrir nokkru átti ég samtal við vin minn Ingvar Jóhannsson. Ég gat ekki heyrt að neitt fararsnið væri á honum. En nú er hann snögglega allur og við sem höldum lífsgöngunni áfram höf- um verið minnt á það að enginn ræður sínum næturstað. Ingvar Jóhannsson var fæddur Reykvíkingur og þar ólst hann upp í foreldrahúsum og hóf ungur vél- stjóranám. Skömmu eftir að hann út- skrifaðist sem vélfræðingur frá Vél- skólanum í Reykjavík 1954 fluttist hann ásamt eiginkonu sinni Sigríði Höllu Einarsdóttur hárgreiðslumeist- ara suður til Njarðvíkur og þar syðra var síðan fjölþættur starfsvettvangur hans. Þar gerðist hann einn af stofn- endum Keflavíkurverktaka og var í forystu þess fyrirtækis til skamms tíma og framkvæmdastjóri fagdeildar sinnar, JPK, til ársins 1999. Ingvar var mikill félagsmálamaður og kom víða við á vegum samtaka iðn- aðarmanna. Hann var og mikill áhugamaður um sveitarstjórnarmál og landsmálin lét hann til sín taka. Hann var fljótt kominn í forystusveit sjálfstæðismanna þar syðra og þar lágu leiðir okkar saman þegar mér voru falin trúnaðarstörf af hálfu sjálf- stæðismanna í Reykjaneskjördæmi til setu á Alþingi haustið 1959. Í hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps var Ingvar kosinn 1966–70 og aftur 1974, í síðustu hreppsnefndina sem undirbjó og vann að lögfestingu kaup- staðarréttinda fyrir Njarðvík 1975. Hann sat síðan í bæjarstjórn Njarð- víkur til 1982 og var kjörinn fyrsti for- seti bæjarstjórnarinnar 1976. Til liðs við okkur sjálfstæðismenn sem á Al- þingi sátum fyrir kjördæmið kom hann 1971 til 1978 og gegndi tvívegis þingmennsku á þeim tíma sem vara- þingmaður. Þakka sjálfstæðismenn störf hans öll nú að leiðarlokum. Samstarf okkar Ingvars leiddi til vináttu okkar í milli sem var mér mik- ils virði. Hreinskiptni hans og heið- arleika var viðbrugðið og ávallt var hann reiðubúinn til að aðstoða og gefa góð ráð. Ég fann það vel að hann naut ávallt aðstoðar konu sinnar Höllu í öll- um störfum sínum og félagsmálum. Þau voru mjög samhent og nutu þess að rækta saman garðinn sinn, hvort heldur það voru dæturnar fjórar og fjölskyldur þeirra eða umhverfið við sumarhúsið þeirra fyrir austan fjall. Þegar Ingvar Jóhannsson nú er genginn kveðjum við Sigrún og fjöl- skylda okkar góðan vin með virðingu og þakklæti. Við sendum Höllu, dætr- unum og fjölskyldum þeirra samúðar- kveðjur og biðjum Ingvari Guðs blessunar á landi lifenda. Matthías Á. Mathiesen. Ég var með Ingvari á lionsfundi í Lionsklúbbi Njarðvíkum fyrir tveim- um vikum. Það geislaði af honum já- kvæðnin eins og ævinlega og ekki að sjá að kveðjustundin væri svo nærri. Hann var einn af stofnfélögum Lions- klúbbs Njarðvíkur og ötull félagi sem aldrei lét sitt eftir liggja. Þegar við Sóley og dætur okkar fluttumst til Njarðvíkur var það eitt það fyrsta sem við gerðum að þiggja heimboð hjá þeim Ingvari og Höllu. Þau voru miklir höfðingjar heim að sækja og veittu ævinlega af fádæma örlæti. Ingvar var afskaplega frændrækinn maður og lá hvergi á liði sínu ef hann gat rétt frændfólki sínu hjálparhönd. Hann var mikill Njarðvíkingur og hafði gaman af því að geta rakið ættir sínar til þeirra andans manna sem bjuggu í Innri-Njarðvík á öldum áður, Sveinbjarnar Egilssonar og fleiri. Það var honum því kærkomið að vera í forystu um að reist yrði minnismerki um þann merkismann í Innri Njarð- vík. Ingvar var óvenju athafnasamur maður og óhræddur að taka áhættu í viðskiptum og mikill frumkvöðull. Hans fjárfestingar voru hugsaðar til að styrkja atvinnulífið á Suðurnesj- um. Eitt það síðasta sem hann kom nærri var að fá fjármagn í nýtt fyr- irtæki í lífefnaiðnaði. Ingvar sá mikla möguleika í lífefnaiðnaðinum og taldi hann kjöraðstæður fyrir slíka starf- semi einmitt á Suðurnesjum. Störf Ingvars á hinum pólitíska vettvangi fyrir Njarðvík og Sjálfstæð- isflokkinn voru einnig mikil og farsæl, bæði í bæjarstjórn en hann sat einnig sem varamaður á Alþingi. Fyrir mig hefur verið ómetanlegt að eiga Ingvar að, hans jákvæða af- staða til mála og mikil reynsla hefur skipt þar miklu. Það er því skarð fyrir skildi þegar Ingvars nýtur ekki lengur við. Þar fer einn af arkitektum uppbyggingarinn- ar á Suðurnesjum, maður sem gaf líf- inu lit. Ég og fjölskylda mín þökkum samfylgdina og vottum þér, Halla mín, og fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Ingvars Jóhannssonar. Kristján Pálsson. Í dag kveð ég vin minn og heið- ursmanninn Ingvar Jóhannsson, Ingvar fæddist í Reykjavík 26. maí 1931, þar ólst hann upp og menntaði sig. Ingvar flutti til Njarðvíkur um 25 ára aldur og þar bjó hann öll sín bestu ár og var samgróinn Njarðvík og Njarðvíkingum. Hann stofnaði ásamt öðrum iðnaðarmönnum á Suðurnesj- um Keflavíkurverktaka 1957 og varð framkvæmdastjóri JPK og var það til ársins 1999. Auk starfa sinna við fyr- irtækið var Ingvar kappsamur og áhrifamikill í alls konar félagsmálum. Hann var snemma meðal fremstu for- ustumanna Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík, þar gegndi hann fjölda starfa, í stjórn sjálfstæðisfélagsins, formaður fulltrúaráðs Gullbringu- sýslu. Ingvar var um árabil í hrepps- nefnd Njarðvíkur og var oddviti hreppsins 1974 til 1976 og þegar Njarðvík fékk kaupstaðarréttindi 1. janúar 1976, varð Ingvar fyrsti forseti bæjarstjórnar. Ingvar gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. í byggingar- nefnd, einnig var hann fulltrúi Njarð- víkur í samstarfsnefnd um skipulag fyrir Njarðvík, Keflavík og Keflavík- urflugvöll. Ingvar var í framboði til Alþingis í Reykjaneskjördæmi 1971 og sat varamaður á alþingi 1971 og 1976. Ingvar var um árabil í stjórn Iðn- aðamannafélags Suðurnesja og í stjórn Landssambands iðnaðar- manna 1967 til 1973, hann var einnig í stjórn Útflutningsmiðstöðvarinnar frá 1971. Ingvar var einn af stofnendum Lionsklúbbs Njarðvíkur 1958 og hef- ur allar götur síðan verið með árvökr- ustu og duglegustu félögum í klúbbn- um og hann missti ekki úr marga fundi á þessum 44 árum. Ingvar var ávallt ákaflega hug- myndaríkur og eftirtektarsamur. Það var t.d. Ingvar Jóhannsson, sem vakti fyrstur manna athygli á olíumengun á Keflavíkurflugvelli og gæti verið hættulegt fyrir vatnsbólin fyrir Njarðvík og Keflavík. Ingvar fylgdi þessu máli vel eftir og varð til þess að málin voru brotin til mergjar þótt það tæki nokkur ár. Lok þessara mála eru nú kunn, olíutankar voru aflagðir á Keflavíkurflugvelli, olíuhöfn og tank- ar í Helguvík, ný vatnsveita komin í Njarðvík, Keflavík og Keflavíkurflug- völl og nú einnig í Sandgerði. Sá veld- ur miklu sem upphafinu veldur. Invar var einstakur drengskapar- maður, vinátta okkar, samstarf og samvinna varði nær 40 ár. Allan þenn- an tíma heyrði ég Ingvar aldrei halla á nokkurn mann og hann var alltaf umtalsgóður um alla menn, hvort heldur var um almenna borgara eða stjórnmálaandstæðinga. Síðast þegar við hittumst fyrir ör- fáum dögum þá ræddum við um ýmsa hluti og náttúrlega pólitík. Þá kom fram hjá Ingvari vini mínum, að hann gladdist mikið yfir því, að Rósa, dóttir hans hafði gefið kost á sér til fram- boðs í Reykjanesbæ. Ég samgladdist vini mínum og taldi þarna hafa vel til tekist. Þegar ég nú kveð vin minn, viljum við Sigga senda þér, elsku Halla, dætrunum og öðrum ættingjum inni- legar samúðarkveðjur. Sé góðs manns getið, munum við Ingvar Jóhannsson. Guð blessi ykkur öll. Albert K. Sanders. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Það þyrmdi yfir mig þegar mér barst sú fregn að góður vinur minn væri látinn. Erfitt er að trúa því að við eigum ekki eftir að sjást aftur í þessu lífi. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan við vorum að spjalla saman og hann sagði mér áhugasamur frá fram- tíðaráformum, hitaveituframkvæmd- um í sumarbústað og fleiru. Hann sagði að þau hjónin hefðu verið þar nokkra daga nýlega og áréttaði að vetrardvöl væri ekki síður yndisleg en sumardvöl. Með mikilli vinnu hafa þau skapað sér sannkallaðan drauma- stað við Álftavatn. Ingvar kom víða við á lífsleiðinni. Hann var vélfræðingur að mennt og vann við það á yngri árum þar til hann gerðist stofnandi og framkvæmda- stjóri Járniðnar- og pípulagninga- verktaka Keflavíkur sem hann stjórn- aði mestan hluta ævi sinnar. Stjórnmál voru honum hugleikin og var hann í forystusveit sjálfstæð- ismanna í Njaðvíkum. Einnig starfaði hann í mörgum félögum á Suðurnesj- um og var ætíð í fararbroddi og sterk- ur liðsmaður. Hin margvíslegu störf hans í bæjar- og félagsmálum Njarð- víkinga og það hugarþel sem hann bar til bæjarins sýndi glöggt að hann vildi veg Njarðvíkinga sem mestan, enda hafði hann gaman af því að geta rakið ættir sínar til Egils ríka í Njarðvík. Ingvar hafði mikinn áhuga á hvers konar framförum og nýsköpun, og því að láta eitthvað gott af sér leiða. Ég minnist þess að á hans yngri árum gerði hann út, ásamt öðrum, frysti- flutningabíl sem var nefndur ,,Jói“. Einnig stóð hann að fiskútflutningi með flugi ásamt plastkassafram- leiðslu til þeirra nota. Hann var einnig með kanínurækt og stofnaði Kanínu- miðstöðina ásamt félögum sínum. Hann var ætíð óhræddur við að leggja á nýjar brautir. Ingvar byggði sér glæsilegt ein- býlishús á Hlíðarvegi 3 í Ytri-Njarð- vík. Þar átti hann fallegt heimili og bjó þar mestan hluta ævinnar í faðmi fjölskyldunnar. Vegna starfa Ingvars var oft fjölmennt á heimilinu. Hjónin voru gestrisin, með gott hjartalag, enda alltaf reiðubúin að hjálpa öðrum. Ingvar sagði oft við mig að gæfa sín hefði verið að hann eignaðist yndis- lega konu, enda er ekki hægt að minn- ast hans án Höllu, svo náin voru þau. Þau eignuðust fjórar elskulegar dæt- ur sem nú eru vel giftar og eiga mörg börn sem Ingvari þótti mjög vænt um. Ég þakka langa vináttu sem aldrei féll skuggi á og bið guð að styrkja Höllu og afkomendur þeirra. Áki Gränz. Vinur okkar, Ingvar Jóhannsson, er látinn. Hann og Halla, kona hans, voru meðal þeirra fyrstu sem við kynntumst er við fluttum á Suðurnes þegar Fjölbrautaskóli Suðurnesja var stofnaður haustið 1976. Ingvar var þá einn fremsti forystu- maður í málefnum Njarðvíkur, var síðasti oddviti hreppsins og fyrsti forseti bæjarstjórnar en jafnframt drifkraftur á öðrum sviðum fé- lagslífs. Hann var fulltrúi Njarðvíkinga í fyrstu skólanefnd Fjölbrautaskólans sem var mjög samhent og metnaðar- full. Í málefnum skólans var Ingvar áhugasamur og þróttmikill, fram- sýnn og tillögugóður. Fyrirtæki hans gaf skólanum margar stórgjafir, einkum tækjabúnað til verklegrar kennslu í málmiðngreinum. Undrun og aðdáun margra vakti að ágreiningur virtist hvergi spilla samstöðu í velferðarmálum Suður- nesjamanna. Ingvar var í fremstu röð í farsælum leiðtogaflokki manna með ólíkar stjórnmálaskoðanir sem ein- huga gekk fram og enginn níddi ann- an. Öll voru þau fyrst og fremst Ís- lendingar í hug og hjarta. Ingvar var drengur góður, alltaf fljótur að rétta fram hjálparhönd þegar þurfti, tryggur, vinfastur og hlýr. Hann hvatti og studdi son okk- ar, Böðvar, dyggilega þegar hann steig sín fyrstu skref í pólitík og var ætíð metnaðargjarn fyrir hans hönd. Ingvar var mikill fjölskyldumaður. Halla var svo mikill hluti af lífi hans að vart er unnt að tala um annað þeirra án þess að hitt nafnið fylgi. Við minnumst margra ánægjustunda með þeim hjónum þótt þeim hafi fækkað eftir að leið okkar allra lá á heimaslóðir í Reykjavík. En við fylgdumst með högum þessa vina- fólks. Í hvert sinn sem við heyrðum þau eða sáum komu okkur Njarðvík- urárin í hug. Svo nátengdur var Ingvar því byggðarlagi. Hann verður í dag jarðsettur í kirkjugarðinum í Innri-Njarðvík. Við sendum Höllu, dætrum þeirra fjórum og öðrum vandamönnum hug- heilar samúðarkveðjur. Guðrún Erla Björgvinsdóttir, Jón Böðvarsson. Athafnamaðurinn, félagi minn og vinur, Ingvar Jóhannsson, er látinn. Þegar hringt var í mig og mér tjáð að Ingvar hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu kom fram í hugann, þeg- ar ég hafði hitt Ingvar síðast. Það var á síðasta Lionsfundi, þegar honum var afhent 70 ára afmælisgjöf frá Lionsfélögum. Þá sagði hann við okk- ur félagana, að heilsan væri góð og hann ætlaði að njóta lífsins þangað til yfir lyki. Enginn veit hvenær kallið kemur, en svo mikið er víst að Ingv- ari er ætlað stórt hlutverk hjá Guði föður okkar. Þegar Ingvar og Halla fluttu til Njarðvíkur fór Ingvar strax að starfa í forustusveit Sjálfstæðisflokksins enda mjög kraftmikið og víðsýnt leið- togaefni á ferðinni. Það var mikill fengur fyrir okkur sjálfstæðismenn í Njarðvík að fá þennan duglega liðs- mann í okkar raðir. Hann var strax valinn í fulltrúaráð flokksins. Þá var hann einnig formaður Sjálfstæðis- félags Njarðvíkur, formaður kjör- dæmaráðs og varaþingmaður. Hann var kjörinn í sveitarstjórn Njarðvík- ur og síðar í bæjarstjórn Njarðvíkur. Ingvar var fyrsti forseti bæjarstjórn- ar Njarðvíkur eftir að Njarðvík fékk kaupstaðarréttindi. Hann var mjög duglegur og framsýnn bæjarfulltrúi og lét verkin tala. Fyrir hönd okkar sjálfstæðis- manna vil ég nota tækifærið og þakka Ingvari á þessari kveðjustund fyrir allt hans fórnfúsa starf í þágu flokksins hér í Njarðvík og víðar. Ingvari verður seint þakkaður stuðn- ingurinn við endurbæturnar á Sjálf- stæðishúsinu í Njarðvík. Við viljum votta Höllu og fjölskyldu innilega samúð á þessari erfiðu kveðjustund. Megi góður Guð styrkja ykkur á þessari sorgarstund. Minningin um góðan eiginmann, föður, félaga og vin mun lifa með okkur um aldur og ævi. Hvíl í friði, kæri vinur og félagi. Ingólfur Bárðarson, formaður Sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings. Mig langar að minnast Ingvars Jó- hannssonar fyrir hönd föður míns, Guðmundar Einarssonar. Vinátta Ingvars og föður míns spannar um hálfa öld en þeir kynnt- ust er þeir störfuðu báðir hjá Sam- einuðum verktökum á Keflavíkur- flugvelli í byrjun sjötta áratugarins. Þeim varð fljótt vel til vina og reynd- ist Ingvar föður mínum alla tíð ein- hver besti og traustasti vinur sem hann hefur átt. Djúp virðing og ein- læg vinátta einkenndi samskipti þeirra alla tíð og þó langur tími gæti liðið á milli þess að þeir töluðu saman var ávallt eins og þeir hefðu hist í gær. Það þarf sterk vinabönd til að viðhalda samskiptum yfir svo langan tíma. Þó leiðir þeirra hafi fljótlega skilið atvinnulega séð þá störfuðu þeir saman um árabil í stjórn JPK, en fyrirtækið naut farsællar stjórnar Ingvars sem framkvæmdastjóra í áratugi. Sjálfur minnist ég Ingvars sem hlýlegs og viðkunnanlegs manns sem ávallt var gaman að hitta og spjalla við. Hann bar hagsmuni JPK ávallt fyrir brjósti en jafnframt voru hon- um atvinnumál á Suðurnesjum hug- leikin. Ingvar átti þátt í ýmsum merkum verkefnum sem lutu að ný- sköpun atvinnulífs. Hann var óragur að taka áhættu og hafði þann hæfi- leika að geta hugsað eins og frum- kvöðull, jafnframt því að stýra JPK farsællega í daglegum rekstri. Ég veit að faðir minn vill þakka Ingvari og Höllu margar góðar stundir og minningar, þau hafa verið góðir félagar og fyrir það er hann þakklátur. Fyrir hönd hans og fjölskyldunnar votta ég Höllu og fjölskyldu, einlæga samúð. Megi minningin um góðan dreng styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minning Ingvars Jó- hannssonar. Guðmundur Guðmundsson. Sumir hafa þann eiginleika að taka forystu hvort heldur í orði eða verki, verða alls staðar leiðandi og ráðandi. Þannig var Ingvar Jóhannsson. Hann kom mér ávallt fyrir sjónir sem staðfastur og ákveðinn, sannfærður um það sem hann var að gera. En hann var jafnframt sanngjarn og réttsýnn og því tilbúinn að hlusta á aðrar skoðanir og taka ákvarðanir – jafnvel breyta ákvörðunum – ef rök sem fyrir máli voru færð voru bæði haldgóð og sterk. Ingvar var einn þeirra sem börð- ust fyrir stofnun Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þá sem fyrsti forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur. Fyrir hans tilstuðlan og annarra var faðir minn ráðinn til skólans, sem varð til þess að fjölskylda mín flutti til Njarð- víkur 1976. Ég minnist Ingvars frá þeim árum vegna vinatengsla þeirra hjóna við foreldra mína. Síðar rædd- um við oft saman vegna sameigin- legra skoðana okkar í pólitík og var hann ætíð tilbúinn til slíkra umræðna þrátt fyrir að beinum afskiptum hans af bæjarmálum hafi lokið nokkrum árum áður en ég fór að gefa þeim málum gaum. Árið 1993 var hann svo einn nokk- urra úr hópi eldri meistaranna í flokknum sem hvöttu mig eindregið til framboðs í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Njarðvík. Stuðningur Ingvars og hvatning skiptu miklu í þeirri ákvörðunartöku enda var sá stuðningur ótvíræður og eindreginn – bæði í orði og verki. Alloft ræddum við saman meðan ég var að stíga mín fyrstu skref á sviði sveitarstjórnamála og var hann ávallt fús að miðla af reynslu sinni og þekkingu á því sviði. Samskipti okkar voru þó lítil hin síðustu ár eftir að þau hjón fluttust til Reykjavíkur. Með Ingvari er genginn harðdug- legur maður, ákveðinn og fylginn sér. Að slíkum mönnum er alltaf sjónar- sviptir. Höllu, dætrum og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Böðvar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.